Morgunblaðið - 09.05.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.05.1990, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAI 1990 Norræna hönnunarsýningin í Malmö: Undirbúningur fyrir þátttöku Islendinga dregst á langinn Hús Guðmundar Jónssonar arkitekts er í smíðum í Malmö. Myndin eftir Sigrúnu Davíðsdóttur í MALMÖ er verið að undirbúa stóra hönnunarsýningu, Nord- ^Form, eins og sagt hefúr verið ?frá í blaðinu. Hluti af sýningunni snýst um norræna byggingarlist og þar er áhersla lögð á fjöl- skylduhús. A Norðurlöndunum var eftit til samkeppni meðal ark- itekta um slík hús og verðlaun veitt fyrir eina lausn frá hverju landi, auk verðlauna fyrir bestu hugmyndina af verðlaunahug- myndunum fimm. Guðmundur Jónsson arkitekt i Noregi hlaut verðlaun fyrir bestu íslensku til- löguna og teiknistofan Vandk- unsten í Kaupmannahöfn hlaut verðlaun fyrir bestu dönsku til- löguna, auk þess sem sú tillaga þótti best af verðlaunatillögunum ■flmm. Aðstandendur sýningar- innar í Malmö byggja húsin, þó ekki úr varanlegu efni, en hvert landanna fyrir sig á síðan að sjá um innréttingu þeirra. I sænsk- um blaðafregnum af sýningunni var sérstaklega tekið fram að þátttaka í arkitektasamkeppn- inni hefði verið góð og að meðal annars hefði tíundi hver íslensk- ur arkitekt tekið þátt í sam- keppninni, tíu arkitektar af um hundrað íslenskum arkitektum. - ^Sýninguna á að opna 1. júní næstkomandi. NordForm er meðal annars hald- in í tilefni af því að í fyrra voru liðin 75 ár síðan önnur stór sýning var haldin, kennd við Eystrasalt. Tilgangurinn er að vekja athygli á norrænni hönnun í orðsins víðustu merkingu, ekki aðeins meðal fag- manna, heldur einnig meðal al- mennings. Norrænu hönnunarsam- tökin eru samstarfsaðilar við sýn- inguna, þar á meðal Form Island. Sýningin höfðar ekki aðeins til hönnuða, arkitekta, listiðnaðarfólks og iðnaðarmanna, heldur er stefnt að því að sýningin verði reglulega _^aðlaðandi fyrir hvern og einn. Það eru því ekki aðeins sýningargripir hafðir frammi, heldur eru líka veit- ingahús og leikvellir fyrir börn og fullorðna. Og ef vel tekst til ætti sýningin að geta orðið dijúg auglýs- ing fyrir þátttakendur. Aðalæfíng fyrir heimssýninguna í Barcelona? Guðmundur Jónsson arkitekt segir að því sé ekki að leyna að það gangi illa að fá opinbera aðila á Islandi til að skilja hversu mikið sé í húfi fyrir íslendinga. „Með því að draga athygljna að sér á þessari sýningu eiga íslendingar möguleika á að sýna hvers þeir eru megnugir á sviði hönnunar. Ef þeir geta ekki hrist þetta lítilræði fram úr erminni í þetta skiptið, hvernig fara þeir þá að á heimssýningunni í Barcel- ona? Ég hefði búist við að þetta væri tilvalið tækifæri sem aðalæfing fyr- ir sýninguna í Barcelona. Ymsir aðilar, eins og til dæmis mennta- mála- og utanríkisráðuneytið, gætu nýtt sér reynsluna af þátttöku í NordForm við undirbúning heims- sýningarinnar. Menntamálaráðu- neytið var beðið að leggja fram 300.000 krónur, en framlagið varð þriðjungur þess. Það er spurning hvort aðilar eins og útflutningssjóð- ur, iðnlána- og iðnþróunarsjóður ættu ekki að sjá tilgang í að styrkja þátttöku Islendinga á Malmö-sýningunni en það hefur ekki fengist neitt úr þessum sjóðum. Ýmsir framleiðendur hafa lagt sitt af mörkum, en til að koma þessu heim og saman þarf opinbera styrki. Tryggingar, flutningskostn- aður og ferðir iðnaðarmanna kosta sitt. Greiðslur til þessara liða detta eiginlega milli stóla framleiðend- anna. Samkeppnin var viðurkennd heima fyrir og þai' með voru Islend- er tekin í því. ingar komnir með í leikinn. Það hefur gengið betur á hinum Norður- löndunum að fá framlög til sýning- arinnar, því framleiðendum þar er vel ljóst að sýningin getur orðið þeim góð auglýsing. Ég hef ekki verið í vandræðum með að fá stuðn- ing þar fyrir þeim hlutum, sem ekki eru framleiddir á Islandi eins og flísum og gólfefnum. Þeir fram- leiðendur skilja vel hagsmunina, sem eru í húfi, afstaðan þar er allt önnur. Það þyrfti að hrista upp í þeim aðilum heima, sem hafa hag af og ábyrgð á þátttöku í sýningunni. A sýningunni verða haldnar norrænar helgar, þar sem hver þjóð hefur tækifæri til að kynria sig eins og henni hugnast best. íslenskt tónlist- arfólk, fatahönnuðir og aðrir gætu komið þar fram. Þarna er tækifæri til að kynna íslenska menningu vítt og breitt, hönnun, arkitektúr, list- iðnað og aðrar listgreinar. Það vantai' ekki nein ósköp upp á, um þijár milljónii' króna, og það fram- lag þarf ekki að koma á stundinni." Danskir arkitektar hafa fengið aukin verkefhi eftir kynningu erlendis Michael Sten Johnsen arkitekt er einn af forystumönnum arkitekt- astofunnar Vandkunsten, sem vann dönsku verðlaunin, auk aðalverð- launanna. Teiknistofan er ein hin þekktasta sinnar tegundar í Dan- mörku, á tuttugu ára afmæli á þessu ári og hefur rakað saman verðlaunum í gegnum árin. Þarna starfa fimmtán manns. Danska verðlaunahúsið er einkar einfalt að gerð, minna og einfaldara en öll hin húsin. Þeir hafa ekki átt í nein- Útlitsteikning danska verðlaunahússins, en það hlaut einnig verðlaun sem besta framlag í samkeppni NordForm um íbúðarhúsnæði, teiknað á teiknistofunni Vandkunst.en í Kaupmannahöfn. um sérstökum erfiðleikum með stuðning við þátttöku sína í sýning- unni. Tveir stórir framleiðendur hafa þegar haft samband við þá og lýst áhuga á samstarfi við að ganga frá húsinu að innan. Hvað hefur Michael Sten Johnsen um þátttök- una að segja? „Aðstandendur sýningarinnar leggja mikla áherslu á kynningar- gildi hennar og þarna verður vafa- lítið margt spennandi að sjá. Það er enginn vafi á að fagfólk leggur leið sína á sýninguna, auk almenn- ings. Auglýsingagildið er ótvírætt og í framhaldi af svona sýningu geta orðið til verkefni. Danskir arkitektar hafa áður fengið aukin verkefni í kjölfar sýn- inga og kynninga erlendis. Það er kreppa í Danmörku og hennar gæt- ir mjög í byggingariðnaði. Verkefn- in hafa mjög dregist saman og margar teiknistofur hafa þurft að loka. Við'værum illa staddir, ef við hefðum ekki verkefni í öðrum lönd- um en við höfum verið svo heppnir að fá verkefni í Svíþjóð og Þýska- landi. Þjóðveijar eru ekki hikandi við að líta eftir samstarfsaðilum í öðrum löndum og við höfum notið góðs af því. Sambandið þangað komst á eftir að húsnæðisráðuneyt- ið danska sendi út stórar farandsýn- ingar á verkum danskra arkitekta. Sýningar og kynningar geta því sannarlega gert sitt gagn.“ Michael Sten Johnsen þekkir til á Islandi, svo það er ekki úr vegi að spyija hann álits á íslenskum arkitektúr og skipulagsmálum. „Það er ýmislegt gott innan um, en yfirbragðið er ekki fagurt og andstæðan við fallega náttúru eyk- ur enn á ljótleikann. Þar er sama vandamálið víða annars staðar, bæði í Danmörku og Svíþjóð, að húsin eiga að vera stór og flott, fremur en vel útfærð og hentug. Húsin verða ekki fallegri af því...“ Óneitanlega verður fróðlegt að sjá hvernig tekst til með sýninguna í Malmö og hvort og hvernig íslend- ingum tekst að nýta sér tækifærið þar til að koma á framfæri því sem þeir hafa upp á að bjóða á sviði hönnunar, listiðnaðar og bygging- arlistar. Ráðstefiia um ölvunarakstur RÁÐSTEFNA um ölvunarakstur og leiðir til úrbóta verður hald- inn í dag á vegum Bindindisfé- lags ökumanna og hefst á Holiday Inn hótelinu klukkan 13. I fréttatilkynningu frá félaginu segir segir að það telji að taka þurfi ölvunarakstur fastari tökum, þar sem áfengisneysla eigi dijúgan og sennilega vaxandi þátt í alvarlegum umferðaslysum. Það telji að lækka eigi núgildandi mörk um vínanda- magn í blóði úr 0,5 prómill í 0,0 prómill. Selfossi. ■ HÖRÐUR Ingólfsson kennari á Selfossi sýnir 30 vatnslitamyndir í Eden í Hveragerði fram til 14. maí. Myndirnar eru flestar frá Suðurlandi, málaðar á síðasta ári. Hörður hefur áður sýnt á tveimur einkasýningum. Sig. Jóns. FERÐAÞJÓNUSTA ER ÞÝÐINGARMIKIL ATVINNUGREIN Á ÍSLANDI Sýnum ferðamönnum hjálpsemi og vinsemd -ferðamaður sem finnur að hann er velkominn - leitar aftur á sömu slóðir. FERÐAMÁLAÁR EVRÓPU1990

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.