Morgunblaðið - 28.06.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.06.1990, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1990 Landbúnaðarráðherra um deilumar á Mógilsá: Samskiptin voru orðin óbærileg Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðarráðherra sendi í gærkvöldi frá sér yfirlýsingu varðandi lausnarbeiðni fráfarandi forstöðumanns Rannsóknarstöðvar Skógræktar ríkisins á Mógilsá, Jóns Gunnars Ottóssonar, og ummæla hans og annarra í Ijölmiðlum af því tilefni. Segir ráðherra þessi ummæli vera „síendurteknar rangfærslur og órökstuddar fullyrðingar", sem ekki sé rétt að láta ósvarað öllu leng- Steingrímur segir, að málið sé í hnotskurn það, að starfsmaður hafi sagt upp vegna óánægju með að- stæður á vinnustað og á uppsögnina hafi verið fallist. Þar með hefði málið átt að vera úr sögunni en sú hefði ekki orðið raunin á. Rekur ráðherra síðan gang málsins, sem hafi byijað fyrir ári með deilum Álviðræður; Granges staðfestir áhuga á þátttöku ÞRIGGJA daga fúndi viðræðu- nefhda iðnaðarráðherra og Atl- antsáls lýkur í dag. Að sögn Jóns Sigurðssonar iðnaðarráðherra átti hann fimd með Per Olof Ar- onsson forstjóra Granges í gær, sem staðfest hefði áhuga fyrir- tækisins á að halda áfram í Atl- antsálshópnum, en eins og komið hefúr fram þá hefúr bandaríska fyrirtækið Alcoa lýst áhuga á að kaupa Granges. Iðnaðarráðherra sagði að Arons- Jóns Gunnars og fyrrverandi skóg- ræktarstjóra, Sigurðar Blöndals. Þá hafi ágreiningur um yfirvinnu- reikninga og risnu komið til og seg- ir Steingrímur, að þrátt fyrir miklar tilraunir til að miðla málum hafi hvorki gengið né rekið í samskipt- unum við Jón Gunnar. Hafi hann loks gengið svo langt í vetur og vor að' neita tilvist skógræktarstjóra sem yfirmanns síns. Ráðherra segir, að skógræktar- stjóri hafi séð sig knúinn til að senda Jóni Gunnari áminningarbréf og ráðuneytið einnig í apríl sl. I kjölfar úttektar á Mógilsárstöðinni hefði verið ákveðið að staðfesta fyrra skipulag en tryggja um leið faglegt sjálfstæði stöðvarinnar og hefði Jón Gunnar verið beðinn álits á þeirri niðurstöðu. Segir Steingrímur, að því hafi verið svar- að með nýju uppsagnarbréfi. „Til að gera langt mál stutt var ósköp einfaldlega það ástand sem orðið var í samskiptum Rannsókn- arstöðvarinnar á Mógilsá við ýmsa aðra aðila sem sú stofnun verður að eiga gott samstarf við orðið óbærilegt,“ segir Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðarráðherra m.a. í yfirlýsingunni og tekur fram, að deilan við Jón Gunnar Ottósson hafi ekki snúist um fagleg vinnu- brögð í skógræktinni, heldur hvort menn vilji eða vilji ekki læra af reynslunni. Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir DYLAN VEL FAGNAÐ ÍHÖLLINNI Tónleikar bandaríska tónlistarmannsins Bobs Dylans, sem voru eins konar Listahátíðarauki, voru haldnir í Laugardalshöll í gærkvöldi. Nánast uppselt var á tónleikana og munu um 2.900 áheyrendur hafa verið í Höllinni. Bubbi Morthens hitaði upp einn með gítarinn og stuttu eftir að hann hafði loktö leik sínum kom Dylan á svið með þriggja manna sveit sinni og hóf sveitin leik sinn stundvislega kl. 22. Áhorfendur voru vel með á nótunum ailan tímann, enda lék Dylan mikið af lögum frá upphafi ferils síns. Dagskráin skiptist í rafmagnaða kafla og kafla þar sem einungis var leikið á órafmögnuð hljóðfæri, en alls lék Dylan 17 lög og tvö uppklappslög, í nærfellt tvær klukkustundir. Létu áheyrendur hrifningu sína óspart í ljós. Þess má geta að Dylan greip til reiðhjóls er hann fór frá Hótel Edju niður brekkuna að Laugardalshöllinni. son hefði tjáð sér að þátttaka Gránges í Atlantsálshópnum hefði gert það áhugaverðara fyrir Alcoa að eignast fyrirtækið, og fullur áhugi væri fyrir því hjá Gránges að halda áfram þátttöku. Aðspurður um hvort rætt hefði verið um ákveðið orkuverð til Atl- antsáls innan ríkisstjórnarinnar sagðist hann ekki vilja staðfesta það að svo stöddu, en sagði að hann hefði gert þar grein fyrir þeim hugmyndum um orkuverð, sem uppi væru í viðræðunum. Ráðherrar funda með forsvarsmönnum BHMR; Byijað að tölvuvinna launa- greiðslur vegna mánaðamótanna FORSVARSMENN Bandalags háskólamenntaðra ríkisstarfs- manna hittu forsætis-, við- skipta- og Qármálaráðherra að máli í gær, þar sem rætt var um leiðir til lausnar þeim ágreiningi sem er á milli aðila túlkun á kjarasamningi um Reykjavíkurborg: Stöð 2 óskar eftir ábyrgð á 200 milljóna króna láni STÖÐ 2 hefúr farið fram á það við Reykjavíkurborg að hún ábyrgist 200 milljóna króna lán sem fyrirhugað er að taka og endurgreiða á 5 árum. Borgarráð fjallaði um málið í vikunni en frestaði afgreiðslu þess til næsta fúndar. í bréfi sem Þorvarður Elíasson sjónvarpsstjóri skrifaði Davíð Odds- syni borgarstjóra fyrir hönd stjómar Stöðvar 2, segir að mikil skuldsetn- ing og litlar veðhæfar eignir setji félaginu þröngar skorður, einkum vegna þess að lánastofnanir hafi gert þá kröfu til félagsins að það tryggi lánsviðskipti sín mun betur í framtíðinni en gert hefði verið. Jó- hann J. Ólafsson stjómarformaður Stöðvar 2 sagði við Morgunblaðið að leitað hefði verið til Reykjavíkur- borgar með þetta erindi vegna þess að Stöð 2 væri fyrirtæki í Reykjavík og flestir sem við það störfuðu byggju á höfuðborgarsvæðinu. Þá væri Reykjavíkurborg mjög hliðholl einkarekstri. Davíð Oddsson sagði við Morgun- þlaðið að ijtálið hefði verið lagt fram fresta afgreiðslu þess til næsta fund- ar „Það er enginn vafi i mínum huga að það þarf að fara mjög varlega í svona hluti og þessi beiðni verður að hafa mikla sérstöðu ef á að taka henni jákvætt. Fulltrúar Stöðvar 2 vekja raunar athygli á því að þeir eru með eitt af fáum fyrirtækjum í beinni samkeppni við ríkisfyrirtæki, sem er með óbeina ríkisábyrgð á öllu sem þar er gert. Þeir segja í sínu bréfi að borgin sé eini opinberi aðil- inn sem hafi bolmagn á móts við ríkissjóð," sagði Davíð. Hann sagði aðspurður að sveitar- félög hefðu áður haft heimildir til að veita fyrirtækjum fulla ábyrgð á lánum, og sveitarfélög úti á landi hefðu gert það í ríkum mæli, en Reykjavíkurborg hins vegar í litlum mæli og þá helst í tengslum við út- -f- tergarraði -eg -rætt- en- ák veðið- að- - -gerð- eg-kirkjubyggingar. - - Jóhann J. Ólafsson er einnig for- maður Verslunarráðs. Þegar hann var spurður hvort það samrýmdist stefnu Verslunarráðs að einkafyrir- tæki leitaði eftir opinberri skuldar- ábyrgð, sagði hann að það gæti ver- ið í mörgum tilfellum. Þarna væri um að ræða tímabundna lausn, með- an Stöð 2 væri að ná sér upp úr erfiðleikum, og tilgangurinn væri að styrkja einkareksturinn. í bréfinu til borgarstjóra kemur fram, að fyrstu fjóra mánuði þessa árs hafi rekstur Stöðvar 2 skilað 59 milljónum króna í rekstrarafgang fyrir vexti og afskriftir, og heildar- skuldir félagsins séu nú um 1.000 milljónir króna. Rekstrarafkoman sé því örugg en útvega þurfi ábyrgðir ef halda eigi up_pi öflugri innlendri dagskrárgerð. I rekstrarreikningi fyrir áðurnefnt tímabil kemur fram að tekjur námu alls 365,4 milljónum en gjöld 346,3 milljónum. Fjár- magnsgjöld nema 37,8 milljónum og tap tímabilsins var því 18,7 milljónir -kr-óna.------------------------------- BHMR og ríkisins, en ríkið hef- ur frestað gildistöku hluta samningsins á grundvelli I. greinar hans. Páll Halldórsson, formaður BHMR, segir að ekk- ert handfast hafi komið út úr þessum fúndi, en bindur vonir við að lausn fínnist fyrir 1. júlí þegar leiðréttingarnar eiga að taka gildi. Launadeildin hefúr lagt línurnar varðandi tölvu- keyrslu launagreiðslna vegna mánaðamótanna og sömu sögu er að segja hjá Reykjavíkur- borg, en að sögn Jóns Kristjáns- sonar skrifstofusljóra tæki leið- réttingarkeyrsla launa eina viku væri ákvörðun tekin um það. Páll sagði það ljóst að við út- færslu á samningi yrðu aðilar að koma sér saman. Ef yfirlýsing kæmi frá ríkisstjórninni fyrir mán- aðamót myndi það koma í veg fyrir að málið kæmi til kasta dóm- • stólanna. Það væri í sjálfu sér allt- af hægt að setja aukalaunakeyrslu af stað og hefði oft verið gert. „Við erum að reyna að fá þennan samning til að virka. Ef það geng- ur ekki munum við vísa málinu til Félagsdóms," sagði Páll. Samkvæmt kjarasamningnum á nefnd, sem gera á samanburð á kjörum háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna og þeirra sem starfa á almennum markaði, að skila af sér áliti fyrir 1. júlí, en nefndin á , að meta tilefni til launaleiðrétt- - inga: -Skili -nefndin- -ek-k-i -af-sér--á - réttum tíma eru refsiákvæði og eiga þá laun að hækka um einn og hálfan launaflokk frá 1. júlí eða sem samsvarar 4,5%. Páll sagði að nefndin myndi væntanlega koma saman til fund- ar í dag. Aðspurður kvað hann það sitt mat að nefndin gæti skilað af sér fyrir 1. júlí. Yrði ekki sam- komulag um alla þætti málsins ætti að vísa þeim þáttum sem ágreiningur væri um til gerðar- dóms, og þá væri Ijóst að nefndin gæti ekki skilað af sér fyrir tilsett- an tíma. Ekki hefði reynt á hvort samkomulag gæti tekist í nefnd- inni, en krafa yrði sett fram um að ákvæði samningsins yrðu virt ef nefndin skilaði ekki af sér eins og hún ætti að gera. Samkvæmt kjarasamningnum áttu nefndir einnig að vinna nýtt námsmat og meta ábyrgð í starfi. Samkomulag hefur tekist um nýtt námsmat, en nefndin sem fjallar um ábyrgð í starfi hefur ekki lok- ið störfum. Samkvæmt samningn- um átti álit hennar að liggja fyrir 1. apríl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.