Morgunblaðið - 08.05.1990, Page 45

Morgunblaðið - 08.05.1990, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAI 1990 45 borg: Sigríður fædd 1938, gift Guð- mundi S. Jónssyni lækni. Margrét fædd 1941, gift Ingólfi Árnasyni viðskiptafræðingi. Matthildur fædd 1949. Hún var gift Jónasi Sveins- syni hagfræðingi. Dæturnar starfa allar við fyrirtæki föður síns. Barnabörnin eru fímm og eitt barnabarnabarn. Sigríður og Guð- mundur eiga eina dóttur, Hrefnu, sem er fædd 1964, og einn son, Ingvar, sem er fæddur 1968. Þau eru bæðj við háskólanám. Hrefna á eina dóttur Sólbjörtu Ósk, fædda árið 1987. Margrét og Ingólfur eiga tvær dætur, Hrefnu, sem er fædd 1965 og stundar háskólanám, og Ernu Vigdísi sem er fædd 1971 og er við nám í fjöibrautaskóla. Hrefna er gift Gísla Þór Gíslasyni rafiðn- fræðingi fæddum 1961. Matthildur á einn son, Svein, sem er fæddur árið 1975. Ingvar byrjaði fljótt að starfa í fyrirtæki föður síns sem verslunar- maður hjá versluninni Hemco í Hafnarstræti, en faðir hans, Kjart- an, var meðeigandi í því fyrirtæki. Ingvar starfaði þar um langt skeið eða á árunum 1928 til 1941. Á stríðsárunum gerðist hann síðan innflytjandi á byggingarefni og sjálfstæður byggingarverktaki. Hann var síðan sjálfstæður atvinnu- rekandi með vöruinnflutning og heildverslun á áranum 1942-1946 en á árinu 1946 keypti hann helm- ingshiut í fyrirtækinu Vald. Poulsen hf. en eigandi þess fyrirtækis, Valdimar Poulsen, var þá nýlátinn. Rak Ingvar síðan fyrirtækið ásamt meðeigendum sínum og í góðri sam- vinnu við þá sem forstjóri fyrirtæk- isins allt fram til ársins 1963 en þá keypti hann fyrirtækið og gerð- ist einn eigandi þess. Hann rak síðan fyrirtækið til dauðadags og má segja að honum hafi tekist rekstur þess ákaflega vel því fyrir- tækið nýtur almenns trausts og virðingar í sinni grein. Núverandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins er tengdasonur Ingvars, Ingólfur Árnason. Skömmu eftir að Ingvar keypti fyrirtækið hóf hann bygg- ingu stórhýsis á Suðurlandsbraut 10 sem hann lauk við á mjög skömmum tíma. Flutti hann fyrir- tækið síðan þangað með starfsemi sína að nokkru til að byija með en um tíma voru verslanirnar tvær, bæði á Klapparstíg 29 og Suður- landsbraut 10, en síðan fluttist öll starfsemi fyrirtækisins á Suður- landsbraut 10 og hefur verið þar síðan. Vegna húsbyggingarinnar stofnaði Ingvar fyrirtækið Ingvar Kjartansson sf. sem á og rekur þessa húseign. Eins og áður hefur komið fram var Ingvar ákaflega starfsamur maður og segja má með sanni að þetta fyrirtæki sem var að mestu leyti lífsstarf hans hafi verið honum mjög kært. Fyrirtækið er dæmigert fjölskyldufyrirtæki og hefur verið rekið af alúð, eindrægni og í góðri samvinnu fjölskyldunnar frá upphafi. Þótt Ingvar starfaði afar mikið í fyrirtæki sínu allt fram á síðustu ár meðan heilsan leyfði þá átti hann sér þó sínar tómstundir ásamt konu sinni og börnum og kom í þeim í ijós hin mikla ást hans á náttúru landsins. Hann stundaði á tímabili hestamennsku en síðan laxveiðar með vinum sínum á hveiju sumri á meðan hann gat. Ingvar og Hrefna ferðuðust mikið erlendis og þá yfir- leitt í viðskiptaerindum. Þeim tókst þá gjarnan að sameina starf og hvíld. Slík ferðalög voru þeim yfir- leitt mikilvæg hvíld frá miklum önnum hér heima. Ingvar var alla tíð hógvær og fremur hlédrægur maður. Hann tranaði sér aldrei fram. En vegna þess trausts og virðingar sem hann óhjákvæmilega ávann sér meðal starfsbræðra sinna og annarra sam- ferðamanna hlutu að falla í hans hlut ýmis trúnaðarstörf. Hann var formaður félags búsáhalda- og járn- vörukaupmanna um árabil og einn- ig var hann endurskoðandi í veiðifé- lagi Elliðavatns í fjölda ára. Kaup- mannasamtök íslands heiðruðu Ingvar þ. 15. maí árið 1982 með því að sæma hann gullmerki sam- takanna. Það merki er veitt í þakk- lætis- og virðingarskyni fyrir fórn- fús og vel unnin störf í þágu stéttar- innar eins og segir í skjali því sem fylgir merkinu. Ingvar sinnti einnig mörgum öðrum trúnaðarstörfum sem ekki verða talin upp hér. Eins og áður hefur komið fram var Ingvar fyrst og fremst góður fjölskyldufaðir sem hugsaði um heill fjölskyldu sinnar framar öðru. Hann var traustur atvinnurekandi og vinnuveitandi og naut virðingar þeirra sem hann skipti við. Hann var annálaður fyrir heiðarleika. Hann var ekki margmáll maður og iðkaði ekki orðagjálfur en hann stóð alltaf við orð sín. Orð hans voru góð trygging hveijum þeim sem hann þekkti. Ingvar var afar trúað- ur maður og trúði á líf eftir dauð- ann. Hann hræddist ekki dauðann og ég hygg að dauðinn hafi verið honum kærkominn nú í lok vegferð- ar hans hér. Nú þegar ég kveð kæran tengda- föður með söknuði þá er mér mikið þakklæti í huga. Þakklæti til þeirra beggja hjóna fyrir einstaklega góða sameiginlega vegferð um langt ára- bil. Þau voru öllum sínum börnum, tengdabörnum og barnabörnum sem bestu foreldrar og sköpuðu heimili sem var ætíð eftirsótt skjól þessarar fjölskyldu. Ég bið nú þess að hinn hæsti höfuðsmiður fylgi Ingvari á þeim leiðum sem hann hefur nú lagt út á og að hann fái nú að njóta þess að hafa ætíð unnð verk sín hér í jarðnesku lífi með kristilegu hugar- fari. Guðmundur S. Jónsson meiri háttar TMftÐ stendur tri 12. mai á kílóastykkjum af brauðostinum góða Verð áður: Kr.777.90 kflóið Tflboðsverð: kr. 661- - kflóið 15% lækkun! DREGIÐ í AUKALEIKNUM Á MORGUN Takirðu þátt í Risahappdræfti Landssambands Hjálpar- sveita skáta fyrir 1.000 kr. eða meira - tekurðu einnig þátt í Aukaleiknum. Dreginn verður út vinningur, bifreið af gerðinni Mitsubishi Colt 1300 GL, á hverjum miðviku- degi uns dregið verður um aðalvinningana þann 8. júní. Mundu því að greiða gíróseðilinn sem fyrst til að eiga kost á aukavinn- ingi i hverri viku! ÍSk SPAKISJÓÐUR VÉLSTJÓRA liefur ufstórhuf! stvrkt l>ctiu hup/Mlnvtti. Björgum við þínu lífi nœst? ®| L ANDSSAMBAND Ihjálparsveitaskáta y

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.