Morgunblaðið - 30.03.1990, Síða 14
MORGUNBIÍAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1990
4
PASKA-
TILBOÐ
PÁSKATILBOÐ
Á INNIPLASTMÁLNINGU.
BYKO BREIDDINNI
BYKO HAFNARFIRÐI
4 1
DAGUR JARDAR22. APRÍL
Móðir jörð á undir
högg að sælqa
Att þú góða hugmynd sem getur nýst henni?
Umhverfisvemd skiptir meira máli nú en nokkm sinni íyrr.
Ef maðurinn heldur áfram að misnota jörðina mun hann á endanum
gera hana óbyggilega.
Við þurfum að snúa vöm í sókn - með sameiginlegu átaki. Til þess þarf
góðar hugmyndir. Því hefur umhverfismálaráð Reykjavíkurborgar
ákveðið að setja á stofn hugmyndabanka vegna „DAGS JARÐAR“,
alþjóðlegs umhverfisvemdardags 22. apríl næstkomandi. Þar gefst
borgarbúum tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum sínum,
tillögum og ábendingum um úrbætur sem geta orðið til að bæta
umhverfi okkar.
Með hugmyndabankanum vill umhverfismálaráð Reykjavíkur kalla á
jákvæðar og framsýnar hugmyndir um úrbætur í nánasta umhverfi
borgarbúa. Umhverfismálaráð mun fara ítarlega yfir allar tillögur sem
skilað verður í hugmyndabankann og hrinda í framkvæmd eftir því sem
kostur er og nánar verður ákveðið.
Hugmyndum og tillögum skal skila fyrir 22. apríl merktum:
Dagur jarðar
Hugmyndabanki
Skúlatúni 2,
105 Reykjavík.
UMHVERFISMÁLARÁÐ REYKJAVÍKUR
Verðkönnun á drykkjarfÖngum
vínveitingahúsa:
Allt að 370% verð-
munur á sömu
tegund drykkjar
Meðalhækkun á bjór er 10% umfram
hækkanir ÁTVR
VERÐKÖNNUN Verðlagsstofhunar hefur leitt í ljós að mikill verð-
munur er á drykkjarföngum milli vínvetingahúsa, og reyndist mesti
verðmunur á sömu tegund drykkjar vera allt að 370%. Þannig kost-
ar t.d. 25 cl glas af gosdrykk 57 krónur þar sem það er ódýrast, en
268 krónur þar sem það er dýrast. Þá kostar flaska af Tuborg bjór
minnst 250 krónur en mest 400 krónur.
Sem dæmi um verðmun á áfengi
má nefna að 25 cl rauðvínsglas
kostar 220 krónur þar sem það er
ódýrast, en 833 krónur þar sem það
er dýrast, þannig að verðmunurinn
er 279%. Lægsta verð á tvöföldum
vodka í gosdrykk er 340 krónur,
en hæsta verð 570 krónur, en það
er 68% verðmunur. Alexander kok-
teill kostar 350 krónur þar sem
hann er ódýrastur en 750 krónur
þar sem hann er dýrastur, og er
verðmunurinn 114%. Þá kostar 33
cl flaska af Egils gull 245 krónur
þar sem hún er ódýrust en 400
krónur þar sem hún er dýrust, og
er það 63% verðmunur.
Alagning á áfengi í veitingahús-
um var gefin frjáls 1. október
síðastliðinn. Af því tilefni gerði
Verðlagsstofnun verðkönnun á all-
mörgum tegundum af áfengi, gos-
drykkjum og kaffi í rúmlega 80
veitingahúsum á höfuðborgarsvæð-
inu, ísafirði, Akureyri og Egilsstöð-
um í lok september s.l. og aðra
könnun nú í byijun mars. Sú könn-
un leiddi í ljós að meðalhækkun á
léttum og sterkum vínum í veitinga-
húsum er á bilinu 5-8% umfram þær
hækkanir sem orðið hafa hjá ÁTVR
síðan álagning var gefin frjáls.
Meðalhækkun á bjór er hins vegar
um 10% umfram hækkanir hjá
ÁTVR. Kaffi hefur að meðaltali
hækkað um rúm 10%, en engin
hækkun hefur orðið á innkaups-
verði þess á tímabilinu. Meðalhækk-
un á glasi af gosdrykk er um 5%,
en hún er aðeins minni en verð-
hækkun frá gosdrykkjaframleið-
endum hefur verið.
í frétt frá Verðlagsstofnun segir
að vissir erfiðleikar séu fólgnir í
því að gera verðsamanburð á veit-
ingahúsum. Sá kostur hafi verið
valinn að kanna verðið á sem flest-
um stöðum, bæði ýmiss konar mat-
sölustöðum og skemmtistöðum.
Þjónusta þeirra sé misgóð, svo og
innréttingar og umhverfi. Þessi at-
riði geti haft áhrif á verðið, en í
könnuninni sé ekki lagt mat á slíkt,
heldur sé eingöngu um að ræða
kynningu og verðsamanburð á verð-
lagi veitingahúsanna.
VERÐBREYTINGAR HJÁ VÍNVEITINGAHÚSUM
Glas af,) Kaffi meö Tvöf. vodka Hvftvins,) Tuborg
gosdrykk ábót fgosdr. glas 33clflaska
Verö Veröbr. Verö Verðbr. Verð Verðbr. Verð Verðbr. Verð Verðbr.
VEITINGASTAÐIR mars sept-mars mars sept-mars mars sept-mars mars sept-mars mars sept-mars
A. Hansen, Hf. 195 (0%) 150 (7%) 490 (14%) 583 (25%) 370 (6%)
American Slyle, R.______________57 (0%) 60 (0%)_________________________________________280 (12%)
Argentina, R.___________________110_______(-) 145______(-) 475________(-) 686 (-) 385______(-)
Asia, R.________________________143 (-) 120 (-) 440 (-) 558 (-) 340 (-)
Askur, Suðuriandsbr. 4 R._______131 (20%) 90 (27%) 480 (30%) 698 (16%) 360 (13%)
Askur, Suðurlandsbr. 14, R. _ 98 (10%) 70 (0%)______________________________________________________
Á Alþingi, R. __________________100 (20%) 120 (20%) 500________(-) 507 (-)___________________
Arberg.R. 99 (13%) 80 (14%) 290 (16%)
Eitt verka Ásgríms Jónssonar sem verða á sýningunni, Flótti.
Eldgosa- og flótta-
myndir Ásgríms
sagnamynd Ásgríms, Sturluhlaup,
frá 1899-1900 og Halla með barnið
frá 1905 auk málverka úr hinni
miklu röð eldgosamynda sem lista-
maðurinn vann að á efri árum.
Ásamt málverkunum eru sýndar
teikningar eða frumdrættir að hin-
um stóru myndum.
Sýningin stendur til 17. júní og
er opin þriðjudaga, fimmtudaga,
laugardaga og sunnudaga
kl.13.30-16.00
í sal'ni Ásgríms Jónssonar,
Bergstaðastræti 74, hefur verið
opnuð sýning á eldgosa- og
flóttamyndum eftir Ásgrím. Á
henni eru 28 verk, olíumálverk,
teikningar og vatnslitamyndir.
Elstu verkin eru frá því um alda-
mót og þau yngstu frá síðustu
starfsárum Ásgríms, um 1955, en
Ásgrímur lést árið 1958 með 60
ára starfsferil að baki. Meðal verka,
sem sýnd eru, má nefna fyrstu þjóð-
*
*
0 f
I
I
I
í
i
5
I
í
€
«
I
i