Morgunblaðið - 25.02.1990, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKIA SUNNUDAGÚR 25. FEBRÚAR 1990
9
Hin nýja skím
eftir HJÁLMAR
JÓNSSON
Kæru lesendur Morgunblaðs-
ins.^
Ég heilsa ykkur á sunnudegi í
föstuinngangi. Ég hef tekið að
mér að rita hugvekjurnar um
nokkurt skeið, vera guðspjallarýn-
ir Morgnnblaðsins ef svo má
segja. Mig langar til þess að þið
lesið þessi skrif, að efnið eigi er-
indi til ykkar. Mér þætti jafnvel
ekki verra að vita fyrir víst, að
bréfin komist til skila til viðtak-
anda.
Þegar ég spennti greipar og
bað bænar á bernskuárum varð
mér stöku sinnum hugsað til þess
að gott væri nú að Guð svaraði.
Ég óskaði þess að hann gæfi
hljóðmerki eða ljósmerki, en svar-
aði helst með orðum einhveijum
þeim spurningum, sem leituðu á
hugann. Forðum daga fann ég
það smám saman að Guð hlust-
aði. Bænin, sem í fyrstunni var
eins og eintal, breyttist í eins
konar samtal. Ég þykist muna
eftir vaxandi öryggiskennd, en
dvínandi kvíða og áhyggjum. Mér
fannst Guð svara í því, að allt
varð bjartara og betra. Þannig
var gott að sofna.að kvöldi, stund-
um jafnvel í miðri bæn. Vakna
síðan að morgni, hugsa afsakandi
til Guðs í þeim tilfellum, en líta
svo fram á daginn til nærtækra
verkefna.
Ekki væri ég að segja frá þessu
nema vegna þess að ég hygg að
margir hafi svipaða sögu að segja.
Ég býst við því að þú, lesandi
góður, eigir þínar bænastundir og
finnir að Drottinn er í nánd. Þú
hefur sjalfsagt þína sögu að segja
um það, hvernig Guð bænheyrir.
Trú þín og trúarreynsla er þér
dýrmæt, ekki síður þótt þú talir
ekki um hana alla jafna.
Skírn Jesú er guðspjall dagsins
í dag. Hann kom til Jóhannesar
skírara, sem skírði gyðinga iðr-
unarskírn upp úr skollituðu vatni
Jórdanar. Iðrunarskímin var gyð-
inglegur siður og segir frá þvf í
Mósebókum, að þeir sem illt höfðu
framið skyldu hreinsa sig af illum
verkum með þvotti. Sú skírn var
fyrirheit um bót og betrun, nokk-
urs konar hástig áramótaloforð-
anna, sem margir þekkja. Hún
var fyrirheit mannsins um að
hefja nýtt og betra líf.
Jesús Kristur styrkir allar göf-
ugar fyrirætlanir fólks. Fagnaðar-
erindi hans er þó ekki lögmál og
siðareglur. Guð blandar sér í mál-
efni mannsins, ekki með því að
semja reglugerð við lög ríkis síns
heldur með því að vera til staðar
og styrkja með þeim hætti hvern
einstakan og allt mannlegt sam-
félag til lífs í kærleika.
Kristur innleiddi nýja skírn.
Hann uppfyllti sjálfur allt réttlæti
en lét okkur það ekki eftir. Sjálf-
ur átti hann sterkt og öruggt sam-
félag við Guð föður. Hann fékk
svar af himni, sér til styrktar og
trausts til starfsins er framundan
var og skar úr um lífið á jörðinni.
Hann gefur okkur nýtt líf, ger-
ir lífið sjálft að gjöf, þetta líf, sem
við þekkjum með kostum og göll-
um. Hann býður okkur að sættast
við það og meta það. Hann býður
okkur að framganga í lífinu með
hliðsjón af opnum himninum. Við
bindumst kærleikanum mikla í
skírninni eins og hann tengdist
okkur í skírn sinni. Það gerðist
svo algerlega, að hann kvaðst
verða með okkur alla daga, allt
til enda veraldar. Hann gaf okkur
í skíminni allt sem þarf til eilífs
lífs. Amen.
MARMARAMALNING
Áttu gamalt hús sem harinast upplyftingar?
Ghmlu málningaraðferðirnar í hávegum hafðar.
Marmaramálning, viðarlíkingar (odring);
skrautbekkir, skreytingar, gyllingar,
rósamálning og allt annað innan
málarafagsins.
Sími 676617
Félogi í Koben-
havns malerlavg
Geymið
auglýsinguna.
Til leigu
eru tvö glæsileg 6 manna sumarhús á Fjóni.
Húsunum fylgir allt sem þarf, s.s. sængurföt,
sjónvarp, útvarp, hjól og allt í eldhúsið.
Verðið er miðað við 6 manns, d.kr. 3360 á viku
eða d.kr. 80 á mann á dag. Einnig getur bíll
fylgt á d.kr. 200 á dag.
Upplýsingar í síma 91-17678 milli kl. 17 og 21
næstu daga.
Geymið auglýsinguna.
Kvöld-, nætur- og helgarþjónusta apótekanna í
Reykjavík dagana 23. febrúar til 1. mars, að báðum dög-
um meðtöldum, er í Laugavegs Apóteki. Auk þess er
Holts Apótek opið til kl. 22 alla daga vaktvikunnar nema
sunnudag.
Læknastofur eru lokaðar laugardaga og helgidaga.
Nesapótek: Virka daga 9-19. Laugard. 10-12.
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarnarnes og Kópavog
í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur við Barónsstíg frá kl. 17
til kl. 08 virka daga. Allan sólarhringinn, laugardaga og
helgidaga. Nánari uppl. í s. 21230.
Borgarspítalinn: Vakt 8-17 virka daga fyrir fólk sem ekki
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans s. 696600).
Slysa- og sjúkravakt allan sólarhringinn sami sími. Uppl.
um lyfjabúðir og læknaþjón. í símsvara 18888.
Ónæmisaðgeröir fyrir fullorðna gegn mænusótt fara fram
í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur á þriðjudögum kl.
16.30-17.30 Fólk hafi með sér ónæmisskírteini.
Tannlæknafél. Símsvari 18888 gefur upplýsingar.
Alnæmi: Uppl.sími um alnæmi: Símaviðtalstími fram-
vegis á miðvikud. kl. 18-19, s. 622280. Læknir eða hjúkr-
unarfræðingur munu svara. Uppl. í ráðgjafasíma Samtaka
'78; mánud. og fimmtud. kl. 21-23: 28539. Símsvarar
eru þess á milli tengdir þessum símnúmerum.
Alnæmisvandinn: Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann vilja styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra,
s. 22400.
Krabbamein. Uppl. og ráðgjöf. Krabbameinsfél. Virka
daga 9-11 s. 21122, Félagsmálafulltr. miðviku- og
fimmtud. 11-12 s. 621414.
Ónæmistæring: Upplýsingar veittar varðandi ónæmis-
tæringu (alnæmi) í s. 622280. Milliliðalaust samband við
lækni. Fyrirspyrjendur þurfa ekki að gefa upp nafn. Við-
talstímar miðvikudag kl. 18-19. Þess á milli er símsvari
tengdur við númerið. Upplýsinga- og ráðgjafasími Sam-
taka '78 mánudags- og fimmtudagskvöld kl. 21-23. S.
91-28539 — símsvari á öðrum tímum.
Samhjálp kvenna: Konur sem fengið hafa brjóstakrabba-
mein, hafa viðtalstíma á þriðjudögum kl. 13-17 í húsi
Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8, s.621414.
Akureyri: Uppl. um lækna og apótek 22444 og 23718.
Seltjarnarnes: Heilsugæslustöð, s. 612070: Virka daga
8-17 og 20-21. Laugardaga 10-11.
Apótek Kópavogs: virka daga 9-19 laugard. 9-12.
Garðabær: Heilsugæslustöð: Læknavakt s. 51100. Apó-
tekið: Virka daga kl. 9-18.30. Laugardaga kl. 11-14.
Hafnarfjarðarapótek: Opið virka daga 9-19. Laugardög-
um kl. 10-14. Apótek Norðurbæjar: Opið mánudaga —
fimmtudaga kl. 9-18.30, föstudaga 9-19 laugardögum
10 til 14. Apótekin opin til skiptis sunnudaga 10-14.
Uppl. vaktþjónustu í s. 51600.
Læknavakt fyrir bæinn og Álftanes s. 51100.
Keflavík: Apótekið er opið kl. 9-19 mánudag til föstu-
dag. Laugardaga, helgidaga og almenna frídaga kl. 10-12.
Heilsugæslustöð, símþjónusta 4000.
Selfoss: Selfoss Apótek er opið til kl. 18.30. OpiÖ er á
laugardögum og sunnudögum kl. 10-12. Uppl. um lækna-
vakt fást í sírnsvara 1300 eftir kl. 17.
Akranes: Uppl. um læknavakt 2358. — Apótekið opið virka
daga til kl. 18.30. Laugardaga 10-13. Sunnudaga 13-14.
Heimsóknartími Sjúkrahússins 15.30-16 og 19-19.30.
Rauðakrosshúsið, Tjarnarg. 35. Ætlað börnum og ungl-
ingum í vanda t.d. vegna vímuefnaneyslu, erfiðra heimilis-
aðstæðna, samskiptaerfiðleika, einangrunar eða persón-
ul. vandamála. S. 622266. Barna og unglingasími 622260.
LAUF Landssamtök áhugafólks um flogaveiki. Skrifstofa
Ármúla 5. Opin miðvikudaga og föstudaga 13.00-17.00.
s. 82833.
Samb. ísl. berkla- og brjóstholssjúklinga, S.Í.B.S. Suður-
götu 10.
G-samtökin: Samtök gjaldþrota greiðsluerfiðleikafólks.
Uppl. veittar í Rvík í símum 75659, 31022 og 652715. (
Keflavík 92-15826.
Foreldrasamtökin Vímulaus æska Borgartúni 28, s.
622217, veitir foreldrum og foreldrafél. upplýsingar.
Opin mánud. 13-16. Þriðjud., miðvikud. og föstud. 9-12.
Fimmtud. 9-10.
Kvennaathvarf: Allan sólarhringinn, s. 21205. Húsaskjól
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi i
heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun.
MS-félag íslands: Dagvist og skrifstofa Álandi 13, s.
688620.
Lífsvon — landssamtök til verndar ófæddum börnum.
S. 15111 eða 15111/22723.
Kvennaráðgjöfin: Sími 21500. Opin þriðjud. kl. 20-22.
Fimmtud. 13.30 og 20-22. Sjálfshjálparhópar þeirra sem
oröið hafa fyrir sifjaspellum, s. 21260.
SÁÁ Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið, Síðu-
múla 3-5, s. 82399 kl. 9-17.
Skrifstofa AL-ANON, aðstandenda alkohólista, Hafn-
arstr. 5 (Tryggvagötumegin 2. hæð). Opin mánud.—
föstud. kl. 9—12. Símaþjónusta laugardaga kl. 10—12,
s. 19282.
AA-samtökin. Eigir þú við áfengisvandamál að stríða,
þá er s. samtakanna 16373, kl. 17-20 daglega.
Fréttasendingar Ríkisútvarpsins til útlanda daglega á
stuttbylgju til Norðurlanda, Betlands og meginlands Evr-
ópu: Daglega kl. 12.15-12.45 á 15767, 15790, 13855
og 11418 kHz. kl. 18.55-19.30 á 15767, 13855, 11418,
9268, 7870 og 3295 kHz.
Hlustendum á Norðurlöndum er bent á 15790, 11418
og 7870 kHz og á 15767 kHz kl. 14.10, 13855 kHz kl.
19.35 og 9268 kHz kl. 23.00.
Kanada og Bandaríkin: Daglega: kl. 14.10-14.40 á 13855,
13830, 15767,og kHz.
Kl. 19.35-20.10 á 15767, 15780 og 13855 kHz.
23.00-23.35 á 13855, 11418 og 9268 kHz.
Hlustendur geta einnig oft nýtt sé sendingar kl. 12.15
og kl. 18.55 og hlustendum í mið- og vesturríkjum Banda-
ríkjanna og Kanada er bent á 15780, 13830 og 11418
kHz.
Að loknum lestri hádegisfrétta á laugardögum og sunnu-
dögum er lesið fréttayfirlit liðinnar viku.
ísl. tími, sem er sami og GMT.
SJÚKRAHÚS - Heimsóknartímar
Landspítalinn: alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl.
20.00. kvennadeildin. kl. 19.30-20. Sængurkvennadeild.
Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartími fyrir feður
kl. 19.30-20.30. Barnaspítali Hringsins: Kl. 13-19 alla
daga. Öldrunarlækningadeild Landspítalans Hátúni
10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. — Landakotsspít-
ali: Alla daga kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19. Barna-
deild : Heimsóknartími annarra en foreldra er kl. 16-17.
— Borgarspítalinn í Fossvogi: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30 til kl. 19.30 og eftir samkomulagi. á laugardög-
um og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúðir: Alla daga
kl. 14-17. — Hvítabandið, hjúkrunardeild og Skjól hjúk-
runarheimili. Heimsóknartími frjáls alla daga. Grensás-
deild: Mánudaga til föstudaga kl. 16-19.30 — Laugar-
daga og sunnudaga kl. 14-19.30. — Heilsuverndarstöð-
in: Kl. 14 til kl. 19. — Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. — Kleppsspítali: Alla daga
kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flóka-
deild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. — Kópavogshælið:
Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum. — Vífilsstað-
aspítali: Heimsóknartími daglega kl. 15-16 og kl.
19.30-20. — St. Jósefsspítali Hafn.: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30. Sunnuhlíð hjúkrunarheimili í Kópavogi:
Heimsóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkra-
hús Keflavíkurlæknishéraðs og heilsugæslustöðvar:
Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöð
Suðurnesja. S. 14000. Keflavík - sjúkrahúsið: Heimsókn-
artími virka daga kl. 18.30—19.30. Um helgar og á hátíð-
um: Kl. 15.00—16.00 og 19.00-19.30. Akureyri — sjúkra-
húsið: Heimsóknartími alla daga kl. 15.30 -16.00 og
19.00-20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra
Sel 1: kl. 14.00-19.00. Slysavarðstofusími frá kl. 22.00-
8.00, s. 22209.
BILANAVAKT
Vaktþjónusta. Vegna bilana á veitukerfi vatns og hita-
veitu, s. 27311, kl. 17 til kl. 8. Sami sími á helgidögum.
Rafmagnsveitan bilanavakt 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar bilanavakt 652936
SÖFN
Landsbókasafn íslands: Aðal lestrarsalur opinn mánud.
— föstudags kl. 9-19. Laugardaga kl. 9—12. Útlánssalur
(vegna heimlána) mánud. — föstudags 13-16.
Háskólabókasafn: Aðalbyggingu Háskóla íslands. Opið
mánudaga til föstudaga kl. 9-19. Upplýsingar um útibú
veittar í aðalsafni, s. 694326.
Árnagarður: handritasýning StofnunarÁrna Magnússon-
ar, þriðjud., fimmtud.- og laugardögum kl. 14-16.
Þjóðminjasafnið: Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga frá kl. kl. 11-16.
Þjóðminjasafnið: Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga frá kl. kl. 11-16.
Árbæjarsafn: Opið eftir samkomulagi s. 671280.
Akureyri: Amtsbókasafnið: Mánud.—föstud. kl. 13-19.
Nonnahús alla daga 14-16.30.
Náttúrugripasafn Akureyrar: Opið sunnudaga kl. 13-15.
Borgarbókasafn Reykjavíkur: Aðalsafn, Þingholtsstræti
29a, s. 27155. Borgarbókasafnið í Gerðubergi 3-5, s.
79122 og 79138. Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270.
Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind
söfn eru opin sem hér segir: mánud. — fimmtud. kl. 9-21,
föstud. kl. 9-19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn — Lestrarsal-
ur, s. 27029. Opinn mánud. — laugard. kl. 13-19. Hof-
svallasafn, Hofsvallagötu 16, s. 27640. Opið mánud. —
föstud. kl. 16-19. Bókabílar, s. 36270. Viðkomustaðir
víðsvegar um borgina. Sögustundir fyrir börn: Aðalsafn
þriðjud. kl. 14-15. Borgarbókasafnið í Gerðubergi
fimmtud. kl. 14-15. Bústaðasafn miðvikud. kl. 10-11.
Sólheimasafn, miðvikud. kl. 11-12.
Norræna húsið. Bókasafnið. 13-19, sunnud. 14-17. —
Sýningarsalir: 14-19 alla daga.
Listasafn íslands, Fríkirkjuveg. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 12-18. Sýningin Islensk myndlist 1945-’89
stendur yfir.
Safn Ásgríms Jónssonar: Opið alla daga nema mánu-
daga frá kl. 13.30-16.00.
Höggmyndasafn Ásmundar Sveinssonar við Sigtún er
opið alla daga kl. 10-16.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laugardaga og sunnu-
daga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn dag-
lega kl. 11-17.
Kjarvalsstaðir: Opið alla daga vikunnar kl. 11-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnesi: Opið laug-
ardaga og sunnudaga kl. 14-17 og á þriðjudagskvöldum
kl. 20-22.
Bókasafn Kópavogs, Fannborg 3-5: Opið mán.—föst. kl.
10-21. Lesstofan kl. 13-19.
Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns, Einholti 4: Opið
sunnudaga milli kl. 14 og 16. S. 699964.
Náttúrugripasafnið, sýningarsalir Hverfisg. 116: Opnir
sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. 13.30-16.
Náttúrufræðistofa Kópavogs: Opið á miðvikudögum og
laugardögum kl. 13.30-16.
Byggðasafn Hafnarfjarðar: Laugardaga og sunnudaga
kl. 14-18. Aðra eftir samkomulagi. Heimasími safnvarðar
52656.
Sjóminjasafn íslands: Laugardaga og sunnudaga kl.
14-18. Sími 52502.
ORÐ DAGSINS Reykjavik sími 10000.
Akureyri s. 96-21840. Siglufjörður 96-71777.
SUNDSTAÐIR
Sundstaðir í Reykjavík: Sundhöllin: Mánud. — föstud.
kl. 7.00-19.00. Lokað í laug kl. 13.30-16.10. Opið í böð
og potta. Laugard. 7.30-17.30. Sunnud. kl. 8.00-15.00.
Laugardalslaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-20.30.
Laugard. frá kl. 7.30-17.30. Sunnudaga frá kl. 8.00-17.30.
Vesturbæjarlaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-20.30.
Laugard. frá kl. 7.30-17.30. Sunnud. frá kl. 8.00-17.30.
Breiðholtslaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-20.30. Laug-
ard. frá 7.30-17.30. Sunnud. frá kl. 8.00-17.30.
Suðurbæjarlaug Hafnarfirði: Opin mánudaga — föstu-
daga: 7.00-21.00. Laugardaga: 8.00-18.00 og sunnu-
daga: 8.00-17.00.
Varmárlaug í Mosfellssveit: Opin mánudaga — föstu-
daga kl. 6.30-21.30. Föstudaga kl. 6.30-20.30. Laugar-
daga kl. 10-18. Sunnudaga kl. 10-16.
Sundhöll Keflavíkur er opin mánudaga — fimmtudaga.
7-9, 12-21. Föstudaga kl. 7-9 og 12-19. Laugardaga 8-10
og 13-18. Sunnudaga 9-12. Kvennatímar þriðjudaga og
fimmtudaga 19.30-21.
Sundlaug Kópavogs: Opin mánudaga — föstudaga kl.
7-9 og kl. 17.30-19.30. Laugardaga kl. 8-17. Sunnudaga
kl. 9-12. Kvennatímar eru þriðjudaga og miðvikudaga kl.
20-21. Síminn er 41299.
Sundlaug Hafnarfjarðar er opin mánud. — föstud. kl.
7-21. Laugard. frá kl. 8-16 og sunnud. frá kl. 9-11.30.
Sundlaug Akureyrar er opin mánudaga — föstudaga kl.
7-21, laugardaga kl. 8-18, sunnudaga 8-16. Sími 23260.
Sundlaug Settjarnarness: Opin mánud. — föstud. kl.
7.10-20.30. Laugard. kl. 7.10-17.30. Sunnud. kl. 8-17.30.