Morgunblaðið - 28.06.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.06.1990, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1990 Uppþvottavélar Örbylgjuofnar Gœðatœki fyrir þig og þína! SMITH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 VZterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiöill! Þorsteinn Gylfason: HELGASPJALL i Föstudaginn 2an marz síðastlið- inn birtist í Þjóðviljanum mikil grein eftir Helga Hálfdanarson og heitir „Uppreisn við Skjálfanda“. Megin- efni hennar er ítarleg frásögn af þeirri uppákomu norður á Húsavík kvöldið 26ta nóvember 1956 að maður nokkur gekk í flokksdeild Sameiningarflokks alþýðu, Sósíal- istaflokksins þar á staðnum. Fékk þessi sami maður flokksdeildina til að leggja sjálfa sig niður þetta sama kvöld, og segja sig þar með úr lög- um við Sósíalistaflokkinn, en stofna í þess stað nýtt félag félagshyggju- manna á Húsavík. Þetta nýja félag fordæmdi innrás Ráðstjómarríkj- anna og leppríkja þeirra í Ungverja- land þá um sumarið, og vítti Sósíal- istaflokkinn fyrir að bregðast ekki eins við þeim viðburðum. Allt þetta samþykkti flokksdeildin einum rómi, svo og ítarlega stefnuyfirlýs- ingu þar sem lýst var yfir stuðningi við lýðræði eins og það sem tíðkast á Vesturlöndum á okkar dögum og við friðargæzluhlutverk Sameinuðu þjóðanna og margt fleira bæði fróð- legt og markvert. Helgi nefnir ekki þennan mann. Við skulum kalla hann „HH“; það má til dæmis lesa sem „Hrólfur Hrólfsson". Nú eða „háttvirtur höfundur" ef menn vilja. HH á sér þá sögu, ef marka má frásögn Helga, að hafa verið ein- dreginn sameignarsinni á yngri árum eða „kreppukommi" sem Helgi kallar svo. Svo eindreginn var hann í sannfæringu sinni að hann neitaði sér um að ganga í Sósíalista- flokkinn þegar hann var stofnaður upp úr Kommúnistaflokknum á sinni tíð, því að hann þóttist aldrei geta “skipað samúð sinni of langt til vinstri. En í nóvember 1956 gengu Ráðstjómarríkin fram af honum í fyrsta sinn, með ofan- greindum afleiðingum. HH er með öðrum orðum einn af þeim sameign- arsinnum „sem biluðu í Ungó“ eins og Þórbergur Þórðarson komst ein- hvern tíma að orði. Framhald sög- unnar varð svo það að forusta Sós- íalistaflokksins í Reykjavík kom til leiðar öðrum fundi í hinni fyrrver- andi flokksdeild á Húsavík þar sem úrsögnin úr flokknum var tekin aftur og allt ómerkt sem hafði ver- ið einróma samþykkt hinn 26ta nóvember. Þess var að sjálfsögðu gætt að boða ekki HH á þennan fund; þess vegna kann ómerkingin á fyrri samþykkt að hafa verið ein- róma líka þótt Helgi geti þess ekki. HH sagði sig þegar úr félaginu og hefur verið utan flokka síðan. II Þótt þessi saga sé meginefnið í grein Helga — og sé þar miklu betur sögð en hér — þá þóttu mér allt að því eins hnýsilegar ýmsar skoðanir sem Helgi lætur þar sjálf- ur í ljósi í eigin nafni. Þar skiptir mestu sú skoðun að rússneska bylt- ingin árið 1917 kunni að vera sam- bærileg við frönsku byltinguna 1789 og að það sé eins víst að árið 2117 verði hennar minnzt með sama brag og Frakkar höfðu á er þeir minntust sinnar byltingar í fyrra, með flugeldum, ræðuhöldum, kampavíni og hvers konar yndis- auka öðrum. Helgi virðist halda að þau hátíðahöld verði engu minni í Reykjavík en Moskvu, með því að dijúgan þátt þeirra félagslegu framfara sem orðið hafí á Islandi síðan á kreppuárunum beri að rekja, beint eða óbeint, til rússnesku bylt- ingarinnar því hún hafi innblásið íslenzka sameignarsinna sem aftur eigi heiðurinn af hagvexti á ís- landi. Velmegun íslendinga á okkar dögum er sem sagt ekki sjávarafla að þakka, eða því að ný tækni og nýjar atvinnugreinar hafi rutt sér til rúms, heldur er hún mikils til verk HH og hans nóta, og jafnvel HH eins því að hann munar ekki um kraftaverkin eins og sést af stjórnmálaafskiptum hans á Húsavík. Kannski Helgi ætti að segja þjóðinni hver maðurinn er. Þá er ekki að vita nema hún vildi reisa af honum styttu við hliðina á Jóni Sigurðssyni og gera afmælis- daginn hans að opinberum frídegi með skrúðgöngum og flugeldasýn- 'ingum. Ég ætla ekki að þræta við Helga um sögulegar orsakir hagvaxtar og annarra framfara á íslandi síðustu sextíu árin. Það er hagfræðilegt viðfangsefni, og ég er enginn hag- fræðingur. Hins vegar vill svo til að faðir minn og bróðir eru báðir hagfræðingar, og ég er viss um að þeir eru til í svoleiðis þrætu ef vel er farið að þeim. Á hinn bóginn hef ég lært mannkynssögu í mennta- skóla, alveg eins og Helgi sjálfur, og hef myndað mér- skoðanir, með venjúlegum fyrirvörum, á hlutum eins og stjómbyltingum í Norður- álfu og Vesturheimi. Er skemmst frá því að segja að mér virðast skoðanir Helga á þeim efnum full- komlega fráleitar. Og ég hygg að Helgi muni sjá það í hendi sér ef hann hugleiðir skólalærdóminn of- urlítið nánar en hann gerði áður en hann hann skrifaði „Uppreisn við Skjálfanda". III Helgi er lýðræðissinni, eins og ég er raunar líka. Hann trúir á það sem hann kallar hið „sanna lýð- ræði, sem við íslendingar erum að leitast við að rækta, og gerum okk- ur vonir um að fari síbatnandi“. Hann trúir líka á það sem heitir „velferðarþjóðfé]ag“ á síðustu tímum og Norðurlöndin munu vera frægust fyrir allra landa, og hann kallar lýðræðið það afl sem eigi að ríyggja velferðina. Nú veit hann það vel að við lýðræðissinnar höfum frönsku stjómbyltinguna 1789, svo og ensku byltinguna 1689 og hina amerísku 1776 á undan henni, í heiðri vegna þess að í þessum bylt- ingum varð lýðræðið til, og virðist til viðbótar hafa farið síbatnandi síðan ef út í það er farið. Þess vegna var frönsku byltingarinnar minnzt í fyrra, og ekki bara í Frakklandi heldur víðar um lönd. Hvaða sambærilega hugsjón við lýðræðið getur Helgi nefnt og tengt rússnesku byltingunni 1917? Hann nefnir tvennt þessari byltingu til lofs. Annað er það sem áður er að vikið: að hún hafi verið „undanfari flestra meiri háttar umbóta á kjör- um alþýðu víðs vegar um Vestur- Evrópu, einnig á íslandi." Hún hafí verið „sigurinn á fátæktinni“ sem Brynjólfur Bjarnason nefndi svo. En það þarf engan hagfræðing til að sjá það í hendi sér að rússneska byltingin hefur engu ráðið um út- rýmingu fátæktar á 20stu öld, að mestu eða miklu leyti, í ljtlum hluta heimsins þar sem við íslendingar bemm gæfu til að búa. Útrýming fátæktar í Ráðstjórnarríkjunum á kreppuárunum var einkum í því fólgin að myrða fátæklinga milljón- um saman með köldu blóði. Það hét á máli félaga Stalíns „bylting að ofan“. Þykir Helga það trúlegt að þeirrar byltingar verði sérstaklega minnzt með flugeldum og kampavíni? Hitt lofsefnið um rússnesku bylt- inguna hjá Helga er að Rússar hafi ætlað sér að koma á jafnrétti. Hann bætir við: „Og kannski komust þeir furðu langt í því efni um skeið. En það kom fljótt í Ijós, að ofætlun um jafnrétti hlaut að kosta frelsi að sama skapi.“ Hlaut að kosta, segir hann eins og ekkert sé. Þetta sak- leysislega sagnorð — hlaut — minnti mig á gömul orðaskipti okkar Helga, bæði opinber og einkaleg, þegar hann varð sjötugur fyrir níu árum. Þá komst hann svo að orði við mig, ef ég man rétt, að frelsi og jafnrétti væru eins og olía og vatn og yrði ekki blandað saman með góðu móti. Ugglaust hefur hann ætlazt til að ég kyngdi þess- ari samlíkingu orðalaust af því að hann er lyfjafræðingur sem allt veit um efni sem ég veit næstum ekkert um. En samlíkingin, hversu snjöll og hávísindaleg sem hún kann að vera, sannfærði mig ekki þá og gerir ekki enn. Að algengustu orðanna hljóðan er frelsi réttur og réttur frelsi. Ef ég hef rétt til að leggja hjólinu mínu upp við húsvegg á Grettisgötu 42, þá er ég ftjáls að því. Eins erum Þorsteinn Gylfason við Islendingar næstum öll jafn- fijáls að því að taka þátt í kosning- um til sveitastjórna og Alþingis (aðeins fáein okkar hafa fyrirgert því frelsi). Það merkir að við höfum öll jafnan rétt til þess: þetta lýð- frelsi heitir kosningaréttur á íslenzku. Kvenfrelsi er það sama og jafnrétti karla og kvenna. Að minnsta kosti þætti mér fróðlegt að sjá Helga sýna fram á það að frelsi kvenna og jafnrétti karla og kvenna hljóti að vera hvort á kostn- að annars, og þessu tvennu verði ekki með neinu móti blandað saman fremur en olíu og vatni. Það getur hann áreiðanlega ekki. Af því leiðir að það er hrein firra að rússneska byltingin hafi verið helguð hugsjón- inni um jafnrétti sem hafí hlotið að vera á kostnað frelsis. Sannleikurinn er sá að franska byltingin er fyrir lýðræðissinnum, í krafti hugsjóna sinna um frelsi, jafnrétti og bræðralag, einna sam- bærilegust við það sem fæðing Krists er fyrir kristnum mönnum. Rússneska byltingin, og þeir ára- tugir Ráðstjórnarríkjanna sem nú eru senn taldir, verður aldrei sam- bærileg við neitt skárra en svarta- dauða. IV Helgi endar grein sína á þeirri áskorun til Alþýðubandalagsins að það birti „afdráttarlausa skilgrein- ingu á því hugtaki, sem orðið „sós- íalismi“ táknar þar í flokki“. Hall- dór Laxness væri vís til að taka undir þessa áskorun. Einhvers stað- ar segir hann, að mig minnir í sam- tali við Matthías Johannessen, að orðið „sósíalismi" — sem ég þýði með orðinu „félagshyggja" á íslenzku — þurfí að skilgreina upp á nýtt með reglulegu millibili. Þeim skáldbræðrum sést yfir þann mögu- leika að við leggjum orðið einfald- lega niður — hættum að nota það — alveg eins og við höfum lagt nið- ur orðin „þversum" og „langsum" (eða var það ,,krussum“?) í stjóm- málabaráttunni. Þar fór í verra, mun nú einhver segja. Við þurfum þá líkast til að leggja niður stjórnmálaflokkana í Fallegustu íslensku frímerkin 1989 EFNT var til skoðanakönnunar um fallegasta islenska frímerkið 1989 eins og undanfarin ár. At- kvæðaseðlar voru sendir þeim sem fá tilkynningar um nýjar útgáfúr frá frímerkjasölu Pósts og síma og einnig lágu seðlar frammi á öllum póstafgreiðslum landsins. Velja skyldi þijú faileg- ustu frímerkin. Innkomnir seðlar voru um 3.000. Fallegasta frímerkið var valið smá- örk útgefín 9. október, myndefni hluti landabréfs Olaus Magnus af Norðurlöndum sem var útgefíð 1539 í Feneyjum, að verðgildi 130 krónur. í öðru sæti var frímerki þar sem myndefni er fjallið Skeggi við Arnarfjörð. Það var útgefíð 20. september, að verðgildi 35 krónur. Þriðja fallegast þótti frímerki með mynd af sólskríkjum, útgefíð 2. febrúar, að verðgildi 100 krónur. Þröstur Magnússon teiknaði frímerkin. Alls bárust atkvæðaseðlar frá 51 landi, flestir frá Danmörku eða 538, Vestur-Þýskalandi 467, ís- landi 332, Sviþjóð 329 og 290 frá Noregi. Nöfn 25 verðlaunahafa voru dregin úr öllum innsendum seðlum. Verðlaunin voru eins og áður eitt fyrstadagsumslag og fjög- ur óstimpluð frímerki af öllum út- gáfum 1990. Verðlaunahafar voru fjórir frá Islandi og Svíþjóð, þrír frá Vestur-Þýskalandi og Bandaríkjun- um en færri frá eftirtöldum löndum: Danmörku, Noregi, Englandi, Frakklandi, Spáni, Sviss og Indó- nesíu. Oi>VMS MACNUS SJÓKOKT OC LÝSINC NORÐLRLANDA • 13J9• HLUTI NORRÆN FRlMERKIASÝNING REYKIAVÍK 27.-30. |ÚNÍ 1991 VERÐ KR 130 Frímerkin þrjú sem voru valin fallegustu íslensku frímerkin 1989.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.