Morgunblaðið - 09.05.1990, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 09.05.1990, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1990 43 faám FOLK ■ G UMMERSBA CH tapaði, 17:19, fyrir Milbertshofen í fyrri leik liðanna í undanúrslitunum um V-Þýskalandsmeistaratitilinn. Lemgo tapaði, 26:27, fyrir Gross- wallstadt í tvífram- lengdum leik í hinni undanúrslitaviður- FráJóni Halldóri Garðarssyni ÍV-Þýskalandi eignmni. ■ DSSELDORF er svo gott sem fallið í 2. deild í handknattleik í V-Þýskalandi. Liðið, sem Héðinn Gilsson hefur gert samning við, tapaði, 20:23, fyrir Fredenbeck um helgina. ■ PETER Sichelschmidt hefur verið ráðipn þjálfari Diisseldorf. Hann var unglingaþjálfari hjá v- þýska handknattleikssambandinu. ■ LOTHAR Matthaus hefur gert nýjan samning við Inter Mílanó. Samingurinn er til 1992. ■ KOLN er tilbúið að borga fjórar miilj. marka fyrir danska landsliðs- manninn Brian Laudrup, sem leik- ur með Uerdingen. Einnig að láta Uvve Rahn með í kaupunum. ■ ÁSGEIR Sigurvinsson og Eyjólfur Sverrisson, sem kom inn á sem varamaður í leikhléi, fengu ekki góða einkun fyrir leik sinn með Stuttgart gegn Mönchengladbach, sem Stuttgart tapaði, 1:3. ■ JEAN-MARIE Pfaff, fyrrum landsliðsmarkvörður Belgíu, var rekinn frá Trabzonspor í Tyrkl- andi um helgina. ■ BAYER Leverkusen hefur gengið frá kaupum á a-þýska landsliðsmanninum Ulf Kirsten, sem er 24 ára. Féiagið borgaði Dynamo Dresden 3,5 millj. marka fyrir hann. Fyrir hjá félaginu er annar A-Þjóðverji - Andreas Thom ■ RAFAEL Martin Vazquez, landsliðsmaður hjá Real Madrid, er nú með tilboð frá þremur félög- um. Tórínó, Juventus og Mar- seille. ■ REAL Zaragossa hefur keypt Edison Suarez frá Danubio í Uruquay og selt Juanito Rodrigu- ez til Atletico Madrid. ■ BILL Y Bingham, landsliðs- þjálfari N-írlands, hefur valið 21 árs leikmann frá Liverpool í lands- lið sitt, sem mætir Uruguay í Bel- fast 17. maí. Það er miðvallarspilar- inn Jim Magilton, sem hefur enn ekki leikið með aðalliði Liverpool. ■ JOHNNY Bosman, hollenski landsliðsmaðurinn hjá Mechelen í Belgíu er á förum frá félaginu. Hann hefur fengið tilboð frá Barce- lona, Liverpool og Bordeaux. Búist er við að Rene Eykelkamp, sem leikur með Groningen í Hol- landi, taki stöðu Bosmans hjá Mechelen. Eins hefur varnarmað- urinn sterki, Graeme Rutjes, ákveðið að færa sig um set til Anderlecht. ■ FIORENTINA mun leika heimaleik sinn gegn Juventus í UEFA-keppninni Avellino.sem er 80 km fyrir austan Napolí. Eins og fram hefur komið var félagið dæmt í heimaleikjabann og dæmt til að leika heimaleik sinn 300 km frá Flórens. Juventus vann fyrri leik liðanna, 3:1. ■ JAMES „Buster" Douglas, heimsmeistarinn í hnefaleikum, jef- ur gert fyrsta auglýsingasamning sinn eftir að hann sigraði Mike Tyson í Tokyó. Meistarinn. fær „nokkrar" milljónir dollara fyrir að ljá leiktækjafyrirtækinu Sega nafn sitt til að nota í tölvuleik sem fyrir- tækið hefur framleitt. Nintendo hafði áður gert svipaðan samning við Mike Tyson og hugsa Sega- menn sér gott til glóðarinnar með heimsmeistarann á sínum snærum. Þess má geta að Sega hefur þegar hafið sölu á tölvuleik með golfi og amerískum fótbolta og nota þar nöfn Arnold Palmers og Joe Montana. HANDKNATTLEIKUR / 21 ARS LANDSLIÐIÐ Gunnar Einarsson ráðinn þjáliari Undirbýr 21 árs iandsliðið fyrir HM í Grikklandi 1991 GUNNAR Einarsson hefur orðið við ósk Þorbergs Aðal- steinssonar, landsliðsþjálf- ara og stjórnar HSÍ, um að taka við þjálfun 21 árs lands- liðsins. Gunnar fær það verk- efni að undirbúa liðið fyrir heimsmeistarakeppni 21 árs landsliða, sem fer fram í Grikklandi í september 1991. Þ etta verður mjög spennandi verkefni. í liðinu leika fram- tíðarleikmenn íslands. Það verður samvinna á milli okkar Þorbergs,“ sagði Gunnar, sem sagði að það væri ekki afráðið hvort hann yrði áfram þjálfari Stjörnunnar, en þriggja ára samningur hans við félagið rann út eftir sl. keppn- istímabil. „Auðvita væri best að taka sér frí frá þjálfun félagsliðs á meðan verkefni 21 árs landslið- ið stendur yfir,“ sagði Gunnar. 21 árs landsiiðið verður kallað saman til æfmga nú á næstu dög- um, en liðið tekur þátt í Norður- landamóti I Svíþjóð í 28. júní. Gunnar Einarsson. HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD Sigurður Gunnarsson þjáliari Eyjamanna? Þjálfaramál 1. deildarliðanna að skýr- astfyrir næsta keppnistímabil ÞJÁLFARAMÁL1. deildarlið- anna íhandknattleik virðast nú vera að skýrast fyrir næsta tímabil. Sigurður Gunnarsson mun að öllum líkindum þjálfa 1. deildarlið ÍBV í handknattleik næsta vetur. Eyjamenn hafa rætt við Sigurð og eru þær við- ræður nú á lokastigi. Hilmar Sigurgíslason, sem var aðeins ráðinn þjálfari ÍBV eitt keppnistíambil, hefur verið í við- ræðum við HK. Hann hefur hins vegar ekki gert upp hug sinn og hefur jafvel áhuga á að mennta sig betur sem þjálfari. „Gunnar Einarsson er enn inni í myndinni hjá okkur sem þjálfari,“ sagði Guðjón E. Friðriksson, form- aður handknattleiksdeildar Stjörn- unnar. „Við erum að vinna í þjálf- aramálum okkar.“' Gunnar hefur hins vegar sjálfur lýst því yfir að hann hafi áhuga á að snúa sér alfar- ið á þjálfun 21 árs landsliðsins. ÍR-ingar hafa verið að ræða við Eyjólf Bragason um að hann haldi áfram með liðið. Þá hefur nafn Eyjólfs borið á góma sem næsta þjálfara Stjörnunnar, ef Gunnar hættir. Erlingur Kristjánsson hefur verið endurráðinn þjálfari KA og Gústaf Björnsson verður áfram með nýliða Fram og Björgvin Björgvinsson verður áfram með Sigurður Gunnarsson tekur aftur við þjálfun ÍBV-liðsins. nýliðana frá Selfossi. Eins og fram _ hefur komið þá verður Þorgils Ottar Mathiesen þjálfari FH og það getur farið svo að Kristján Arason þjálfi með hon- um og leiki þá einnig með FH-liðinu. Jóhann Ingi Gunnarsson verður áfram með KR eins og kemur fram hér í grein á síðunni. Þorbjörn Jensson verður að öll- um líkindum áfram með Valsliðið. Eins er talið líklegt að Guðmundur Guðmundsson verði áfram með Víking, en viðræður milli hans og Víkings eru í gangi. Ef fjölgað verður um tvö lið í Jóhann gerir tveggja ára samning við KR Páll Ólafsson tekur þá við stjórninni hjá KR Jóhann Ingi Gunnarsson hefur gert tveggja ára samning við handknattleiksdeild KR. Jóhann Ingi þjálfar KR-liðið og hefur umsjón með uppbyggingu þjálfun- ar allra flokka hjá KR. í ljósi ár- angurs KR-inga í yngri flokkum, en þeir fengu viðurkenningu frá HSI vegna unglingastarfs, er ætl- unin að auka unglingastarfið og skipuleggja framtíðar uppbygg- ingu deildarinnar. KR-ingar gengu frá ráðningu Páls Ólafssonar sem aðstoðar- manns hans í gærkvöldi og einnig var gengið frá því að Páll tæki við þjálfun KR-liðsins þegar samningnr Jóhanns Inga rennur út eftir tvö ár. KR-ingar hafa því hugsað vel til framtíðarinnar. Jóhann Ingi mun fá það verk- efni að þjálfa meistaraflokk karla og hafa nána yfirumsjón með þjálfun 2. og 3. flokks karla. Þá á hann að aðstoða og skipuleggja, í samráði við aðra þjálfara deildar- innar og stjórn, uppbyggingu Jóhann Ingi Gunnarsson. þjálfunar alla flokka og einnig að aðstoða og skipuleggja æfinga- ferðir einstakra leikmanna og hópa. „Með þessu viljum við reyna að ná fram ákveðinni þróun hjá einstaklingum og deildinni í heild, til að takast á við þau verkefni sem farið er í hveiju sinni. Hvort Páll Ölafsson. heldur þau séu á leikvelli eða utan hans,“ sagði Kristján Örn Ingi- bergsson, varaformaður hand- knattleiksdeildar KR. „Ætlunin er að reyna að skipuleggja ná- kvæma námskrá fyrir leikmenn frá því þeir iiefji iðkun hand- knattleiks." 1. deild, eins og allt stefnir í, þá leika fjögur lið um tvö sæti í deild- inni. Grótta, HK, Breiðablik og Haukar. Sovétmaðurinn Boris Abkashev verður áfram þjálfari Breiðabliks og Viggó Sigurðsson áfram með Hauka. Hilmar Sigurgíslason, sem þjálfaði Eyjamenn, hefur verið orðaður við HK eins og áður segir. Talið er líklegt að Arni lndriðason verði ekki áfram með Gróttu. ÍÞRúm FOLX ■ EYJÓLFUR Bragason, þjálf- ari ÍR í handknattleik, hafnaði þjálfaraboði frá norsku 2. deildar- liði frá Bergen. ■ GYLFI Birgisson, leikmaður Stjörnunnar, fer ekki til Noregs. Hann hafði fengið boð um að leika með Bodö og Stavanger. ■ GYLFI hefur hefur verið oi*ík aður við ÍBV, en hann lék með Eyjamönnum áður en hann gekk til liðs við Stjörnuna. ■ HÉÐINN Gilsson fór í gær til V-Þýskalands, til að kanna að- stæður og kynnast leikmönnum Diisseldorf, sem hann mun leika með næstu tvö árin. Með honum fór Guðmundur Karlsson, lands- þjálfari í fijálsum íþróttum, sem stundaði nám í íþróttaháskólanum í Köln. ■ ÞAÐ getur farið svo að KA missi tvo lykilmenn í 1. deildinný^ handknattleik. Þeir Sigurpáll Árm Aðalsteinsson og Axel Stefáns- son, markvörður, hafa hug á að fara í námi í Reykjavík. ■ MAGNÚS Ingi Stefánsson, sem lék með norska liðinu Fred- riksborg SKI, hefur ákveðið að snúa heim og leika á ný með HK. ■ PALL Björnsson, línnmaðp úr Gróttu, hefur verið orðaður við KR næsta vetur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.