Morgunblaðið - 25.02.1990, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJOIMVARP SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1990
39 ~
Sjónvarpið:
Alli ríki
■H í þessum þætti heilsar
Ol 05 Árni Johnssen blaða-
&X. maður upp á Aðal-
stein Jónsson, útgerðarmann á
Eskitirði, og spjallar við hann
um Hfsbaráttu og störf að út-
gerð og fiskvinnslu um áratuga
skeið.
Jafnvægi í byggð þessa lands
getur einatt oltið á fámennum
hópi ötulla athafnamanna er
trúa á mátt sinn og megin, jafnt
sem á trausta möguleika heima-
byggðar sinnar til vaxtar, við-
gangs og blómlegs mannlífs,
Einn úr hópi slíkra máttarstólpa er „Alli ríki“, Aðalsteinn Jónsson,
er svo sannarlega var ekki fæddur með silfurskeið í munni en hefur
byggt upp öflugan atvinnurekstur og útgerð á Eskifirði með eigin
höndum, duganaði og viljafestu. Hann er nú einn af mestu athafna-
mönnum landsins; rekur frystihús, bátaútgerð, loðnuverksmiðju og
rækjuverksmiðju, svo eitthvað sé nefnt af þeirri starfsemi er hann
hefur byggt upp á umliðnum áratugum. Hann verður seint borinn
þeim sökum að hann hafi sóað tíma sínum og hefur reyndar orð á
sér fyrir að vera gæddur sérstöku „sjötta skilningaviti" í atvinnumál-
um.
Plús-film stóð að gerð þáttarins, Sveinn M. Sveinsson stjórnaði
upptökum en hljóðvinnsla var í höndum Jóns Karls Helgasonar.
Aðalsteinn Jónsson.
Stðð 2:
Dallas
■■■■ Dallas er á dagskará Stöðvar 2 í kvöld. April kemst að
Of\ 30 raun um að oft má satt kyrrt liggja þegar hún neyðist til
að fara huldu höfði eftir að verið að grafast fyrir um
fortíð Nicholasar, elskhuga Sue Ellen. Aumingja Sue Ellen skilur síst
í skyndilegri og dularfullri hegðun elskhugans. Gamli refurinn, J.R.,
sannfærir Cliff um að best sé að haga sem lengst á þessum Westst-
ar hlutabréfum á milli þess sem J.R. reynir ítrekað að ná Ewing
nafninu aftur á fyrirtækið. Viðskiptasamband Bobby við Kay Lloyd
reynist mjög ánægjulegt. Fyrrverandi kærasti Laurel grátbiður hana
um að konm aftur til London með sér en hún vill sem minnst af
kauða vita. Á meðan reynir David Shulton að kúga fé út úr Clay-
ton. Patrick Duffy, þ.e. Bobby, Ieikstýrði þessum þætti.
00.10 I háttinn.
1.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns.
Fréttir kl. 7.00,7.30,8.00,8.30,9.00,10.00,11.00,
12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00, 17.00,
18.00, 19.00, 22.00 og 24.00.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.00 Áfram ísland. Islenskir tónlistarmenn flytja
dægurlög.
2.00 Fréttir.
2.06 Eftirlætislögin. Svanhildur Jakobsdóttir spjall-
ar við Guðlaug Bergmann framkvæmdastjóra
sem velur eftirlætislögin sín. (Endurtekinn þáttur
frá þriðjudegi á Rás 1.)
3.00 „Blítt og létt...“ Endurtekinn sjómannaþátt-
ur Gyðu Drafnar Tryggvadóttur frá liðnu kvöldi.
4.00 Fréttir.
4.05 Glefsur. Úr dægurmálaútvarpi mánudagsins.
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Á vettvangl. Umsjón: Páll Heiðar Jónsson
og Bjarni Sigtryggsson. (Endurtekifln þáttur frá
deginum éður á Rás 1.)
5.00 Fréttir af veöri, færð og flugsamgöngum.
5.01 Lísa var það, heillin Llsa Pálsdóttir fjallar um
konur I tónlist. (Endurtekið úrval frá miðvikudags-
kvöldi á Rás 2.)
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
6.01 Á gallaþuxum og gúmmlskóm. Leikin lög fré
sjötta og sjöunda áratugnum.
LANDSHLUT AÚTVARP Á RÁS 2
8.10-8.30 og 18.03-19.00.Útvarp Norðurland kl.
989
OmcTÆJH
7.00 Rósa Guðbjartsdóttir ’og Haraldur Glslason
taka daglnn snemma. Klkt í blöðin og pistla I
tilelni dagsins.
9.00 Haraldur Glslason vekur fólk í rólegheitunum.
0.00 Valdis Gunnarsdóttir. Vinir og vandamenn
kl. 10.30. Uppskriftir dagsins rétt fyrir hádegi.
Afmæliskveðjur milli 13.30-14.
12.00 Hádegisfréttir.
I4.00 Ágúst Héðinsson og það nýjasta I tónlist-
■ innl. Waður vikunnar valln s: 611111.
I7.00 Reykjavik síðdegis. Sigursteinn Másson.
Vettvangur hlustenda.
18.00 Kvöldfréttir.
18.15 Islenskir tónar.
19.00 Snjólfur Teitsson.
20.00 Óláfur Már Björnsson á kvöldvaktinni.
22 00 Stjörnuspekl. Gunnlaugur Guðmundsson og
Pétur Steinn. Stjörnumerki tekin fyrir. mánaðar-
merkið og gestur lítur inn I hljóðstofu.
24 00 Freymóður T. Sigurösson á næturvappi.
/ FM 107.2
FM 102,2
7.00 Snorri Sturluson. Morgunspjall um menn og
málelni.
10.00 Bjarni Haukur Þórsson. Klukkan 11 íþrótta-
fréttir.
13.00 Sigurður Helgi Hlöðversson. Óskalög og hlu-
standi dagsins, Iþróttafréttir klukkan 16.00.
17.00 Ólöf Marin Úlfarsdóttir.
19.00 Richard Scobie.
22.00 Kristófer Helgason.
01.00 Björn Þórir Sigurösson.
ÚTRÁS
FM 104,8
8.00 FG.
11.00 MK.
14.00 FB.
17.00 FG.
20.00 FB.
23.00 MK.
2.00 Dagskrárlok.
AÐALSTOÐIN
FM 90,9
7.00 Nýr dagur. Eirikur Jónsson. Morgunmáður
Aðalstöðvarinnar með fréttir, viðtöl og fróðleik i
bland við tónlist.
8.00 Árdegi Aðalstöövarinnar. Anna Björk Birgis-
dóttir. Ljúfir tónar í dagsins önn með fróöleiks-
molum um færð veður og flug.
12.00 Dagbókin. Innlendar og erlendar fréttir um
allt sem þú vilt vita. Fréttir af fólki, færð, flugi
og samgöngum. Umsjónarmenn Asgeir Tómas-
son, Þorgeir Áátvaldsson, Eirlkur Jónsson og
Margret Hrafns.
13.00 Lögín vlö vinnuna. Fréttir af færð og umferö.
Lögin valin I sima 626060. Umsjón Þorgeir Ást-
vald8son.
16.00 í dag i kvöld með Ásgeiri Tómassyni. Fréttir
og fréttatengt efni um málefni Kðandi stundar.
18.00 Á rökstólum. i þessum þætti er rætt um þau
málefni.sem efst eru á baugi hverju sinni. Við-
mælendur eru oft boðaðir með stuttum fyrirvara
til þess að á rökstólum séu ætíð rædd þau mál
sem brenna á vörum fólks i landinu. Hlustendur
geta tekið virkan þátt i umræðunni i gegnum
síma 626060. Umsjón Bjarni Dagur Jónsson.
18.00 Það fer ekkert á milli mála. Ménudagskvöld
á Aðalstöðinni er málið. Gulli litur á það helsta
sem er að gerast og-upplýsir hlustendur um
það. Ljúfir tónar og fróðleikur um flytjendur.
Umsjón Gunnlaugur Helgason.
22.00 Draumasmiðjan. Draumar hlustenda ráðnir
í beinni útsendingu. Allt sem viðkemur draumum
getur þú fræðst um é Aöalstööinni, Siminn
626060, Umsjón Kristján Frimann.
EFF EMM
FM 95,7
7.00 Arnar Bjarnason.
10.00 ívar Guðmundsson.
13.00 Siguröur Ragnarsson. Glæný tónlist.
16.00 Jóhann Jóhannsson. Afmæliskveðjur og
stjórnuspá fyrir afmælisbörn dagsins á sínum
stað. Pizzuleikurinn kl. 18.
19.00 Ragnar Vilhjálmsson.
22.00 Valgeir Vilhjálmsson. Sex-pakkinn korter i
ellefu.
1.00 Næturdagskrá.
Rás 1;
Nonrænir
tónar
■■■■ Þátturinn Norrænir
QA 15 tónar eru á dagskrá
Rásar 1 í kvöld. Þar
verður leikin sænsk tónlist eft-
ir þá Lille Bror Söderlundh,
August Söderman og Wilhelm
Stenhammar. Eftir Söder-
lundh heyrum við Konsertínó
fyrir óbó og strengi, í flutningi
Sinfóníettunnar í Stokkhólmi,
sem Esa Peeka Salonen stjórn-
ar. Verk Stenhammars er
„Iþaka“, op. 21, og verk Söd-
ermanns hið kunna_ lag um
„Heimi konung og Áslaugu",
sem hér heyrist í hljómsveitar-
útsetningu Hugos Alfvéns.
Flytjendur í þessum verkum
eru ekki af lakara taginu;
söngvarinn er Hákan
Hagegárd, sem gerði garðinn
frægan í sjónvarpsuppfærslu
Ingimars Bergmanns á
„Töfraflautunni", og Sænska
útvarpshljómsveitin sem Kjell
Ingebertsen stjórnar.
Stöð 2=
Óvænt endalok
■■■■ Óvænt endalok eru á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld. Lucy
QQ 50 Gutterodge fer hér með hlutverk ungrar, fallegrar og
~~ hæfilega kærulausrar konu. Viðskiptajöfur hittir hana á
hótelbar og veldur.hún honum ýmsum vandræðum. Öryggisvörður
á hótelinu varar hann við en viðskiptajöfurinn skeytir engu um aðvör-
unina og býður ungfrúnni í kvöldmat og kampavin. Þeim kemur vel
saman og fara til herbergis hans.
Gárur
eftir Elínu Pálmadóttur
*
An hugrekkis duga
engar dyggðir
Pistill dagsins er hugrekki.
Allar aðrar dyggðir duga víst
skammt, ef ekki fylgir kjarkur til
að fylgja þeim fram. Þessi al-
kunnu sannindi tóku að gára
sinnið við nálægð einstaklinga
með þennan fágæta eiginleika.
í fréttunum birtist kona í
Reykjavík, sem sýndi ótrúlega
hugdirfsku er hún ruddist um-
svifalaust inn í hús til andlega
sjúks, hættulegs manns til að
bjarga litlum dreng frá því að
verða fyrir skaða. Það var ekkert
sjálfgefið að hún hikaði ekki við
að taka slíka áhættu. Hún var
búin að gera skyldu sína, hringja
í lögregluna. Ætli flestir hefðu
ekki látið það duga — tvístígandi
af ótta við að koma of seint? En
eins og málshátturinn segir: Það
orkar ekki á hreysti kappans fyrr
en á hólminn er komið. Enda er
hugrekki einstaklingsbundið,
tengist persónulegri
tilfinningu. Finnst
ekki í kerfum, eins og
glöggt sást í máli
þessa hættulega kyn-
ferðisglæpamanns.
Enginn bar ábyrgð á
honum.
íslendingar eru
komnir af köppum
miklum, eða telja að
minnsta kosti að svo
sé. Að vísu beindist
hugrekki forfeðranna
kannski mest að því
að verja sína eigin
sæmd og sinna, og að
mæta dauða sínum
með upprétt höfuð,
sbr. ummæli Þóris
Jökuls: Upp skaltu á
kjöl klífa/köld er sjáv-
ardrífa. Og hreysti
orðin: Eitt sinn skal hver deyja.
Eflaust eitthvað enn í genunum á
einstaklingum af þeim arfi. Flest-
ir sleppa þó með að sitja í makind-
um á spjalli í góðum hópi, á fund-
um, í stjómum og á þingi og
ræða af góðum hug um það sem
þarf eða ekki má gera, án þess
að koma nokkurn tíma á hólminn,
þar sem reynir á hugrekkið. Og
allar heimsins frómu óskir og öll
heimsins gagnrýni duga skammt
ef ekki fylgir hugrekki til að fram-
kvæma það góða sem menn vilja.
Annað lifandi dæmi um hug-
rekki einstaklingsins blasti við
okkur í vikunni í persónu Vaclav
Havels, sem var hér mitt á meðal
okkar á íslandi. Hann sýndi það
yfirmáta hugrekki að undirrita'
stefnuyfirlýsingar, sem hlutu að
koma honum í fangelsi. Og hann
sat við illa aðbúð í fangelsi án
þess að hægt væri að sjá fram á
að það mundi breyta miklu. Og
hann þurfti þess ekki. Honum,
þekktum rithöfundinum, stóð til
boða að skrifa afsökunarbréf til
að verða sleppt eða fá leyfi til að
fara úr landi. En hann hafnaði
því. Sagði að rithöfundar og
menntamenn mundu aldrei verða
að gagni nema þeir tækju sömu
áhættu og hegningu og allir aðr-
ir. í leikriti lætur hann verkstjór-
ann í brugghúsinu segja eitthvað
á þá leið, að hann standi í öðrum
sporum gagnvart því að sýna
hugrekki én rithöfundurinn
fangni, sem hann er að tala við,
því „hver hugsar um mig“ (utan
múranna)? Gott ef þessi einþátt-
ungur var ekki leikinn 5 íslenska
útvarpinu um daginn. Við þær
aðstæður, sem lýst er í Bory-
fangelsinu þar sem Havel sat,
þurfti ómælt persónulegt hug-
rekki, þegar enginn átti von á því
að það leiddi til þess sem nú er
fram komið.“
Svo sat þessi maður, Vaclav
Havel, allt í einu í Þjóðleikhúsinu
okkar, orðinn forseti lands úr helj-
argreipum. Rithöfundurinn Havel
að sjá spenntur fýrsta leikrit sitt
á fjölum í 22 ár. Leikrit sem varð
á þessari fjarlægu eyju norður í
höfum alveg eins og hann hafði
hugsað sér það á sviði. Svona
getur verið stutt á milli mann-
eskja í mannheimi. Áður en
stemmningin hafði náð tökum á
okkur, sem sátum úti í gamla
góða salnum í Þjóðleikhúsinu,
hefur kannski fleirum farið sem
mér í upphafí orðræðu arkitek-
tanna á sviðinu, að brosa í kamp-
inn. Finnast umræður þessara
arkitekta býsna nálægar Þjóðleik-
húsgestum. Leikritið Endurbygg-
ingin fjallar nefnilega um hóp
opinberra arkitekta, sem falið er
af stjómvöldum að endurbyggja
nálægt gamalt þorp, ryðja því
burtu svo að fólkið fái ný blokkar-
hús, sem séu því fýrir bestu —
burtséð frá því hvort það kynni
betur við sig í sínu gamalþekkta
umhverfí. Yfírarkitektinn, sem
vill taka tillit til svona óraunsærra
tilfinninga, huggar sig við það að
þótt þeir teikni eftir kröfunum að
ofan, þá verði aldrei neitt úr neinu.
Til þess vanti efni, vélar og tæki1
og fé til að fá það. Ándartak skaut
upp í hugann syndsamlegri hugs-'
un: kannski fer þannig líka hér f:
spamaðarherferðinni, að fé skorti
til að rífa það gamla. En nei, (
líklega ber óskhyggjan mann of-'
urliði eins og arkitektinn.
En svo ljótar hugsanir hurfu;
brátt fyrir mögnuðu leikriti Ha-.
vels, sem hafði sýnilega samúð
með öllum persónunum í klemmu
þarna á leiksviðinu, nema hinum,
allsráðandi fulltrúa stjórnvalda.
Enda em aumingja arkitektarnir
bara allir að reyna að lifa af,
hver með sínum hætti. Og þeir
eru einmitt talandi dæmi um það
hve erfítt getur verið að sýna
hugrekki þegar á hólminn er kom-
ið. Þetta hugrekki, sem eitt skipt-
ir máli. Leikritið er einmitt um
hugrekki.
Það er þetta hugrekki, sem er
svo aðdáunarvert tilsýndar í fari
annarra, en enginn veit hvort!
hann hefur fyrr en á reynir. Eða
eins og Piet Hein segir í grúk-
kunni með islenskum orðum
Helga Hálfdanarsonar:
Ósérhtifni ,
í öllum vanda
er besta óskin
öðrum til handa,