Morgunblaðið - 08.05.1990, Side 4

Morgunblaðið - 08.05.1990, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990 Samruni fjölmiðlaíyrirtækja: Besti vitnisburðurinn um yfirburði ríkisútvarpsins segir formaður útvarpsráðs FORMAÐUR útvarpsráðs segir samruna þriggja fjölmiðlafyrir- tækja fyrir helgina besta vitnis- burðinn um hvað ríkisútvarpið hafi staðið sig vel í fjölmiðlasam- keppninni frá því hún hófst. íslenska sjónvarpsfélagið, Sýn og íslenska útvarpsfélagið samein- uðust sl. föstudag, og hafa for- svarsmenn fyrirtækjanna sagt að sameinaða fyrirtækið muni ein- beita sér að samkeppni við ríkisút- varpið. Inga Jóna Þórðardóttir for- maður útvarpsráðs sagði við Morg- unblaðið að sér sýndist meginá- stæðan fyrir samruna fyrirtækj- anna væri mjög sterk staða ríkisút- varpsins á markanum. „Samruninn er því besti vitnisburðurinn um hvað ríkisútvarpið hefur í raun staðið sig vel í samkeppninni og styrkt sig verulega frá því hún hófst,“ sagði hún. Þegar Inga Jóna var spurð h'ort hún teldi koma til greina að ríkis- sjónvarpið fari í beina samkeppni við aðra sjónvarpsstöð með því að rugla útsendingar sjónvarpsins, svaraði hún neitandi. „Ekki á með- an gerðar eru mjög miklar kröfur til ríkisútvarpsins um mjög dýra framleiðslu á menningarefni. Það er útilokað miðað við þau markmið sem ríkisútvarpinu eru sett, að reka þá stofnun á viðskiptagrunni einum. Það verður þá að endur- skoða alla starfsemina. Hins vegar er það spurning að hvað miklu leyti ríkisútvarpið á að keppa við aðra á auglýsingamarkaðnum,“ sagði Inga Jóna. Hún sagði $ð ríkisútvarpið hefði ekki sérstaklega búið sig undir væntanlega samkeppni frá Sýn hf. sem hafði boðað nýja sjónvarpsstöð í haust. Hún sagði það þó hafa verið rætt hvort hefja ætti helgar- útsendingar á annari rás, en fjár- hagurinn leufði slíkt ekki. „Við teljum brýnna að auka innlendu framleiðsluna og gæði hennar, en að lengja útsendingartímann," sagði Inga Jóna Þórðardóttir. Markús Örn Antonsson útvarps- stjóri sagði við Morgunblaðið, að hann ætlaði að bíða í Vh til 2 mánuði með að segja álit sitt á nýja fjölmiðlafyrirtækinu, eða þar til raunverulega væri komið fram hvað þeir sem að því stæðu ætluð- ust fyrir. „Ég tek þessum fyrstu yfirlýsingum um þeirra ráðagerðir með mjög miklum fyrii-vara,“ sagði útvarpsstjóri. VEÐUR 12.00: Heimild: Veðurstofa Islands á veðurspá kl. 16.15 i gærl / DAG kl. VEÐURHORFUR í DAG, 8. MAÍ YFIRLIT í GÆR: Skammt suðvestur af landinu er víöáttumikil 1.029 mb hæð en 1.013 mb lægð milli Jan Mayen og Grænlands hreyf- ist austur. SPÁ: Hæg vestlæg eða breytileg átt. Vfðast verður heiðríkja inn til landsins en yfir sjónum allt í kringum landið verður þokuloft. Líklega leitar þokan helst inn á landið við Faxaflóa og Breiðafjörð en einnig verður stutt í hana meðfram suðurströndinni og út af Austfjörðum. Vindur þarf þó lítið að breytast til að þoku leggi að norðurströndinni. í þokuloftinu verður hiti á bilinu 4-9 stig en allt að 16 stig annars staðar að deginum, mun svalara að næturlagi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR MIÐVIKUDAG: Suðlæg eða suðvestlæg átt. Skýjað og liklega þokuloft eða súld sunnanlands og vestan og 6-9 stiga hiti en bjart veður og víða 10-15 stiga hiti á Norður- og Austurlandi. HORFUR FIMMTUDAG: Suðlæg átt og áfram fremur hlýtt. Rigning eða súld um sunnan- og vestanvert landið en þurrt að mestu norð- austanlands. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * r * r * Slydda / * r * * * * * * * Snjókoma * * * -|0 Hitastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir * V E' — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur [T Þrumuveður m. VEÐUR VÍÐA UMHEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri 9 heiðskírt Reykjavík 2 þoka Bergen 18 léttskýjað Helsinki 16 skýjað Kaupmannahöfn 21 léttskýjað Narssarssuaq 12 skýjað Nuuk 0 rigning Osló 23 hálfskýjað Stokkhólmur 19 skýjað Þórshöfn 6 alskýjað Algarve 21 léttskýjað Amsterdam 14 mistur Barcelona 20 mistur Berlfn 26 léttskýjað Chicago 13 skýjað Feneyjar 21 heiðskírt Frankfurt 24 léttskýjað Glasgow 10 skúr Hamborg 27 léttskýjað Las Palmas 21 léttskýjað London 17 skýjað Los Angeles 16 heiðskírt Lúxemborg vantar Madríd 22 léttskýjað Malaga 19 mistur Mallorca 21 skýjað Montreal 8 skýjað New York vantar Orlando 18 skýjað París 23 hálfskýjað Róm 19 léttskýjað Vfn 23 hálfskýjað Washlngton 13 léttskýjað Winnipeg 12 úrkoma Morgunblaöiö/bvernr 5.000 skoðuðu Perluna UM 5.000 manns skoðuðu Perluna, útsýnishús Hitaveitu Reykjavíkur í Öskjuhlíð um helgina. Að söng Gunnars Kristinssonar hitaveitu- stjóra, myndaðist biðröð við húsið hálfri klukkustund fyrir auglýstan sýningartíma og var þá farið að hleypa fólki inn. Sagði hann að fram- kvæmdum miðaði vel áfram og samkvæmt áætlun á húsið að vera tilbúið að ári. Viðræður standa yfir um veitingareksturinn en væntan- legur veitingamaður verður hafður með í ráðum við hönnun innrétt- inga. Ákveðið hefur verið að húsið verði til sýnis næstu helgar. Stóragerðismálið; F élaginn neitar enn allri aðild að morðinu MAÐURINN, sem fyrir helgi ját- aði að hafa verið í bensínstöðinni við Stóragerði þegar starfsmaður þar var myrtur, heldur við fram- burð sinn. Hann segir félaga sinn hafa verið með sér, en sá hefur neitað allri aðild að málinu. Maðurinn sem játaði er 34 ára gamall. Hann hefur starfað hjá Olíu- félaginu hf., meðal annars á bensín- stöðinni við Stóragerði. Hann heldur því fram að 28 ára félagi hans hafi. verið með honum, en sá neitar því. Sá síðarnefndi hefur ekki starfað á bensínstöð. Mennirnir voru báðir úr- skurðaðir í gæsluvarðhald til 23. maí, en yngri maðurinn kærði úr- skurðinn til Hæstaréttar. Búist er við að Hæstiréttur taki afstöðu í málinu í dag. Sambýliskona 28 ára mannsins, sem er tvítug, er í gæsluvarðhaldi, sem rennur út á morgun, grunuð um aðild að málinu eftir ódæðisverkið. Þá er þrítugur maður einnig í haldi til morguns, en hann er talinn tengj- ast málinu lítt eða ekkert. Hann er hins vegar grunaður um aðild að auðgunarbrotum hinna. Tom Jones á íslandi: Aðdáendur mínir eru ekki eingöngu miðaldra konur SÖNGVARINN Tom Jones kom til íslands í gær til að halda fimm tónleika á Hótel íslandi. Á blaða- mannafundi sagðist Jones nú búa í Kaliforníu ásamt ciginkonu sinni og vera á tónleikaferðalög- um níu mánuði ársins. Hann kvaðst leika blöndu af nýjum og gömlum lögum og mættu áheyr- endur meðal annars eiga von á því að heyra Delilah, What’s up Pussycat og The Green Green grass of Home. Tom Jones er velskur að uppr- una. „Þegar Verkamannaflokkur- inn komst í ríkisstjórn í Bretlandi 1974 var mér ekki lengur vært þar. Sú er ástæðan fyrir því að ég bý í Kaliforníu," sagði Jones. Hann sagði það útbreiddan misskilning að eingöngu miðaldra konur sæktu tónleika sína. Það gerði fólk á öllum aldri og báðum kynjum. Tom Jones Með Tom Jones í för eru 26 manns, þar af 12 manna hljóm- sveit. Fyrstu tónleikarnir hefjast á Hótel íslandi í kvöld kl. 21 en þeir síðustu verða næstkomandi sunnu- dagskvöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.