Morgunblaðið - 08.05.1990, Page 55

Morgunblaðið - 08.05.1990, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAI 1990 55 I I I I I I I I I 3 f 1 É f I 4 Aðalfímdur Krabbameinsfélags Reykjavíkur: Lýst stuðningi við reyk- laust millilandaflug Á aðalfundi Krabbameinsfélags Reykjavíkur sem haldinn var fyrir nokkru var samþykkl ályktun þar sem m.a. er lýst eindregnum stuðn- ingi við reyklaust millilandaQug og reyklausar sjúkrastofiianir og hvatt til að öll hótel og veitingastaðir gefi gestum sínum kost á dvöl í reyklausu umhverfi. Fram kom í skýrslu stjórnar fyrir liðið starfsár að félagið hefur unnið að margvíslegum viðfangsefnum í fræðslu- og forvarnarstarfi, bæði í skólum og meðal almennings. Sér- stök áhersla hefur sem fyrr verið lögð á skipulagt tóbaksvarnastarf í grunnskólum landsins. Samvinna er við Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis um starfið í grunnskólum á félagssvséði þess. í vetur stóðu Krabbameinsfélag Reykjavíkur og Tóbaksvarnanefnd sameiginlega að verðlaunasamkeppnj meðal grunn- skólanema um gerð myndefnis til tóbaksvarna. Haldin var sýning á hundrað úrvalsmyndum í Gerðubergi og fleiri sýningar eru fyrirhugaðar. Þá beitti félagið sér fyrir því með héraðslæknum að könnun á reyking- um grunnskólanema, sem gerð var á vegum borgarlæknis í Reykjavík í marslok, náði til alls landsins. Er nú verið að vinna úr henni. Félagið gaf út tvö ný fræðslurit fyrir almenning á starfsárinu, um leghálskrabbamein og krabbamein hjá börnum. Að þeim meðtöldum eru nú 17 fræðslurit félagsins í al- mennri dreifingu og fjögur eru í burðarliðnum. Ritin fást ókeypis á heilsuverndarstöðvum um land allt og í mörgum apótekum. Félagið stóð fyrir eða tók þátt í mörgum fræðslufundum, bæði fyrir almenning og fagfólk, og beitti sér fyrir fjölsóttri námstefnu um sorg og aðstoð við dauðvona sjúklinga. Það hélt mánaðarlega námskeið í reykbindindi og veitti auk þess ein- staklingum og hópum ráðgjöf í því efni. Það tók þátt í að undirbúa þjðð- arátak gegn krabbameini, m.a. með því að gangast fyrir „opnu húsi“ í Skógarhlíð 8. I fyrra varð félagið fjörutíu ára og minntist þess með ýmsum hætti, m.a. með því að stofna sjóð í þeim tilgangi að styrkja aðstandendur krabbameinssjúklinga til að dveljast með sjúklingum í Reykjavík meðan þeir eru þar í rannsókn eða með- ferð. I ljós hefur komið að veruleg þörf er fyrir sh'kan stuðning. Hefur félagið ákveðið að halda honum áfram enn um sinn. Nokkrir styrkir voru veittir ein- staklingum og samtökum til að sækja eða halda fundi og ráðstefnur varðandi stefnumál félagsins. Meðal þeirra sem hlutu slíka styrki voru stuðningshópar krabbameinssjúkl- inga. Jón Þ. Hallgrímsson var endur- kosinn formaður félagsins en aðrir í stjórn eru Erla Einarsdóttir gjald- keri, Ólafur Haraldsson aðstoðar- sparisjóðsstjóri, Páll Gíslason yfir- læknir, Sigríður Lister hjúkrunarfor- stjóri, Sveinn Magnússon læknir og Þórarinn Sveinsson yfirlæknir. Framkvæmdastjóri Krabbameinsfé- lags Reykjavíkur er Þorvarður Örn- ólfsson. Félagsmenn eru um sautján hundruð. Eftirfarandi ályktanir voru sam- þykktar á aðalfundinum: 1. Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur, haldinn 9. apríl 1990, lýsir ánægju með þær við- tökur sem „Þjóðarátak gegn krabbameini 1990 — Til sigurs!" fékk hjá þjóðinni. Sá ótvíræði stuðningur sem málstaður krabbameinssamtakanna hlaut er mikilvægt veganesti í áfram- haldandi baráttu með það fyrir augum að sigrast á sjúkdómnum þegar fram líða stundir. 2. Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur, haldinn 9. apríl 1990, lýsir ánægju yfir að tóbaks- sala og tóbaksneysla fer minnk- andi í landinu og væntir þess að hratt framhald verði á þeirri þró- un. Fundurinn vísar til sjöunda markmiðs í íslenskri heilbrigðisá- ætlun og treystir því að Alþingi og stjórnvöld stuðli einarðlega að því með hertri löggjöf og öðrum úrræðum að draga úr tóbaks- neyslu og útrýma henni. Fundur- inn lýsir eindregnum stuðningi við ráðagerðir um reyklaust milli- landaflug og reyklausar sjúkra- stofnanir og hvetur til þess að öll hótel og veitingastaðir fylgi góðu fordæmi og gefi gestum kost á dvöl í reyklausu umhverfi. Samkór Mýramanna heldur vortónleika brekku á föstudag. félagsheimilinu Lyng- ■ SAMKÓK Mýramanna heldur vortónleika í félagsheimilinu Lyng- brekku, föstudaginn 11. maí nk. Sérstakur gestur á tónleikunum verður Þorrakórinn úr Dalasýslu. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyf- ir. (Fréttatitkynning) Þingmannanefiid um kjarnorkuvopnalaust svæði: A Oánægja með störf neftidar embættismanna NORRÆNA þingmannaneftidin um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum hélt fund fimmtudaginn 19. apríl sl. í Kaupmanna- höfti. Frá íslandi sóttu fúndinn Danfríður Skarphéðinsdóttir og Hjör- leifur Guttormsson. I fréttatilkynningu um fundinn segir: í tengslum við erindi tveggja sérfræðinga, þeirra Erik Alfsen frá Noregi og Jon Prawitz frá Svíþjóð, var rætt um nýlega þróun öryggis- mála varðandi Norðurlönd. Formaður nefndarinnar, Anker Jörgensen, gerði grein fyrir bréfa- skiptum sem hann, fyrir hönd nefndarinnar, hefur átt við danska utanríkisráðherrann. í tveimur bréfum til danska utanríkisráð- herrans kemur fram að nefndin er mjög óánægð með að embættis- nefnd sú sem skipuð var af ríkis- stjórnum innan Norðurlanda árið 1986 skuli enn ekki tilbúin með niðurstöður rannsókna sinna og mat á möguleikum þess að gera samning um að Norðurlöndin verði lýst kjarnorkuvopnalaust svæði. Þar er það hafa hingað til verið óskrifuð lög að Norðurlandaráð fjalli ekki um öryggismál, telur nefndin að mikilvægt skref hafi verið stigið þegar Norðurlöndin fimm ákváðu að athuga sameigin- lega svo mikilvægt atriði á sviði öryggismála. Þingmannanefndin hefur í bréfum sínum tjáð danska utanríkisráðherranum að það sé með öllu óviðunandi að athugunum embættismannanefndarinnar skuli ekki lokið fyrir löngu þannig að grundvöllur megi skapast fyrir umræðu um málið í þjóðþingum landanna. Það hefur varla verið ætlunin að nota embættismanna- nefnd, skipaða háttsettum embætt- ismönnum, til að salta málið. Þing- mannanefnclin ákvað á fundi sínum 19. apríl að ítreka þessa skoðun sína með því að snúa sér nú til utanríkisráðherra allra Norðurland- anna. Á fundi nefndarinnar í Kaup- mannahöfn var einnig rætt um áhuga Eystrasaltslandanna á kjarn- orkuvopnalausu svæði á Norður- löndum, spurninguna um öi’yggis- mál og Norðurlandaráð, þíðuna milli austurs og vesturs, hugmyndir um brottflutning kjarnorkuvopna frá hinu sameinaða Þýskalandi og hernaðarumsvifin í höfunum, sem enn virðast vaxandi þrátt fyrir hina almennu slökun. Nefndin mun halda áfram starfi sínu með því að fylgjast með þróun öryggismála á Norðurlöndunum. Það er sameiginleg skoðun fulltrúa í nefndinni að hugmyndin um kjarn- orkuvopnalaust svæði á Norður- löndum falli sérlega vel að þeirri slökun sem nú á sér stað í Evrópu. í ríkisstjórnum og á þjóðþingum Noi-ðurlandanna hefur ofl komið fram að kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum beri að skoða í evrópsku samhengi. Nefndin telur að einmitt nú sé lag fyrir Norður- löndin að leggja sitt af mörkum með því að styðja og fylgja eftir hugmyndinni um kjarnorkuvopna- laust svæði á Norðurlöndum. IMI ”TIME MANAGER STANDARD Nú á tilboðsverði aðeins kr. 9.995 - TILBOÐ 1. Dagsyfirlit með dagsetningum (365 blöð fyrir 1990): Fullt verð: 2.700 kr. TILBOÐSVERÐ 1.995 kr. TILBOÐ 2. Ársyfirlit, dagsyfirlit með dagsetningum (365 blöð fyrir 1990), vikuyfirlit með dagsetningum (52 blöð 1990). 18 mánaða dagbók (jan,—jún. '91) Fullt verð 4.056 kr. TILBOÐSVERÐ: 2.995 kr. Metsölublad á hverjum degi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.