Morgunblaðið - 30.03.1990, Blaðsíða 42
42
MÖRÖÚNBLAÐÍÐ’ ÍÞRÓTTIR FÖSTODAGUR
BO. MARZ 1990
VETRARIÞROTTAHATIÐ ISI
Morgunblaðið/Rúnar Þór
58ARA
GAMALL
VEGGFOÐRARI
FLYTUR í GL&SILEGT
NÝTT HÚS AO FÁKAFENI9
Fyrirtækið Veggfóðrarinn hf. var stofnað árið
1931 af hópi meistara í iðninni. Með tímanum
hefur fyrirtækið aukið vöruúrval sitt og býður nú
mikið úrval gólf- og veggefna, ásamt verkfærum
til lagningar og frágangs.
a
□
“A VEGGFOÐRARINN- 9‘
□ oóvn*" úm ■ □ OÖUDUNA. |l
Vi V!
Á nýjum og betri stað býður þetta gamla og rót-
gróna fyrirtæki áfram persónulega þjónustu og
vandaða vöru. í notalegu umhverfi verslunar-
innar gefst viðskiptavinum kostur á að skoða
vöruúrvalið í ró og næði og ráðfæra sig við
fagmenn okkar.
Við bjóðum gamla sem nýja viðskiptavinioíNAo
velkomna og erum ævinlega til taks, *
skrafs og ráðagerða.
S
VEGGFOÐRARINN
VERSLUN MEÐ GÓLF- OG VEGGEFNI
FÁKAFEN 9 • SKEIFUNNI • 108 REYKJAVÍK
SÍMAR: (91)- 687171 / 687272
Guðrún H. Kristjánsdóttir var
með besta tíma eftir fyrri utfiferð í
stórsvigi kvenna, en fór illa að ráði
sínu í seinni umferðinni og hafnaði í
þriðja sæti.
Stórsvig.kvenna:
Guðrún náði
besta tímanum
ífyrriumferð
- en hlekktist á í síðari og hafnaði í þriðja sæti
FYRSTI hluti alþjóðaskíða-
mótsins í alpagreinum hófst
með keppni í stórsvigi karla og
kvenna í blíðskaparveðri í
Hlíðarfjalli í gær. Guðrún H.
Kristjánsdóttir stóð sig best
íslensku stúlknanna, hafnaði í
þriðja sæti eftir að hafa náð
besta tímanum ífyrri umferð.
Hanne Johnsen frá Noregi sigr-
aði.
uðrún H. Kristjánsdóttir frá
Akureyri var tæplega hálfri
undan Hanne Johnsen
í fyrri umferð. Guðrún
virtist hafa sigurinn
í hendi sér lengst af
í seinni umferð.
Henni gekk allt í
haginn þar til aðeins
þijú hlið voru eftir, en þá rak hún
aðra höndina utan í hlið og tapaði
þannig dýrmætum tíma sem kost-
aði hana gullverðlaunin.
sekúndu á
frá Noregi
ValurB.
Jónatansson
skrifar
„Ég var óheppin að reka mig í
hliðið og það var dýrkeypt. En það
þýðir ekkert að svekkja sig á þessu
það kemur dagur eftir þennan dag,“
sagði Guðrún og var ekkert að æsa
sig yfir óhappinu og er staðráðin í
bæta sér það upp í dag.
Norska stúlkan Hanne Johnsen
gerði engin mistök í síðari umferð
og tryggði sér þar með sigurinn.
Ulla Carlsson frá Svíþjóð varð önn-
ur, en hún náði besta tímanum í
síðari umferð.
Guðrún H. var eina íslenska
stúlkan sem blandaði sér í topp-
baráttuna og virðist í fljótu bragði
vera sú eina sem getur það, a.m.k.
í stórsviginu. Ásta Halldórsdóttir
frá ísafirði varð í 5. sæti, sjö sek-
úndum á eftir sigurvegaranum og
sex sek. á eftir Guðrúnu.
Alls voru 11 stúlkur skráðar til
leiks og aðeins ein þeirra sem komst
ekki í mark. í dag keppa stúlkurnar
aftur í stórsvigi og þá á Dalvík.
Stórsvig karla:
Svfinn Wiberg í sérflokki
ArnórGunnarssonfrá ísafirði náði þriðja sæti
ValurB.
Jónatansson
skrifar
SVÍINN Urban Wiberg hafði
töluverða yfirburði í stórsvigi
karla, sem fram fór ítengslum
við Vetraríþróttahátíð ÍSÍ, í
Hlíðarfjalii í gær. Landi hans,
Torbjörn Blomberg, varð annar
og Arnór Gunnarsson frá
ísafirði þriðji.
Wiberg náði besta brautar-
tímanum í báðum umferðum
stórsvigsins. í fyrri ferðinni hafði
hann tveggja sek. forskot á næsta
keppanda. Sigur
hans kom þó nokkuð
óvart þar sem Tor-
björn Blomberg,
sem varð annar, hef-
ur staðið sig mun betur á mótum
erlendis og hefur betri fis-punkta.
En Wiberg kunni vel við sig í Hlíðar-
fjalli og skíðaði eins og sá sem
hefur völdinn.
ísfirðingurinn Arnór Gunnarsson
stóð sig best íslendinganna. Hann
hafði fjórða besta tímann eftir fyrri
umferð og bætti sig síðan um eitt
sæti eftir síðari umferð og skaust
þá upp fyrir Kristin Björnsson frá
Ólafsfirði.
Besti skíðamaður íslands um ára-
bil og sá sem hefur bestu fis-
punktana, Örnólfur Valdimarsson
úr Reykjavík, féll neðarlega í braut-
Svíinn Urban Wiberg sigraði í stórsvigi karla.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
inni í fyrri ferð. „Ég fór á innra
skíðið og yfirkantaði og rann niður
fyrir næsta hlið. Brautin var mjög
krefjandi því það var erfitt að finna
rétta taktinn í henni,“ sagði Örnólf-
ur.
Þrír erlendir keppendur, tveir
Svíar og Englendingur, auk 27 ís-
lendinga tóku þátt í stórsviginu.
Júgóslavarnir tveir, sem urðu
strandaglópar í London í gær, bæt-
ast í hóp erlendu keppendanna í
dag, er keppt verður í svigi á Ðalvík.
Vetraríþróttahátíð ISI
Úrslit i stórsvigi karla og kvenna, sem fram
fór i Hlíðarfjalli í gær. Sama braut var fyr-
ir báða flokka, fyrri ferð var 38 hlið og
síðari 39 hlið.
Stórsvig kvenna:
Hanne Johnsen, Noregi............2.18,48
Ulla Carlsson, Svíþjóð...........2.18,96
Guðrúr. H. Kristjánsdóttir, Akui-eyri 2.19,82
Carin Lindberg, Svíþjóð..........2.20,95
Ásta Halldórsdóttir, Isafirði....2.25,52
Þórunn Pálsdóttir, Isafirði......2.29,09
Guðný Hansen, Reykjavík..........2.33,06
Stórsvig karla
Urban Wiberg, Svíþjóð............2.08,99
Torbjörn Blomberg, Svíþjóð.......2.10,92
ArnórGunnai'sson, ísafirði.......2.13,56
Kristinn Björnsson, Ólafsfirði...2.13,70
Haukur Arnórsson, Reykjavík......2.13,90
Valdímar Valdemarsson, Akureyri ...2.14,19
Jón Ingi Árnason, Akureyri.......2.15,22
Vilhelm Þorsteinsson, Akureyri...2.15,23
Steingrímur Waltersson, Reykjavík..2.18,29
Egill Ingi Jónsson, Reykjavík....2.18,30
Mm
FOLX
■ KARI Þorleifsson er farinn að
æfa og leika með meistaraflokki
IBV í knattspyrnu eftir nokkurt
hlé. Kári er bróðir Sigurlásar,
þjálfara_ og leik-
manns ÍBV.
■ ÍBV lék tvo æf-
ingaleiki um síðustu
helgi við Selfoss.
Gestirnir sigruðu í fyrri leiknumm,
Sigfús G.
Guðmundsson
skrifarfrá
Eyjum
3:1, en Vestmannaeyingar í þeim
síðari, 4:3 og gerði Kári Þorleifs-
son sigurmarkið.
■ ELIAS Friðriksson, varnar-
maðurinn sterki hjá ÍBV, sem var
meiddur mest allt síðasta tímabil,
lék fyrri hálfleikinn í sigurleiknum.
Þá tókst Selfyssingum ekki að
komast í gegnum vörn IBV, sem
var 3:0 yfir í hálfleik.
■ HÖRÐUR Pálsson hefur einnig
tekið fram skóna á ný og æfir nú
sem fyrr með IBV. Hörður er son-
ur Páls Pálmasonar, sem lék með
ÍBV um árabil.
■ PÉTUR Eyjólfsson, ungur og
efnilegur sundmaður í IBV, sigraði
á Kiwanissundmóti Eyjamanna
um helgina. Sá sigrar á mótinu, sem
sýnir mestar framfarir frá fyrra ári.