Morgunblaðið - 08.05.1990, Page 15

Morgunblaðið - 08.05.1990, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAI 1990 15 Öryggi á ævikvöldi eftir Pétur Hannesson Á undanförnum árum hafa tekið til starfa félög og samtök, stór og smá, sem hafa á sinni stefnuskrá að vinna að hagsmunamálum aldr- aðra. Fjöldi aldraðra í Reykjavík er hlutfallslega meiri en í öðrum sveitarfélögum. Þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk Reykjavíkurborg hefur unnið gott starf fyrir aldraða, reist vernd- aðar þjónustuíbúðir og þjónustu- kjarna, sinnt félagsmálum, tóm- stundastarfi og heimaþjónustu til sjálfshjálpar þeim sem kjósa að búa áfram í eigin húsnæði. Eins og áður sagði hafa ýmis félög og hagsmunasamtök komið inn á þessa starfsemi á undanförn- um árum. Nú er horfið frá því að byggja elliheimili eða vistheimili fyrir aldraða. Þess í stað hafa verið byggðar sérhannaðar þjónustuíbúð- ir í samstarfi byggingaraðila og viðkomandi hagsmunafélags eldra fólks og öldruðum þannig gert kleift að búa sem lengst að sínu. „Sveitarfélög, ekki síst Reykjavíkurborg, hafa staðið fyrir byggingu þjónustuíbúða og sum- staðar í tengslum við þær lagt til þjónustu- miðstöðvar í samstarfi við ýmis félagasamtök.“ Uppbygging á þjónustuíbúðum fyrir aldraða hefur að mestu verið sjálfseignarhúsnæði, en blanda þarf saman byggingu eigin húsnæðis og leiguíbúða til þess að uppfylla þarf- ir sem flestra. Borgin veitir stuðning Sveitarfélög, ekki síst Reykjavík- urborg, hafa staðið fyrir byggingu þjónustuíbúða og sumstaðar í tengslum við þær lagt til þjónustu- miðstöðvar í samstarfi við ýmis fé- lagasamtök. Miklar framfarir hafa orðið í húsnæðismálum aldraðra, hvers- konar þjónusta aukin og öryggi bætt. í þjónustuíbúðum er völ á að fá keyptan mat, kostur er á heilsu- rækt og heilsugæslu, fótsnyrtingu og hárgreiðslu svo eitthvað sé nefnt. Húsvörður býr í húsunum og aðstoðar íbúana eftir föngum. Við kaup á íbúðum í þjónustuhús-. næði eiga félagar forkaupsrétt eða þeir kaupa af byggingarsamvinnu- félagi því sem hefur með viðkom- andi húsbýggingu að gera. Einnig er sölumeðferð með sama hætti. Félagsmenn hafa forkaups- rétt á íbúðum sem koma til endur- sölu og annast ráðgjafarþjónusta samtakanna sem hlut eiga að máli þá starfsemi samkvæmt ákveðnum reglum sem þar um gilda. Þjónustuíbúðir í gróin hverfí Þessar íbúðir eru byggðar í sam- ræmi við kröfu félagsmálaráðu- neytis um þjónustuíbúðir og verða teikningar að samþykkjast af hús- næðismálastofnun svo fram- kvæmdalán fáist til byggingarinn- ar. Skoða þarf hagkvæmni þess að þjónustuíbúðir fyrir aldraða verði byggðar í grónum hverfum borgar- innar. Eldra fólk vill helst ekki flytj- ast úr sínum heimahögum og reikna má með því að þegar það fer úr Pétur Hannesson stórum íbúðum í minna húsnæði aukist möguleikar ungs fólks til að búa í gömlu hverfunum: Þannig opnast leið til að nýta betur til dæmis skóla og aðrar stofnanir sem fyrir eru í hverfinu svo og alla þjón- ustu sem komið hefur verið á fót. Höfundur er deildarstjóri, fyrrum formaður Málfundafélagsins Óðins og situr í stjórn Félags eldri borgara. Hann skipar 25. sæti á borgarstjórnarlista Sjálfstæðisflokksins. BÍLAGALLERÍ Opið virka daga frá kl. 9-18. Laugardaga frá kl. 10-16. Daihatsu Cuore '86. Blár, S gfra, útv/seguib., sum- ar/vetrard. Ek. 26.000 km. Verð 330.000. Toyota Corolla QTi '88. Svart- ur, 6 gfra, útv., vetrard. Ek. 39.000 km. Verð 950.000. Opel Corsa '84. Rauður, 4ra gíra, framdrif, útv/segulb., Ek. 66.000. Verð 290.000. Daihatsu Charade CS '87. Dökkgrár met., sjálfsk., Ek. 33.000 km. Verð 470.000. Volvo 740 QU '89. Hvftur, 5 gfra, vökvast., útv/segulb. Ek. 10.000 km. Verð 1.650.000. Volvo 240 QL '87. Rauður, 5 gíra, vökvast., útv/segulb. Ek. 37.000 km. Verð 940.000. Volvo 440 QLT '89. Blár, 5 gfra, vökvast., álfelgur, út/segulb. Ek. 8.000 km, sem nýr blll. Verð 1.200.000. Daihatsu Feroza EL-2 króm '89. Grár met., 5 gfra, vökva- st., útv/segulb., sóllúga. Ek. 3.000 km, sem nýr bfll. Verð 1.270.000, skiptl. VW Transporter '87. Hvftur, 4ra gfra, burðargeta 1000 kg. Ek. 77.000 km. Verð 780.000, sklpti. Fjöldi annarra notaðra úrvals bila á staðnum og á skrá. Brimborg hf. Faxafeni 8, s. (91) 685870. IBM PS/2 Par sem (jölhæfni skiptir máli Flest fólk getur aðeins unnið eitt verk í einu og hugsað um eitt mál í einu. Þegar PC- einkatölvurnar komu fyrst á markað (IBM, að sjálfsögðu) gátu þær líka aðeins unnið eitt verk í einu og „hugsað“ um eitt í einu. Þær hugsuðu bara svo hratt miðað við fólkið sem notaði þær að það gerði ekkert til. Nú gerir það til. Nú er 1990 og kröfurnar eru meiri. Nú vilja menn vinna eitt verk sjálfir á tölvuna meðan tölvan hugsar um annað, t.d. skrifa bréf eða vinna á reiknivang meðan tölvan reiknar birgðir, gerir upp virðisaukaskattinn og reiknar út launakostnað. Þetta er allt hægt með PS/2 tölvu frá IBM og OS/2 stýrikerfi*. Þú getur líka stokkið úr einu forriti í annað og fylgst með hvað tölvan er að gera án þess að þurfa að keyra alltaf upp á milli. Festu þig ekki í einfaldleika fortíðarinnar. Tryggðu þér fjölhœfni framtíðarinnar. Veldu IBM PS/2. FYRST OG FREMST SKAFTAHLlÐ 24 REYKJAVlK SlMI 697700 *0S/2 er handhafi verðlauna PC Magazine fyrir tæknilega yfirburði (PC Magazine, 16. janúcir 1990, bls. 110). Umsögn dómnefndar: „Þetta er framtíðin“. lOjViaUUii'JltfiMB UliaUWOAJiíUH 1 iiUUVWlW/'il------------------------------- ShAtM-ma k'&TZnmZ'faiX'JK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.