Morgunblaðið - 08.05.1990, Side 20

Morgunblaðið - 08.05.1990, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990 Rætt við sjómenn í Eyjafirði: „Það er örugglega allt of miklu hent af fiski“ Það er sérstætt í brúnni hjá Gunnþóri á Sænesi að hann er með þrekhjól sem hann notar daglega og hjólar 5-10 kílómetra í brúnni daglega í hveijum róðri. Það eru ærið deildar mein- ingar um það hvort afla sé hent í einhverjum mæli frá íslenska skipaflotanum, en í vetur birti Kristinn Pétursson alþingismaður niðurstöður úr skoðanakönnun sem hann lét gera meðal sjómanna og þar kom í ljós að verulegu magni er hent af veiddum fiski á flot- anum. Morgunblaðið ræddi við sjómenn við Eyjafjörð fyrir skömmu um þessi mál og kom í Ijós í þeim viðræðum að víða virðist pottur vera brotinn í þessum efnum. Fyrstu upplýsingarnar komu reyndar í spjalli við nemendur í Háskólanum á Akureyri. Þessir nemendur voru að vinna við að innrétta húsnæði fyrir sjavarút- vegsbraut Háskólans á Akureyri og einn þeirra kvað fast að orði þegar hann sagði að það væri hreint ótrúlegt hvernig sumir togaraskipstjóramir móðuðust við í smáfiskadrápinu. „Ég hef verið á tveimur togumm á skömmum tíma,“ sagði háskóla- stúdentinn, „og trekk í trekk fengu þeir allt upp í 35 tonna höl án þess að það væri hægt að koma hníf í fiskinn vegna smæðar og öllu var hent. Samt móuðust þeir við.“ Ánnar hafði á orði að afi sinn hefði farið út á Pollinn á Akureyri eitt kvöldið á trilluhorninu. Hann hefði komið með 3 fiska að landi, en hent 20 vegna smæðar. Þegar hér var komið sögu var Halldóri Blöndal alþingismanni ekki farið að lítast á málin, en hann var þarna stadd- ur að kynna sér gang mála í Háskólanum. Það varð úr að Halldór slóst í för með blaða- manni út á Dalvík og Árskógs- sand til þess að hitta menn að máli. Smæsta hlutanum af fiski er yfirleitt hent „Þessi niðurstaða í könnun Kristins Péturssonar alþingis- manns, að hent sé um 15% af afla fiskiskipaflotans kemur mér jafn mikið á óvart og mörgum öðrum,“ sagði Snorri Snorrason skipstjóri á togaranum Dalborgu frá Dalvík. „Eg þekki þetta ekki á öðrum skipum, en svona er ekki unnið á mínu skipi og ég held að þetta sé alveg fáránlegt. Ég veit satt að segja ekki hvaða framsóknarmennska það er í Kristni að fara út í þetta,“ sagði Snorri. „En auðvitað er margt í þessu,“ hélt hann áfram, „það þekkja allir að smæsta hlutanum af fiski er yfírleitt fleygt og ég held að mönnum sé afskaplega illa við að veiða þar sem henda þarf miklu af fiski. Við hirðum þann fisk sem eðlilegt er að hirða og ég held að það sé búið að blása þetta upp af mörgum aðil- um, því það er af og frá að mínu mati að um 15% af þorskaflanum sé fleygt. Það kemur fyrir í ein- staka hali að þriðjungur fer fyrir borð, en það eru undantekning- arnar. Talaðu við skipstjórann á Guðbjörgu, hann fær aldrei smá- fisk og enginn þorir að nefna þetta mál við frystitogarana vegna ótta við það hvernig þeir myndu bregðast við, en ef þessi fiskur væri eðlilega verðlagður þá kæmu menn með hann að landi. Á Gylli var það tekið upp að sjómennirnir máttu eiga smá- fiskinn óskiptan og þá komu þeir með 70 tonn yfir árið, en höfðu Snorri Snorrason á Dalborgu. Gylfí Baldvinsson á Heiðrúnu. aldrei fengið bröndu áður af smáu. Vandamálið er hins vegar það að kerfíð í fiskveiðistjórnun- inni er ónýtt og skyndilokanirnar þjóna engum tilgangi. Kvótakerf- ið er reyndar eitt alsheijar rugl frá upphafi til enda og verst er verslunin með kvótann. Það er mín skoðun að frystitogararnir á íslandi séu eitt allsheijar slys, en það þarf svo sem ekki frysti- togara tii. Einu sinni lenti ég í því að 30% af mínum afla var algjör smáfískur og þá var mér nóg boðið og keyrði burt, en ég get ekki neitað því að allur flot- inn varð eftir.“ Kerfið kallar á að fiski sé hent Gunnþór Sveinbjörnsson á Sænesi var að ljúka við að landa á Dalvík þegar Morgunblaðið mætti um borð. „Það er örugg- lega allt of miklu hent af fiski,“ svaraði hann umbúðalaust, „bæði af þorski og fleiri tegundum, en ég held að það sé alveg Ijóst að það er mest hent af smáfíski frá togurunum og trollbátum. Ég veit satt að segja ekki hvað er til ráða, en ef til vill væri það hvetjandi fyrir sjómenn að hirða þennan físk ef meira fengist fyr- ir hann. Ég hef oft verið með í því að standa við lensopið á tog- urum og trollbátum og hirða einn og einn ætan fisk, en það viður- kenna fáir skipstjórar að það sé hent físki frá sér. Ég held að það hljóti að vera erfítt að fá að vita hve miklu er hent, en ég er sann- færður um að það er hent allt of miklu. Að sumu leíti er það vel skiljanlegt, því kerfí eins og það sem við búum við kallar á þetta. Menn eru ekkert að koma með það að landi sem þeir fá lítið fyrir og er tekið með í kvóta jafn- Sigurður Konráðsson á Sær- únu. vel þótt smáfískurinn vegi aðeins einn þriðja í kvóta. Það þarf að finna þessu farveg þannig að það sé ekki lífsspursmál fyrir menn að henda fiski. Það segir líka sína sögu hve það gengur illa að fá menn til þess að hirða lifur, þeir segjast fá of lítið fyrir hráef- nið fyrir of mikla vinnu, en samt eru þetta ómæld verðmæti sem menn slugsa við. Það er klárt að það mætti taka á ansi mörgum þáttum í þessu máli, ef menn hefðu þrek og þor til þess að taka af skarið. Þetta er ekki ein- leikið. Á skuttogaranum Björgvin hafa menn viðurkennt að hafa hent helling af ýsu fyrir borð, en svo dæmi sé nefnt þá fer ekki einn einasti fiskur út fyrir hjá Herði á Guðbjarti, að þeirra eigin sögn.“ Ingvar Guðmundsson á Arn- þóri. í ákveðnum byggðarlögum og á smærri bátum „Það er erfitt að dæma um þetta, en þó held ég að menn á smærri bátum og í vissum byggð- arlögum hendi dauðum fiski fyrir borð vegna þess að þetta kerfi býður upp á það,“ sagði Gylfi Balvinsson á Heiðrúnu frá Ár- skógssandi. „Ég veit ekki hvað miklu er hent af smáfíski hjá togurunum sérstaklega, en óhjá- kvæmilega veiðist alltaf eitthvað með. Ég þori þó lítið að segja um þetta í heildina, það er erfitt að dæma aðra, en þó held ég að þeir geri þetta talsvert á Snæ- fellsnesinu og einnig til dæmis Grímseyingarnir á litlu bátun- um.“ Það er mannlegur breisk- ieiki í þessu öllu „Ég held að þetta sé töluvert vandamál hjá mörgum,“ sagði Sigurður Konráðsson á Særúnu frá Árskógssandi um það hvort afla sé hent frá fiskiskipum. „Þetta er ekki vandamál hjá okk- ur því við höfum ekki einu sinni náð kvótanum. Ég hirði ufsa af því að ég á nóg eftir af ufsa, en maður sér slóð af ufsa frá mörg- um öðrum bátum. Þeir fá ef til vill eitt og hálft tonn af verðiaus- um smáufsa, eða 14 kr kílóið og tapa tonni af þorski ef þeir koma með ufsann í land. Þetta gengur auðvitað ekki. Ég held að kerfið bjóði upp á það að þetta sé veru- legt vandamál. Ég veit að vísu aðeins það sem aðrir sjómenn segja mér og ég trúi þeim þegar þeir segja mér að verulegu magni af fiski sé hent fyrir borð þótt öllum beri saman um það mestu sé hent hjá frystitogurunum þeg- ar ekki er verið að vinna þá línu sem hentar í vinnslunni. Maður á frystitogara sagði mér að þeir hefðu til dæmis hent öllum steinbít, keilu og fleiri tegundum, sem ekki væri vani að hirða. Þetta sýnir að það er mikil óstjórn á þessu, það er ekkert vafamál. Menn spyija hvað sé til ráða og því miður get ég ekki gert mér grein fyrir því, en þetta er vanda- mál sem er fyrir hendi og þótt það sé feimnismál hjá mörgum að tala um það þá verður skyn- semin að ráða til lengdar. Marg- ir eru þó í vanda sem þeir ráða ekki við, til dæmis ef þeir hafa leyfi til þess að veiða mjög tak- markað magn af fiski, hvað eiga þeir að gera við þá tegund þegar hún veiðist áfram þótt kvótinn sé uppurinn? Ég hef heyrt rosa- legar sögur af því hve miklum fiski sé hent t.d. á Akureyrinni og Margréti hjá frændum mínum, enda hef ég látið þá heyra það. Það er mannlegur breiskleiki í þessu öliu og veiðieftirlitið er vita gagnslaust, verðmismununin í kerfinu býður upp á misnotkun og það er margt og margt. Það er til dæmis alltaf verið að tala um þorskígildi, en af hveiju er ekki talað um verðgildi, það myndi breyta mörgu.“ Maður verður að trúa þótt ótrúlegt sé Við Halldór Blöndal stukkum um borð í Arnþór á Árskógsandi þegar hann lagðist að bryggju þar síðla kvölds, bryggju sem borðleggjandi er að verður að stækka hið fyrsta svo að hinn glæsilegi skipakostur heima- manna hafi viðundandi aðstöðu og þurfi ekki að fljýja höfnina þegar sá gállinn ar á veðurguð- unum. Halldór hafði miklar áhyggjur af því hve sjómennirnir töluðu opinskátt um þetta við- kvæma mál, en að sjálfsögðu kom það alþingismanninum ekki á óvart hve sjómenn eru hispurs- lausir þótt viðkvæmt kunni að vera gagnvart þeim sjálfum. Þó hafði ég gaman af því þegar Halldór var farinn að hlaupa um borð í bátana á undan mér og gauka því góðlátlega að skip- stjórunum að það væri nú engin ástæða. til þess að segja blaða- manninum nein ósköp og auk þess bætti hann því við í síðustu bátunum að hann hefði fyrir al- gjöra tilviljun slegist í för með mér fyrr um daginn og baðst þannig án orða undan allir ábyrgð á blaðamanninum. „Eg þekki lítjð þetta vanda- mál,“ sagði Ingvar Guðmundsson á Arnþóri, „því við erum á trolli, en maður heyrir ljótar sögur frá mönnum sem maður verður að trúa þótt það sé oft ótrúlegt. Flestar eru þær í sambandi við togarana og því miður verð ég að trúa að það sé eitthvað til í því. Grein og myndir: Árni Johnsen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.