Morgunblaðið - 09.05.1990, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1990
3
Ljósmynd/Jón Svavarsson
a \ f
É
Þqú börn slösuðust í gær þegar reiðhjól, sem þau þrímenntu á, skall
á mótorhjóli á Elliðavatnsvegi. Slysið varð síðdegis í gær, skammt frá
hliðinu að Heiðmörk. Hjólin voru að mætast þegar slysið varð. Börn-
in, sem eru á aldrinum 8-10 ára, slösuðust ekki alvarlega, en hlutu þó
af beinbrot, skurði og skrámur. Okumaður mótorhjólsins slapp ómeidd-
ur.
Arnarflug innan-
lands hf.:
Akvörðun
um flugvéla-
kaup tekin
í vikunni
ARNARFLUG innanlands hf.
mun taka ákvörðun um það á
næstunni hvort ný flugvél verður
keypt til notkunar í innanlands-
flugi félagsins, en fyrirhuguðum
kaupum þess á Dornier-vél í byrj-
un ársins var frestað vegna eig-
endaskipta í félaginu.
Að sögn Árna Ingvarssonar,
framkvæmdastjóra Arnarflugs inn-
anlands hf., hefur verið unnið að
ákveðinni endurskipulagningu á
rekstri félagsins síðan eigenda-
skiptin áttu sér stað, en henni væri
ekki að fullu lokið. Hann sagðist
þó gera ráð fyrir að ný flugvél yrði
keypt, en endanleg ákvörðun um
það yrði væntanlega tekin fljótlega.
Menntamálaráðu-
neytið:
Skýrsla frá Krossgötum, vörn gegn vímu:
Kostnaður við einn fíkni-
efíiasiúkling milljón á ári
BEINN kostnaður samfélagsins
vegna eins fíkniefnasjúklings er
rúmlega ein milljón króna á ári.
A þriggja ára timabili var kost.n-
aður vegna meðferðar 172 þús-
und krónur, vegna sjúkrahúss-
dvalar 70 þúsund krónur, aðstoð
frá Félagsmálastofnun var 155
þúsund, önnur fjárhagsaðstoð
rúmar 600 þúsund krónur og
kostnaður vegna fangelsisdvalar
rúm ein og hálf milljón.
Þessar upplýsingar er að finna í
Dínamíti stolið
DÍNAMÍTI var stolið úr vinnu-
skúr við Borgarholt og uppgötv-
aðist innbrotið á mánudagsmorg-
un. Sprengieíhið hefur ekki fúnd-
ist, en lögreglan hefúr þungar
áhyggjur af því að það sé í hönd-
um þeirra sem ekki kunna með
að fara.
Þjófarnir höfðu á brott með sér
5-10 stykki af 140 gramma túbum.
Hvellhettur voru ekki á staðnum.
skýrslu, sem unnin var af samtök-
unum „Krossgötum, vörn gegn
vímu“, í janúar síðastliðnum og
gefin hefur verið út af Landlæknis-
embættinu. Skýrslan byggir á við-
tali við skjólstæðing samtakanná
um fíkniefnaneyslu hans árin 1986,
1987 og 1988. Maður þessi hefur
ekki neytt fíkniefna í eitt ár og
stundar nú atvinnu. í skýrslunni
kemur fram, að á þessu þriggja ára
tímabili reykti hann hass daglega,
neytti einnig áfengis og notaði ró-
andi lyf og geðlyf. Kostnaður á
mánuði vegna hassreykinganna var
um 31.500 krónur og áfengiskostn-
aður 18.800 krónur. Geðlyfin fékk
hann endurgjaldslaust hjá kunn-
ingjum, en fyrir lyfseðla á róandi
lyf greiddi hann 1.200 krónur á
mánuði. Sjúkrasamlagið greiddi
annan kostnað við lyfin. Alls var
neyslukostnaður hans á ári hverju
um 600 þúsund krónur, eða rúm-
lega 1,8 milljón á þremur árum.
Maðurinn stundaði enga atvinnu,
en fjármagnaði neyslu sína með því
að smygla inn og selja efni. Þá
stundaði hann ávísanafals og braust
einu sinni inn. Hann fékk fram-
færsluaðstoð hjá Félagsmálastofn-
un, samtals 155 þúsund krónur.
Peningana notaði hann í lyfseðla-
kaup, áfengi og mat, ef afgangur
var. I tvö ár fékk hann aðstoð hjá
Félagsmálastofnun erlendis, sem
var síðan greidd af íslenska ríkinu,
samtals rúmar 600 þúsund krónur.
Maðurinn fór einu sinni í meðferð
erlendis í tvo mánuði og til saman-
burðar rná nefna að full meðferð
hjá SÁÁ kostar 172 þúsund krón-
ur. Vegna ofdrykkju lamaðist hann
á fótum og var á sjúkrahúsi í viku.
Kostnaður var 35 þúsund krónur.
Maðurinn dvaldist tvisvar á
Litla-Hrauni og var kostnaður við
dvöl hans rúmlega 1,5 milljón. Hann
skuldar um 50 þúsund krónur í
skatta, 90 þúsund í banka og aðrar
skuldir hans nema 50 þúsundum.
Samtals er kostnaður þjóðfélags-
ins vegna mannsins talinn um þrjár
milljónir króna á þremur árum. Þá
er í skýrslunni áætluð töpuð vinnu-
laun, framleiðslutap, rúmlega 1,6
Verslunarhús Rammagerðarinnar á baklóðinni við Hafnarstræti 19, sem Reykjavíkurborg hefúr fest
kaup á. Að sögn Hjörleifs Kvaran framkvæmdastjóra lögfræði- og stjórnsýsludeildar, verða húsin sem
þar standa rifin og Hafnarstræti tengt Tryggvagötu.
standa. Borgin hefur þegar fest
kaup á Hafnarstræti 21, Verslun-
arhúsnæði Zimsen og húsnæði
Borgarbílastöðvarinnai' og munu
framkvæmdir vegna tengingarinn-
ar heijast í haust.
milljón. Bent er á að maðurinn hafi
að vísu greitt rúmar 600 þúsund
krónur til ríkisins við áfengiskaup,
en skattgreiðslur séu engar. Þá er
ónefndur kostnaður vegna dóms og
löggæslu, auk kostnaðar sjúkra-
samlagsins vegna lyfjakaupa
mannsins. „Einnig skal nefnt það
tjón, sem einstaklingurinn hefur
valdið öðrum ungmennum, með inn-
flutningi og sölu á fíkniefnum, en
það tjón verður ekki metið til fjár,“
segir í niðurlagsorðum skýrslunnar.
Daggjöld fyr-
ir listaverk
UNGIR myndlistamenn munu
framvegis fá tækifæri til að sýna
verk sín á veggjum menntamála-
ráðuneytisins, gegn greiðslu
daggjalda. Er þetta í fyrsta sinn
sem greitt er daggjald lyrir lista-
verk hér á landi.
í frétt frá ráðuneytinu segir, að
stefnt sé að nýrri sýningu á tveggja
rnánaða fresti og munu þau Hrafn-
hildur Sehram listfræðingur og
Bjarni Daníelsson skólastjóri Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands lið-
sinna við val á listamönnum. Daníel
Magnússon er fyrsti listamaðurinn
sem sýnir í ráðuneytinu og stendur
sýning á lágmyndum hans fram í
lok júní. Nemendur í Myndlista- og
handíðaskóla íslands sýna einnig
sérstakt kennsluverkefni, sem skól-
inn hefur þróað.
Hæstiréttur:
Notfærði sér ellisljó-
leika manns til að kom-
ast yfir eigur hans
KONA um sextugt hefúr í Hæstarétti verið dæmd í fjögurra mánaða
fangelsi fyrir að hafa notfært sér ellisljóleika, einmanaleika og ósjálf-
stæði manns um áttrætt til að komast yfir tvær íbúðir í eigu hans og
um eina milljón af sparifé hans. Refsingin fellur niður að tveimur
árum liðnum, haldi konan almennt skilorð. Hæstiréttur mildaði dóm
sakadóms Reykjavikur, þar sem konan var dæmd í fimm mánaða fang-
elsi, skilorðsbundið í þrjú ár.
Konan hafði kynnst mannmum
þegar hún var unglingur, en hann
bjó þá um tíma með móður hennar.
Kynni tókust með þeim á ný um
Ijörutíu árum síðar. Á tíu daga tíma-
bili afsalaði maðurinn sér tveimur
íbúðum til konunnar og dótturdóttur
hennar og fékk engar greiðslur fyr-
ir. Þá var um ein milljón króna af
sparifé hans færð á reikning kon-
unnar. Loks fór maðurinn til borgar-
fógeta í fylgd konunnar og ánafnaði
henni þriðjung eigna sinna éftir sinn
dag.
Sakadómur komst að þeirri niður-
stöðu að konunni hefði mátt vera
ljóst að maðurinn gat vegna ellisljó-
leika ekki tekið ákvarðanir um fjár-
mál sín og engin ástæða til gjaf-
mildi hans í hennar garð hafði kom- •
ið fram. Hæstiréttur staðfesti dóm
sakadóms, þó með þeim breytingum
að stytta fangelsisdóminn um einn
mánuð og stytta skilorðstímabil úr
þremur árum í tvö.
Dóminn kváðu upp hæstaréttar-
dómararnir Guðmundur Jónsson,
Benedikt Blöndal, Bjarni K. Bjarna-
son og Haraldur Henrysson og
Gunnar M. Gunnarsson, settur
hæstaréttardómari.
Vísitalan inn-
an marka kjara-
samning-anna
VÍSITALA framfærslukostnaðar,
miðað við verðlag í maíbyrjun,
reyndist vera 144,4 stig, en í
kjarasamningunum sem gerðir
voru í febrúar sl. var gert ráð
fyrir að framfærsluvísitalan i maí
yrði ekki hærri en 144,5 stig.
Síðustu 12 mánuði hefur vísitala
framfærslukostnaðar hækkað um
18,1%. Undanfarna þijá mánuði hef-
ur vísitalan hækkað um 2,1% og
jafngildir sú hækkun 8,5% verðbólgu
á heilu ári.