Morgunblaðið - 08.05.1990, Síða 18

Morgunblaðið - 08.05.1990, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990 Níðsterkarog hentugar stálhillur. Auðveld uppsetning. Margarog stillanlegar stærðir. Hentarnánast allsstaðar. Ávallt fyrirliggjandi. Leitið upplýsinga UMBOÐS- OG HEtLDVERSLUN BÍLDSHÖFÐA 16 SIMI 6724 44 Dýravernd á íslandi eftir ÓlafJónsson í helgarútgáfu breska blaðsins Observer (Observer Magazine) 21. janúar sl. var þess minnst með við- tali við Ruth Harrison að liðlega 25 ár eru liðin frá því að bók henn- ar; Animal Machines, kom út. Bók- in er hörð gagnrýni á aðbúnað og meðferð dýra í nútíma búskap og olli hún á sínum tíma straumhvörf- um í allri umræðu um dýravemd ekki einungis í Bretlandi heldur einnig um alla Vestur-Evrópu. í kjölfar bókarinnar var sett á laggirnar opinber nefnd í Bret- landi, sem kennd hefur verið við formann hennar, Brambell prófess- or. Nefndin fékk það hlutverk að fjalla um nút.íma búskaparhætti með hliðsjón af atferli dýra og dýra- vemd. Niðurstöður og álit þessarar nefndar hafa síðan haft víðtæk áhrif á umræðuna um dýravernd um heim allan. Þó hefur ef til vill ekki verið nægilegt tillit tekið til efasemda nefndarinnar um að framleiðni ein og sér, s.s. vaxtar- hraði, fjöldi eggja og mjólkurmagn, gæfi rétta mynd af þeim áætlaða ávinningi sem síaukin tæknivæðing í landbúnaði gæfi af sér. Flest nágrannalönd okkar hafa á undanförnum árum verið að endur- skoða dýravemdarlög sín og sam- Hverfisteinar Sambyggöur hverfisteinn meö hjóii til blautslípunar og hjóli úr gúmmíbundnum ál-ögnum til brýningar. Hljóölátur iönaöarmót- or 200W, 220v, 50 HZ, einfasa, snýst 70 snún- inga á mín. Laust vatnsílát. Sérstök stýring fyrir sporjárn o.þ.h. Verðkr. 16.700. Laugavegi 29 Símar 24320 — 24321 — 24322. unttn Ananaustum Sími 28855 þykkja ný, í mörgum tilvikum stór- lega breytt lög. Hefur þar í flestum tilvikum verið höfð til hiðsjónar samþykkt Evrópurá^sins frá árinu 1976 um húsdýr, þar sem einungis er tekið mið af atferli og lífeðlis- fræðilegum þáttum, en hvergi getið heilbrigðis sem mikilvægs þáttar í dýravernd. Er það miður þar sem margar faraldsfræðilegar kannanir hin síðari ára hafa stutt álit nefnd- arinnar. Dýraiæknar verða líka áþreifanlega varir við þetta í sínum daglegu störfum þar sem dýrin eru krafin um sífellt meiri afurðir, sem síðan hefur í för með sér aukið álag á gripina og þar af leiðandi lakari heilsu. Sem fyrr segir hafa flest ná- grannalönd okkar verið að endur- skoða dýraverndariöggjöf sína og í framhaldi af því samþykkt ný dýra- verndarlög. Kunnust eru án efa nýju sænsku dýravemdarlögin frá árinu 1988. Þar má fínna mörg nýmæli, sem án efa eiga eftir að hafa mótandi áhrif á gerð slíkra laga í öðrum löndum, t.d. bann við því að halda hænsnum í búmm (gengur í gildi 1. janúar 1999), eins ýmis ákvæði er kveða á um rétt og möguleika húsdýranna til að hreyfa sig. Samfara þessu hefur farið fram lífleg umræða um dýra- vernd í þessum löndum og hefur víða mátt sjá þess að bæði í fjölmiðl- um og eins í sérritum ýmiss konar, s.s. fagritum dýralækna. Fjölmargir hafa verið áberandi í þessari umræðu og má þar t.d. nefna sænska rithöfundinn Astrid Lindgren. Hérlendis hefur dýravemd ekki verið mikið á döfinni og þessi öfluga umræða í Evrópu hefur ekki náð eyrum fjölmiðla eða almennings hér. Helst er það að fjölmiðlar geti upphlaupa þekktra leikara eða poppara eins og Brigitte Bardot og Paul McCartneys, en sjaldnast þeirra er með skynsemi og rökum hafa náð að breyta afstöðu stjórn- valda þannig að til mikilla bóta horfir fyrir húsdýr viðkomandi landa. Þá fer einnig lítið fyrir þess- um málum hjá samtökum bænda, en hefur verið lítillega hreyft meðal hestamanna og gæludýraeiganda. Þá þarf vart að taka það fram að ekkert. frumkvæði er af hálfu stjómmálamanna um þessi mál. Gildandi dýraverndarlög hér á landi eru nr. 21, frá árinu 1957. Endurskoðun þeirra hófst árið 1974 og árið 1981 skilaði þáverandi dýra- vemdamefnd drögum að nýjum lög- um til menntamálaráðherra. Lið- lega tveimur árum síðar óskaði ráð- herra eftir því við þá nýskipaða dýravemdarnefnd að hún semdi ný drög að frumvarpi. Seljum af lager flestar gerðir af þessum þekktu austur-þýsku gírmótorum og rafmótorum. Hagstætt verð! Sérpantanir afgreiddar með stuttum fyrirvara. Saía og þjónusta á sama stað. — « SAMBANO ISLFNSkffA SAMVINNUfFLACA RAFTÆKNI HÖTOABAKKA9 112 REYKJAVIK SlMI 91-670000 Ólafur Jónsson „Þá sjaldan að dýra- læknar hafa haft bein afskipti af dýravernd- armálum hefiir oftast verið um gróf brot að ræða og hafa kærur vegna þeirra verið að velkjast í kerfinu áður en þær hafa hlotið af- greiðslu dómsvalda. Mörgum dýralæknum svíður þetta.“ Því verki skilaði nefndin hinn 14. maí árið 1986. Síðan ekki söguna meir. Frumvarp þetta hefur legið í skúffu menntamálaráðherra í hart- nær fjögur ár án þess að koma fyrir Alþingi. Tómlæti stjórnmála- manna í þessum málum er óþolandi. Dýravemdarmál brenna mjög á okkur dýralæknum. Allir íslenskir dýralæknar hafa hlotið menntun sína erlendis og þá í löndum þar sem dýralæknum er ætlað stórt hlutverk í dýravemdarmálum. Margt er óljóst í íslenskum lögum um hlutvert dýralækna í þessum efnum. Af þeim sökum veigra margir dýralæknar sér við að taka á málum sem að þeirra áliti varða dýravemd. Þá sjaldan að dýralækn- ar hafa haft bein afskipti af dýra- vemdarmálum hefur oftast verið um gróf brot að ræða og hafa kærur vegna þeirra verið að velkj- ast í kerfínu áður en þær hafa hlot- ið afgreiðslu dómsvalda. Mörgum dýralæknum svíður þetta. Afskipti af dýraverndarmálum em oft erfið og viðkvæm, því er mikilvægt að á þeim sé tekið af kunnáttu. Ég ieyfí mér að vitna í grein eftir Sigurð Sigurðarson dýra- lækni, formann dýraverndarnefnd- ar, er hann skrifaði í Fréttabréf Dýralæknafélags íslands (2. tbl. 1988), en þar segir á einum stað „Dýraverndarmál eru ósjaldan við- kvæm mál, sem flestum þykir betra að þurfa ekki að koma nærri. Við dýralæknar megum hvorki né get- um látið þau afskiptalaus. Við verð- um að vera virkir málsvarar dýra. Sökum menntunar okkar og ábyrgðar höfum við betri aðstöðu en flestir aðrir til að láta gott af okkur Ieiða á þessu sviði.“ Orð að sönnu. En með úrelt dýra- verndarlög að bakhjarli verður oft lítið að gert. Búskaparhættir hafa breyst mik- ið hérlendis undanfarin ár. Búin hafa stækkað og farið'er að halda dýmm föngnum í búram i stómm stíl. Þá hefur dýrahald í þéttbýli aukist og haldnar eru dýrasýning- ar. Eins er keppni með dýr orðin algengari og farið að gæta atvinnu- mennsku í hestamennsku og hunda- .rgskt. Samfara þessu hefur yprslun, með dýr aukist. Allt bendir því til þess að þróunin hér stefni í sömu átt og orðið hefur erlendis. Engu að síður heyrir maður oft- lega staðhæft að aðstæður hér á landi séu allt aðrar og betri en er- lendis. Hitt er ef til vill alvarlegra, en það er viðhorf íslendinga til dýra- verndar. Hvað gekk læknunum norður á Akureyri til um árið þegar þeir gerðu tilraun til að græða fót- brotið á Snældu-Blesa? Hvað rétt- lætti það að flytja hestinn fram og til baka í myndatökur og halda honum bundnum á bás svo vikum og mánuðum skipti? Hvers vegna var hann ekki lagður inn á Fjórð- ungssjúkrahúsið og negldur? Þjóðin gat vart orðið bundist af hrifningu yfir þessu og Þorkell Bjarnason hrossaræktarráðunautur BÍ virðist hafa tapað sjónum á aðalatriði þessa máls er hann segir svo í Fi-ey, desember 1985: „Samvisku- semi eigandans og fórnfýsi við hest- inn er einstök saga og fögur, sem á sér varla hliðstæðu.“ Ósjaldan þurfa dýralæknar að aflífa sjúk dýr. Oft em um nytjadýr að ræða þar sem ekki svarar kostn- aði fyrir eigandann að leggja út í dýrar læknisaðgerðir. En oft er einnig um að ræða hesta og gælu- dýr þar sem börn eða unglingar eiga hlut að máli og í engu skortir á samviskusemi og fómfýsi eigand- ans. Fjölmargar ástæður geta legið að baki ákvörðunum dýralækna um aflífun sjúkra og slasaðra dýra og þó svo að oft sé grátið sáran fæst oftast að lokum skilningur á því að líknardauði hafí verið hið eina rétta. En hvað gekk Gunnari Bjarn- asyni fyrrv. hrossaræktarráðunauti BI til í viðtali við fréttastofu Stöðv- ar 2 í fyrravetur þegar leitað var eftir áliti hans á því að tveir hestar höfðu drepist sömu nóttina í flutn- ingi og hann svaraði að slíkt væri ekkert tiltökumál? Alltof mörg slys verða á hestum í flutningi hérlendis, það vita dýra- læknar manna best. Þá má geta þess að ársþing LH 1987 sendi frá sér erindi til yfirdýralæknis um úr- bætur í þessum málum án þess að hafa erindi sem erfiði. Félag hrossa- bænda hefur sent hross svo skiptir hundruðum með skipum til slátrun- ar erlendis og engum þykir athuga- vert. Á liðnu hausti ítrekaði breska dýralæknafélagið áralanga and- stöðu sína við að flytja dýr langa vegu til slátrunar og krafðist þess að dýrum væri lógað sem næst sín- um heimahögum. Þessum flutning- um hefur að vísu verið hætt í bili hérlendis, en ekki sökum dýra- verndarsjónarmiða heldur hins, að þeir þóttu ekki svara kostnaði! Nýlega var samin reglugerð um búrhænsni sem hænsnabændur hafa hingað til helst ekkert viljað vita af og draga í efa að lagastoð sé fyrir henni. Oft má heyra fjöl- miðlafólk spyija þegar rætt er um hagræðingu í landbúnaði hvort lyk- ilorðið sé ekki að stækka búin. Mýmörg fleiri dæmi má nefna því til sannindamerkis hversu algert tómlæti ríkir hérlendis um dýra- vemd. Fyrir nokkm las ég viðtal við nýskipaðan yfírdýralækni í Noregi í þarlendu bændablaði. Þar segir hann m,a. að hann telji það eitt af sínum brýnustu verkefnum að sinna dýravemd, þannig að tillit sé jafnt tekið til velferðar dýranna og af- komu bænda. Á sumri komanda hittast norrænir dýralæknar í Osló þar sem þeir ræða dýravemd í rúma viku. Þar mun Páll Agnar Pálsson fyrrv. yfirdýralæknir flytja erindi og verður fróðiegt að fylgjast með því þegar hann kynnir starfsbræðr- um okkar á hinum Norðurlöndun- um, sem margir hveijir em for- göngumenn um dýravernd, hversu myndarlega við íslendingar höfum staðið að þessum málum. Höfnndur er dýralæknir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.