Morgunblaðið - 25.02.1990, Síða 15

Morgunblaðið - 25.02.1990, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1990 15 Kvennaskólanum hafði sannfært hana um að sú menntun sem ungum konum á íslandi stæði til boða væri mjög ófullkomin. „Þjóðin átti að komast til vegs og gengis fyrir bar- áttu göfugra, starfsamra, íslenskra kvenna, og ég sá í huganum kvenna- skóla, sem áttu að geta unnið að þessu. Skólarnir áttu að veita þeim alla fræðslu, sem konur þarfnast til þess að verða mæður, húsfreyjur, prýði heimilanna, — til þess að verða nýtar þjóð sinni, — og í skólunum átti að veita þá bóklegu kennslu, sem nauðsynleg er til þess að víkka sjón- deildarhringinn,“ skrifar Ólafía í end- urminningum sínum. Yopnuð þessu háleita markmiði siglir Ólafía í fyrsta sinn til útlanda veturinn 1892 og sest á skólabekk í Askov í Danmörku. Rúmum tveimur árum síðar kemur hún aftur'til ís- lands og lætur mjög að sér kveða á vettvangi dagsins. Hún tekur virkan þátt í stofnun Hins íslenska kvenfé- lags, heldur fyrirlestra um nauðsyn þess að stofna háskóla á íslandi, hefur forgöngu um stofnun Hvíta- bandsdeildar í Reykjavík, starfar að bindindismálum og skrifar greinar Smalgangen (Mjóstræti) 4, Osló. Um það bil þegar Ólafía var hálf- þrítug afréð hún að læra til stúd- ents, einkum fyrir hvatningarorð Einars frænda síns. Á þeim árum þótti slíkt vitaskuld fáheyrð dirfska af ungri konu. Til að mynda þurfti að sækja um sérstakt leyfi handa stúikum til að ganga undir próf í Latínuskólanum, en kennslustundir var þeim ekki leyft að sækja. Ólafía las því utanskóla, en starfaði með- fram sem heimiliskennari á kaup- mannsheimili í Flatey á Breiðafírði. Enda urðu lyktimar þær að Ólafía lauk aldrei prófí. Þjóðinni til gagns En hún lét ekki hugfallast, heldur hafði hún stór áform. Hún ætlaði að vinna íslensku þjóðinni gagn, og ekki síst kvenþjóðinni. Vetrardvöl í Höggmynd af Ólafíu Jóhanns- dóttur var reist í Ósló Alþingis- hátíðarárið 1930. Höfundur henn- ar var Kristinn Pétursson. Hún er nú komin aftur á sínar réttu heimaslóðir við Vaterlandsbro. Boð hjá Ólafíu Jóhannsdóttur, haldið í Stúlknaheimilinu í Lang- gaten í Ósló á fullveldisdaginn 1919. Ólafía situr við borðið, fjórða frá vinstri. Standandi má meðal annars þekkja Ólaf Ólafs- son kristniboða. Myndina tók Ingimundur Eyjólfsson, ljósmynd- ari í Ósló. Einar Benediktsson var ári yngri en Ólafía. Hún er ekki margorð um þá feðga, Einar og Benedikt, í sjálfs- ævisögu sinni, enda ritar hún þar fyrst og fremst um trúmálasögu sína, en síður um stjórnmál og annað ver- aldarvafstur. Hins vegar getur Bjarni Benediktsson forsætisráðherra þess í ritgerð um Ólafíu að þau Einar hafí um skeið fellt hugi saman og „verið mjög hrifin hvort af öðru“. Segir Bjami að kvæði Einars, Snjáka, sé að sögn kunnugra ort um Ólafíu. En Bjarni bætir líka við þess- um gullvægu varnaðarorðum: „Bollaleggingar um ástir löngu liðins fólks, þegar engar samtímaheimildir er að styðjast við, em haldlitlar, og skal því eigi frekar um þetta rætt hér.“ Þorbjörg Sveinsdóttir, fóstra Ól- afíu og systir Benedikts Sveins- sonar alþingismanns. í kvæði likti Matthías Jochumsson henni við „eldborg". um kvenréttindamál og þáttöku íslenskra kvenna í stjómmálum. Á þessum ámm ferðast hún líka til Vesturheims og Bretlandseyja og flytur fyrirlestra um ýmisleg efni. Þegar Þorbjörg frænka hennar Sveinsdóttir deyr í janúar 1903 verða mikil umskipti í lífi Ólafíu. Þrátt fyr- ir að Þorbjörg hafí að sönnu alla tíð hvatt hana og stutt, skrifar hún: „Þá var eins og hin taumlausa frelsisþrá mín ætti að fá að njóta sín, án þess að henni væri settar nokkrar skorð- ur.“ í blaðafrétt vorið 1903 segir að Ólafía sé á leiðinni frá íslandi, alfar- in. Sjálf gerði hún þó vísast ekki ráð fyrir svo langri útivist, því hún ósk- aði eftir því að herbergi í húsinu á Skólavörðustíg 11 yrði haldið óleigðu næstu árin og var líklega ætlun hennar að flytja þangað inn við heim- komuna. En til íslands átti hún ekki aftur- kvæmt í 17 ár. Frá myrkri til ljóss Frá myrkri til ljóss er heitið á sjálf- sævisögu Ólafíu Jóhannsdóttur. Tit- illinn er náttúrulega ekki sprottinn af einhverri hendingu — þetta er sagan af því hvernig hún fann sinn Guð, ljósið, eftir leit sem í raun tók engan endi. Það fer reyndar ekki á milii mála að hugur Ólafíu hefur alla tíð snúist mikið um trúmál. En um trúarsannfæringu er ef til vill ekki að ræða fyrr en eftir að hún flyst til Noregs 1903. Samfara langvinnu heilsuleysi verður hún þar fyrir þeirri „reynslu, sem varla verður með orð- um lýst, að heilagur andi sannfærði mig „um synd og um réttlæti og um dóm“. — Þetta bar mér að höndum, þegar mig varði síst,“ segir hún. Hér er semsé eins konar endur- fæðing sem vísar veginn áleiðis til þess starfs sem hún átti óunnið með- al smælingjanna í Ósló, þess sem hún áleit sitt eiginlega lífsstarf. Það er til marks um sannfæringu hennar að á þessum árum losar ðl- afía sig við allt heimsins prjál. Hún gefur til dæmis alla sína skartgripi og segir við vini sína sem reyna að letja hana: „Ég klæðist aldrei framar neinum viðhafnarbúningi né neinu skarti." Glíma Ólafíu við þá trú sem á sín rök handan við mannlega skynsemi var bæði löng og fiókin, kannski ekki síst vegna þess að hún var sam- kvæmt eðli sínu og uppeldi skynsem- ishyggjumanneskja. Því var endur- fæðing hennar líkt og stökk út I óvissuna. En kannski hefur frændi hennar, Bjami Benediktsson, ratað á nokkum sannleikskjama í eftirfar- andi orðum: „Trúarvissan fyllti Ólafíu ekki hroka, heldur auðmýkt. Enginn skyldi ætla sér að sýna öðrum, hvem- ig þeir ættu að breyta, því að enginn gæti breytt eins og Guð. Allir menn væm glataðir án friðþægingarinnar, og sjálf var hún sannfærð um sitt gerspillta eðli. Hún fordæmdi synd- ina, en taldi syndarana — einnig hina aumustu allra — jafningja sína og því öðrum fremur auðvelt með að umgangast þá og hjálpa þeim, svo að þeir gætu hjálpað sér sjálfir. Henni nægði ekki að boða trú sína, heldur varð hún að sýna hana í verki. Það tókst henni á þann veg, að ekki verður talið ofmælt, að henni hefur verið líkt við helga menn krist- innar kirkju, svo sem Frans frá Ass- isi.“ Sending frá „herra uppskerunnar“ í plöggum Hvítabandsins í Ósló má lesa eftirfarandi: „Fyrstu tildrög- in að stofnun Hvítabands-hælisins vom þau, að nokkrar félagskonur tóku árið’ 1904 að vitja sjúklinga að staðaldri í Ullevaals- og ríkissjúkra- húsinu, og þá sérstaklega þeirra stúlkna, er höfðu kynferðisveikindi. Þær gáfu sjúklingum kristileg rit og stofnuðu gott bókasafn við Ullevaal. En brátt varð þeim ljóst, að full þörf var á, að einhver gæti alveg helgað sig þessu starfi og stutt stúlkumar, sem komust aftur til heilsu. Báðum við „herra uppskerunnar" að senda oss „verkakonu", er fær væri um það. Um jólin kom til okkar íslenska konan Olafía Jóhannsdóttir. Hún kvaðst nú vera farin að ná sér svo aftur eftir langvinnt heilsuleysi, að hún gæti farið að gjöra eitthvað til gagns, ef hún hefði hugmynd um. hvað Guð ætlaði sér sérstaklega að starfa. Þá sáum við, að Guð hafði sent okkur hana, og skýrðum henni svo frá þörf vorri og bænum. Hún leit á þetta sem köllun Guðs, fluttist til borgarinnar og hóf starf sitt 3. febrúar 1909. Við hefðum ekki getað fengið neina konu betur fallna til þessa starfs. Henni var svo vel lagið að skilja fólk, uppgötva góðu kostina og vekja vonir vonarsnauðra." Aumastar allra „Hvergi hef ég séð eins undarlega sérmótað fólk og niður við „Vater- land“. Fari maður um Lakkagötuna, blasir það við manni, hvar sem litið er. — Maður hlýtur að taka eftir því jafnvel langt álengdar, svo ólíkt er það öðm fólki. — Útlit þess allt og svipur er eins og rígskorðaður af ósýnilegu, vægðarlausu ofurafli, eins og hvesst ör, er bendir að marki. Heljarfarg eymdarinnar hefur mótað fólk þetta.“ Með svofelldum orðum hefst bók Ólafíu Jóhannsdóttur, sem hefur ver- ið prentuð í fjölmörgum útgáfum í Noregi undir nafninu De Ulykkel- igste, en heitir í íslenskri útgáfu Aumastar allra. Þetta er átakanleg bók, undanbragðalaus lýsing á mannlegri eymd og niðurlægingu eins og hún verður ógurlegust, en líka vitnisburður um æðmleysi, fórn- fýsi og trúarsannfæringu. Þarna dregur hún upp í fáum en skýmm dráttum mynd af dimmum og hættulegum heimi. Lesandinn fylgir Ólafíu, þessari smávöxnu konu í peysufötunum íslensku, í gegnum þröng öngstrætin og alla leið niður í undirheima borgarinnar og kannski mannssálarinnar líka. Eitt örskot sýnir hún lesandanum inn í herbergi á Ingebrigtsens-hóteli í Vognmannsgötu. Þar sofa götu- stúlkumar tvær og tvær saman í hveiju rúmi, og jafnvel átta saman í herbergi. Rúmfötin virðast útbíuð í sjúkdómum og sóttkveikjum. Margoft liggur leiðin inn á deild 4 á Ullevaal-sjúkrahúsi þar sem kon- ur sem hafa tekið sárasótt iifa í dauð- ans angist. Og líka bömin sem hafa smitast í móðurkviði: „Þar sat kona með ungbam í kjöl- tunni og var að skipta á því. Barnið var í einu flagsæri, og konan hágr- ét,meðan hún var að reyna að leggja rýjuna með skjálfandi höndum kring- um litlu, skinnlausu fæturna. Andlit hennar var umhverft af angist. — Hún starði á bamið, sem lá og kveinkaði sér, neri saman höndunum og skalf af ekka. „Ég get ekki hjálp- að því, ég verð að horfa á það þjást og deyja, og þetta er allt mér að kenna. Ég vissi ekki að ég var veik. Það eru liðin átta ár síðan; ég hef aldrei vitað að ég var veik, — ég hélt, að allt væri gleymt og ég gæti orðið farsæl með góða manninum, sem ég eignaðist, en nú verð ég aldr- ei framar glöð.“ — Um nóttina dó barnið.“ Og Ólafía segir söguna af Ruth Olsen, stúlku ofan úr sveit sem smit- ast af „vondu veikinni", glatar unn- usta sínum og fjölskyldu og andast aðeins 21 árs gömul eftir langa vist á deild 4. I fórum hennar finnur Ólafía pappírssnepil þar sem stendur skrifað: „Ó, að ég gæti gleymt! Ó, að ég væri dauð! En skyldi það vera satt, að menn gleymi þá ekki heldur!" Heimkoma og héðanför Eftir 17 ára útivist og baráttu við erfiðan magasjúkdóm var Ólafía loks nógu hraust til að sigla aftur til ís- lands sumarið 1921. En hún var ekki fyrr komin heim en hana greip óyndi. Upp hafði risið nýtt ísland, ólíkt því Islandi sem Ólafía hafði þekkt tveimur áratugum fyrr og sem hún varðveitti í endurminningunni. í sjálfsævisögunni sér hún Island í hillingum: „Hvergi um víða veröld er hið upprunalega, hreina eðli mannsins jafngróið hinni svipmiklu náttúru og á íslandi." Heimkomin sér hún að allt er á hverfanda hveli; Reykjavík hefur eignast vatnsveitu, holræsi, höfn, flugvélar, kvikmynda- hús og kaffihús, en konumar sem áður gengu í íslenskum búningi eru klæddar eftir síðustu stórborg- artísku. Það gætir kannski vissrar kald- hæðni þegar Ólafía segir að and- rúmsloftið á stúlknaheimilinu hennar í Mjóstrætinu í Ósló eigi betur við sig en andrúmsloftið í Reykjavík, því varla hefur það verið heilnæmara í eiginlegum skilningi en tært fjalla- loftið á íslandi. Skýringarinnar er að leita í bréfí sem hún skrifar stuttu eftir heimkomuna: „Hér er hræðilegt andlegt myrk- ur, andatrú og guðspeki, ásamt al- mennri afneitun og vantrú. En svo er Guði fyrir að þakka, að hann á nokkra af sínum einnig hér.“ Farin að heilsu sigldi hún héðan til Ósló 21. janúar 1924 — til þess að deyja. Hún andaðist 21. júní þetta sama ár. Lík hennar var flutt til ís- lands og jarðað með viðhöfn við hlið- ina á frænku hennar Þorbjörgu, líkt og hún hafði sjálf óskað eftir. Frá því er sagt að þegar skjólstæð- ingar hennar, fangamir í landsfang- elsinu í Ósló, fregnuðu lát Ólafíu og að hún yrði ekki jarðsett í Noregi, hafi nokkrir þeirra tekið sig til og grafið með berum höndum litið blómabeð í einu horni tugthússgarðs- ins. Og var það hennar fegurstur minningarreitur. Heimildir: Ólafía Jóhannsdóttir: Frá myrkri til ljóss. Ólafía Jóhannsdóttir: Aumastar allra. Bjarni Benediktsson: Ólafía Jóhannsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.