Morgunblaðið - 30.03.1990, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDA'GUR' SOjMARZ 1990
Hafís fyrir Norðvesturlandi:
Vildi ekki þurfa að sigla
gegnum þetta í myrkri
- segir skipstjórinn á Skafta SK
HAFÍS er landfastur frá Straum-
nesi allt austur fyrir Horn og er
siglingaleiðin á þessum slóðum
illfær. Israstirnar eru Yio að þétt-
leika en víða eru þéttari rastir.
ísinn er kominn inn í strand-
strauma og gæti borist inn í
Húnaflóa á næstu dögum. Spáð
er hægum vestlægum vindum við
6 milljónir
til kvikmynda
Ríkisstjórnin hefúr ákveðið að
veita 6 milljónum króna til kvik-
myndamála til viðbótar því fram-
lagi sem fjárlög ákváðu.
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra sagði Morgunblaðinu að
ekki þyrfti aukafjárveitingu vegna
þessarar upphæðar heldur kæmi
hún af fjárveitingarlið sem ríkis-
stjórnin hefði til ýmissa mála.
norðvestanvert næstu dægrin
landið en í háloftunum eru sterk-
ir vestlægir vindar. Víða eru
stakir jakar og litlar rastir á sigl-
ingaleiðinni frá Bjargtöngum að
Isafjarðardjúpi.
Að sögn Þórs Jakobssonar, veð-
urfræðings, er ekki útlit fyrir að
ísinn hopi í bráð. Sagði Þór að þetta
væri geysimikill og þykkur vetrarís.
Fjögur skip, Drangey SK, Skafti
SK, Björgvin EA og Stapafell voru
úti fyrir norðvestanverðu landinu í
gærmorgun þegar TF-SYN, flugvél
Landhelgisgæslunnar, flaug yfir
hafsvæðið til ískönnunar. Leið-
Deindu flugmenn skipverjum um
tíma í gegnum þéttar ísrastirnar.
Sverrir Kjartansson, skipstjóri á
Skafta, sagði að þéttur ís væri aust-
ast á siglingaleiðinni greiðfært eftir
það. Skipið var á leið til veiða á
Eldeyjarbanka og var statt utan við
Arnarfjörð þegar Morgunblaðið
náði tali af honum síðdegis í gær.
„Við erum á vesturleið til veiða
á Eldeyjarbanka. Við komumst
þetta með því að fara nógu nærri
íandi. Skuttogarinn Björgvin frá
Dalvík fór fyrstur og ruddi leiðina,
enda er hann vel styrktur til sigl-
inga í hafís. Síðan komum við í
kjölfarið og þá Stapafellið. ísinn er
nú farinn að gliðna þó nokkuð. Hér
er hægur sunnanandvari, þetta
hlýtur að hafa gliðnað núna. Drang-
eyin var á leið austur og við_ mætt-
um henni við Straumnes. Ég veit
ekki hvernig ísinn var austast þegar
líða tók á daginn."
Sverrir sagði að engir stakir jakir
væru í sjónum þegar komið væri
vestur fyrir Dýrafjörð. „Það eru
nokkrir litlir jakar úti fyrir Dýra-
firði og um 100 metra breið ísspöng
upp í deildina sem þarna er. Það
er auðvelt að fara í gegnum hana
og hún er að gliðna í sundur. Mað-
ur kemst þetta í björtu en ég vildi
ekki þurfa að sigla í gegnum þetta
í myrkri,“ sagði Sverrir.
VEÐURHORFUR í DAG, 30. MARZ
YFIRLIT í GÆR: Skammt austan af Jan Mayen er 965 mb djúp
lægð á leið norðaustur en nærri kyrrstæð 994 mb lægð er um 400
km vestur af Reykjanesi. Langt suðvestur í hafi er dálítil lægð, sem
hreyfist hratt norðaustur.
SPÁ: Hæg suðlæg átt og vægt frost. Dálítil snjókoma á Suðausturl-
andi en annars þurrt. Hiti -s-1 til h-5°C.
1/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Fremur hæg breytileg
eða vestlæg átt og vægt frost. Dálítil snjókoma eða él víða um
land, einkum þó um vestanvert landið.
TAKN:
-(^^)* Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-JO Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J* Skafrenningur
Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri +2 léttskýjað Reykjavík +3 snjókoma
Bergen 5 rigning
Helsinki 5 skýjað
Kaupmannah. vantar
Narssarssuaq *11 snjókoma
Nuuk +5 skýjað
Ósló 7 skýjað
Stokkhólmur 10 léttskýjað
Þórshöfn 6 hálfskýjað
Algarve 18 heiðskírt
Amsterdam 11 léttskýjað
Barcelona 13 hálfskýjað
Berlín 10 alskýjað
Chicago 4 rigning
Feneyjar 15 skýjað
Frankfurt 9 alskýjað
Glasgow 11 skýjað
Hamborg 11 léttskýjað
Las Palmas vantar
London 12 skýjað
Los Angeles 12 léttskýjað
Lúxemborg 7 mistur
Madríd 13 heiðskírt
Malaga 17 léttskýjað
Mallorca 8 þrumuveður
Montreal +8 heiðskirt
New York 3 skýjað
Orlando 18 þokumóða
Paris 11 skýjað
Róm 12 skýjað
Vin 7 alskýjað
Washington 7 skúr
Winnipeg +5 skýjað
Sendine&id frá ríkissijórn Litháen gekk í fyrradag á fúnd Haraldar
Kröyer sendiherra íslands í Osló og afhenti honum bréf til forseta
Islands frá Landsbergis, forseta Litháen. Á myndinni eru frá vinstri:
Haraldur Kröeyr, sendiherra, Laima Liucija Andrikiene túlkur Lit-
há, Jón Egill Egilsson, Emanuelis Zingeris formaður sendinefndarinn-
ar, Raumanas Antononas Bogdanas ráðgjafi utanríkismálanefndar
litháíska þingsins, og Paul Chaffey.
Forseti Litháen í bréfi til forseta íslands:
Vonast eftir áframhald-
andi stuðningi Islendinga
Skrifstofa Forseta Islands gaf í
gær út eftirfarandi fréttatilkynn-
ingu:
„FORSETA íslands hefur borist bréf
frá Vytautas Landsborgis, forseta
Æðasta ráðs Litháen. Þar er gerð
grein fyrir kosningum þar í landi 24.
febrúar og 10. mars sl., en niðurstöð-
ur gáfu til kynna ótvíræðan vilja
þjóðarinnar til að endurreisa lýðveld-
ið Litháen og ti-yggja þau grundvall-
armannréttindi, sem koma fram í
fyrstu stjórnarskrá landsins frá 15.
maí 1920. Samkvæmt því var 11.
mars sl. lýst yfir endurreisn lýðveld-
is í Litháen og Æðsta ráði sovétlýð-
veldisins breytt í Æðsta ráð lýðveld-
isins.
Með bréfinu sendir Landsbergis
fyrir hönd Æðsta ráðsins yfirlýsingar
þess sem samþykktar voru 11. mars
1990. Er þar sérstaklega lögð,
áhersla á að lýðveldið Litháen muni
fara að alþjóðalögum og eftir ákvæð-
um Helsinki-samþykktarinnar um
landamæri ríkja, svo og að tryggð
verði réttindi allra þjóðflokka sem
búa í Litháen.
Með bréfinu fylgir texti samnings
um milliríkjaviðskipti frá júlí 1923,
sem Coid, utanríkisráðherra Dana,
gerði fyrir hönd íslendinga við Galv-
anaunskas, utanríkisráðherra Lithá-
en. Einnig fylgir texti samnings um
siglingar frá 1931, sem Biering, ut-
anríkisráðherra Dana, gerði fyrir
hönd íslendinga, við Zanius, utanrík-
isráðherra Litháen.
Að lokum flytur forseti Litháen
forseta íslands og íslensku þjóðinni
hlýjar kveðjur litháísku þjóðarinnar
og Æðsta ráðsins, og lætur í ljós ósk
um að íslenska þjóðin haldi áfram
að lýsa stuðningi við rétt litháísku
þjóðarinnar tii frelsis og sjálfs-
ákvörðunar.11
Arnarflug:
Leitar eftir leign-
vél í Bretlandi
íslandsbanki lokar ávísanareikningi
FARÞEGAR Arnarflugs til og frá Islandi fóru með Flugleiðum gegnum
Kaupmannahöfii í gær, en Arnarflug var þá flugvélarlaust. Fram-
kvæmdasljóri Arnarflugs átti í gærkvöldi von á að samningar næðust
um að leigja flugvél frá Bretlandi i dag, sem leigð verði til 1. mai en
þá fái félagið aðra vél frá Bandaríkjunum. íslandsbanki liefúr lokað
ávísunarreikningi Arnarflugs vegna útgáfú innistæðulausra ávísana
og munu forsvarsmenn
vegna þess í dag.
72 farþegar, sem áttu bókað far
til Amsterdam með Arnarflugi, fóru
með Flugleiðum til Kaupmannahafn-
ar í gærmorgun. Arnarflug hafði
beðið Flugleiði að sækja um 100
farþega sem áttu að koma frá Amst-
erdam til íslands í gær, en Flugleið-
ir höfnuðu því. Að sögn Einars Sig-
urðssonar blaðafulltrúa Flugleiða
var það álit lögfæðinga, að hætta
væri á að flugvél Flugleiða yrði kyrr-
sett á Shiphol flugvelli vegna skulda
Arnarflugs þar. I gær náðust svo
samningar um að farþegar Arnar-
flugs kæmu frá Kaupmannahöfn
með Flugleiðum í gær en nokkrir
koma frá London í dag. Einar Sig-
urðsson sagði að Arnarflug hefði
lagt fram fullnægjandi tryggingu
fyrir greiðslu vegna þessara flutn-
inga.
Snemma í vikunni lokaði Islands-
banki ávísanareikningi Arnarflugs í
bankanum vegna útgáfu innistæðu-
lausra ávísana. Kristinn Sigtryggs-
son framkvæmdastjóri Arnarflugs
sagði við Morgunblaðsins, að vegna
flækja í kerfinu hefði félagið lent
aðeins yfir á tékkareikningnum.
„Okkur fannst þeir nú fullharkalegir
í aðgerðum því bankinn hefur alltaf
haft fullar tryggingar fyrir okkar
skuldum samkvæmt mati bankans á
tryggingunum. Ég vona því að þetta
leysist og sé aðeins tímabundið
vandamál en við munum ræða við
bankann á föstudagsmorgun," sagði
ræða við bankastjora Islandsbanka
Kristinn.
Tryggvi Pálsson bankastjóri ís-
landsbanka vildi ekki tjá sig um
þetta mál í gær.
Kristinn sagðist eiga von á að
Arnarflug fengi leigða flugvél frá
Bretlandi í dag, þannig að áætlunar-
flug félagsins komist í eðlilegt horf,
en engin áætlunarferð er í dag. Þann
1. maí væri svo von á flugvél frá
Bandaríkjunum sem Arnarflug tæki
á leigi til lengri tíma.
Arnarflug leitar nú samninga um
skuldir félagsins, en það er forsenda
fyrir því að nýtt hlutafé komi inn.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hafa lánadrottnar Arnar-
flugs fengið bréf frá lögmannsskrif-
stofu Jóns Gunnars Zoega og Jóns
Arnar Ingólfssonar þar sem boðið
er upp á tvo kosti við samninga um
skuldir. Annars vegar að Arnarflug
greiði 25% skuldarinnar á næstu 6
mánuðum, eða þá alla skuldina á
10 árum, vaxtalaust en verðtryggt.
Þá hafa hluthafar í Arnarflugi
hafa farið þess á leit við Fram-
kvæmdasjóð að fá lán til hlutafjár-
aukningar. Guðmundur B. Olafsson
forstjóri sjóðsins sagði við Morgun-
blaðið, að mál hvers hluthafa fyrir
sig verði tekið til afgreiðslu þegar
að því kæmi. Framkvæmdasjóður
lánaði hluthöfum í Arnarflugi sam-
tals um 140 milljónir króna til hluta-
fjáraukningar fyrir rúmu ári.