Morgunblaðið - 30.03.1990, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1990
Breytingar á stjórnskipulagi
KEA miða að því að ná markviss-
ari og skilvirkari yfirstjórnun. Um
fækkun er að ræða meðal stjórn-
enda og skrifstofufólks auk
breyttrar hlutverkaskipan, en til-
gangur breytinganna er að skera
niður kostnað.
Þær breytingar verða gerðar á
yfirstjórnun að allar stöður full-
trúa kaupfélagsstjóra verða lagðar
niður, að starfí aðalfulltrúa undan-
skildu. Sigurður Jóhannesson að-
- alfulltrúi sér um starfsmannahald
og eignaumsjón. Hann ber einnig
ábyrgð á rekstri flutningadeilda,
þvottahúss og fiskverkunar á Ak-
ureyri. Þá er Sigurður einnig stað-
gengill kaupfélagsstjóra í forföll-
um_ hans.
Árni Magnússon hefur verið
ráðinn fjármálastjóri, en hann sér
einnig um skrifstofustjórnun. Árni
var áður fulltrúi kaupfélagsstjóra
á sviði hagmála.
Þorkell Pálsson hefur verið ráð-
- inn markaðsstjóri, en hann var
áður fulltrúi kaupfélagsstjóra á
sviði iðnaðar og markaðsmála.
Þorkell ber einnig ábyrgð á rekstri
Brauðgerðar, Smjörlíkisgerðar og
Efnagerðarinnar Flóru.
■ AÐALFUNDUR Kaupmanna-
félags Akureyrar verður haldinn
á morgun á Hótel KEA og hefst
hann kl. 13.30. Á dagskránni eru
venjulega aðalfundarstörf, en gestir
fundarins verða Guðjón Oddsson
formaður Kaupmannasamtaka ís-
lands og Magnús Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasam-
taka Islands og munu þeir ræða
_ mái samtakanna og svara fyrir-
spumum. Þá koma einnig á fundinn
þeir Héðinn Emilsson og Sigurður
Harðarson fulltrúar frá Vátrygg-
ingafélags Islands og kynna nýjan
samning við Kaupmannasamtök
íslands varðandi tryggingar aðilar-
félaga.
Starfssvið Þórarins Sveinssonar
mjólkursamlagsstjóra og Óla
Valdimarssonar sláturhússtjóra
verður áfram óbreytt.
Auk áðurtalinna breytinga
verður starfsfólki á skrifstofum
fækkað og taka uppsagnir gildi
1. apríl næstkomandi. Alls fækkar
starfsmönnum um sem svarar 27
stöðugildum á skrifstofum og í
stjómun. í fréttatilkynningu frá
Magnúsi Gauta Gautasyni kaupfé-
lagsstjóra vegna skipulagsbreyt-
inganna segir að leitast verði við
að finna önnur störf fyrir þá sem
sagt hefur verið upp.
Snjóþotukeppni
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Undanúrslit í þotukeppni, sem skátar í skátafélaginu
Klakki á Akureyri efna til í tengslum _við vetrar-
íþróttahátíð fara fram þessa dagana. Á þriðjudag
var keppt í brekku við íþróttavöll, í fyrradag við
Sunnuhlíð og í dag verður keppt í snjóþotuakstri í
svokallaðri Jólasveinabrekku við Eikarlund. Þeir
krakkar sem hraðast fara keppa til úrslita í Hlíðar-
ijalli á morgun, en einnig er keppt í flokki heimatil-
búinna sleða og þeir sem frumlegasta sleðann eiga
verða verðlaunaðir sérstaklega.
Fógeti innsiglaði Fóðurstöðina á Dalvík:
Líklegast að loðdýrastofiiinn
í Eyjafirði verði skorinn niður
FÓÐURSTÖÐIN á Dalvík var innsigluð að loknum vinnudegi í fyrra-
dag og var það gert að beiðni bæjarfógetans á Akureyri. Fóðurstöðin
var innsigluð vegna fjögurra mánuða vangoldinna opinberra gjalda.
Um tuttugu loðdýrabændur eru í Eyjafirði, frá Ólafsfirði í vestri og
að Grýtubakkahreppi og Fnjóskadal í austri. Hluti bændanna er fóður-
laus í dag, en fóðri var ekið til bænda í fyrradag og eiga sumir þeirra
eitthvað af fóðri. Loðdýrabændur halda fúnd í dag þar sem staðan
verður rædd og er ekki talið ólíklegt að þar verði tekin ákvörðun um
að drepa öll dýrin á svæðinu. Lokun Fóðurstöðvarinnnar kemur á
viðkvæmum tíma fyrir bændur, á síðustu vikum hafa dýrin verið pör-
uð og minkalæður munu gjóta eftir um það bil mánuð, en þær þola
ekki að vera fóðurlausar.
Elías I. Elíasson bæjarfógeti á
Akureyri og sýslumaður í Eyjafirði
sagði að Fóðurstöðin hefði verið inn-
sigluð vegna vangoldinna opinberra
gjalda, menn sínir fylgdust grannt
með þessum málum enda væri þeim
uppálagt það Iögum samkvæmt.
„Þetta eru þau úrræði sem við höf-
um, helst vildum við vera lausir við
að grípa til þeirra ef unnt væri, og
vissulega er þetta algjört neyðarúr-
ræði,“ sagði Elías. Hann sagðist
ekki hafa heimild til að opna stöðina
aftur fyrr en greiðslur hefðu verið
gerðar upp.
Símon Ellertsson framkvæmda-
stjóri Fóðurstöðvarinnar á Dalvík
sagði að lögreglan á Dalvík hefði
að beiðni bæjarfógetans á Akureyri
innsiglað Fóðurstöðina ásamt þrem-
Kvennakórinn Lissý úr Þingeyjarsýslu heldur tónleika í Langholtskirkju á sunnudaginn.
■ KVENNAKÓRINNLissý, sem
skipaður er um 60 konum úr kven-
féiögum í Þingeyjarsýslu, heldur
tónleika í Langholtskirkju, sunnu-
daginn 1. apríl kl. 16. A efnis-
skránni erj kirkjuleg og veraldleg
kórlög eftir ýmsa höfunda og má
þar nefna, Handel, Pergolesi,
Schubert, Pál ísólfsson, Árna
Thorsteinsson og Þorkel Sigur-
björnsson. Einsöngvarar með
kórnum eru Þuríður Baldursdótt-
ir, alt, og Hildur Tryggvadóttir,
sópran. Guðrún A. Kristinsdóttir
leikur á píanó og þá fær kórinn til
liðs við sig Guðrúnu Sigurðardótt-
ur sellóleikara og Ann Toril Lind-
stad orgelleikara. Stjórnandi kórs-
ins er Margrét Bóasdóttir.
ur fóðurbílum í eigu hennar. Hann
sagði stöðina skulda opinber gjöld
fyrir síðustu fjóra mánuði og væri
þar ekki um stóra upphæð að-
ræða.„Ég sagði í síðustu viku, að
ef ekkert yrði að gert væri komið
að endapuntinum í þessari búgrein
og það virðist vera að koma á dag-
inn,“ sagði Símon. „Ég átti ekki von
á þessu aðgerðum af hálfu opinberra
aðila, nú á meðan hið opinbera er
að skoða málefni loðdýrabænda."
„Nú er svo komið að loðdýra-
bændur víðast hvar á landinu svelta,
þeir hafa ekki haft fyrir lífsnauðsynj-
um fyrir sig og sína og þeir hafa
ekki geta greitt fyrir fóður. Með
þessum aðgerðum af hálfu hins opin-
bera, með því að loka Fóðurstöðinni
verða dýrin svelt. Það er búið að
para dýrin og minkurinn byrjar að
gjóta eftir mánuð. Það er ekki for-
svaranlegt að byija á því að svelta
mannfólkið og taka síðan til við
dýrin sem nú ganga með afkvæmi.
Ég held að lengra verði ekki kom-
ist,“ sagði Símon.
Símon sagði að ekki væri enda-
laust hægt að bjóða upp á skammt-
ímalausnir, sem sjaldnast hefðu þó
náð tilgangi sínum. Nauðsynlegt
væri að ábyrgir opinberir aðilar
hefðu kjark til að taka ákvörðun,
hver svo sem hún yrði, þ.e. hvort
leggja ætti búgreinina niður eða
ekki. „Ef einhver hefði þor til að
taka af skarið held ég að mörgum
bóndanum myndi létta. Það er búið
að draga lappimar alltof lengi í þess-
um máli og sífellt hefur ástandi
versnað. Aðgerðirnar nú gagnvart
Fóðurstöðinni eru svipaðar og ef
bóndi skuldaði opinber gjöld kæmi
sýslumaður og innsiglaði hlöðuna
þannig að bústofninn fengi ekki fóð-
ur.“
Jón Hjaltason formaður Loðdýra-
ræktarfélags Eyjafjarðar og loð-
dýrabóndi á Ytra-Garðshorni í Svarf-
aðardal sagði að lokun Fóðurstöðv-
arinnar þýddi að dýrin væru búin
að vera og rnargir bændur sem hann
hefði haft tal af í gær vildu helst
byrja strax á að drepa dýrin, menn
vildu ekki láta hafa sig að fíflum
öllu lengur. „Áður en menn hófu
loðdýrarækt þurftu þeir að ieggja
fram vottorð um að búið væri að
semja við fóðurstöð um kaup á fóðri
og tekin af okkur framleiðsluréttur
í öðrum búgreinum ef við snérum
okkur að þess'u, en nú er búið að
loka á okkur. Ríkið hefur haft okkur
að fíflum í nokkur ár, en þessar
aðgerðir gegn okkur eru miðstýring
af verstu gerð, hið opinbera er kom-
ið hringinn í kringum sjálft sig,
Stalín hefði eflaust verið upp með
sér af svona gjörðum," sagði Jón.
Ekkert má út af bera varðandi
fóðrun dýranna á þessum tíma, þar
sem þau ganga með afkvæmi og
sagði Jón að margir bændanna sæju
þá einu leið að hefja slátrun dýranna
um helgina. Loðdýrabændur ætluðu
þó að funda um stöðuna í dag, en
Jón sagði alls ekki ólíklegt að á þeim
fundi yrði tekin sú ákvörðun að
stofninn í Eyjafirði yrði drepinn.
„Það sem manni svíður mest er hvað
pukrast er með þessi mál, okkur er
aldrei sagt neitt hreint úr og með
þessum aðgerðum er verið að koma
aftan að mönnum," sagði Jón. Hann
benti einnig á að samkvæmt'forða-
gæslulögum bæri sýslumaður
ábyrgð á því að bústofn bænda
svelti ekki og taldi að með lokun
Fóðurstöðvarinnar væri verið að
bijóta þau lög.
Menntaskólinn
á Akureyri:
Fyiirlestui- uiri
ljósmyndir
LJÓSMYNDARARNIR Ragnar
Axelsson, Einar Falur og Páll
Stefánsson lialda fyrirlestur á
Möðruvöllum á morgun, laugar-
dag kl. 14.
Það er FÁLMA, Félag áhugaljós-
myndara í Menntaskólanum á Ak-
ureyri sem stendur að fyrirlestri
ljósmyndaranna og er hann haldinn
í tengslum við listadaga sem nú
standa yfir í skólanum. Fyrirlestur-
inn hefst kl. 14 á Möðruvöllum,
raungreinahúsi MA, og verður fjall-
að um ljósmyndun, mynduppbygg-
ingu og sýndar verða skyggnur.
Aðgangur er ókeypis og eru allir
velkomnir.
TKaupfélag Eyfirðinga:
Fækkað um 27 stöðugildi
starfsfólks í stjórnunar-
og skrifstofústörfum
Stöður fulltrúa kaupfélagsstjóra lagðar niður
BREYTINGAR á stjórnskipulagi Kaupfélags Eyfirðinga taka gildi
i um mánaðamótin, en þær hafa í fiir með sér fækkun á meðal stjórn-
enda og skrifstofúfólks. Alls fækkar starfsmönnum í skrifstofú-
og stjórnunarstörfum um 27 stöðugildi.