Morgunblaðið - 30.03.1990, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 30.03.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1990 List um landið: Hringiir í Borgamesi og- Siguijón á Siglufirði SÝNING á verkum Sigurjóns Jóhannssonar, leikmyndateiknara og málara, verður opnuð á morgun, laugardaginn 31. mars, í bæjar- stjórnarsalnum á Siglufirði. Ennfiremur opnar Hringur Jóhannesson málverkasýningu í Borgarnesi sunnudaginn 1. apríl kl. 16. Sýning Siguijóns nefnist „Síldar- ævintýrið" og er sviðið sem lýst er í þessum myndum lífið sjálft eins og það kom ungum dreng fyrir sjón- ir í athafnasömu síldarplássi. Sýn- ingin er opin daglega kl. 16-21. Á sýningunni verður seld bókin Svart- ur sjór af síld (síldarævintýrin miklu á sjó og landi) eftir Birgi Sigurðs- son; útgefandi Forlagið. Listasafn ASI, Siglufjarðarkaupstaður og Verkalýðsfélagið Vaka á Siglufirði bjóða til þessarar sýningar. Þá verður málverkasýning Hrings Jóhannessonar opnuð sunnudaginn 1. apríl kl. 16 í húsi Verkalýðsfélags Borgarness í Borg- arnesi. Hringur hefur haldið tugi einkasýninga og tekið þátt í fjöl- mörgum samsýningum heima og erlendis. Með „List um landið" gefst fólki vítt um land gott tækifæri til að njóta hinna litríku og einstöku málverka Hrings Jóhannessonar. Aðgangur að sýninguni er ókeypis. Álafosskórinn heldur tónleika á morgun, laugardag. ■ ÁLAFOSSKÓRINN heldur sína árlegu tónleika í safnaðarheim- ilinu í Mosfellsbæ, Þverholti 3, 3. hæð, laugardaginn 31. mars kl. 17 og í Selfosskirkju sunnudaginn 1. apríl kl. 16. Á efnisskránni eru lög úr ýmsum áttum bæði innlend og erlend, og þrír kórfélagar fara með einsöngshlutverk. í Álafos- skórnum syngja nú 27 félagar, söngstjóri er Helgi R. Einarsson og undirleikari Hrönn Helgadótt- ir. FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 29. mars. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meftal- Magn Heildar- verft verft verft (lestir) verft (kr.) Þorskur '87,00 65,00 74,92 3,750 280.972 Þorskur(ósL) 86,00 66,00 76,79 1,068 82.014 Ýsa 140,00 92,00 129,58 4,236 548.920 Ýsa(ósl.) 117,00 69,00 81,20 0,096 7.795 Karfi 60,00 26,00 31,67 0,510 16.150 Ufsi 32,00 32,00 32,00 0,081 2.592 Steinbítur 61,00 49,00 49,66 0,381 18.921 Langa 49,00 49,00 49,00 0,189 9.261 Lúða 455,00 290,00 329,10 0,434 142.831 Koli 97,00 90,00 95,93 0,059 5.660 Samtals 102,18 11,008 1.124.839 [ dag verður selt óákveöiö magn úr bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 108,00 60,00 81,44 9,784 796.837 Þorskur(ósl.) 71,00 30,00 48,81 10,790 526.632 Ýsa 133,00 93,00 127,68 22,275 2.844.089 Ýsa(ósl.) 129,00 107,00 120,87 0,119 14.383 Karfi 43,00 20,00 39,16 2,351 92.054 Ufsi 33,00 27,00 29,97 11,611 347.961 Steinbitur 60,00 49,00 59,30 4,892 290.101 Langa 56,00 42,00 55,01 7,207 396.454 Lúða 340,00 240,00 291,09 0,469 136.520 Rauðmagi 120,00 41,00 86,26 0,690 59.522 Hrogn 150,00 150,00 150,00 0,415 62.250 Samtals 78,79 70,724 5.572.666 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 96,00 40,00 76,29 44,095 3.363.858 Ýsa 164,00 73,00 126,50 10,558 . 1.335.563 Karfi 395,00 36,00 46,53 0,520 24.194 Ufsi 36,00 30,00 35,36 12,266 433.696 Steinbítur 48,00 28,00 44,67 8,538 381.358 Langa 60,00 47,00 55,49 0,314 17.423 Lúða 395,00 30,00 ■ 175,76 0,033 5.800 Skarkoli 49,00 25,00 37,17 0,434 16.130 Keila 26,00 20,00 25,79 0,585 15.090 Skata 80,00 80,00 80,00 0,105 8.400 Hrogn 212,00 212,00 212,00 0,254 53.848 Samtals 72,46 78,319 5.674.767 í dag verður selt úr dagróðrabátum. FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - YTRA I VESTUR-ÞÝSKALAIMD 29. mars. Hæstaverð Lægstaverð Meðalverð (kr.) (kr.) (kr.) Þorskur 85,51 58,92 72,22 Ýsa 143,71 98,44 121,08 Karfi 137,25 71,86 104,55 Ufsi 81,92 64,67 73,30 GÁMASÖLUR I BRETLANDI 29. mars. Þorskur 172,65 126,29 149,47 Ýsa 195,04 159,87 177,46 Karfi 73,54 54,35 63,95 Nemendur Qölbrautaskóla Vesturlands fruinsýna ímyndunarveikina eftir Moliére. ■ LISTAKL ÚBBUR nemenda- félags fjölbrautaskóla Vestur- lands á Akranesi frumsýnir annað kvöld, laugardagskvöld, gamanleik- ritið Imyndunarveikina eftir MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi athugasemd frá Þorgeiri Þorgeirssyni rit- höfundi: „í fréttum Ríkisútvarpsins klukkan 19.00 þann 14. mars síðastliðinn birtist svohljóðandi frétt: Fréttamaður: Þorgrímur Gests- son. Fréttatími: 19. Heimild: Þorsteinn Geirsson. Titill: Mál Þorgeirs Þorgeirssonar rit- höfundar var flutt fyrir Mannrétt- indanefnd Evrópu í Strassborg í morgun. Þorgrímur Gestsson: Mannréttindanefndin telur ástæðu til að fjalla nánar um tvö' af þeim fjórum atriðum sem Þor- geir vill að fari fyrir Mannréttinda- dómstól Evrópu. Annað þeirra varðar tjáningarfrelsi í samræmi við tíundu grein mannréttindasátt- mála Evrópu, en hitt snýst um fjarveru saksóknara við sum rétt- arhöld í opinberum málum eða sakamálum. Það sem ekki var tal- in ástæða til að fjalla nánar um er, að dómarinn sem dæmdi málið í Sakadómi Reykjavíkur hafí verið starfsmaður ríkissaksóknara þeg- ar málið var til meðferðar þar, og kvörtun Þorgeirs um að hafa ekki fengið að veija sig sjálfur fyrir Hæstarétti. Þorsteinn Geirson ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðu- neytinu og Gunnlaugur Classen ríkislögmaður voru viðstaddir mál- flutninginn í Strassborg, auk Þor- geirs Þorgeirssonar sjálfs og Tóm- asar Gunnarssonar lögmanns hans. Mál þetta spratt út af harðri gagnrýni sem Þorgeir beindi að lögreglunni fyrir fáeinum árum, meðal annars í tilefni af handtöku Skafta Jónssonar blaðamanns, og var dæmdur í sektir fyrir á báðum dómstigum á grundvelli 108. greinar hegningarlaganna þar sem segir að ekki megi hafa í frammi skammaryrði eða aðrar móðganir í garð opinberra starfsmanna, þó sannar séu. Það var ríkið sem saksótti Þorgeir, fyrir hönd lög- reglunnar. Þorsteinn Geirsson ráðuneytisstjóri sagði í samtali við fréttastofuna fyrir stundu, að bú- ast mætti við, að nokkrir mánuðir liðu áður en ljóst yrði hvort málið færi fyrir sjálfan mannréttinda- dómstól Evrópu. Rétt er með það farið í þessari frétt að munnlegur flutningur málsins fyrir Mannréttindanefnd Evrópu fór fram morguninn 14. mars. Hitt er nokkuð brenglað. Það voru tilaðmynda ekki fjögur atriði heldur tíu atriði sem ég hafði talið athugaverð í gangi þessa sakamáls gegn mér. Og ég kærði þessi atriði undir þijár greinar Mannréttindasáttmálans: undir 6. grein sem tryggir sökuðum manni óhlutdræga dómsmeðferð, undir 8. grein sem tryggir öllum þegnum helgi einkalífsins og undir 10. franska leikritaskáldið Moliére. Verkinu er Ieikstýrt af Helgu Brögu Jónsdóttur. Um búninga og leikmynd sér Helena Guttorms- dóttir. grein sem tiyggir öllum frelsi orða sinna. Af atriðunum tíu sem ég hafði beðið nefndina að skoða voru tvö meginatriði se'm ég frá upp- hafi málsins hafði verið að mót- mæla. í fyrsta lagi tel ég að 108. grein hegningarlaganna íslensku, þarsem sektum er látið varða að segja sannleikann um opinbera starfsmenn sé óhafandi í löggjöf lands sem hefur undirritað Mann- réttindasáttmála Evrópu. í öðru lagi tel ég að réttarfari í Sakadómi Reykjavíkur sé áfátt því dómarar fara þar með saksóknarvald til viðbótar við dómsvald og ransókn- ai-vald. Hin átta atriðin tengjast öll þessum tveim meginatriðum. í niðurstöðu Mannréttinda- nefndarinnar sem aðilum málsins var kynt símleiðis þá samdægurs um nónbil eru þessi tvö meginat- riði talin gild ástæða fyrir nefndina tilað taka málið upp og flytja það fyrir Mannréttindadómstólnum. Það er því nú þegar ljóst að málið verður flutt fyrir dómstólnum vegna þess að nefndin telur að fyrir liggi sannanir um brot á 6. og 10. greinum sáttmálans. Þetta er vitaskuld aðalatriði málsins og lítill vegur að skrökva sig frá því. Drátturinn sem orðið hefur á þess- ari leiðréttingu minni stafar af því að nú fyrst er ég með þessa niður- stöðu Mannréttindanefndarinnar skriflega í höndunum. Þótti ráð- legra að treysta ekki minni mínu um símtalið, enda blasti við mér hvernig ráðuneytisstjóranum hafði mistekist að muna þetta rétt og hafði hann þó tilhjálp ríkislög- manns og prófessors við Háskóla íslands sem með honum voru þarna í Strasborg. Þó hins síðar- nefnda sé að vísu ekki getið í út- varpsfréttinni. Með fyrirfram þökk fyrir birt- inguna.“ Slysavarnaskóli sjómanna, Sæ- björg, stendur að flotgallasundinu ásamt nemendum Stýrimannaskól- ans. Alls taka fjörutíu nemar úr Stýrimannaskólanum og Vélskólan- um þátt í sundinu og skipta þeir sér í tíu fjögurra manna sveitir sam- kvæmt alþjóðlegum staðli. Keppnin fer þannig fram að liðsmenn hverr- ar sveitar hlaupa liðlega 47 metra, Kærir hler- anir á heiinili MAGNÚS Guðmundsson kvik- myndagerðarmaður hefur kæiT’ ólöglegar hleranir á heimili sínu til Rannsóknarlögreglu ríkisins. Jón Snorrason, deildarlögfræð- ingur hjá RLR, sagði að kæran væri til meðferðar hjá embætt- inu og að Magnús hefði sjálfur ftindið hlerunarbúnaðinn. Magnús fékk ábendingu frá nágranna um að heimili hans kynni að vera hlerað. Nágranninn kvaðst hafa þekkt rödd Magnúsar í útvarpsviðtæki sínu þegar hann leitaði milli útvarpsstöðva. Magnús kærði málið fyrir tveimur mánuðum en í samtali við Morgunblaðið kvaðst hann ekki vita hve lengi hlerunin hefði stað- ið yfir. Hann sagði að hler- unarbúnaðurinn hefði gengið fyrir rafhlöðum svo að varla gæti verið um langan tíma að ræða. Hvorki Magnús né Jón Snorra- son vildu veita upplýsingar um hvernig búnaður þessi er. Tónleikar í Lang- holtskirkju LÚÐRASVEIT Verkalýðsins heldur tónleika í Langholts- kirkju á morgun, laugardaginn 31. mars, kl. 17. Stjórnandi er Jóhann Ingólfsson. Á efnisskrá eru lög eftir Jónatan Ólafsson, Jón Múla Árnason, Sigfús Einarsson, Árna Björnsson, Gunnar Þórðarson, Magnús Eiríksson, Sveinbjörn Sveinbjömsson, Karl O. Runólfsson, Sousa, W. Rimmer, Rimsky-Korsakoff og A. Matt. ■ / TILEFNI af því að Ferðafé- lagið Útivist er nýorðið 15 ára stendur félagið fyrir sérstakri ferðakynningu næstu tvær helgar á Umferðamiðstöðinni. Sett verður upp sýning til að kynna hina miklu fjölbreytni semVr hjá félaginu í ár. Einnig verður ftynning á útbúnaði í gönguferðir, skíðaferðir og hjól- reiðaferðir. Fararstjórar félagsins verða til viðræðna um hinar ýmsu ferðir á ferðaáætlun Útivistar fyrir 1990. Myndasýningar verða og verður fólki boðið að taka þátt í ferðagetraun með góðum verðlaun- um. Ferðakynningin verður opnuð á laugardaginn 31. mars kl. 14 og stendur til sunnudags, 8. apríl. Hún verður opin á laugardögum frá kl. 14-18, á sunnudögum frá kl. 10—18 og virka daga frá kl. 17—19. klæða sig síðan í flotgalla á bryggjusporðinum, stþkkva fram af bryggjunni og synda síðan fimmtíu metra út í gúmmíbjörgun- arbát. Sjávarútvegsráðherra mun veita sigurvegurum verðlaun, en þau eru gefin af fyrirtækinu Kristján Ó. Skagfjörð, sem einnig lánar flot- galla til keppninnar. Athugasemd Stýrimannaskólanemar: Keppa í flotgallasundi við Grandabryggju NEMENDUR í Stýrimannaskólanum í Reykjavík keppa í flotgalla- sundi við Grandabryggju í Reykjavík í dag kl 13 í tilefni af kynning- ardegi Stýrimannaskólans sem verður á morgun laugardag. Að sund- inu loknu munu sjómannskonur alls staðar að af landinu afhenda Halldóri Ásgrímssyni sjávarútvegsráðherra, sem verður viðstaddur sundkeppnina, undirskriftalista með hvatningu til Alþingis og ríkis- stjórnar um að fella niður virðisaukaskatt af vinnufiotgöllum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.