Morgunblaðið - 28.06.1990, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1990
ri
I>
félk f
fréttum
SLYSFARIR
„René“ braggast eftir bflslys
Breski leikarinn Gordon Kaye,
sá er leikur René Artois, öld
urhúsaeigandann óborganlega í
þáttaröðinni „’allo, ’allo“, er allur
að braggast eftir skuggalegt um-
ferðarslys sem hann lenti í í óveð-
ursáhlaupi einu á Bretlandseyjum
undir lok vetrar. Hann ók bifreið
sinni skammt frá heimili sínu í
Surrey, er trjágrein sem rifnað
hafði af tré þeyttist inn um bílrúð-
una og í andlit hans. Brotnuðu
bæði kinnbein, nef og haka auk
þess sem höggið var geigvænlegt.
„Læknarnir segja að ég sé
gangandi kraftaverk, því þeir
reiknuðu ekki með því að ég kæm-
ist framar fram úr rúminu, en sem
betur fer hafa þeir stundum rangt
fyrir sér,“ segir Kaye sem hélt
nýlega upp á 48 ára afmæli sitt
og bauð bæði vinum og samstarfs-
mönnum. Upptökur þáttanna hafa
legið niðri á meðan John hefur
átt við meiðslin, en innan tíðar
hefja þeir göngu sína á ný, enda
afar vinsælir.
John Kaye sem René ásamt
Yvette (Vicky Michel) og Edith
(Carmen Silvera).
Spænsku saltfiskinnflytjendurnir hafa hér eldað og Iagt á borð fyrir nokkrar eiginkvennanna.
ELDAMENNSKA
Matreiða Katalóníumenn salt-
fisk í heimsmetabókina?
Fyrir nokkru efndi SÍF til sér-
stakrar saltfiskviku í Katal
óníu á Spáni og tókst hún vonum
framar. Vikan var haldin í Barcel-
ona, höfuðstað Katalónínu. Var
margt í boði og aðsókn góð, enda
er saltfiskur nokkurs konar þjóðar-
réttur á þessum slóðum. Að sögn
SÍF-manna var tilgangur saltfiskvi-
kunnaf að efla vitund almennings
í Katalóníu um vöruheiti SÍF, Bac-
alao Islandia. Fyrir utan SÍF og
spænska salfiskinnflytjendur voru
borgarstjórn Barcelona, fylkisstjóm
Katalóníu, samtök veitingahúsa,
kaupmannasamtök í Barcelona, fé-
lög matreiðslumanna, húsmæðra og
sælkera virkir þátttakendur í kynn-
ingarstarfinu.
Dagskráin var þannig skipulögð
að einstök atriði hennar var að finna
víða um borgina, jafnt í virtustu
vetingahúsum í Barcelona og götu-
tjöldum. Kjarni hennar var t.d. í
stóru tjaldi á tofgi í miðborginni.
Þar var eldað samfleytt í 100
klukkustundir og verður sótt um
að fá eldamennskuna skráða í
Heimsmetabók Guinness. Mat-
„reiðslulotuna setii varabæjarstjóri
Barcelona, Lluis Armet, sem bæði
eldaði og smakkaði meðan á öllu
stóð.
Odýr hadegismatur
alla virka daga
frá k . 12-2
Hamborgari dagsins
m/frönskum og salati
Samloka dagsins
m/frönskum og salati
Kjötréttur..........
Fiskréttur..........
kr. 540
2.
.....kr. 445
.....kr. 630
.....kr. 630
3.
4.
Supa fylgir.
Elskum alla þjónum öllum
s. 689888
Of langt mál er að telja upp allt
sem fram fór dagana sjö í Barcel-
ona, en eitt af því sem kom íslend-
ingunum hvað mest á óvart voru
margra daga pallborðsumræður um
íslenska saltfiskinn frá félagsleg-
um, menningarlegum, sögulegum
og trúarlegum sjónarhóli. Kunnir
borgarar í Barcelona í félagsvísind-
um, sagnfræði, stjórnmálum, fjöl-
miðlum og matargerð ræddu þetta
fram og aftur fyrir fullum sal áheyr-
enda. Þannig er nefnilega mál með
vexti, að hjá íbúum kaþólskra landa
er fiskur meira en bara fæðan ein.
Hann skipar veglegan sess á öllum
helstu hátíðum þessara þjóða þegar
trúin býður að ekki skuli neyta
kjöts. Saltfiskur í Katalóníu er því
samnefnari trúarbragða og þar um
slóðir þykir enginn saltfiskur slá
þeim íslenska við.
Aðstoðarborgarstjórinn Lluis Armet í þann mund að hefja 100 klukku-
stunda eldamennsku.
Það er staðreynd -þauvirka!
Tvær milljónir Evrópubúa nota nú Mondial daglega.
Virkni M0NDIAL armbandsins felst í pólunum, sem eru hlaðnir 6 millivolta spennu, og talið
er að hafi áhrif á plús- og mínusorku líkamans í átt til jafnvægis og eykur þannig veilíðan.
Ummæli nokkurra ánægðra notenda Mondial armbandsins:
► „Ég hef ekki sofið eins vel í mörg ár síðan ég eignaðist MONDIAL armbandið."
► „Ég er búin að eiga MONDIAL armbandið íviku og ég hef ekki fengið mígrenikast
síðan ég setti það upp.“
► „Eftiraðég eignaðist MONDIALarmbandið er ég í meira andlegu jafnvægi
en ég hef fundið fyrir lengi."
í„Ég er svo miklu betri af astmanum, eftir að hafa gengið með MONDIAL arm-
bandið í nokkra mánuði, að ég hef getað sleppt meðulunum."
► „Ég tókallt íeinu eftir því, eftir nokkra vikna notkun á MONDIALarmbandinu,
að sviðinn í axlarvöðvunum var alveg horfinn."
Mondial armbandið fæst í 5 stærðum
XS- 13-14cmummál L-19-20 cm ummál
S- 14-16 cmummál XL-21-22cmummál
M-17-18 cm ummál
VERÐIÐ ER HAGSTÆTT
Silfur.................kr. 2.590,-
Silfur/gull............kr. 2.590,-
Gull...................kr. 3.690,-
berR^if:
Laugavegi 66 ’
101 Reykjavík
símar 623336 og 626265
Póstkröfuþjónusta -
Greiðslukortaþjónusta
Pantanasímar:
(91)62 33 36 og 62 62 65