Morgunblaðið - 28.06.1990, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.06.1990, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1990 Ef öllum afla yrði landað á fisk- markaði gilti þar allt annað verð - segir Magnús Gauti Gautason kaupfélagsstj óri KEA VILHELM Þorsteinsson fram- kvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyringa segist ekki hafa orðið var við ólgu á meðal sjó- manna á togurum félagsins vegna þess að þeir fái ekki greitt svípað fiskverð og gildir á fisk- mörkuðum suðvestanlands. Magnús Gauti Gautason kaupfé- lagsstjóri KEA tók í sama streng, en kaupfélagið á og rekur Út- gerðarfélag Dalvíkinga. I frétt i blaðinu í gær var sagt frá óánægju á meðal sjómanna á tog- urum, einkum ÚA og ÚD-togur- unum og ráðagerðum um að- gerðir þar sem þeir njóti ekki hins háa fiskverðs fiskmarkað- anna, en þessir togarar landa öllum sínum afla heima til vinnslu í frystihús útgerðanna. Aðstæður fyrir álver við Eyjaflörð skoðaðar: rætt um frekari greiðslur þar ofan á. Hann sagðist telja viðmiðunina við verð á fiskmörkuðum og í út- flutningi skakka, einungis væri um að ræða takmarkað magn sem land- að væri á fiskmarkaði og flutt út og hefði það í för með sér að verð- ið væri hærra. „Ef við dembum öll- um aflanum inn á markaðina er ég hræddur um að verðið hrapaði og mikill hluti aflans yrði ónýtur,“ sagði Magnús Gauti Gautason. Vilhelm Þorsteinsson fram- kvæmdastjóri Útgerðarfélags Ak- ureyringa sagði að farið væri eftir samningum á milli Landssambands íslenskra útvegsmanna og viðkom- andi stéttarfélags sjómanna. „Hvað halda menn að gerist ef við myndum landa öllum okkar afla á fiskmark- aði? Ég er hræddur um að ef allir lönduðu á þessa markaði yrði allt annað verð í gildi þar en nú er,“ sagði Vilhelm. Hann sagði að framan af síðasta ári hefði 5-7% af heildaraflanum í landinu verið landað á fiskmarkaði og væri það skýringin á hinu háa verði sem þar fengist. „Við höfum ekki orðið varir við óánægju á með- al sjómanna á okkar skipum vegna þessa máls,“ sagði Vilhelm. Morgunblaðið/Rúnar Antonsson Aðstoðarforstjórar álfyrirtækjanna þriggja í Atlantsál-hópnum skoða aðstæður á Dysnesi við EyjaQörð í gær, ásamt Trond Bohler sérfræð- ingi frá Nilu, en hin svokallaða Nilu-skýrsla um dreifingu hugsan- legra mengunarefiia frá álveri er nú tilbúin og verður kynnt á morg- un, föstudag. Morgunblaðið/Rúnar Antonsson Á skíðum! Þó svo að kalt hafi verið í veðri norðanlaiíds síðstu daga og snjór hafi fallið hafa menn ekki hugað að skíðum sínum enn. Þessi ferða- maður, sem er farþegi í skemmtiferðaskipinu Vestfjorden, tók þó fram skíðin og brá sér í létta ferð um bæinn þegar skipið hafði við- dvöl á Akureyri í gær. Eins og sjá má á myndinni hafði hann allan vara á og setti hjól undir skíðin. "*■ Magnús Gauti Gautason kaupfé- lagsstjóri Kaupfélags Eyfirðinga, sem rekur Útgerðarfélag Dalvík- inga, sagði að þessi umræða um fiskverð væri út af fyrir sig ekki ný og menn hefðu lengi vitað um þessa viðmiðun á meðal sjómanna um fiskmarkaðs- og útflutningsverð annars vegar og hins vegar lág- marksverð Verðlagsráðs. „Við höf- um lagt á það áherslu að landa afla okkar skipa heima til vinnslu í eigin frystihúsum, það er stefna ~>'kaupfélagsins og hún stendur enn óbreytt. Málið snýst um það að halda uppi atvinnu í landi, auk þess sem við teljum að mun meiri verð- mæti skapist við það að fullvinna fiskinn heima heldur en þegar hánn er fluttur óunninn úr landinu,“ sagði Magnús Gauti. Sjómenn á togurum ÚD fá greitt heimalöndunarálag, en Magnús Gauti sagði að ekkr hefði verið Ekkí þyrfti að setja upp vothreinsi- búnaði samkvæmt niðurstöðum Nilu Kuldakastið norðanlands: Kartöflubændur kvíðafiillir „ÞAÐ eru margir kartöflubænd- ur kvíðafullir, en þetta slapp til í fyrrinótt,“ sagði Ólafur Vagns- son ráðunautur hjá Búnaðarfé- lagi Eyjafjarðar, en kuldakastið sem gengið hefúr yfir Norður- land síðustu daga getur ef allt snýst til versta vegar haft veru- lega slæmar afleiðingar fyrir kartöfluræktendur. Ólafur sagði að margir bændur hefðu verið kvíðnir í fyrradag, en þá hefði birt upp síðdegis og ekki orðið af næturfrosti. Hins vegar hefði næturfrosti verið spáð nú í nótt og því væru menn hræddir við afleiðingarnar. „Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef af svæðinu þá urðu hvergi að kalla skemmdir á grösum, en það er samt sem áður aldrei að vita hvaða áhrif þetta kann að hafa. Þetta kuldakast gæti haft slæmar afleiðingar í för með sér, þar sem fyrst var sett niður í vor eru grös tálsvért' komin upp og ef frystir þá held ég að kartöfluræktin sé dauða- dæmd. Þetta er allt háð veðráttu næstu dag og þó svo að allt dræpist í dag, þá er enn möguleiki á að plantan sé í fullu fjöri undir og rífi sig upp,“ sagði Ólafur. UM 40 umsóknir bárust frá há- skólastúdentum um íbúðir á stúd- entagörðum næsta vetur, en það er talsvert umfram það sem hægt er að taka við. Jón Þórðarson, forstöðumaður sjávarútvegsdeild- ar Háskólans á Akureyri, telur að byggja þurfi 50 íbúðir á ári á næstu þremur árum svo hægt verði að útvega stúdentum við skólann húsnæði í bænum. í stúdentagörðunum Útsteini, sem teknir voru í notkun fyrir síðasta Kuldakastið hefur í för með sér að sprettu seinkar og sagði Ólafur að við því mætti varla þar sem munar um hveija viku í okkar stutta sumri. skólaár, er pláss fyrir 34 fullorðna einstaklinga. Alls var unnt að út- hluta níu umsækjendum af 40 íbúð- um eða herbergjum. Leigumiðlun tekur til starfa á veg- um Félagsstofnunar stúdenta í næstu viku, en þegar hefur verið auglýst eftir húsnæði. Á þann hátt hafa feng- ist 8 íbúðir fyrir 15 einstaklinga. Enn á eftir að útvega 28 stúdentum við skólann húsnæði, en það þýðir á bil- inu 10-15 íbúðir. Yantar 150 stúdenta- íbúðir á þremur árum Niðurstöður Nilu-skýrslunnar um loftmengun frá álveri kynntar á morgun NIÐURSTÖÐUR NILU-skýrslunnar svoköiluðu benda til að dreifing flúors yrði svipuð í Eyjafirði yrði þar reist 200-400 þúsund tonna álver og þegar miðað var við 130 þúsund tonna álver fyrir 5 árum. Niðurstöður skýrslunnar verða kynntar opinberlega á morgun, föstu- dag, en í gær kom til Akureyrar sérfræðingur Nilu í veðurrannsókn- um, Tront Bohler og var álviðræðunefnd sveitarfélaganna við Eyja- fjörð lítillega greint frá niðurstöðunum. Aðstoðarforstjórar álfyrirtækj- anna þriggja sem mynda Átlantsál- hópinn, bandaríska fyrirtækisins Alumax, sænska fyrirtækisins Grangers og Hoogovens, þess hol- lenska, komu ásamt ýmsum aðilum sem fara með umhverfismál á veg- um fyrirtækjanna til Akureyrar í gær. Þá var einnig með í för íslenska stóriðjunefndin svokallaða. Heimamenn tóku á móti þessum aðilum og var farið í skoðunarferð á þau svæði sem til greina koma varðandi staðsetningu hugsanlegs álvers í Eyjafirði, þ.e. Dysnes skammt frá Hjalteyri og við Ár- skógssand. Sigurður P. Sigmundsson fram- kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar sagði eftir heimsóknina i gær að Eyfirðingar væru enn bjartsýnir á að þeir væru inni í myndinni hvað staðsetninguna varðar, en á morgun, föstudag yrðu væntanlega gefnar út yfirlýsingar aðila um stöðu einstakra þátta í viðræðunum um álver á Isiandi. „Við bíðum bara spennt og fram- hald okkar vinnu miðast við það sem út úr þessum fundi kemur á morg- un,“ sagði Sigurður. Trond Bohler sérfræðingur hjá Nilu var einn þeirra sem kom með álviðræðuhópnum til Akureyrar í gær, en Nilu-skýrslan svokallaða sem gerir grein fyrir dreifingu hugsanlegra mengunarefna er nú tilbúin og verður kynnt á morgun. Niðurstöður skýrslunnar eru á svip- uðum nótum og niðurstöður fyrri skýrslu Nilu um loftmengun hugs- anlegs álvers í Eyjafirði, en fyrir liggur skýrsla frá árinu 1985 sem gerð var af sömu stofnun, en þá \var miðað við 130 þúsund tonna álver. Niðurstöður nýju skýrslunnar sem miðar við 200 og 400 þúsund tonna álver eru svipaðar og þeirrar gömlu. Fram kemur í skýrslunni að mengun af völdum brennisteins er minni en í fyrstu var talið og sagði Sigurður að reiknað hefði verið með að setja þyrfti upp vothreinsibúnað yrði álver reist í Eyjafirði, en ekki ef það yrði reist annars staðar. Samkvæmt Nilu-skýrslunni þyrfti hins vegar ekki að koma upp vot- hreinsibúnaði í Eyjafirði. Veiðarfærin í skrúfuna Kaldbakur EA fékk veiðar- færi í skrúfúna þar sem hann var að veiðum fyrir austan land á mánudagskvöld. Sólbakur EA kom Kaldbak til aðstoðar og dró hann til Fáskrúðsijarðar þar sem veið- arfærin voru losuð úr skrúf- unni. Skemmdir urðu ekki aðr- ar en þær að veiðarfærin eru ónýt. „Það er alltaf hægt að búast við þessu, en sem betur fer hefur þetta ekki oft komið fyr- ir okkar togara,“ sagði Vilhelm Þorsteinsson framkvæmda- stjóri Útgerðarfélags Akur- eyringa sem gerir togarana út.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.