Morgunblaðið - 08.05.1990, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990
Hárlos
Exem
Flasa
Litun
Permanent
Vír.imm & Mitrr.il
Díetary
Suppirmm
48 Táblets
Vítamín sérstaklega fyrir hár, húð og neglur.
Jóna Björk
Grétarsdóttir:
Ég missti megnið af hár-
inu 1987 vegna veikinda.
Árið 1989 byrjaði hárið
fyrst að vaxa aftur, en
það var mjög lélegt; það
var svo þurrt og dautt
og vildi detta af.
Síðan kynntist ég Manex
hársnyrtilínunni og það
urðu mjög snögg um-
skipti á hári mínu til hins
betra. Eftir 3ja mánaða
notkun á Manex prótein-
inu, vítamíninu og
sjampóinu er hár mitt
orðið gott og enn í dag
finn ég nýtt hár vera að
vaxa.
Dreifing:
s. 680630. ambrosia
Ný símanúmer
Hagstofu og
Þjóðskrúr
Afgreiðsla/skiptiborð
upplýsingar um vísitölur,
húsaleigu o.fl.
Þjóðskrá
upplýsingar um kennitölur,
heimilsföng o.fl. fyrir
einstaklinga og fyrirtæki
Afgreiðsla hagskýrslna,
Hagtíðinda o.þ.h.
Bókasafn
Gistináttaskýrslur
Inn- og útflutningur
Mannfjöldaskýrslur
Nemendaskrá
Neyslukönnun
Skráning fyrirtækja
Sveitarsjóðareikningar
Vísitölur
60 98 00
60 98 50
60 98 65 eða 66
60 98 79
60 98 15
60 98 20 eða 23-25
60 98 95 eða 96
60 98 11
60 98 35
60 98 61 eða 75
60 98 12
60 98 34 eða 35
Hagstofustjóri 60 98 44
Staðgengill hagstofustjóra 60 98 45
Skrifstofustjóri hagskýrslusviðs 60 98 33
Skrifstofustjóri þjóðskrár 60 98 73
Faxnúmer
Hagstofustjóri - hagskýrslusvið 62 88 65
Þjóðskrá og fyrirtækjaskrá 62 33 12
Vinsamlegast geymið auglýsinguna.
Hagstofa Islands,
Skuggasundi 3, 150 Reykjavík.
Börnin og borgin
eftir Sigríði
Sigurðardóttur
Leikskólaverkefiiið
A þessu kjörtímabili fór fram
endurmat á leikskólum borgarinnar
sem fékk heitið Leikskólaverkefnið.
Endurmatið náði til starfsfólks á
27 leikskólum. Megintilgangur þess
var að kanna uppeldisskilyrði barn-
anna og aðbúnað starfsfólks. Niður-
stöður leiddu til þess að byggt var
við leikskóla í þeim tilgangi að þar
væri hægt að bjóða upp á ailt að
sex klukkutíma vistun eða tvo tíma
til viðbótar þeim fjórum sem áður
voru í boði. Nú í vor taka til starfa
þrír nýir leikskólar með sveigjanleg-
an vistunartíma sem hannaðir voru
út frá Leikskólaverkefninu. Þá eim
leikskólar sem bjóða upp á lengri
vistun en fjóra tíma orðnir allt í
allt átta að tölu.
Dagvist í þróun
Það er síður en svo ástæða til
að ætla að Dagvist barna sé staðn-
að kerfi. Við sem störfum að upp-
eldi annarra bama en okkar eigin
teljum að Leikskólaverkefni
Reykjavíkurborgar sé til marks um
þróun og grósku í leikskólamálum
í höfuðborginni, önnur merki um
hið sama eru til dæmis það sam-
starf sem tekist hefur á milli dag-
vistarheimilanna og uppbygging
starfs með fötluðum börnum.
Dagvistarmál em og verða í sí-
felldri þróun sem mótast meðal
annars af íbúðafjölda í hverfum,
óskum foreldra um lengd vistun-
artíma og síðast en ekki síst mennt-
un fóstra.
Innra starf
Til þess að reka ieikskóla svo vel
fari faglega þurfa að koma til fóstr-
eftir Guðrúnu
Jónsdóttur
Fróðlegt hefur verið að fyigjast
með afstöðu borgarstjóra í áburð-
arverksmiðjumálinu undanfarið.
Árið 1983 beitti hann sér fyrir
breytingu á skipulagi borgarinnar
í þá veru að byggt yrði með strönd-
inni, sem aftur leiddi til þess að
ibúðarbyggð var heimiluð í ná-
grenni við verksmiðjuna. Þrátt
fyi'ir viðvörunarorð slökkviliðs-
stjóra.
Árið 1988 var óskað eftir nýjum
tanki við verksmiðjuna byggðum
á nýrri tækni. Borgarstjóri sam-
þykkti að hann yrði byggður.
í september 1989 endurnýjar
og framlengir borgin síðan leigu-
samning áburðarverksmiðjunnar
þannig að nú gildir hann til ársins
2019.
„Fjölskyldan þarf að
geta notið samvista úti
án þess að fara langt,
útivistarsvæði eins og
Elliðaárdalur, Laugar-
dalur og Viðey eru
staðir bæði fyrir for-
eldra og börn til auk-
inna samskipta og að
fræðast um náttúruna.
Og Öskjuhlíðina ber
einnig að nefiia í þessu
sambandi.“
ur. Fóstran hefur þekkingu á því
að halda utan um allt innra starf
leikskólans og það að hafa fætt af.
sér barn er ekki skilríki upp á að
geta komið í hennar stað að öllu
leyti. Það er því til lítils að reisa
dagvistarheimili fyrir börn ef ekki
eru neinar fóstrur til að annast
þau. Og sannleikurinn er sá að
Reykjavíkurborg þarf á fleiri fóstr-
um að halda. Ástæðan fyrir því ligg-
ur ekki í nokkurra króna launamis-
mun á milli sveitarfélaga heldur er
fóstrustéttin of fámenn. Ríkisvaldið
hefur ekki komið til móts við aukna
þörf samfélagsins fyrir fóstrur og
þá á ég ekki bara við Reykjavík
heldur landið allt.
Umhverfi barna
Það er ekki æskilegt að leikskól-
inn einn sé gerður að aðalumhverf-
isþætti barnsins. Það eru umhverf-
ismálin almennt sem mér virðast
oft gleymast þegar rætt er um upp-
eldi. Borgin þarf að vera vinveitt
fjölskyldunni. Fjölskyldan þarf að
geta notið samvista úti án þess að
Breytingar á leigusamningi
Borgarstjórn Reykjavíkur og
Áburðarverksmiðja ríkisins
gera með sér eftirfarandi samn-
ing um breytingar á ieigusamn-
ingi, dags. 14. mars 1980:
1. gr. Hið leigða landsvæði er
200 ha að stærð samkvæmt
viðfestum uppdrætti, útg. af
mælingadeild borgai'verkfræð-
ings, dags. 14. september 1989.
2. gr. 3. gr. samningsins orðist
svo: „Lóðin er leigð til 30 ára
frá 1. október 1989 að telja.“
3. gr. Að öðru leyti haidast
óbreytt ákvæði samningsins frá
14. mars 1980.
Reykjavík, 19. september 1989.
F.h. Reykjavíkurborgar,
Jón G. Tómásson,
pr.pr. Áburðarverksmiðju ríkisins,
Hákon Björnsson.
í apríl 1990 hrekkur borgar-
stjóri upp með andfælum og segir
að verksmiðjan verði að hverfa úr
Sigríður Sigurðardóttir
fara langt, útivistarsvæði eins og
Elliðaárdalur, Laugardalur og Við-
ey eru staðir bæði fyrir foreldra og
börn til aukinna samskipta pg að
fræðast um náttúruna. Og Öskju-
hlíðina ber einnig að nefna í þessu
sambandi. Þær framkvæmdir sem
þar standa yfir eru annað og meira
en enn einn veitingastaðurinn, þar
er verið að skapa aðlaðandi samver-
ustað fyrir fjölskyldurnar í borginni.
Og þar.nig á að halda áfram. Það
á að hafa hagsmuni og velferð
barna og fjölskyldna að leiðarljósi
þegar umhverfi er skipulagt og
mótað og ákvarðanir teknar er
snerta líf bkkar borgarbúa.
Höfundur erstnrfandi fóstra i
Reykjavik og skipar 18. sætid á
borgarstjórnarlista
Sjálfstæðisflokksins.
Guðrún Jónsdóttir
borginni. Hættan sem frá áburðar-
verksmiðjunni stafar var þekkt
löngu fyrir 1988.
Er þetta trúverðugur málflutn-
ingur hjá borgarstjóra?
Höfundur er arkitekt og skipar
4. sæti á franiboðslista Nýs
vettvangs í Reykjavík.
Aburðarverk-
smiðjan í Gufimesi
habitat
LISVER.
GAVB
SÍMI625870
INNGANGURIHÚSGAGNADEILD SMIÐJUSTÍGSMEGIN