Morgunblaðið - 25.02.1990, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1990
4
Teikning/Pétur Halldéreson
„Einar íBetel get-
urgertmig bálill-
an, en ég elska
hann samt.“
Einar Jónassson múrari og
safnaðaröldungur
„Líklega getum
við ekki reiknað
með meira en ein-
um slíkum prédik-
araáöld. “
Sigmund teiknari í Eyjum
„Oft biður hann
þá beínt í símann,
biðurfólkað
hlusta og virkjar
stundina.“
Sigurlína Jóhannsdóttir
eiginkona Einars
I IWK J.GÍSLASON,
FORST0DLMADIJR FÍLADELFÍL'
PRÉDIKARI
AFGPÐ8
NÁÐ
BLESSUÐ STUND í bænarhita er mesta afl sem til er, það
þekkir Einar J. Gíslason forstöðumaður Fíladelfíu í
Reykjavík, sem um þessar mundir er að láta af starfi sem
forstöðumaður þótt hann hyggist áfram helga sig hjálpar-
starfi og boðun orðsins. Lengst af hefiir Einar verið kennd-
ur við Betel, hús hvítasunnumanna í Vestmannaeyjum, þar
sem hann var forstöðumaður um langt árabil eða í 22 ár.
Einar í Betel hefur alla tíð
verið hljómmikill maður,
athafnasamur, fjölfróð-
ur og skemmtilegur, en
fyrst og fremst hefur hann verið
prédikari og kristniboði af Guðs
náð og að margra áliti er hann
einn snjallasti ræðumaður íslands.
Ræðustíll Einars er sérstæður eins
og reyndar allt hans líf og fas því
skapgerð hans er splæst úr mörg-
um sterkum þáttum. Hann talar
stutt og hnitmiðað syngjandi rómi
með guðlegum innblæstri, blaða-
laust, og inn í tiívitnanir Biblíunn-
ar fléttar hann gjarnan sögur og
líkingar úr hvers-
dagslífinu. Ræður
hans eru að öllu
jöfnu eins og þeg-
ar flóðið sígur að,
en hann hættir á
háflóðinu, þá
kemur ögurstund til íhugunar.
Einar er hamhleypa til verka á
þeim vettvangi sem blessunin hef-
ur boðið honum. Endalaust sinnir
hann hjálpar- og huggunarstarfi
með heimsóknum á sjúkrahús, í
fangelsi, á vinnustaði og með fyrir-
bænum, en þar hefur kristallast
tærast kraftur hans frá Guði.
Hann fæddist í Vestmannaeyj-
um 31. janúar 1923 að Arnarhóli
og i Eyjum bjó hann til 1970. Ein-
ar í Betel var einn ærslafyllsti
Eyjapeyi síns tíma, en hann hafði
sterkan bakhjarl í góðu heimili og
trúaðri móður sem var í Hvíta-
sunnusöfnuðinum. Þegar hann var
16 ára gamall varð undrið, ærsla-
belgurinn og forustusauður í ýms-
um uppátækjum frelsaðist í ríkri
bæn með Óskari bróður sínum,
sem er ekki síður sérstæður og
sterkur persónuleiki en Einar.
Síðan hefur líf Einars verið í hendi
Drottins og það varð ósjálfrátt
verkefni Einars að kveikja anda
kristninnar og kærleiksins í um-
hverfinu, ekki með prédikunum
eða hótunum, heldur með rökræð-
um og raunsæi á breyskleika
mannsins. Hann
hefur svo sannar-
lega verið boðberi
orðsins, fylginn
sér, en hjartahlýr
og fús að fyrir-
gefa. Gamansem-
in sem honum er í blóð borin hef-
ur oft skapað farveg sem hefur
leitt menn og málefni til betri veg-
ar.
í Eyjum var Einar vélstjóri og
sjómaður í áratugi auk þess að
vera forstöðumaður hvítasunnu-
manna. Um árabil vann hann að
þeim Öryggisþætti sjómanna sem
lýtur að gúmmíbjörgunarbátum,
var skoðunarmaður af fullkominni
samviskusemi. Einu sinni hótaði
siglingamálastjóri að reka hann.
Þá hafði Einar sett sverari og
sterkari öryggislínur í björgunar-
bátana, vegna þess að reynslan
hafði sýnt þörfina án þess að kerf-
ið hefði tekið við sér. Einar gaf
ekki eftir sterkari taugina, kom
sínu fram ugglaust í skjóli þeirrar
sterku taugar sem hann hefur í
trúarvissu sinni. Það er merkilegt
með Einar í Betel að enginn sam-
verkamanna hans í hinu daglega
lífi til sjós og lands í Eyjum minn-
ist þess að hann hafi rætt um trú-
mál, en samt skynja allir að andi
Guðs og blessun fylgja honum.
Einar hefur alltaf verið fljótur að
taka af skarið og lognmolla er
ekki hans stíll. Hann getur verið
beittur og hvassari en nokkru sinni
blæs á Stórhöfða en flestum ber
saman um að hann sé sanngjam
og skilningsríkur þrátt fyrir það
að hann hafi ekki verið smíðaður
til þess að læðast um í tilverunni.
Honum er lagið að verða hrókur
alls fagnaðar á mannamótum, á
sinn hátt. Á hinn bóginn kann
hann líka að segja mönnum til
syndanna ef honum mislíkar fram-
koma þeirra og þá er það ekkert
elsku mamma, orðgnótt hans og
tilfinning spinna þráðinn af festu
og skerpu. Orðanna hljóðan fer
ekkert á milli. mála. Einar í Betel
er einarður maður, en eins og vor
fylgir vetri er stutt í hlýjuna í fari
hans þótt dyrnar hafí fokið upp í
hita leiksins.
í tvo áratugi hefur Einar í Bet-
el verið forstöðumaður Hvíta-
sUnnusafnaðarins í Reykjavík, um
500 manna safnaðar. Hann var
kallaður til starfa sem eftirmaður
Ásmundar Eiríkssonar árið 1970.
Starfið hefur verið kröftugt og
markvisst eins og fólks þessa safn-
aðar er von og vísa, en þegar Ein-
IVIANWSIVIYND
eftirÁma Johnsen
ar lætur nú af störfum hefur orð-
ið nokkurt fjaðrafok í fjölmiðlum
um þær breytingar sem eru í að-
sigi. Eftir því sem næst verður
komist ristir það ekki djúpt. Menn
geta mæðst í skoðanaskiptum um
mikilvæg mál, en grunnur hvíta-
sunnumanna er sterkari en svo að
þeir verði sárir þótt ágreiningur
sé þangað til ákvörðun hefur verið
tekin. Auðvitað hafa safnaðarmeð-
limir haft áhyggjur af málinu, en
þá er beðið til Guðs og það mun
verða öllum lýðum ljóst eins og
segir í spádóminum. Reynslutím-
inn gengur yfir, niðurstaða fæst.
Samverkamenn Einars í söfnuðin-
um klípa ekkert af því að hann
sé ákaflega fastur fyrir ef það er
hans heilög sannfæring, en segja
að fjarri sé því að hann ráði einn
ferð og ætlist heldur ekki til þess.
Viðmælendur mínir segja að hon-
um sé auðvelt að fara leið mála-
miðlunar og lúta rökum þegar
bræða þarf saman skoðanir til
þess að fá niðurstöðu sem sé sem
ásættanlegust. Það er ákaflega
erfitt að rita um Einar í Betel og
ætla sér að fjalla um hvort tveggja,
kosti hans og galla eins og vera
ber hjá mannanna bömum, því
þannig er því farið með hann að
gallarnir hans verða einhvern veg-
inn að kostum þegar upp er stað-
ið. Það vill enginn, sem til þekkir,
hafa Einar J. Gíslason öðruvísi en
hann er.
Einar Jónasson safnaðaröld-
ungur, sem oft hefur gagnrýnt
nafna sinn og verið honum ósam-
mála, enda þekktur fyrir að fara
ekki alltaf troðnar slóðir í skoðun-
um, sagði afdráttarlaust: „Einar í
Betel getur gert mig bálillan, en
ég elska hann samt. “
Einu sinni spurði ég Einar hver
væri hans mesti veikleiki: „Þetta
er erfið spurning Addi,“ svaraði
hann, „ég er sterkur bindindis-
maður, sterkur í pólitíkinni, með
sterkan líkama og ég hef lagt
kapp á að vera umtalsfrómur, án
þess að ljúga. Ég hef haft einn
mjög mikinn veikleika, ég var
mjög lystugur. Mest var ég 162
kíló, en þá fastaði ég í 40 daga
og 40 nætur. Það eru ekki allir
sem gera það, en nú er ég 100
kíló að þyngd. Ég get þó ekki
neitað því að mér finnst mjög
gott að fá saltkjöt og baunir.“
„Við höfum oft deilt hart við
Einar,“ sagði Einar Jónasson sem
fyrr er vitnað til, „en sjaldan höf-
um við skilið án þess að kranast,
því okkur þykir vænt hvorum um
annan. (Kran er bræðrakveðja
safnaðarmeðlima þegar þeir faðm-
ast í kveðjuskyni.) Ein sérstaða
Einars er sú að hann segir allt,
hann er svo einlægur og þar að
auki er hann frábær sögumaður.
Það þýðir til dæmis ekkert að segja
honum leyndarmál ef það er ekki
þeim mun meira trúnaðarmál.
Hann getur verið kominn með
„leyndarmálið“ í ræðu fyrr en var-
ir, sagt það og bætt síðan við: Ég
ætla ekki að segja nafnið, en það
þekkja allir hann Sigga á Löndum.
Það er engin spurning að það
er gott að hafa Einar innanborðs
og það er jafngott þó að maður
sé ekki alltaf sammála honum.
Hann sækir fast sitt mál, en tekur
tillit til annarra manna," sagði
Einar Jónasson múrari.
„Mér finnst Einar í Betel mjög
sérstæður persónuleiki og ég vildi
að við ættum fleiri prédikara sem
gætu þrumað yfír þjóðinni eins og
hann gerir,“ sagði Sigmund teikn-
ari í Eyjum um Einar, en hann
hefur þekkt hann lengi. „Einar er
prýðismaður í alla staði, opinskár
og einlægur og hafsjór af fróðleik.
Hann er traustur maður sem alltaf
er hægt að leita til, gull af manni
og einn af þeim mönnum sem
maður getur litið upp til. Eljan í
honum er ótrúleg, því hann sinnir
svo mörgu án þess að fólk al-
mennt átti sig á því, heimsóknir í
fangelsi, til sjúks fólks og til þeirra
sem minna mega sín. Þeir eru
ekki á flæðiskeri staddir sem eiga
hann að, en líklega getum við
ekki réiknað með meira en einum
slíkum prédikara á öld.“
Sigurbjörn Einarsson biskup
sagði að kynni þeira Einars hefðu
verið töluverð um árabil: „Við átt-
um samstarf í stjóm Biblíufélags-
ins. Einar var kosinn í stjóm þess
samkvæmt minni tillögu og fram-
kvæmdastjórans, Hermanns Þor-
steinssonar, enda höfðu hvíta-
sunnumenn sýnt félaginu mikinn
„áhuga og vinsemd og Einar var
fyrsti stjórnarmaðurinn utan
stjórnkerfís Þjóðkirkjunnar. Við
Einar áttum langt og gott sam-
starf. Einar er þægilegur maður
í samstarfi, áhugasamur og vak-
andi og það hefur farið vel á með
okkur yfirleitt.“
Fyrri kona Einars var Guðný
Sigurmundsdóttir. Hún dó af
barnsförum þegar fjórða barn
þeirra Einars fæddist og barnið
dó einnig. Börn þeirra eru Guðrún
Margrét, Guðni og Sigurmundur
Gísli. Síðari kona Einars er Sig-
urlína Jóhannsdóttir. Þau eiga
eina dóttur sem ber nafn Guðnýjar
fyrri konu hans. Sigurlína sagði
um mann sinn að á heimilinu vilji
hann hafa allt í röð og reglu.
Hann gangi vel um sjálfur og
hengi upp fötin sín. Reglusemi