Morgunblaðið - 08.05.1990, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 08.05.1990, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990 stjómiiuii að falli? Ósló. Frá Helge Sorensen, fréttarítara Morgunblaðsins. NORSKA ríkisstjórnin getur fallið þá og þegar. Samþykkt sem gerð var á landsfundi Hægriflokksins um Evrópubandalagið (EB) hefur vak- ið óróa og áhyggjur í samstarfsflokki hans, Miðflokknum, og sett ríkis- stjórnarsamstarfið í hættu. Leiðtogi Miðflokksins, Johan J. Jacobsen, segir að samþykktin bijóti í bága við „Lysebu-yfírlýsinguna“ sem ríkis- stjórnin grundvallar stefnu sína á. Hann krefst þess að Hægriflokkurinn geri hreint fyrir sinum dyrum. I samþykktinni segir meðal ann- ars: „Landsfundur Hægriflokksins telur að heildarhagsmunir norski} þjóðarinnar krefjist þess að Noregur gangi sem sem allra fyrst í Evrópu- Vestur-Þýskaland: Greitt fyrir upplýsingar um stríðs- glæpamann Vestur-Berlín. Reuter. YFIRVÖLD í Vestur-Þýskalandi greiddu rúmar 18 milljónir króna fyrir upplýsingar um verustað þýsks stríðsglæpamanns sem í fyrri viku var fluttur frá Arg- entínu til Vestur-Þýskalands. Josef Schwammberger, sem var yfirmaður í SS-sveitum nasista, var handtekinn í Argentínu þar sem hann hafði verið í felum í þijá áratugi. Schwammberger, sem er 78 ára, verður dreginn fyrir rétt í Stuttgart í Vestur-Þýskalandi en hann er m.a. talinn hafa borið ábyrgð á því að 5.000 gyðingar voru teknir af lífi auk þess sem sannað þykir að hann hafi sjálfur myrt fanga í utrýmingarbúð- um nasista í Póllandi. Alfred Streim, ríkissaksóknari Vestur-Þýskalands í málefnum stnðsglæpamanna, sagði í viðtali við Reuters-fréttastofuna í gær að ónefndum Argentínumanni hefðu verið greiddar um 18 milljónir ísl. kr. fyrir upplýsingar um dvalarstað Schwammbergers. Væri þetta tíu sinnum hærri upphæð en áður hefði verið greidd fyrir slíkar upplýsingar. bandalagið." Þá sagði Kaci Kullmann Five, viðskiptaráðherra Noregs, á flokksþinginu að líta bæri á viðræður Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) við EB sem „áfanga“ á leið Norðmanna inn í Evrópubandalagið. „Ég er forviða á þessu orðalagi," segir Jacobsen. „Það sem í þessu felst er að landsfundur Hægriflokks- ins óskar þess að samsetningu ríkis- stjórnarinnar verði breytt sem allra fyrst og ríkisstjórn Syse segi af sér.“ Jacobsen bjóst við að forysta Hægriflokksins gerði grein fyrir því í gær hvernig túlka bæri samþykkt- ina. Hann tekur fram að Miðflokkur- inn óski eftir að núverandi ríkis- stjórnarsamstarf haldi áfram, en geti ekki látið sem ekkert sé vilji landsfundur Hægriflokksins eitthvað annað. Reuter Hrapaði ofan í íbúðahverfí Flutningaflugvél af gerðinni DC-6 hrapaði ofan í íbúðahverfi í Guatemalaborg á laugardag. Bilun kom upp í flugvélinni rétt eftir flugtak en ekki var skýrt í hveiju hún var fólgin. Þriggja manna bandarísk áhöfn flugvélarinnar beið bana og einnig a.m.k. 13 manns sem voru í húsinu sem hún hrapaði niður á. Um borð var fatnaður sem flytja átti til Miami í Flórída. Framkvæmdastj órn EB tekur samningsumboð til afgreiðslu Framkvæmdastjórn Evrópu- bandalagsins (EB) Ijallar í dag um tillögu að samningsumboði -vegna fyrirhugaðra samninga við aðildarriki Fríverslunar- bandalags Evrópu (EFTA). Ut- anríkisráðherrar EB hvöttu framkvæmdastjórnina á fúndi sínum í Brussel í gær til að hraða afgreiðslu tillögunnar en ætlunin er að hún verði tekin fyrir á fúndi utanríkisráðherranna 18.júní n.k. Talsmaður EB sagði í sam- tali við Morguflblaðið í gær að framkvæmdastjómin hygðist af- greiða tillöguna í dag. Samkvæmt heimildum í Brussel er ágreiningur innan framkvæmda- stjórnarinnar um áherslur í tillög- unni. Talið er líklegt að ítarlega verði farið ofan í þau atriði sem varða mótun sameiginlegra ákvarð- ana og stjórn hins evrópska efna- Gísl lýsir illri meðferð af hálfii mannræningja: „Guði að þakka að ég slapp lifandi úr þessu helvíti“ Washington. Reuter. FRANK Reed, Bandaríkjamað- urinn sem var sleppt úr haldi mannræningja í Líbanon í síðustu viku, sagði á blaða- mannafúndi á sunnudag, að sér hefði verið misþyrmt illilega er hann reyndi tvisvar að flýja úr haldi. „í fyrra skiptið var ég ijóra daga í helvíti og á bara Guði að þakka að ég slapp þaðan lifandi, “ sagði Reed er hann lýsti meðferðinni. Hann segist ekki muna mikið hvað gerðist en tveir aðrir gíslar sem verið hefðu í næstu herbergjum hefðu talið höggin. „Brian [Kenn- anj taldist til að höggin hafi verið rúmlega 200,“ sagði Reed. Mann- ræningjamir fót-, nef-, kjálka- og rifbeinsbrutu Reed en hann var ekki af baki dottinn og gerði aðra flóttatilraun tveimur dögum seinna. Þá segist hann hafa verið barinn með sovéskum Kalas- hníkov-rifflum og hlotið nýrnask- aða. Eftir það var hann settur í einangrun og fékk að dúsa þar í tvö ár en honum var rænt í septem- ber 1986. „Ykkur mun ekki líka það sem ég ætla að segja núna,“ sagði Reed af miklum þunga, „en það er skylda [bandarískra og annarraj stjórn- Reuter Frank Reed á blaðamannafundinum í Washington þar sem hann lýsti illri meðferð í höndum múslimskra mannræningja í Líbanon. valda að semja við mannræningja." 15 Vesturlandabúar eru nú í haldi í Líbanon. Reed skýrði frá því að hann hefði komið leynilegum skilaboðum frá ræningjum sínum til George Bush Bandaríkjaforseta. Hann sagðist ekki hafa lesið bréfið. Reed er veik- burða og sagðist þjást af blóðleysi og næringarskorti. Sagðist hann nær allan tímann sem hann var í haldi hafa verið hlekkjaður við rúm sitt eða miðstöðvarofn. Hefði hann verið með bundið fyrir augun allan tímann. Robert Polhill, annar Banda- ríkjamaður sem látinn vr laus úr haldi í Líbanon skömmu á undan Reed, var á blaðamannafundinum og sagðist hvorki hafa sætt mis- þyrmingum af hálfu þeirra sem rændu honum né verið sveltur. Reed sagði að almennt séð hefðu mannræningjar, sem væru úr röð- um múslima, gefið gíslum sínum nóg að borða. hagssvæðis (EES). Þess sé krafist að einn aðili koTni fram fyrir hönd allra EÉTA-ríkjanna í samningavið- ræðunum í stað þess að fulltrúar allra aðildarríkjaiina sex sitji fundi og einn hafi orð fyrir þeim svo sem átt hefur sér stað til þessa. Jafn- framt hafa einstakir framkvæmda- stjórar s.s. Manuel Marin,sem fer með sjávarútvegsmál, lagt fram til- lögur um að kveða fastar að orði um einstök efnisatriði væntanlegra samningaviðræðna. Marin hefur lagt til að tekinn verði af allur vafi um að EB muni ekki semja um fríverslun með sjávarafurðir án þess að floti bandalagsins fái veiðiheim- ildir í fiskveiðilögsögum EFTA- ríkja. Talsmaður framkvæmdastjórn- arinnar sagði að hugsanlega yrði tillagan að samningsumboðinu ekki afgreidd endanlega á fundinum í dag vegna þess að ganga þyrfti frá tæknilegum atriðum. Hún yrði þá birt seinna í vikunni. Á fundi utanríkisráðherra EB í Brussel í gær lögðu Spánveijar til að skipuð yrði nefnd stjórnmála- manna sem fylgdist með væntan- legum samningaviðræðum fram- kvæmdastjómarinnar. Embættis- menn í Brussel segja að ljóst sé að samningaviðræðurnar verði erfiðar, sérstaklega vegna krafna EFTA- ríkjanna um sameiginlegar ákvarð- anir og þess fjölda fyrirvara sem EFTA-ríkin hafa sett fram vegna þeirra reglna EB sem gilda eiga um EES. Bretland: Rushdie hindrar bætt samskipti við Irana St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frí mannssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins. TVEIR aðstandcndur brezkra gísla í Líbanon lýstu því yfir um helgina að rithöfundurinn Salman Rushdie kæmi í veg fyrir að brezkir gíslar losnuðu úr prísundinni. Aðstandendurnir frá Bretlandi héldu á fund bandarísku gíslanna, sem látnir hafa verið lausir, um sl. helgi til að fá fregnir af ástvinum sínum. Bandarísku gíslarnir hafa vakið vonir um, að fleiri losni úr prísundinni. Pat McCarthy, faðir Johns Mac- Carthys sem er í haldi í Líbanon, sagði í The Mail on Sundays]. sunnu- dag, að stjórnmálasamband væri komið á á milli Bretlands og írans og brezku gíslarnir hugsanlega laus- ir úr haldi, hefði bókin Söngvar Sat- ans ekki verið gefin út. Hann hvatti höfundinn til að láta af áformum um að gefa bókina út í pappírskilju. David Waite, bróðir Terrys Wait- es, sérlegs sendifulltrúa ensku bisk- upakirkjunnar, sem er í haldi í Líban- on, sagði í sjónvarpi um helgina, að •hann -teldi-eðlilegt,- að-Rushdie-bæði-• múhameðstrúarmenn afsökunar i þeim sárindum, sem hann hefði vald ið þeim, og hætti við að gefa bók sína út í pappírskilju. Það væri nauð- synlegt til að eðlileg samskipti hæf- ust á milli írans og Bretlands. í frétt í The Sunday Telegraph sl. sunnudag kemur fram, að Penguin- bókaútgáfan er alvarlega að hugsa um að hætta við útgáfu á Söngvum Satans í pappírskilju, en fyrirtækið keypti útgáfuréttinn að bókinni bæði í harðkilju og pappírskilju. Kostnaður við aukna öryggisgæzlu við aðal- stöðvar Penguin í Lundúnum hefur étið upp allan hagnaðinn af útgáfu harðkiljunnar. Fregnir af því, að tveir brezku gíslanna, John McCarthy og Brian Keenan, séu á lífi hefur aukið þrýstinginn á útgáfufyrirtækið að -hætta -við-paiipírskiljuútgáfuna. - Noregur: Verður EB-málið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.