Morgunblaðið - 28.06.1990, Blaðsíða 34
34
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hnítur
'¥K. mars - 19. apríl)
Þú verður svolítið óþolinmóður
framan af deginum en síðar slak-
arðu á og þetta verður góður verk-
dagur. Góðar fréttir berast er
snerta fjölskylduna. Þér bjóðast
aukastörf.
, Naut
(20. apríl - 20. maí) <tí%
Reyndu að sýna ákveðnu barni
meiri skilning. Þeir sem hafa list-
ræna hæfileika verða ánægðir með
það sem þeir eru að gera. Góður
tími til skemmtana.
%fj'viburar
(21. maí - 20. júní)
Þér gæti mislíkað dálítið við einn
af vinum þínum. Þú ert að koma
persónulegum málum þínum í lag
og verður ánægður með árangur-
inn í dag. Rétti tíminn til stórinn-
kaupa.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) >"$8
Þú flýtir þér ef til vill of mikið
við að fá niðurstöðu í máli sem
varðar vinnuna og frama þinn
þar. Samstarfsmenn ættu að eiga
góðan dag. Góðar fréttir gera
kvöldið ánægjulegt.
Ljón
123. júlí - 22. ágúst)
Þeim sem eru á ferðalagi hættir
við að eyða of miklu. Þér tekst
að ljúka ýmsum hefðbundnum
skylduverkum með ágætum hætti
í dag. Kvöldið virðist heppilegt til
að útkljá viðskiptamál.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Gættu þess að stofna þér ekki í
skuldir núna. Að öðru leyti ætti
dagurinn að verða ágætur. Þú átt
skemmtilegan fund með vinum og
kunningjum; hagnast á samskipt-
um við annað fólk.
'Vog
(23. sept. - 22. október)
Þér hentar best að láta lítið fyrir
þér fara í vinnunni í dag. Þú lýkur
við ýmislegt sem hefur hlaðist upp
hjá þér að undanförnu. Innra með
þér er 'einhver óánægja vegna
náins vandamanns.
Sþoródreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Það verður mikið um erfíð verk-
efni í vinnunni framan af deginum
en seinna verður nægur tími til
að slaka á og njóta lífsins. Þú ert
að verða æ vinsælli!
Bogmaóur
ij^22. nóv. - 21. desember) jRO
Þig langar til að reyna eitthvað
nýtt og spennandi núna en þér
bjóðast bestu tækifærin til að
standa þig vel í vinnunni sjálfri.
Leggðu þig fram og þú verður
ánægður í kvöld með árangurinn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það gæti hlaupið snurða á þráðinn
milli einhvers úr fjölskyldunni og
tengdafólks í dag. Nú er góður
dagur til að skipuleggja ferðalag.
Kvöldið er helgað ást og ein-
drægni.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Best er að gæta varfærni í sam-
JJþandi við fjárfestingar í dag; hugs-
aðu þig vandlega um. Mögulegt
að óvæntir og ánægjulegir hlutir
gerist í vinnunni.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mai-s) -ns*.
Þú gætir lent í einhverri orðasennu
vegna innkaupa í dag en að öðru
leyti gengur þér allt í haginn., f
kvöld er heppilegt að fara út með
ástvíni.
AFMÆLISBARNIÐ er hvort-
tveggja í senn, sjálfstætt og sam-
vinnuþýtt. Það veltir hlutunum oft
vandlega fyrir sér og getur haft
-*-mik!a tónlistarhæfileika. Stundum
hættir því við að standa full fast
á skoðunum sínum og þarf að
varast hneigð til þrákelkni. Því
tekst best upp þegar það þarf að
nota andlega hæfileika sína. Góð
menntun gerir því kleift að nýta
þessa hæfileika til fullnustu.
Stjörnuspána á aó lesa sem
'*r*lœgradvól. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1990
DÝRAGLENS
GRETTIR
ENGINN GErOK
EINS V/EL /AF
HUERNie
----
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
FERDINAND
„28. regla ... kúla ónothæf...“
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Vitlaust innkast hefur sést
nokkrum sinnum á HM í knatt-
spyrnu, þulum til mikillar undr-
unar. Reyndur sagnhafi myndi
aldrei kasta vitlaust inn í spilum
af þessum toga:
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ ÁG62
V D5
♦ ÁG42
*K64
Vestur Austur
4853 Mllll 47
V G743 ¥ 10982
♦ D6 ♦ K109
♦ DG105 ♦ 98732
Suður
♦ KD1094
VÁK6
♦ 8753
♦ Á
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 spaði
Pass 2 grönd Pass 3 lauf
Pass 3 tíglar Pass 3 hjörtu
Pass 3 spaðar Pass 4 lauf
Pass 4 spaðar Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass Pass
Útspil: laufdrottning.
Með 2 gröndum stakk norður
upp á slemmu í spaða og spurði
um leið um stuttlit. Þrjú lauf
sýndu einspil eða eyðu en síðan
tóku við eðlilegar þreifingar.
Þrátt fyrir kappnógan há-
spilastyrk koma spilin illa saman
og tveir tapslagir á tígul virðast
yfirvofandi. Þó er nokkur vinn-
ingsvon ef stífia er í tígullitnum.
Best er að spila strax tígli í öðr-
um slag upp á ás, áður en vörn-
in fær tækifæri til að átta sig á
spilinu. Ef véstur lætur lítinn
tígul er björninn unninn. Sagn-
hafi tekur trompin, hreinar út
hliðarlitina og spilar svo smáum
tígli frá báðum höndum. Vestur
lendir inni og verður að gefa 12.
slaginn með því að spila út í
tvöfalda eyðu.
Gamall og kunnugur gamb-
ítur, þar sem aðalatriðið er að
taka strax ásinn í innkastslitn-
um, áður en vörnin skilur hvað
er í vændum og hreinsar stífl-
una. Á morgun munum við
skoða aðra hlið á þessum gambít
— sem við getum kallað til mála-
mynda „vitlaust innkast".
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Camaguey
á Kúbu í vor kom þessi staða upp
í skák Kúbumannsins A. Gomez
(2.390) og Portúgalans Damaso
(2.385), sem hafði svart og átti
leik.
18. - Hxb2! 19. Dxb2 - Rg4+!
20. Kg3 (20. fxg4 - Bxd4+ 21.
Kg3 - He3+ er alveg vonlaust)
20. - Dd6+ 21. f4 - Bxd4 (Hót-
ar 22. - He3+) 22. Hd3 - Rf2
og hvítur gafst upp. Damaso þessi
sigraði á mótinu með 9 v. af 13
mögulegum, en spánski alþjóða-
meistarinn Ochoa kom næstur
með 8 v.