Morgunblaðið - 08.05.1990, Side 2

Morgunblaðið - 08.05.1990, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAI 1990 Verslanir Grundarkjörs seldar eða þeim lokað Ástæðan sögð of mikil umsvif og slæm greiðslustaða GRUNDARKJÖR hf., sem rekið hefur sex matvöruverslanir á höf- uðborgarsvæðinu, hefur nú hætt rekstri fjögurra þeirra. Þær tvær sem eftir eru voru lokaðar í gær og einnig er verið að reyna að selja þær. Grundarkjör, sem er í eigu Jens Ólafssonar kaupmanns og fjöl- skyldu hans, rak um tíma eina verslun, að Furugrund 3 í Kópa- vogi, en á síðasta ári og þessu ári hefur félagið keypt rekstur fimm verslana til viðbótar. Ekki náðist í Jens Ólafsson í gær, en Ólafur Thoroddsen, lögmaður fyrirtækis- ins, sagði við Morgunblaðið að fyrirtækið hefði verið komið með of mikil umsvif og slæma greiðslu- stöðu og nú hefði verið talið hag- kvæmt að hætta rekstri verslan- anna. Samkomulag varð um helgina á milli eigenda Grundarkjörs og fjárfestingafélagsins Vallaráss hf., sem leigði Grundarkjöri verslunar- plássið í Eddufelli 8, um að rifta samningum. Vallarás hf. seldi Brekkuvali hf. verslunina strax og opnuðu nýir eigendur í gærmorg- un. Brekkuval rekur fyrir verslun við Hjallabraut í Kópavogi. Grund- arkjörsverslunin á Bræðraborg- Steingrímur hittir Mubarak o g Arafat STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra og frú Edda Guð- mundsdóttir eru nú stödd í opinberri heimsókn í Egyptalandi. Frá Egyptalandi fer forsætisráðherra til Túnis, þar sem áformaður er fúnd- ur hans og Yasser Arafat, leiðtoga frelsissamtaka Palestínumanna. Samkvæmt fréttaskeyti Reuter fréttastofunnar ræddi Steingrímur í gær við Hosni Mubarak, forseta Egyptalands. Síðar hitti hann for- sætisráðherrann Atef Sedki, sem gerði grein fyrir sáttatilraunum Egypta í deilum ísraelsmanna og Araba. Haft var eftir egypska for- sætisráðherranum, að Steingrímur hefði lýst því yfir við forsetann að íslendingar styddu stefnu Egypta í málefnum Mið-Austurlanda. Á laugardag hittir Steingrímur Arafat. Jón Sveinsson, aðstoðarmað- ur forsætisráðherra, sagði að fundur þeirra hefði verið ræddur i ríkis- stjórninni á föstudag og ekki komið fram ágreiningur um réttmæti hans. 14.-16. maí verður forsætisráð- herra á ráðstefnu um umhverfismál í Bergen. Þá heldur hann, ásamt konu sinni, í opinbera heimsókn til Téklcóslóvakíu. Þar mun Steingrím- ur ræða við Václac Havel, forseta landsins og Alexander Dubcek, for- seta þjóðþingsins. arstíg 43 var seld einstaklingi og opnaði í gærmorgun undir nafninu Kjötverslun Jónasar. Halldór Jens- son, einn af eigendum Grundar- kjörs, vill reka verslunina að Furu- grund 3 áfram og hafði hana opna í gær. KRON sem á aðstöðuna þar og í Stakkahlíð 17 hefur þó ekki fengið upplýsingar um nýja rekstraraðila þessara verslana, að sögn Þrastar Ólafssonar fram- kvæmdastjóra. Verslanirnar í Stakkahlíð 17, Reykjavíkurvegi 72 í Hafnarfirði (áður Kostakaup) og Garðatorgi 1 í Garðabæ (áður Kjötmiðstöðin) voru lokaðar í gær. Lögmaður Grundarkjörs sagði, að gerður hefði verið skilyrtur kaup- samningur milli Grundarkjara og Vallaráss um verslunina á Garða- torgi og var hann bundinn þeim forsendum, að framsal fengist á leigusamningi frá Sanitas hf. og ennfremur að kaupandi gæti sam- ið um lækkun skulda við Sanitas. Sanitas hf., sem seldi Grundar- kjörum hf. verzlunina, féllst ekki á framsal leigusamningsins né lækkun skulda Grundarkjara og því hafí Grundarkjör hf. gengið út úr samningnum við Vallarás hf.. Eftir það sömdu Grundarkjör við Sanitas hf. um að kaupin á versluninni gengju til baka og er því Sanitas hf. eigandi verslunar- innar nú. Þá standa yfir viðræður um sölu búðanna við Reykjavíkur- veg og Stakkahlíð. Varnarliðið: Magnús Arnar Garðarsson Hjálmar Rögnvaldsson Tveir menn létust í umferðarslysi Selfossi. TVEIR ungir menn létust í umferðarslysi á Suðurlandsvegi í Ölfusi síðdegis á sunnudag, 6. maí. Þeir voru á mótorhjóli sem ekið var aftan á rútubíl. Mennirnir voru fluttir á slysadeild Borg- arspítalans en voru látnir er þangað kom. Rútubifreiðin og mótorhjólið voru á leið úr Reykjavík. Bílstjóri rútunnar var í þann mund að beygja til vinstri inn á afleggjar- ann að Ölfusborgum þegar hann varð var við mótorhjólið með mönnunum tveimur. Hann hætti þá við að beygja til að forðast áreksturinn og sveigði rútunni til hægri. Litlu munaði að það tæk- ist að forða árekstri en mótorhjól- ið skall tæpt á vinstra afturhorni rútunnar með fyrrgreindum af- leiðingum. Mennirnir sem létust hétu Magnús Arnar Garðarsson, 20 ára, Tunguvegi 3, Selfossi, sem lætur eftir sig unnustu, og Hjálm- ar Rögnvaldsson, 21 árs, til heim- ilis í Tunguseli 8, Reykjavík. Sigurður Jónsson Engar ákvarðanir teknar um frestun framkvæmda í Keflavík Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, tekur á móti Steingrími Her- mannssyni, forsætisráðherra, í forsetahöllinni í Kairó í gær. ENGAR ákvarðanir hafa verið teknar um frestun framkvæmda á vegum varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli vegna sparnaðarað- gerða bandaríska varnarmála- ráðuneytisins. Friðþór Eydal, blaðafúlltrúi varnarliðsins, segir að í gildi sé bann Bandaríkja- stjórnar við undirritun nýrra verksamninga sem kunni að hafa áhlif hér verði það framlengt. Dick Cheney, varnannálaráðherra Bandaríkjanna, gaf um áramótin út fyrirmæli um að fram til 1. maí skyldu ekki undirritaðir samningar um nýjar framkvæmdir í herstöðum Bandaríkjanna. Þennan tíma skyldi nýta til að kanna gildi framkvæmd- anna í ljósi breyttra aðstæðna og hugmynda um framtíð stöðvanna. Fresturinn var framlengdur til 15. júní, svo að unnt væri að kanna betur einstaka þætti málsins. Frest- unin hefur ekki haft nein áhrif hér. Friðþór Eydal sagði, að fyrir dyr- um stæði að undirrita samning um smíði 112 íbúða á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli en reiknað væri með að viðræðum um samninginn lyki um miðjan júní. Yrðu fyrirmæli ráðherrans um frestun þá í gildi kynnu þau að teíja fyrir undirritun samningsins. Sama ætti við um tvenn minniháttar verkefni. Eins og mál lægju nú fyrir yrði ekki um annað en frestun að ræða. Sam- kvæmt bandarískum fjárlögum væri fé fvrir hendi til að vinna þessi verk. I haust yrði efnt til fundar um verk- efni ársins 1991. Friðþór sagði, að Bandaríkjastjórn segði aðeins fyrir um fjárveitingar á sínum vegum en helstu varnar- framkvæmdirnir hér væru kostaðar af mannvirkjasjóði Atlantshafs- bandalagsins, svo sem í Helguvík og við nýja ratsjárkerfið og hið sama gilti um lagningu nýrrar aksturs- brautar á Keflavíkurflugvelli. Jarðgöng á Vestfjörðum: V egamálastjóra falið að hefla undirbúning STEINGRÍMUR J. Sigfússon, samgönguráðherra, hefúr falið vega- málastjóra að hefja þegar undirbúning að framkvæmdum við jarð- göng á Vestfjörðum. Er það gert í kjölfar þess að Alþingi sam- þykkti á laugardag tillögu til þingsályktunar um að flýta fram- kvæmdum við göngin. í þingsályktuninni er gert ráð fyrir því að framkvæmdir við jarð- göngin hefjist í ár en ekki á næsta ári eins og miðað var við í vegaá- ætlun og að framkvæmdum ijúki á 4 til 5 árum en ekki 7 árum eins og áður hafði verið stefnt að. Jafnframt segir í ályktun Al- þingis, að ríkissjóði skuli heimilt að taka lán tii framkvæmdanna, allt að 1.300 milljónum króna á árunum 1990 til 1994. Lán ásamt verðbótum skuli endurgreiðast af fé til stórframkvæmda samkvæmt vegaáætlun og útgjöld vegna vaxta og lántökukostnaðar um- fram það sem sparist í viðhalds- kostnaði á fjármögnunarskeiði framkvæmdanna skuli greiðast úr ríkissjóði sem sérstakt byggða- framlag. í lok þingsályktunarinnar er ríkisstjórninni falið að láta fara fram könnun á möguleikum til að standa straum af kostnaði vegna ákvörðunar um að flýta fram- kvæmdum með sérstakri lánsíjár- og/eða tekjuöflun. Gunnar Flóvenz Einar Benediktsson Síidarútvegsnefiid; Gunnar Flóv- enz stjórn- arformaður ÞÆR breytingar hafa verið gerð- ar á starfsskipan hjá Síldarút- vegsnefnd að Gunnar Flóvenz firamkvæmdastjóri hefúr verið skipaður formaður nefiidarinnar frá fyrsta þessa mánaðar. Jafti- framt hefúr Einar Benediktsson aðstoðarframkvæmdastjóri verið ráðinn framkvæmdastjóri. Gunnar Flóvenz hefur starfað sem framkvæmdastjóri hjá Síldarútvegs- nefnd í rúmlega þtjá áratugi, eða frá 1959. Þar áður var hann tæplega áratug forstöðumaður skrifstofu Síldarútvegsnefndar í Reykjavík, eða frá stofnun skrifstofunnar haustið 1950.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.