Morgunblaðið - 09.05.1990, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1990
mmmn
„ AVnnstu Svo eJokert d a£hctfcx fco/v/c)
/hingcub þegc\ri/i3k.onnum h-eim."
Varstu búinn að mæla Við gerum svo „ekki
þér mót við einkaleyfís- árásarsamning ...“
forstjórann?
10 tn-ir sem »l»fa oi^
lit, ilíta að þaö W
«”d*'UaEs,r
reglugerð. Það M
með að bankar ogl
Btofnanir fan
6vitah«etti- t°r«l
hcrraakipaður ogl
Kramkvæmd eftiri
ið.£3
verið haria goU.
viðsk.riðh. yfir-
r sjóðunv"®" ekki *** *r l'
!»r.
ir aðilar leituðu til bðrtu. JJ1*,
u ainni bankastjóm
iTKntaldlega i
u. 1 aualega þýtt og
erðbréfaajóð og reV
í»essir hringdu . . .
Málið fer fyrir dómstóla
Valmundur Eggertsson-
hringdi:
„Nokkur orð vegna greinarinn-
ar Bankastjórn bítur frá sér eftir
Þórð Jónasson sem birtist í Morg-
unblaðinu 4. þ.m. Þórði ætti að
vera það kunnugt að það eru rúm-
ir tveir mánuðir síðan að undir-
búningur að málsókn var hafinn.
Til þess að fá upplýsingar um
þetta mál getur fólk hringt í síma
40423. Ég get líka bætt því við
að það voru sendar skaðabótak-
röfur af nokkrum aðilum til Við-
skiptaráðuneytis og Seðlabanka
íslands vegna bankaeftirlitsins og
svör bárust okkur síðast í apríl
þess efnis að bæði Viðskiptaráðu-
neytið og Seðlabankinn afneita
allri skaðabótaskyldu af sinni
hálfu. Nú er unnið mjög ákveðið
að því marki að skorið verði úr
um þetta mál fyrir dómstólum.
Þá vil ég að lokum benda Þórði
á að þetta mál varðar fyrst og
fremst það fólk sem á kröfu á
hendur sjóðnum."
IUmenni
Gömul kona hringdi:
„Hundrað árum áður en Þor-
móður Kolbrúnarskáld fæddist þá
þekktist það ekki að hafa börn á
spjótsoddum, hefur líklega aldrei
verið til siðs nema þá hjá einstaka
illmenni. Aðdáunin á víkingunum
var stórum betri en aðdáun á Stal-
ín, Hitler og Causesku."
Svartur högni
Svartur 10 mánaða gamal
högni með hvíta leista og hvítan
depil á hökunni tapaðist frá Sól-
heimum 25 fyrir nokkru. Vinsam-
legast hringið í síma 686875 ef
hann hefur einhvers staðar komið
fram.
Hanski
Svartur skinnhanski með ljósu
fóðri tapaðist á leið niður Lauga-
veg eða í leið 4. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 37396.
Gullhringur
Gullhringur, sérsmíðaður frá
Jens, tapaðist í Klettahverfinu í
Borgarnesi. í hringinn er greypt
nafnið Rut. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
40727.
Vel að verki staðið
Kona hringdi:
„Það var verið að tala um lé-
lega sorphirðu í Kópavogi fyrir
nokkru en ég er á annarri skoð-
un. Ég tel að sorphreinsunar-
mennirnir standi sig vel. Ef fólki
nægir ekki ein tunna þá ætti það
að fá sér aðra. Ég tel að þeir sem
verkið vinna gangi vel um og
mættu ýmsir taka sér þá til
fyrirmyndar.“
Týnd læða
Læða, hvít með svörtum flekkj-
um, tapaðist í Seljahverfi 29.
apríl. Vinsamlegast hafið sam-
band í síma 77422 ef hún hefur
einhvers staðar komið fram.
Kápa
Dökkgrá kápa með gleraugu í
vasa var skilin eftir á röntgen-
deild Borgarspítalans fyrir
nokkru. Upplýsingar í síma
696440.
Næla
Þrílit næla tapaðist í Hafnar-
firði sl. fimmtudag. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 657231.
Bröndótt læða
Bröndótt læða, merkt með
nafninu Spekt, fór að heiman frá
sér að Norðurstíg 5 fyrir nokkru.
Vinsamlegst hringið í síma 24184
ef hún hefur einhvers staðar kom-
ið fram.
lankastjórn
(íturfráser
irPórðJónasson
inemm* l
ðÍnUÍ1Vl^ó,un sf.
M 4 'SSkS? fyrirt*ki«ns.
.) og Noðsrekan J einsog
þvl ’Sr rnitt fara og
margt ^bankaeftiriit
,ar fy« cn þau
i iMa hundrað manns
rxlu Áv.
n WO.OOOAOOLkx- “^fynrtæk-
eð gengi N«abréf ^ ^ftirliti
■ hö»u Þá mun
•» .n“u
armr voru bankaefViritU,
|»nd* ‘BíáÍuiS
«vona fr„^?rÞaö erljóstað pen-
engan áranpi-Þ ^ ^ ^ i
ingarmr tW‘ Wröfur og genr
næst fer l ,orK"r5.kva til.
vart meira eU ittu aurana ajna
Þeim, *ern “ , fyndíst skrýtið
Hííí-.-ia'S
Þeir9emStafaor«ið
bankaeftirUt, alitó að
þaðþýðibankaeftirlit.
«9»
ólafur B. Thora erfM
I
menntun <« önnut
F,kki f*m en i PJ
staðið að umsogninni |
öS-n-kBjara
Sl gætu líka hafa »ta|
Svo heppilega vi« 1 I
gerðarbók um bankai|
LeU fundarmenn ia|
Sssssg
SLÆM UMGENGNI
Til Velvakanda.
Margur hefur þann háttinn á að
ákæra stjórnmálamenn og aðra sem
sjá um stjórnun um allt sem aflaga
fer. Hitt er ekki eins algengt að
menn líti sér nær og reyni að lag-
færa það sem að þeim sjálfum
snýr. Þetta datt mér í hug er ég
var á göngu um göturnar í Miðbæn-
um og þar í kring og sá allt ruslið
sem þar hefur safnast upp í vetur.
Okkur virðist ennþá tamt að kasta
frá okkur bréfarusli og öðru þar
sem við stöndum, rétt eins og villi-
menn. Þetta á að minnsta kosti við
um marga, því miður. Hvaða gagn
er í því að koma upp umhverfis-
málaráðherra með fjallabíl og ráðu-
neyti ef við getum ekki sýnt borg-
inni okkar lágmarks virðingu í
umgengni?
Talað er um að ísland sé hreint
land og fagurt, og þannig hefur það
verið til skamms tíma. En við erum
sjálf óðum að spilla landinu með
því að ata það út. Víða má sjá för
eftir jeppa og fjallabíla og ljót sár
í landinu. Hér verður að grípa í
taumana og það sem fyrst.
Islendingur.
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkverji skrifar
Starfsmenn Reykjavíkurborgar
hafa gengið rösklega fram
við það eftir að srijóa loksins leysti
að hreinsa götur og torg. Eftir snjó-
þungan vetur og mikinn sandaustur
til að draga úr slysahættu vegna
hálku þarf töluvert átak í hreinsun
til að gangstéttir og stræti komist
í hreinan sumarbúning.
Eins og lesendur Morgunblaðsins
sjá í þættinum Spurt og svarað, þar
sem Davíð Oddsson borgarstjóri
svarar spurningum um málefni höf-
uðborgarinnar, hafa Reykvíkingar
mikið hugann við snyrtimennsku
og góðan frágang á öllu í heima-
byggð sinni. Víkveiji hefur oft vikið
að þessum þætti í skrifum sínum
og telur að seint eða aldrei verði
nóg að gert.
Kröfurnar til borgaryfirvalda eru
miklar í þessu efni. Þar sem frá-
gangur við rrtannvirki er alfarið í
höndum borgarfyrirtækja eins og
Rafmagnsveitunnar og Hitaveit-
unnar er jafnan allt til fyrirmynd-
ar. Glæsi- og snyrtimennskan í Við-
ey eða við Höfða ber borgaryfirvöld-
um einnig fagurt vitni. Þá einkenn-
ir snyrtimennska garða borgarinn-
ar. A hinn bóginn má víða taka til
hendi eða vantar herslumun vegna
gatnaframkvæmda eða á opnum
svæðum.
xxx
Fyrir þá sem ekki eru gjörkunn-
ugir aðstæðum er oft erfitt
að átta sig á því, hvaða aðili það
er sem ber ábyrgð á lokafrágangi.
Við suma skóla eins og til dæmis
Menntaskólann í Hamrahlíð er það
ríkið en ekki Reykjavíkurborg sem
á að standa undir kostnaði við frá-
gang á lóð. Þá kann að dragast að
leggja lokahönd á verk, af því að
vitað er að skipulag er ekki endan-
legt á einhveijum stað.
I sumum tilvikum er alls ekki
gengið nægilega fast á eftir því við
einkaaðila, að þeir fullnægi eðlileg-
um kröfum um frágang og snyrti-
mennsku. Fyrir nágranna slíkra
aðila getur oft verið beinlínis óþægi-
legt og leitt til vandræða að fylgja
slíkum kröfum eftir, enda eru til
um það opinberar reglur að borgar-
yfirvöld geti gripið til úrræða gegn
sóðum er setja leiðinlegan svip sinn
á götur eða jafnvel heil hverfi.
xxx
á hlýtur það ávallt að vera
matsatriði, hvað einstök fyr
ir tæki geta sett mikinn svip á
næsta umhverfi sitt með auglýsing-
um og öðru slíku. Víkveiji er til
dæmis þeirrar skoðunar, að alltof
mörg og stór skilti hafi verið sett
upp í kringum bensínstöðvar Skelj-
ungs í Oskjuhlíðinni. Nú þegar nýja
stöðin sem hefur að nokkru verið
byggð inn í hlíðina hefur áunnið sér
sess mætti fækka þessum skiltum.
Einnig hefur Víkveiji alltaf haft
horn í síðu auglýsingaskiltisins sem
sett var á Keiluhöllina í Öskjuhlíð.
Perlan, útsýnishúsið glæsilega á
Öskjuhlíðinni, ber raunar allt annað
ofurliði þegar litið er til hlíðarinnar
en hún krefst þess einnig í einfald-
leika sínum að sem fæst trufli aug-
að.