Morgunblaðið - 09.05.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.05.1990, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAI 1990 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Lettar á leið til sjálfstæðis Framtíð heilsuvem stöðvarinnar er enr * Isíðustu viku tók lettneska þingið ákvörðun um sjálf- stæði Lettlands og slit á sam- bandinu við Sovétríkin. Lett- ar hafa ákveðið að fara aðra leið en Litháar. Markmið beggja er hið sama, að end- urvekja sjálfstæðið sem var fótum troðið með griðasátt- mála þeirra Hitlers og Stalíns. Röðin kemur síðan brátt að Eistlendingum, þriðju Eystrasaltsþjóðinni, sem einnig hefur einsett sér að segja skilið við Moskvu- valdið. Mikhaíl Gorbatsjov, for- seti Sovétríkjanna, stefndi greinilega að því eftir sjálf- stæðisyfirlýsingu Litháa að reka fleyg á milli Eystra- saltsríkjanna, deila og drottna eins og rómversku keisararnir forðum. Sam- þykkt lettneska þingsins sýnir að þessi stjórnlist ber ekki þann árangur sem að var stefnt. Eystrasaltsríkin ætla að standa saman, þótt þau kunni að velja ólíkar leið- ir til sjálfstæðis. Morgunblaðið hefur oft hvatt til þess að íslenska ríkisstjórnin viðurkenni sjálf- stæði Litháens með ótvíræð- um hætti. Ríkisstjórnin hefur því miður látið við það sitja að vísa til viðurkenningar frá upphafi þriðja áratugarins. Nú þarf hún að skýra afstöðu sína til Lettlands. Gagnvart Lettum eins og Litháum ætt- um við íslendingar að telja okkur sæmd af því að verða í hópi hinna fyrstu sem viður- kenna nýtt sjálfstæði og full- veldi þjóðarinnar. Fyrir skömmu var hér á landi Eistlendingurinn Jo- hann Are, þingmaður í Æðsta ráði Sovétríkjanna. Hann sagði hiklaust að þjóð sín myndi taka ákvarðanir um sjálfstæði undan Moskvuvaldinu, þegar það yrði talið skynsamlegt. Hann sagði einnig, þegar hann var spurður, hvaða þjóðir Eist- lendingar teldu sig standa næst, að það væru Norður- landaþjóðirnar. Lettland og Eistland standa Norðurlönd- um að ýmsu leyti nær en Litháen, þar sem á mikilvæg- um skeiðum sögu sinnar hafa þau verið sameinuð Svíþjóð og að hluta Noregi. Litháar litu fyrr á öldum miklu frem- ur í suður og austur en í norður og vestur. Um langt árabil hafa íslensk skip siglt til hafna í Eystrasaltslöndunum og má þar sérstaklega nefna Vent- spils í Lettlandi. Hefur marg- ur farmurinn af fiski verið fluttur þangað. Ef að líkum lætur munu Kremlveijar beita Letta efnahagsþving- unum eins og Litháa. So- véskum herskipum var sem kunnugt er beitt til að bægja skipum á leið til Litháens frá höfnum þar. Var þetta gert til þess að sýna að Moskvu- valdinu væri full alvara með hótunum um flutningabann á Litháa. Þá komu upp hug- myndir um að Norðurlanda- þjóðir létu á þetta bann reyna með því að senda skip til Litháens. Að því varð ekki. Ættum við íslendingar ekki að láta reyna á það gagnvart Lettum, hvort við getum sent fisk með skipi þangað, þrátt fyrir þvinganir Kremlveija? Sovéska nýlenduveldið stendur nú á brauðfótum. Eystrasaltsþjóðirnar hafa staðið í fremstu röð þeirra þjóða sem mynda Sovétríkin bæði að því er varðar al- menna menntun, tæknikunn- áttu og framleiðslu á mat- vælum. Allar þjóðirnar þijár hafa flutt út matvæli. Nú hafa Litháar ákveðið áð svara Kremlveijum í sömu mynt og draga úr kjötsölu til Moskvu. Þar er mikill skortur á kjöti og mjólk og þolinmæði almennings er takmörk sett, eins og kom í ljós þegar hróp voru gerð að þeim sem stóðu á hyllingar- svölum grafhýsis Leníns á Rauða torginu 1. maí síðast- liðinn. Frekari skortur á lífsnauðsynjum verður að- eins til þess að auka á spennu í höfuðborg Sovétríkjanna. I kommúnistaríkjunum i Austur-Evrópu voru það mótmæli almennings á göt- um úti, sem urðu einræðis- herrunum að falli. eftir ÓlafF. Magnússon í viðtali við Þjóðviljann þann 3. maí sl. segir Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra, að mótmæli við lokun Heilsuverndarstöðvarinnar í Reykjavík séu byggð á misskiln- ingi. „Aldrei hafi staðið til að ioka Heilsuverndarstöð Reykjavíkur þannig að starfsfólki verði sagt upp og starfsemi lögð niður eins og ein- stakir læknar og fleiri hafi haldið fram.“ Mótmæli starfsfólksins og „einstakra lækna“ Á fjölmennum fundi starfsmanna Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur 30. apríl sl. var svohljóðandi tillaga samþykkt samhljóða: „Fundur starfsmanna Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur mótmælir harðlega til- lögum um að leggja niður starfsemi stöðvarinnar eins og fram kemur í tillögum heilbriðis- og trygginga- nefndar efri deildar Alþingis. Hlut- ur heilsuverndarstöðvarinnar í heilsuverndarþjónustu við Reyk- víkinga er a.m.k. 2A af skipulagðri heiisuvernd og heimahjúkrun og augljóst er að í náinni framtíð hefur enginn annar aðili bolmagn til að sinna þessari þjónustu þótt haldið verði áfram uppbyggingu heilsu- gæslustöðva í Reykjavík. Ef leggja á heilsuverndarstöðina niður á næsta ári jafngildir það því að leggja niður þessa starfsemi. Gegn- ir furðu að slík tillaga komi fram. Á heilsuverndarstöðinni vinna um 240 manns og þar fá a.m.k. 60% Reykvíkinga heilsuverndarþjón- ustu. Fundurinn skorar á þingmenn Reykjavíkur að beita sér gegn þess- um hugmyndum." Undirritaður hefur lýst þeirri JÓN Magnússon hrl., lögmaður Ragnars Kjartanssonar fyrrum stjórnarformanns Hafskips, hóf í gær varnarræðu sína, sem áætlað er að ljúki á fimmtudag. Hann krefst sýknu af öllum kröfum ákæruvaldsins. Jón Magnússon rakti í upphafi ræðu sinnar að- dragandann að gjaldþroti Haf- skips og samskipti félagsins við Útvegsbankann á þeim tíma. Hann sagði að skiptaráðendur og bú- stjórar hefðu komið að málinu með mótaðar skoðanir á því að um væri að ræða mesta sakamál í sögu lýðveldisins. Þeim hefði að vissu leyti verið vorkunn i þeirri afstöðu ef litið væri til þess um- hverfís og þeirra aðstæðna sem ríktu er greiðslustöðvun og gjald- þrot dundu yfir Hafskip. í þessu sambandi vitnaði lögmað- urinn til umræðna á Alþingi 14. nóv- ember 1984, fjórum dögum fyrir greiðslustöðvun félagsins, sem hann sagði að hefðu fyrst og fremst beinst að persónu Alberts Guðmundssonar og einnig hefðu komið fram fullyrð- ingar og tilgátur frá einstökum þing- mönnum um ólögmætt og saknæmt atferli forráðamanna Hafskips. Lög- maðurinn rakti ummæii Kristínar Kvaran, þáverandi þingmanns, sem nánast hefði fullyrt í þingræðu að í gangi hefði verið tvöfalt bókhald hjá fyrirtækinu og leitt að því líkur að ársreikningar þess síðastliðin 3-4 ár væru falsaðir. Jón Magnússon vitn- aði til fordæmandi ummæla fleiri þingmanna, meðal annars Svavars skoðun sinni, bæði í bréfi til alþing- ismanna 12. desember sl. og í ný- legri Morgunblaðsgrein undir heit- inu „Höldum Heilsuverndarstöð Reykjavíkur", að enga þá starf- semi, sem á heilsuverndarstöðinni er rekin, eigi að leggja niður. Þvert á móti eigi að efla hana og bæta. Álrani ungbarna- og mæðravernd á heilsuverndarstöðinni I heilsugæsluskipulaginu á öll heilsuvernd og meira að segja öll heilbrigðisþjónusta að fara fram á heilsugæslustöðvum, eftir því sem við á. Þetta er ágætt markmið fyr- ir dreifbýlið en bæði út í hött og óframkvæmanlegt í Reykjavík. Frumvarp heilbrigðisráðherra um heilbrigðisþjónustu tekur ekki nægjanlegt tillit til sérstöðu Reykjavíkur í þessum efnum, þar sem mikið framboð er á sérhæfðri læknisþjónustu bæði á vegum einkaaðila og hins opinbera. Allir hljóta að styðja þá megin- stefnu að íbúar Reykjavíkur eigi kost á heilbrigðisþjónustu og heilsu- vernd í námunda við heimili sitt og vinda þarf að því bráðan bug, að koma þessari þjónustu á legg í út- hverfum borgarinnar, einkum í Grafarvoginum. En ljóst er, að heilsugæslustöðv- ar taka aldrei alfarið við hlutverki heilsuverndarstöðvarinnar í þessum efnum og það hlýtur að vera krafa Reykvíkinga að þeir sem þess óska geti áfram notið heilsuverndarþjón- ustu í Heilsuverndarstöð Reykjavík- ur eins og borgarbúar hafa átt kost á um árabil. Sérhæfð þjónusta á heilsuverndarstöðinni Sérhæfð þjónusta á heilsuvernd- arstöðinni er m.a. berklavarnir, at- Gestssonar og Jón Baldvins Hannib- alssonar, sem sagt hefði að það lægi ljóst fyrir að fyrirtækið hefði veitt bankanum rangar upplýsingar. Þá vék lögmaðurinn að því að daginn eftir þessar umræður, 15. nóvember 1984, hefði í frétt í Morgunblaðinu verið reifuð tilgáta um að félagið kynni að leita eftir greiðslustöðvun. Hann sagði þessa frétt hafa skapað mikinn óróa, ekki síst erlendis og hefðu fyrirspurnir streymt til félags- ins Um stöðu þess og framtíð. Þetta hafi leitt til þess, að greiðslustöðvun, sem ekki hafi verið á dagskrá, hafi orðið óhjákvæmileg fyrir Hafskip. Eftiuðust á kostnað þjóðarbankans Eftir gjaldþrot félagsins hefðu mál þess komið aftur inn í sali Alþingis í utandagskrárumræðum, að frum- kvæði Ólafs Ragnars Grímssonar, nú fjármálaráðherra en þá varaþing- manns, sem hefði meðal annars sagt að margt benti til að forstjórar og stjórnendur Hafskips, eigendur og aðrir forráðamenn, hafi notað þau lán sem veitt hafi verið úr Útvegs- bankanum, þjóðarbankanum eins og varaþingmaðurinn hefði orðað það, til þess að flytja fjármagn í stórum stíl frá Hafskipi og yfir til skúffufyr- irtækja í eigu þessara sömu stjórn- enda. Þegar upp verði staðið bendi margt til þess að þessir menn, sem fólkið í landinu þurfi að borga hundr- uð milljóna fyrir, verði mun ríkari en þeir liafi verið í upphafi vegna þess að þeir hafi misnotað þjóðarban- vinnusjúkdómavarnir, húð- og kyn- sjúkdómavarnir auk þróunarstarfs í heilsuvernd og samræmingai'verk- efna. Þegar hafa verið færð rök fyrir því að þessari þjónustu er ekki hægt að dreifa um borgina. Slíkt hefði í för með sér mun lak- ari og dýrari þjónustu, að ógleymd- um stofnkostnaði sem við bættist. Hver misskilur hvern? Heilbrigðisráðherra talar um mótmæli vegna misskilnings. Bæði í fundarályktun starfsmanna heilsuverndarstöðvarinnar og í grein undirritaðs í Morgunblaðinu 1. maí sl. var vitnað í lagafrumvarp heilbrigðisráðherra um heilbrigðis- þjónustu. Þar sagði nánast orðrétt að ráðherraskipuð stjórn heilsu- verndarstöðvarinnar skyldi leggja niður starfsemi stöðvarinnar eigi síðar en 1. janúar 1992. Hér er ekki um neinn misskilning að ræða, en síðan kemur í ljós að túlkun ráðherrans er öðruvísi en orðalag frumvarpsins að hans eigin sögn. I sjónvarpsviðtali 1. maí sl. viður- kennir hann þó, að líklega þurfi að breyta orðalagi eitthvað. Orðalags- breytingin tekur því miður ekki af allan vafa um framtíð heilsuvernd- arstöðvarinnar. Við skulum hafa orðrétt eftir frumvarpinu, sem nú er orðið að lögum. „Ráðherra skal skipa þriggja manna stjórn Heilsu- verndarstöðvarinnar í Reykjavík. Formaður skal skipaður án tilnefn- ingar, einn skal skipaður skv. til- lögu Reykjavíkurborgar og einn skv. tillögu tryggingaráðs. Stjórnin skal í umboði heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra annast rekstur Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur og gera í samráði við héraðslækni og stjórnir heilsugæsluumdæmanna í Reykjavíkurhéraði tillögur um Hafskip yfir til annarra fyrirtækja. Hver stjórnenda hafi samkvæmt gagnkvæmum samningi stutt annan í að færa fjármagnið til og hafi þetta leitt til þess að hið virta endurskoð- unarfyrirtæki Cooper’s og Lybrant hafi sagt sig úr viðskiptum við Haf- skipsmenn vegna svindls og rang- færslna. Lögmaðurinn sagði að fleiri þingmenn, svo sem Jon Baldvin Hannibalsson, Steingrímur J. Sigfús- son og Steingrímur Hermannsson hefðu látið falla ummæli í svipuðum anda á þessum tíma þegar fyrirtæk- ið hafði verið gjaldþrota í viku og engin rannsókn af neinu tagi hafði farið fram. Þá rakti hann umfjöllun fjölmiðla um sama leyti sem ein- kennst hefði af stóryrtum fullyrðing- um og rangfærslum um sviksamlegt athæfi og dylgjum í pólitískum til- gangi. Hann sagði að í þessu um- hverfi pólitískra nornaveiða og fyrir- fram dóma hafi Hafskipsmálið koinið til kasta skiptaréttar. Ummæli stjórnmálamanna vörðuðu veg- rannsóknar Flestir þeirra sem nú skipi æðstu trúnaðarstörf í ríkisstjórn landsins hafi verið meðal þeirra sem í blaða- greinum og á Alþingi hafi borið Hafskipsmenn og bankastjórn Út- vegsbankans þungum sökum og kveðið upp dóma í málinu. Því sé engin furða að þeir sem að rannsókn málsins komu í upphafi hafi að hluta til verið undir áhrifum þess gjörn- ingaveðurs. Vinnubrögð og skýrsla Hafskipsmál: Knúðir í gjaldþrot í gjö veðri pólitískra noma - segir Jón Magnússon hrl., verjandi Ragnars Kjartanssonar kann til að dæla fjármagni í gegnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.