Morgunblaðið - 25.02.1990, Síða 10
/I
1D
oeer HAUíiaa'í .as huoao'jmhu? ofjrjA raviuoHOK
' MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1990
LANGÞREYTTIR SJÚKRAHÚSLÆKNAR
SVEFNVANA
SINNA ÞEIR
SJUKUNGUNUM
Algengt að að-
stoðarlæknar
vinni 130 til
160 yfirvinnu-
tíma á mánuði
ng mörg dæmi
um yfir 200
tíma
Vandamál að
manna stuð-
urnar, því
margir taka að
hluta eða allt
kandídatsnám-
ið ytra
Lágmarkskrafa
að menn geti
neitað sér um
hessa miklu
vinnu, segir
furmaður Fé-
lags nngia
lækna
eftir Kristjón Þorvoldsson
myndin Sverrir Vilhelmsson
KLUKKAN ER átta á mánudags-
morgni. Karl Konráð Andersen
aðstoðarlæknir á lyflæknisdeild
Borgarspítalans býr sig undir
fund þar sem farið er yfir stöðu
mála og verkefni dagsins. Næstu
26-28 timana verður Karl innan
spitalaveggjanna og getur hvergi
farið. Ef dagurinn verður rólegur
getur hann hugsanlega náð smá-
blundi í nótt, líkurnar eru ekki
miklar þar sem Borgarspítalinn
er með bráðavakt þennan sólar-
hring. En Karl er ekki óvanur
þessu, 26 tíma vaktir stendur
hann, að minnsta kosti 7-8 sinnum
í mánuði og oftar ef einhver að-
stoðarlæknir verður veikur. Þess
á milli vinnur hann sinn venjulega
vinnudag á lyflæknisdeild. Karl
er kominn í hvíta sloppinn, búinn
að fá sér kafifisopa og setja
píptækið í bijóstvasann.
Algengt er að aðstoðarlæknar
á sjúkrahúsum vinni 130-160 yfir-
vinnutíma á mánuði og mörg
dæmi eru um yfir 200 yfirvinnu-
stundir. Borgarspítalinn er síður
en svo einsdæmi hvað þetta varð-
ar, en þar er meðal fjöldi yfir-
vinnutíma um 100 stundir, eins
og fram kemur í viðtali við Jó-
hannes Pálmason firamkvæmda-
stjóra Borgarspítalans. í stöðum
aðstoðarlækna eru fyrst og fremst
ungir læknar, sem eru í kandíd-
atsnámi eða hafa ólokið sérnámi.
Eftir að fjöldatakmarkanir voru
teknar upp í læknadeild hafa æ
færri kandídatar skilað sér í þess-
ar stöður, sem eru um 150 tals-
ins. Með því að útskrifa einungis
30-40 lækna í stað 50 til 60 fyrir
nokkrum árum verður augljós-
lega mikill skortur á ungum lækn-
um í þessi störf í framtíðinni. Auk
þess færist i vöxt að nýútskrifaðir
taki að hluta eða allt sitt kandíd-
atsár ytra. Dæmi eru um að sér-
fræðingar haf! sótt um stöður
aðstoðarlækna, en ekkert bendir
til að þeir Ieysi vandann.
Félag ungra lækna vill komast
út úr þessum vítahring. Að sögn
Jóns Hilmars Friðrikssonar for-
manns félagsins vill félagið að
leitað verði allra mögulegra Ieiða
til að minnka þetta mikla vaktaá-
lag. „Það er lágmarkskrafa að við
getum neitað okkur um þessa
miklu vinnu, eða fáum a.m.k. góð
frí inn á milli til að hvílast," segir
Jón Hilmar. Byrjunarlaun aðstoð-
arlækna eru um 85 þúsund krónur
á mánuði og fyrir yfirvinnustund
er greitt 1.003% af mánaðarlaun-
um, eða um 850 krónur. Morgun-
blaðið kynnti sér málið og fylgd-
ist með aðstoðarlækni á vakt á
Borgarspítalanum.