Morgunblaðið - 25.02.1990, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1990
Ólöf Kolbrún Harðardóttir í hlutverki sínu í I Pagliacci.
Carmina burana
ogPagliacci
hefði hann mátt leggja aðeins
meiri áherslu á skarpari hryn. Að
flytja Carmina burana á þennan
máta gefur verkinu nýjan lit og
einmitt vegna þess hve það er
ólíkt Pagliacci fer vel á því að
hafa það sem forleik að hinu
áhrifamikla en stutta óperuverki
eftir Leoncavallo.
Eftir hlé var svo óperan Pagli-
acci og þar var sami hljómsveitar-
stjóri, David Angus, og var eftir-
tektarvert hversu hljómsveitin var
góð, einkum er á leið og sérstak-
lega strengirnir en konsertmeist-
ari í báðum verkunum var Zbigni-
ew Dubik. Búningar (Alexander
Vassiliev), leikmynd (Nicolai
Dragan) og leikstjórn (Basil Cole-
mann) mynduðu einkar fallega og
samstæða heild en auk þeirra sá
Jóhann B. Pálmason um lýsingu
(í báðum verkunum) og sýningar-
stjóri kvöidsins var Kristín S.
Kristjánsdóttir. Þó alit leggist á
eitt að gera eina óperusýningu
góða eru það samt söngvararnir,
sem skila endanlegri gerð óper-
unnar til hlustenda. Kórinn var
sem fyrr stórkostlega góður. Ein-
söngvararnir voru Sigurður
Björnsson er fór með hlutverk
Peppe og Harlekins í leiknum og
gerði það vel. Tonío söng Keith
Reed en í leiknum fer hann með
hlutverk Taddeos. Óperan hefst á
forspjalli trúðsins og söng Reed
þennan óskaþátt baritonsöngvara
mjög vel og var reyndar frábær
bæði í leik og söng alla óperuna.
Silvio var sunginn af Simon Ke-
Carmina burana: Kórfélagar í hlutverkum sinum.
_________Tónlist_____________
JónÁsgeirsson
Nítjánda verkefni ísiensku ópe-
runnar, Carmina burana, eftir
Carl Orff og óperan Pagliacci,
eftir Ruggero Leoncavallo, voru
flutt í íslensku óperunni sl. föstu-
dag. Pagliacci var fyrsta verkefni
íslensku óperunnar fyrir 11 árum
en Carmina burana er hér í fyrsta
sinn flutt í leikrænni gerð.
Carmína burana er frumlegt verk
og feikna vinsælt en frumleikinn
og sú tónsmíðatækni er Orff beit-
ir á sér sérkennilega sögu og
upphaf sitt að nokkru leyti í því
umróti sem gekk yfír Evrópu um
og eftir aldamótin. Mörg tónskáld
lögðu fram kenningar, deildu um
mikilvægi þeirra og stjómvöld
gerðust áhugasöm um að nota
tónlist og list almennt í áróðurs-
skyni og á sviði tónlistar hafði
vaknað áhugi fyrir markvissu tón-
listaruppeldi.
Árið 1924 stofnuðu Carl Orff
og Dorothea Gúnther skóla, þar
sem beitt var nýjum aðferðum í
kennslu tónlistar. í stað þess að
nota hljóðfæri, sem langan tíma
tók að læra á, lögðu þau áherslu
á að nota einföld slaghljóðfæri,
sem hægt var að láta nemendur
leika á svo til undirbúningslaust.
Það tónmál er þróaðist upp úr
þessum tilraunum byggðist á
síendurteknum, einföidum þrá-
stefjum og hefðbundinni hljóm-
skipan. Fjölröddun (polífónia) og
flókin útfærsla stefja (tematík)
var þar ekki að finna en í staðinn
var lögð mikil áhersla á skarpa
hrynskipan er féll vel við þrástefj-
unina.
Á árunum 1930 til 35 setur
Orff fram kenningar sínar og
gefur út mikið safnrit, Schulwerk,
sem er safn tónverka hans, til
notkunar í skólum. Þarna mótast
tónmál Orffs og eru flest seinni
tónverk hans að meira eða minna
leyti í þessum hrynleikandi stíi,
sem er sérlega áhrifamikill í
Carmina burana. 1935 kemst Orff
yfír miðaldaljóð, sem munkar hafa
trúlega skemmt sér við að lesa.
Orff notar stefgerðir sem sumar
hveijar minna á organumsöng og
tekst að semja tónverk sem var
alger nýjung og það sem meira
er, mjög skemmtileg og lifandi
tónlist.
Meginþunginn í flutningi
Carmina burana lá í kór íslensku
óperunnar sem söng aldeilis
glæsilega. Sex félagar úr kórnum,
þeir Gunnar Guttormsson, Hilmar
N. Þorleifsson, Loftur Erlingsson,
Sigurður S. Steingrímsson, Sig-
urður Þórðarson og Þorgeir J.
Andrésson áttu mjög góð sam-
söngsatriði. Þorgeir J. Andrésson
söng auk þess Svaninn og gerði
það frábærlega vel. Svanurinn á
steikingarpinnanum er oftast
sunginn í „falsettu" en Þorgeir
söng hlutverkið með fullum radd-
hljómi. Auk Þorgeirs sungu
Michael Jón Clarke og Sigrún
Hjálmtýsdóttir einsöng, bæði
mjög vel, þó góður söngur og leik-
ur Michaels, t.d. í ábótagríninu,
hafi líklega komið mest á óvart.
Barnakór, sem átti þama smá
strófur, var of fámennur.
Leikmynd og búningar voru
verk Nicolai Dragans en leik-
stjórnin og dansstjóm var í hönd-
um Terence Etheridge og var
verkið í heild mjög áhrifamikið
en upphaf þriðja þáttar nokkuð
hægferðugt og ekki nógu ástríðu-
þmngið. Hraðanum réð hljóm-
sveitarstjórinn, David Angus, og
enlyside, sem er mjög góður
söngvari, og átti hann stutt_ en
gott atriði með Neddu, sem Ólöf
Kolbrún Harðardóttir söng af
glæsibrag. Ólöf náði að túlka
þessa óhamingjusömu stúlku á
mjög sannfærandi máta. Stjór-
stjarna kvöldsins var Garðar Cort-
es sem söng hinn skapbráða Canio
en í leiknum fer hann með hlut-
verk hins kokkálaða trúðs, er um
síðir greinir ekki á milli þess raun-
vemlega og leiksins. Garðar söng
„Vesti la giubba" frábærlega vel
og ekki var leikur hans og söngur
síðri er allt fór úr böndunum, svo
að erfítt er að hugsa sér það bet-
ur gert. Það er ef til vill að bera
í bakkafullan lækinn að lofa ís-
lensku óperuna fyrir þessa frá-
bæru sýningu en það verður að
segjast eins og er, að sýningin á
Carmina burana og Pagliacci, er
enn einn listsigur þessa unga fyr-
irtækis.
Eftirmáli:
íslenska óperan er trúlega eitt
af fáum fyrirtækjum hér á landi,
sem sífellt þarf að þola álas fyrir
það að vera ekki á heimsmæli-
kvarða. Ekki er ljóst hvað er átt
við með heimsmælikvarðanum,
hvort þar er aðeins miðað við allra
bestu óperuhúsin, sem hvert í sínu
landi eru algerlega í sérflokki, eða
yfírleitt öll óperufýrirtækin, stór
og smá. í þeim stóra hópi getur
munað æði miklu, jafnvel þar sem
aðstæður í húsakosti eru allgóðar.
Nokkuð hefur verið rætt um að
Gamla bíó sé óhæft til óperusýn-
inga og er það rétt að nokkru
leyti en það ber að hafa í hugaj
að ópemsýning er þó annað og
meira en að góður húsakostur sé
nokkur trygging fyrir góðri sýn-
ingu. •
Það vill gleymast, eins og kom-
ið hefur fram í þeirri sérkennilegu
umræðu, sem undanfarið hefur
átt sér stað í fjölmiðlum, að starf
íslensku óperunnar er eins kons
frumræktarstarf, svo líking sér
notuð og í því starfi verður að
byggja á og hlúa að þeim
lífsgróðri sem fyrir er í landinu.
Að flytja inn angandi og litfögur
stofublóm hefði lítið að segja fyr-
ir lífgróður landsins þó vissulega
megi sækja hann til staða með lík
skilyrði og gerast hér.
í þessari umræðu hefur verið
látið liggja að því að íslensku
ópemnni sé um að kenna að ekk-
ert varð.úr sýningunni á Manon
Lescaut. Rétt að benda á, að
Listahátíðin í Reykjavík er fyrir-
tæki og það er stjóm þess fyrir-
tækis, sem tekur ákvarðanir um
alla framkvæmdir á vegum hátíð-
arinnar, en ekki fólk úti í bæ.
Margir íslendingar hafa bæði
hér heima og á ferðum erlendis
vanist góðum tónlistarflutningi og
auk þess hafa heimsótt landið
erlendir tónsnillingar, svo að segja
má að íslendingar séu góðu van-
ir. Þessi samskipti við heimslista-
menn hafa haft mikil áhrif á tón-
listarsmekk fólks og þróun tónlist-
ar hér á landi. Það er því mikill
skaði, að ekki varð af sýningunni
á Manon Lascaut, því þá hefði
gefist að heyra góða flytjendur
og í raun sárt til þess að vita, að
féleysi og hræðsla hafí heft þá
er þar áttu um að binda.
Tvennt þarf að íhuga varðandi
stöðu listar á íslandi og það er í
1. lagi að nauðsynlegt er að hlúa
að frumræktinni hér heima og í
2. lagi að flygjast vel með því sem
er efst á baugi erlendis. Sífelldur
samanburður á heimaefni og er-
lendu er nauðsynlegur en hann
■“má ekki snúast upp í slíkan heim-
óttaskap, að menn fyrirverði sig
fyrir sig og sína. Það þarf tíma
til að byggja upp' og höllin verður
ekki byggð á undan hreysinu en
frá hreysinu getur leiðin legið upp
á við, andstætt því sem gerist ef
horft er af svölum hallarinnar.
BLÓDGJAIAFÉLAG ÍSLANDS
Aðalfundur Blóðgjafafélags íslands verður hald-
inn mánudaginn 26. febrúar nk. kl. 20.30 á
Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Blóðgjöfum veittar viðurkenningar.
3. Fræðsluerindi: Glasafrjóvgun, dr. med. Jón
Hilmar Alfreðsson flytur.
4. Kaffiveitingar.
Fundurinn eröllum opinn. Stjórnin.
i Rauöi Kross íslands
Hef opnað
tannlæknastofu
Tímapantanir í síma 621115.
Ósk Þórðardóttir,
tannlæknir, Miðstræti 12.
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
VISSIR ÞU AÐ BILAB
OPINN Á SUNNUDÖGL
GLÆSILEGT ÚRVAL NÝLEGRA BÍÖ
KÍKTU VIÐ, HEITT Á KÖNNUNNI ,BlL