Morgunblaðið - 28.06.1990, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.06.1990, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1990 Aftnælisgangan Reykjavík - Hvítárnes: - Laugarvatnsvellir Gjábakki eftir Sigurð Kristinsson Sjöundi áfangi afmælisgöngu Ferðafélags íslands verður sunnu- daginn 1. júlí og hefst kl. 13 við Umferðarmiðotöðina. Ekið verður að Gjábakka, sem er eyðibýli aust- an Þingvallavatns og gengið það- an til austurs um samfelld hraun með allmiklum skógargróðri. Leiðin er heldur í fangið en skóg- argróðurinn minnkar um leið og landið hækkar og er horfinn á hæstu bungu. Hraunið er í dag- legu tali nefnt Gjábakkahraun en Þingvallasveitarmenn nefna svæðið Hrafnabjargaháls. Vega- gerðin nefnir veginn Gjábakka- veg. Jarðfræðingar nefna hraunið Eldborgarhraun syðra. Hefur það runnið fyrir 9.300 árum frá Eld- borgarröð milli Kálfstinda og Hrafnabjarga. Frá henni rann Eldborgarhraun nyrðra fyrir 6.300 árum og féll til vesturs milli Hrafnabjarga og Tindaskaga og niður á Skjaldbreiðarhraunið. Leið okkar liggur um eitt hella- auðugasta hraun landsins en að- eins verður bent á Gjábakkahelli, sem er 2 'h km austan við bæinn og eru op hans rétt norðan við veginn. Austan við hellinn er veg- urinn samhliða grunnri hraunrás. Margir skútar og brýr eru neðar- lega í henni. Eftir rúmlega stundargöngu er komið á hæstu bungu vegarins og er vert að skyggnast um til flestra fjalla á Suðurlandi. Rétt er þó að líta sér nær. Þarna ligg- ur vegurinn yfir lítinn slakka og er þar hluti gosrásar. Opnast hún fram í mikla hrauntröð aðeins austar og sunnan við veginn. En 200 m norðar sýnist vera dálítil varða en er þó stútur á gíghelli með myrkur í botni. Nefnist hann Tintron og eru utan á honum nokkrar litlar hraunpípur og má rétt stinga handlegg þar inn. Allt eru þetta hlutar gosrásar frá Eld- borgunum vestan Kálfstinda. Skammt til norðurs eru Dímonar tveir en Reyðarbarmur beint í austri. Eftir neyslu nestis og náttúru- skoðun er haldið áfram og verður léttur undanhalli austur í Barma- skarð. Nefnist Litli-Reyðarbarm- ur sunnan þess en Vopnalág og Kárahella austan þess. Hér opnast útsýn yfir Laugarvatnsvelli og Beitivelli sunnan þeirra. Eftir heimsóknina til Ásgríms í Tungu (Bræðratungu) riðu Brennu-Flosi og menn hans »fram á Beitivöllu og áðu þar; þá riðu að þeim flokk- ar margir; var þar Hallur af Síðu og menn hans.« (Njáls saga CXXXVI. kapítuli). Beitivellir eru áningarstaður á gamalli leið. Gangan endar á því að líta í hellinn við Laugarvatnsvelli, þann sem síðasf var búið í á íslandi. Hittumst heil. Höfímdur er kennari. HfíNS PETERSEN HF UMBOÐSMENN UM LAND ALLT! VERÐ AÐEINS KR 6.950.- r i 1 lCHINONj LÆSILEG FRÁ Fasfur fókus • Sjólfvirk filmufærsla • SjQlfrakQri • Alsjólfvirkr flass • Lirhium rafhlaða • Möguleiki ó dagserningu inn ó myndir • Eins órs óbyrgð Nýútskrifaðir þroskaþjálfar. Sextán þroska- þjálfar útskrifaðir BRYNDÍS Víglundsdóttir, skólasljóri Þroskaþjálfaskóla íslands, brautskráði 16 þroskaþjálfa 18. maí sl. Athöfnin fór fram í Norræna húsinu að viðstöddum fjölda gesta. Meðal þeirra sem fluttu ávarp voru Haraldur Ólafsson, formaður skóla- stjórnar, Margrét Ríkharðsdóttir, formaður Félags þroskaþjálfa, og Ragna Ragnarsdóttir, fulltrúi nýút- skrifaðra þroskaþjálfa, Elísabet Erlingsdóttir einsöngvari söng við undirleik Krystynar Cortes. Að lokinni athöfn í Norræna húsinu var viðstöddum boðið til kaffidrykkju í Þroskaþjálfaskólan- um. Morgunblaðið/Árni Sæberg Toshikatsu Endo við eitt verka sinna í Hafnarborg. Japanskur listamaður sýnir í Hafnarborg SÝNING á verkum japanska lista- mannsins Toshikatsu Endo verður opnuð í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, næstkomandi laugardag. í fréttatilkynningu frá Hafnarborg segir að norræná listamiðstöðin Sveaborg í Finnlandi hafi skipulagt sýninguna, og hafi hún þegar verið sett upp þar og í listasafninu í FLEXON VESTUR-ÞÝSKUR HÁGÆÐA DRIFBÚNAÐUR FLUTNINGSKEÐJUR Allar stœrðir Hagstœtt verð Við veitum þér allar tœknilegar upplýsingar LANDSSMIÐJAN HF. Verslun: Sölvhólsgötu 13 SÍMI (91)20680- FAX (91) 19199 Malmö. Héðan fer sýningin svo til Enie-Onstad-listamiðstöðvarinnar í Noregi. Fé til sýningarinnar' lagði Sa- sakawa-stofnunin úr sérstökum sjóði til eflingar samvinnu miili íslands og Norðurlanda. Listamaðurinn kom hingað síðastliðinn sunnudag í boði stofnunarinnar og hefur haft umsjón með uppsetningu verka sinna. Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, mun opna sýninguna, sem stendur til 22. júlí. SUNBEAM GRILL MEÐ F IÖLMÖRGUM FYLGIHLUTUM I HÆSTA GÆÐAR0KKI Ferðagasgrllllð Fáift sendan (alenskan myndalista f póati Krbtján^on hF FAXAFENI 9 S. 91 - 67 88 00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.