Morgunblaðið - 08.05.1990, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAI 1990
Sönglög efltir Joseph Marx o g Ant-
onin Dvorák á Háskólatónleikum
KRISTÍN Sædal Sigtryggsdótt-
ir sópran og Hreftia Eggerts-
dóttir píanóleikari flytja söng-
lög eftir Joseph Marx og Anton-
in Dvorák á Háskólatónleikum
í Norræna húsinu miðvikudag-
inn 9. maí nk. kl. 12.30.
Á efnisskránni eru „Japanisches
Regenlied“ og „Marienlied“ eftir
Joseph Marx og Söngvar sígaun-
ans op. 55, „Mein Lied ertönt“,
„Ei, wie mein Triangel", „Rings
ist der Wald“, „Als die alte Mutt-
er“, „Reingestimmt die Saiten“,
„In dem weiten, breiten, luft’gen
Leinenkleide" og „Darf des Falken
Schwinge" eftir Antonin Dvorák.
Kristín Sædal Sigtryggsdóttir
hóf snemma söngnám og var Guð-
rún Á. Símonar fyrsti kennari
hennír.
Hún stundaði nám við Söng-
skólann í Reykjavík og útskrifaðist
þaðan úr kennaradeild 1985. Aðal-
kennari hennar þar var Þuríður
Pálsdóttir.
Kristín hefur sungið í Þjóðleik-
húsinu, í íslensku óperunni og
haldið einsöngstónleika í
Reykjavík og úti á landsbyggðinni.
Hrefna Eggertsdóttir píanóleikari.
Kristín S. Sigtryggsdói tir sópran.
RADA UGL YSINGAR
Mosfellingar
Á kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins í
Urðarholti 4 verða bæjarfulltrúar D-listans
til viðtals sem hér segir:
Þriðjudaginn 8. maí frá kl. 18.00-21.00,
Magnús Sigsteinsson; miðvikudaginn 9.
maí á sama tíma, Helga Ricther; fimmtu-
daginn 10. maí á sama tíma, Hilmar Sig-
urðsson og laugardaginn 12. maí frá kl.
14.00-18.00, Þengill Oddsson.
Allir Mosfellingar velkomnir. Heitt á könn-
unni. Síminn á skrifstofunni er 667755.
Sjáumst!
Stjórnin.
Almennur fundur um
borgarmál
verður haldínn í
Mennrngarmiðstöð-
inni i Gerðubergi í
dag, þriðjudaginn 8.
maí 1990 og hefst
hann kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Ræða: Davíð
Oddsson, borg-
arstjóri.
2. Ræða: Anna K.
Jónsdóttir, borgarfulltrúi.
3. Önnur mál.
Borgarfulltrúarnir, Magnús L. Sveinsson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, mæta á fundinn og svara fyrirspurnum.
Fundarstjóri verður Jón Sigurðsson, kosningastjóri Breiðholtshverfa.
Sjétfstæðisfétögin i Breiðhoiti.
Kópavogur - opið hús
Opið hús verður í Sjálfstæðishúsinu, Hamraborg 1,3. hæð, miðviku-
daginn 9. maí, milli kl. 17 og 19.
Frambjóðendurnir Birna Friðriksdóttir, Arnór Pálsson og Þorgerður
Aðalsteinsdóttir verða á staðnum.
Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins: Leggið ykkar af mörkum við
mótun kosningabaráttunnar. Verið velkomin. Heitt á könnunni.
Kosningaskrifstofan er opin frá kl. 9-19 mánudaga-föstudaga. Símar
40708 og 40805. Kosningastjóri er Þorgeir P. Runólfsson.
Sjálfstæðisfélögin i Kópavogi.
Nýjar áherslur
í utanríkismálum?
Ráðstefna um utanrikismál verður haldin á Hótel Sögu, ráðstefnusal
A, laugardaginn 12. maí.
Dagskrá:
Setning: Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Stofnun utanrikisþjónustunnar og mótun utanríkisstefnu: PéturThor-
steinsson, fyrrv. sendiherra.
ísland og EB. Er aðild íslendinga komin á dagskrá? Eyjólfur Konráð
Jónsson, alþingismaður og Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri
Félags íslenskra iðnrekenda.
Ný viðhorf í varnar- og öryggismálum: Arnór Sigurjónsson.
Umhverfismál: Dr. Sigurður M. Magnússon, forstöðumaður Geisla-
varna ríkisins.
Alþjóðleg viðskiptasamvinna: Belinda Theriault, framkvæmdastjóri SUS.
Að umræðum loknum verða umræður. Ráðstefnustjóri verður Hreinn
Loftsson, formaður utanríkismálanefndar Sjálfstæðisflokksins.
Ráðstefnan hefst kl. 10 árdegis og lýkur eigi síðar en kl. 14.00. Öll-
um er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Þátttökugjald er kr.
1.000,- en kr. 500,- fyrir námsmenn. Léttur hádegisverður innifalinn.
Utanríkismálanefnd Sjáifstæðisfiokksins.
• Utanrikisnefnd Heimdaliar.
Utanrikisnefnd SUS.
Viðreisn eftir
vinstri stjórn?
Málfundafélagið Óðinn efnir til almenns stjórnmálafundar í.Valhöll,
Háaleitisbraut 1, fimmtudaginn 10. maí kl. 20.30.
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir um vinstri
stjórn og verri lífskjör og gerir grein fyrir tillögum sjálfstæðismanna
um viðreisn atvinnu- og efnahagslífsins.
Kristján Guðmundsson, formaður Óðins, setur fundinn.
Fundarstjóri: Pétur Hannesson.
Allir velkoronir.
Málfundafélagið Óðinn.
Sjálfstæðisfélag Seltirninga
Bæjarmálafundur á
Seltjarnarnesi
Við sjálfstæðismenn hvetjum alla Seltirninga til að mæta til skrafs
og ráðagerða um bæjarmál á Seltjarnarnesi.
Dagsenting: Fimmtudaginn 10. maí nk. kl. 20.30.
Staður: Austurströnd 3, 3. hæð.
Bæjarstjóri, bæjarfulltrúar, frambjóðendur og nefndamenn verða á
fundinum.
Nú er um að gera að mæta á staðinn og taka þátt í umræðunni
að gera góðan bæ ennþá betri.
Allir velkomnir. Kaffi á könnunni.
. Stjórnin.
Kópavogur
atvinnumálaráðstefna
9. maííHamraborg 1 kl. 20.30
Frummælendur:
Doktor Gunnar Birg-
isson, formaður
Verktakasam-
bandssins.
Einar Oddur Kristj-
ánsson formaður
VSÍ.
Guðmundur J. Guð-
mundsson, formað-
ur Dagsbrúnar.
Guðni Stefánsson, bæjarfulltrúi.
Fundarstjóri: Arnór Pálsson, framkvæmdastjóri.
Allir velkomnir. Mætum öll.
Sjáifstæðisfiokkurinn Kópavogi.
¥élagslíf
I.O.O.F. Ob 3 = 171588872 = L.f.
□ EDDA 5990857 - Atkv. Lf.
I. O.O.F. Rb.1 = 13958772 - 8
II. LF.
§Hjálpræóis-
herinn
/ Kírkjustræti 2
Samkomur verða í kvöld og öll
kvöld kl. 20.30 þessa viku. 16
manna hópur foringja og her-
manna frá Færeyjum syngja og
vitna. Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Miðvikudagur9. maí
kl. 20.30
Opið hús - Ferðakynning í
Norræna húsinu
Myndasýning og létt spjall um
ferðirnar í sumar. T.d. Vest-
fjarðahring, Hornstrandir,
Laugar-Þórsmörk, Suðurlands-
ferð, miðhálendisferð, Lónsör-
æfi, gönguferð um Jötunheima
í Noregi o.fl. Ennfremur stutt
myndasyrpa um ýmislegt sem
getur gerst í ferðum og ekki
skipulagt fyrirfram.
Sýnt verður nýtt myndband (28
mín.) frá Norska ferðafélaginu
um ungmennastarf þess.
Myndbandið sýnir ferðamögu-
leika um failasvæði Noregs.
Hvítasunnuferðirnar verða
kynntar sérstaklega. Kaffistofan
verður opin. Allir velkomnir.
Ferðist innanlands með F.i. i
sumar. Aðgangseyrir: 200 kr.
Ferðafélag islands.
Skipholti 50b, 2.
hæð
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30 með Svíunum frá Livetes
Ord. Patric Salmonsson predik-
ar. Bóksala og kaffi á könnunni
eftir samkomuna. Þú er velkom-
in(n)l
Útivist
Kvöldganga 9. maí
Norðurgröf - Kollafjörður.
Fyrsta gangan í Esjuhringnum.
Brottför kl. 20.00 frá BSÍ-bensín-
sölu. Sjáumst.
Útivist.
»
afsláttur af öllum frukkuiu
//
SNORRABRAUT 56 SÍMI 1 35 05