Morgunblaðið - 08.05.1990, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 08.05.1990, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAI 1990 Brauðlengjur Brauðlengjur með góðgæti. Frá vinstri skiriku-sveppa-, beikon- osta- og kræklinga ofanálag. Heimilishorn Bergljót Ingólfsdóttir Brauðlengjur með ofanálagi Það er hægt að kaupa tilbúna botna, pbakaða t.d. „pitsu“ botna en lítið mál er að búa þá til heima. Uppskriftin sem hér fylgir með gerir ráð fyrir þremur lengjum en auðvitað getur brauðið haft hvetja þá lögun sem hentar. Á fyrrnefnda uppskrift er hægt að setja mismunandi ofanálag og bera fram með kaffi eða öli eftir því hvað hentar hvetju sinni. Deigið. 25 g þurrger 1 dl mjólk 2 egg 6 msk. olía 2 tsk. salt 300 g hveiti Þurrgerið hrært út með volgri mjólk, egg, olía, salt og hveiti sett smám saman út í. Deigið hnoðað saman og látið hefast í um það bil 2 klst., þá hnoðað aft- ur, skipt í þtjá hluta og flatt út. Uppskriftin er ætluð fyrir 6-8 manns. Ofanálag 1. 150 g skinka 150 g sveppir smjör til að steikja úr salt og pipar • 1 '/zdl tjómi 1 tsk. hveiti 2 msk. söxuð steinselja Skinkan skorin smátt, rétt brugðið í smjör á pönnu og sett yfir deigið. Sveppirnir skornir í sneiðar, settir á pönnuna, hveiti stráð yfir, tjómanum hellt yfir og rétt látið malla saman, bragðbætt með salti og pipar. Steinselju stráð yfir skinkubitana og sveppirnir settir yfir lengjuna. Bakað í ofni í 12-15 mín. við 225°C. Ofanálag 2. 150 g beikon 1 meðalstór laukur 2 msk. kapers 1 paprika 1 dl rifinn ostur Beikonið skorið í litla bita og sett á þurra pönnu, laukur í sneið- um settur út á og rétt látinn mýkjast. Þetta er síðan sett jafnt yfir lengjuna, kapers stráð yfir og paprikusneiðar settar þar yfir. Ostinum er svo stráð yfir þetta allt og bakað í 12-15 mín. við 225°C. Ofanálag 3. 1 dl ijómi 4 msk. tómatþykkni 200 g niðursoðnir kræklingar 1 dl fínt niðursneidd púrra 2 msk. saxaður graslaukur nýmalaður pipar 1 dl rifinn ostur Rjóminn er stífþeyttur, tómat- þykkni hrært saman við og þessu smurt á deigið þó ekki alveg út á kantana. Vökvinn látinn síga vel af kræklingunum og settir yfir íjómann ásamt púrru og graslauk. Nýmöluðum pipar stráð yfir og að síðustu rifnum osti. Bakað við 225°C í 12-15 mín. Breiðholtsbúar Fundur í Bjórhöllinni, Gerðubergi 1, miðvikudagskvöldið 9. maí kl. 20.30. Ræðumenn: Olína Bjarni P. Ólfna Þorvarðardóttirog Bjarni P. Magnússon. Fundarstjórí: Ragnheiður Davíðsdóttir. Ríó tríó skemmtirkl. 21.00. Kosningaskrifstofan, Þingholtsstræti 1, s. 625525. _________Brids______________ Arnór Ragnarsson Bridsfélag Breiðfirðinga Annað kvöldið í hraðsveitakeppni félagsins var fimmtudaginn 3. maí. Þrettán sveitir taka þátt í þessari keppni. Staða efstu sveita að loknum tveimur kvöldum af þremur er þannig: Óskar Þráinsson 957 Lárus Hermannsson 935 Dröfn Guðmundsdóttir 912 Þórir Sigursteinsson 910 Guðmundur Kr. Sigurðsson 883 Hæstu skor síðasta spilakvöld hlutu: Óskar Þráinsson 517 Lárus Hermannsson 493 Ingibjörg Halldórsdóttir 462 Að lokinni hraðsveitakeppni félags- ins verður iokakvöld félagsins Mitch- ell-tvímenningur, þar sem spilað verður til um kl. 22.00 og síðan verða veitt verðlaun fyrir mót félagsins á þessu spilaári. Bridssamband Islands Úrslit íslandsmótsins í tvímenningi verða spiluð helgina 12.-13. maí. Spil- aður verður barómeter, 4 spil milli para, allir við alla. Tímasetning mótsins er eftirfarandi: Spilamennska hefst laug- ardaginn 12. maí kl. 12.00 og spilað til um kl. 18.00. Aftur verður hafist handa eftir matarhlé kl. 19.30 og spil- að til um kl. 1.00 eftir miðnætti. Spila- mennska hefst aftur sunnudaginn 13. maí kl. 12.00 og spilað þar til mótinu iýkur um kl. 18.30. Spilað verður á Hótel Loftleiðum og góð aðstaða fyrir áhorfendur. Bikarkeppni BSÍ Bikarkeppni Bridssambands íslands 1990 fer að hefjast og er skráning hafin í síma BSI, 689360. Þátttöku- gjald verður það sama og í fyrra eða 40 þús. krónur. Stefnt verður að því að 80% af þátttökugjöldum verði greidd aftur í ferðastyrki. Þátttökugjöldin verða að greiðast í síðasta lagi 28. maí. Fyrstu umferð á að vera lokið fyrir 24. júní. Annarri umferð skal vera lokið fyrir 29. júlí. Þriðju umferð skal vera lokið fyrir 26. ágúst. Fjórðu um- ferð skal vera lokið fyrir 23. septem- ber. Undanúrslitin verða spiluð heigina 29.-30. september. Úrslit Bikarkeppn- innar verða spiluð helgina 6.-7. október. ■ GENGIÐ hefur verið frá vali frambjóðenda á framboðslista Fé- lags áhugafólks um framtíðar- uppbyggingu Reykhólahrepps og er hann eftirfarandi: 1. Einar Haf- liðason, bóndi. 2. Vilborg Guðna- dóttir, þjóðfélagsfræðingur. 3. Jó- hannes Geir Gíslason, bóndi. 4. Karl Kristjánsson, bóndi. 5. Málfríður Vilbergsdóttir, hús- móðir. 6. Sólrún Ósk Gestsdóttir, forstöðumaður. 7. Gunnbjörn Jó- hannsson, verktaki. 8. Egill Sigur- geirsson, nemi. 9. Halldóra Elín Magnúsdóttir, verkamaður. 10. Bergsveinn Reynisson, þang- skurðarmaður. 11. Ingibjörg Björgvinsdóttir, leiðbeinandi. 12. Reinhard Reynisson, sveitarstjóri. 13. María Björk Reynisdóttir, hjúkrunarfræðingur. 14. Áshildur Vilhjálmsdóttir, húsmóðir. ■ SAMRÁDSHÓPUR fyrir Grænt framboð hefur ákveðið lista fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reylyavík þann 27. maí 1990. Efstu sæti listans skipa eftirfar- andi: 1. Kjartan Jónsson, verslun- armaður. 2. Óskar D. Ölafsson, verkamaður. 3. Gunnar Vilhelms- son, ljósmyndari. 4. Sigrún M. Kristinsson, nemi. 5. Sigurður Þ. Sveinsson, sölumaður. 6. Sigríður E. Júlíusdóttir, nemi. 7. Metúsa- lem Þórisson, markaðsstjóri. 8. Guðmundur Þórarinsson, kvik- myndagerðarmaður. 9. Árni Ing- ólfsson, myndlistamaður. 10. Sig- urður M. Grétarsson, endurskoð- andi. 11. Anna M. Birgisdóttir, afgreiðslustúlka. 12. Sigurður B. Sigurðsson, forritari. 13. Þór Ö. Víkingsson, verslunarmaður. 14. Guðrún Ólafsdóttir, nemi. 15. Jón G. Davíðsson, nemi. V^terkur og kJ hagkvæmur auglýsingamiöill!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.