Morgunblaðið - 16.02.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.02.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1990 23 Ragnar Kjartansson í sakadómi í Hafskipsmáli: Segist hafa talið fram til skatts 2/s þess sem ákæra kalli fjárdrátt ÁFRAM var haldið að yfírheyra í Hafskipsmálinu í sakadómi í gær. Björgólfiir Guðmundsson og Ragnar Kjartansson voru spurðir um ákæruliði sem fjalla um ætlaðan íjárdrátt af sérstökum tékka- reikningum og bókhaldsóreiðu við meðferð þeirra. Þeir hafa báðir mótmælt sakargiftum og talið sér heimilt að nota tékkareikningana með þeim hætti sem gert var, samkvæmt starfskjarasamningi hafí þeim verið heimil 60% uppbót ofan á föst laun til greiðslu á ýmsum kostnaði sem óbeint hafi leitt af starfi þeirra og af reikningnum hafi einnig verið greiddur ýmis beinn útlagður kostnaður vegna Hafskips. Þá hafi þeir átt háar innistæður vegna ágóðaþóknunar sem samið hefði verið um við stjórn félagsins og hefði fyrst miðast við 2%, síðan 3,5% og loks 2,5% af rekstrarafkomu félagsins. Þeir hafi borið ábyrgð á meðferð reikninganna, fylgiskjölum eða úttekt- um og í þeirra mat hafi verið lagt vegna hvers væri greitt af þeim. Ragnar Kjartansson sagði í gær að samkvæmt samningi við stjórn félagsins hefði sér verið heimilt að stofna til persónulegra útgjalda með útgáfu tékka á þessum reikn- ingi svo lengri sem það var innan 60% markanna. Oft hefði verið óljóst eða á jaðrinum hVort færa ætti kostnað á hann persónulega eða á fyrirtækið enda væri oft erf- itt að greina á milli. Ragnar sagðist hafa vitað að hann ætti inni hjá félaginu stórar innistæður vegna ágóðaþóknunar liðinna ára og hefði hann fengið árlega upplýsingar um stöðu þeirra mála hjá endurskoðanda félagsins. Sá hefði einnig verið skilningur stjómar félagsins enda hefði hún átt frumkvæði að því að hluta inni- stæðnanna var breytt í hlutafé. Ragnar gerði samanburð á ákæru gegn sér og Björgólfi Guð- mundssyni hvað varðaði fjárdrátt af hinum sérstöku tékkareikning- um. Ákæra gegn Björgólfi hljóði uppá rúmlega 6,7 milljónir króna en rúmar 2 milljónir til vara. Gegn sér sér ákært fyrir 867 þúsund króna fjárdrátt en engin tala sé sett til vara enda hefði þá með sömu aðferð og beitt var gegn Björ- golfi fengist sú niðurstaða að hann ætti inni hjá félaginu 3,7 milljónir króna. Ragnari er gefið að sök að hafa á árunum 1981 til 1984 dregið sér með 15 tékkum af hinum sérstaka tékkareikningi sínum um það bil 650 þúsund krónur og nýtt sér féð ýmist til eigin þarfa eða annarra óviðkomandi Hafskip. Sjö tékkanna eru vegna endurgreiðslu á vaxta- kostnaði við hlutafjáraukningu hans í félaginu og einn tékki er vegna samskonar útgjalda fyrir Björgólf Guðmundsson. Um þessa tékka sagðist Ragnar hafa talið sér heimilt að endurgreiða sér vaxta- kostnað sem jaðarkostnað enda hefði eingöngu stofnast til útgjald- anna vegna starfa hans við fyrir- tækið. Einn tékka er vegna hluta kostnaðar við brúðkaupsveislu dóttur Ragnars, en Ragnar sagði þar um handvömm að ræða í færslu í raun væri um skuldajöfnuð að ræða. Þá er þarna að finna 120 þúsund króna úttekt sem fyrir milli- göngu Alberts Guðmundssonar rann til greiðslu á sjúkrakostnaði vegna Guðmundar J. Guðmunds- sonar. Um það sagði Ragnar að fyrirtækið hefði stutt ýmis góð málefni og greitt kostnað við hann út af þessum reikningum. Slíkt væri alsiða meðal fyrirtækja. Sem dæmi hjá Hafskip nefndi hann styrki til íþrótta- og mannúðarfé- laga, svo og barnaspítala Hrings- ins. Þá nefndi hann að fyrirtækið hefði staðið straum af kostnaði við gerð einnar kennslustofu í nýbygg- ingu Verslunarskólans og að sá FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM 15. febrúar. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 87,00 80,00 82,28 32,446 2.669.846 Þorskur(ósL) 80,00 54,00 76,20 3,234 246.431 Saltflök 210,00 210,00 210,00 0,150 31.500 Ýsa 94,00 74,00 88,96 3,218 286.262 Ýsa(ósl.) 88,00 71,00 79,30 1,341 106.347 Karfi 48,00 42,00 42,35 24,011 1.016.944 Ufsi 52,00 48,00 49,79 20,291 1.010.276 Steinbítur 40,00 30,00 37,84 4,036 152.740 Steinbítur(ósl.) 40,00 31,00 35,62 10,210 363.681 Langa 51,00 46,00 49,01 0,335 16.436 Lúða 545,00 300,00 398,77 0,476 189.615 Hrogn 209,00 118,00 160,42 1,007 161.544 Samtals 61,89 101,667 6.292.546 ( dag verður selt óákveðið magn úr bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 88,00 79,00 81,58 35,371 2.885.718 Þorskur(ósL) 81,00 55,00 77,42 14,891 1.152.822 Ýsa 105,00 69,00 85,47 4,702 401.876 Ýsa(ósL) 82,00 70,00 77,23 4,562 352.337 Karfi 50,00 20,00 41,67 26,017 1.084.065 Ufsi 50,00 45,00 49,59 7,951 394.261 Hlýri+steinb. 43,00 37,00 38,94 6,709 261.240 Langa+blál. 59,00 50,00 50,72 2,774 140.707 Lúða 700,00 310,00 397,51 0,289 114.880 Sólkoli 74,00 74,00 74,00 0,054 3.996 Keila 26,00 26,00 26,00 0,475 12.350 Gellur 230,00 230,00 230,00 0,023 5.290 Hrogn 225,00 50,00 77,03 0,170 13.095 Samtals 65,28 106,008 6.919.993 í dag verður selt óákveðið magn af þorski, ýsu, karfa og ufsa úr bátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf Línuþorskur 93,00 63,00 80,61 39,884 3.215.203 Þorskur(1 n.) 92,00 77,00 86,42 18,258 1.577.884 Ýsa 87,00 60,00 76,69 9,744 747.308 Karfi 45,00 45,00 45,00 1,342 60.390 Ufsi 44,00 30,00 43,61 3,656 159.433 Steinbítur 43,00 26,00 38,72 11,921 461.612 Hlýri '38,00 38,00 38,00 0,242 9.196 Langa 53,00 41,00 50,10 1,020 51.105 Lúða 555,00 400,00 461,28 0,183 84.415 Skarkoli 35,00 35,00 35,00 0,134 4.690 Keila 31,50 27,00 30,13 2,657 80.063 Skata 72,00 5,00 23,37 0,062 1.449 Rauðmagi 85,00 85,00 85,00 0,088 7.480 Samtals 72,04 90,052 6.487.698 styrkur hefði verið sá eini sem ta- lið hefði verið nauðsynlegt að stjóm félagsins fjallaði um. Um mál Guð- mundar sagði Ragnar að sæi hann eftir einhveiju í tengslum við störf sín hjá Hafskip þá væri það þessi greiðsla vegna þeirra afleiðinga sem mál þetta hefði síðar haft fyr- ir Guðmund, en hann hefði ekki vitað og ekki átt að vita hveijir stæðu að baki. Ragnar lagði fram upplýsingar um að á þeim tíma sem þessi kafli ákærunnar tekur til hefði hann talið fram laun samtals rúmar 5,2 milljónir króna en í greinargerð endurskoðanda sérstaks saksókn- ara segði að laun tímabilsins hefðu verið rúmar 4,8 milljónir króna og á þeirri niðurstöðu sé byggt um ákæru þessa. Þá hafi komið í ljós að saksóknari hafí að mati eigin endurskoðanda tilfært sem laun til Ragnars úttektir sem ótvírætt hafi tilheyrt Hafskip fyrir tæpar 200 þúsund krónur. Ragnar segist við yfirheyrslur hjá RLR hafa komið því á framfæri og óskað eftir ran- sókn í tilkefni af því að hann hefði fært nokkur kostnaðarfylgiskjöl á sig sem laun og þannig hefðu við- komandi upphæðir skilað sér inn í launamiðaframtal endurskoðanda félagsins. Ekki hafi verið orðið við þessari beiðni. Sé yfirlit endurskoð- anda sérstaks saksóknara rétt blasi því við að endurskoðandinn hafi ætlað Ragnari um 400 þúsund krónum lægri laun en hann hafí sjálfur talið fram. Þannig hafí hann talið fram sem laun um það bil 2/a hluta hins meinta ijárdráttar og eigi þá eftir að taka tillit til 60% heimildarákvæðis sem ótvírætt nái til meintra fjárdráttarliða. Ragnar krefst þess að þessar tölur verði afstemmdar og óskar að lagt verði fram yfirlit á fjármálalegum ráð- stöfunum sínum á grundvelli 60% heimildarinnar sem ekki fylgi rann- sóknargögnum málsins. Ragnar vísar til áður gerðrar greinargerðar sinnar þar sem fram komi að ónýtt- ar heimildir hans á grundvelli heim- ildarákvæðisins hafí numið rúmum 3,4 milljónum króna. Þá vakti Ragnar athygli á því að hann hefði Karvel Pálmason: Ekki sam- staðaí Alþýðu- flokknum KARVEL Pálmason þingmaður Alþýðuflokks segist ekki hafa mætt á þingflokksfúnd Alþýðu- flokksins í fyrradag þar sem nið- urskurðartillögur ríkisstjórnar- innar voru lagðar fram, í mót- mælaskyni við þau vinnubrögð sem viðhöfð voru í þessu mSi. Því sé ekki um að raða samstöðu í þingflokknum í þessu máli. Karvel sagðist hafa óskað eftir því að fá að sjá hugmyndir um nið- urskurð í fyrri viku. Því hefði verið hafnað af ráðherrum Alþýðuflokks- ins. Síðan hefði hann fengið upplýs- ingum um fyrirhugaðan niðurskurð í ij'ölmiðlum. í fyrradag hfðu tillög- urnar verið kynntar í fjárveitinga- nefnd og í þingflokkunum síðar um daginn. Karvel sagðist hafa tilkynnt þingflokksformanni sínum að hann myndi ekki mæta í mótmælaskyni við leynd og vinnubrögð við þennan niðurskurð. þegar endurgreitt þrotabúi Haf- skips um það bil 627 þúsund krón- um hærri upphæð auk dráttarvaxta en samtala ákæruliða segði til um. Að loknum framburði Ragnars var yfírheyrslum yfír Björgólfi Guðmundssyni haldið áfram. Hann sagðist hafa við gjaldþrotið átt inni hjá fyrirtækinu 7,5 milljónir króna vegna hagnaðarhlutdeildar, lagði fram beiðni um að það yrði sann- reynt og sagði að slíku hefði ekki verið sinnt fram að þessu. Auk þeirra fjárhæða sem að framan eru greindar er honum gefið að sök að hafa dregið sér af sérstökum tékka- reikningi með 12 tékkum á árinu 1983 til 1985 tæplega eina milljón króna. Björgólfur sagði allar út- tektir innan 60% heimilda sinna og þorri útgjaldanna orðið til vegna starfa sinna og tíðra langdvala er- lendis. Meðal þessara tékka eru útgjöld vegna flugfarseðla fyrir son hans og stjúpson, hreinsun á tepp- um á heimili hans og fleira. Hann sagði suma tékkana þannig til orðna að hann hefði greitt fyrir stykri eða auglýsingar á vegum félagsins en síðan látið endurgreiða sér útgjöldin út af þessum reikn- ingi. Björgólfur lauk ekki fram- burði sínum og heldur yfírheyrslan áfram í fyrramálið. Sara Kristjáns- dóttir — Minning Nokkur kveðjuorð til systur minnar, Söru Kristjánsdóttur. Við vorum þijár systumar, Sara var elst, og í hennar huga var ég alltaf litla systir og naut ég þess þegar hún flutti að heiman og fór til Reykjavíkur. Þá mundi hún vel eft- ir litlu systur í sveitinni og sendi mér sitthvað fallegt sem gladdi barnshugann. Ætíð síðan hefur hún viljað minn kost bestan. Hún fór til Reykjavíkur 17 ára og var þénandi hjá vinafólki for- eldra okkar og var það í 8 ár. Þar kynntist hún manni sem varð eigin- maður hennar. Hann var 13 árum eldri og var ekkjumaður með 6 böm. Hann hafði misst konuna í spönsku veikinni. Hann hét Krist- björn Einarsson. Hann og börnin urðu hennar lífshamingja. Eitt barnið fór í fóstur en hin fímm ól hún upp. Þau áttu eitt bam saman sem fékk nafnið Guðmundur en hann dó nokkurra mánaða. Hin bömin fímm voru á aldrinum 3 til 10 ára og af þeim em 2 á lífi. Það eru_ Egill og Karitas. Ég held mér sé óhætt að fullyrða að henni hafi farið vel úr hendi sitt æfistarf. Hún var glaðsinna og stjórnsöm og vakti yfir velferð fóst- urbarna sinna. í 66 ár bjó systir mín á Lauga- vegi 58B, en þegar hún var 91 árs flutti hún í Seljahlíð, dvalarheimili fyrir aldraða, og þar lauk hún langri æfigöngu. Eg kveð kæra systur mína með bestu þökk fyrir alla okkar sam- verustundir. Guð blessi hana. Anna Kristjánsdóttir t Móðir mín og amma, RÓSA KENT KONRÁÐSDÓTTIR, andaðist á Hrafnistu miðvikudaginn 14. febrúar sl. Útförin verður auglýst síðar. Ida Jensen, Rósa ísaksdóttir. t Eiginkona mín, KRISTJ ANA ÁSBJARNARDÓTTIR, Álftagerði, Mývatnssveit, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að morgni 13. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 19. febrú- arkl. 13.30. Minningarathöfn verður í Skútustaðakirkju sunnudag- inn 18. febrúar kl. 14.00. Dagbjartur Sigurðsson. t Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTJÖNU INGIMUNDARDÓTTUR, Garðvangi, Garði, fer fram frá Útskálakirkju laugardaginn 17. febrúar kl. 14.00. Oddgeir Gestsson, Lfney Gestsdóttir, Sigurður Karlsson, Inga Gestsdóttir, Magnús Þorsteinsson, Oddný Gestsdóttir, Jón Guðmundsson, Jenný Gestsdóttir, Magnús Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.