Morgunblaðið - 28.06.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.06.1990, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1990 Hart deilt um verndun fána Bandaríkjanna: Tillaga George Bush um stj ómarskrárbreytiugu felld Washington. Reuter. ÖLDUNGADEILD Bandaríkjaþings felldi á þriðjudag þá tillögu Ge- orge Bush Bandaríkjaforseta að stjórnarskránni yrði breytt í þá veru að bannað yrði að bera eld að þjóðfánanum. í siðustu viku felldi full- trúadeildin einnig breytingartillögu forsetans. Hæstiréttur Bandaríkjanna kvað upp þann dóm fyrir skemmstu að alríkisstjórnin í Washington gæti ekki verndað þjóðfánann með lögum þar eð slíkt stangaðist á við þá grein stjórnarskrárinnar er tryggði mál- frelsi. Vakti þessi úrskurður mikla athygli og heiftarlegar deilur bloss- uðu upp. Hinn 11. þessa mánaðar lagði George Bush Bandaríkjaforseti til að stjórnarskránni yrði breytt þann- ig að bannað yrði að bera eld að fána Bandaríkjanna en sú iðja hefur löngum notið umtalsverðra vinsælda þar vestra. Á fimmtudag felldi full- trúadeild Bandaríkjaþings þessa til- lögu og niðurstaðan varð hin sama er hún var lögð fyrir öldungadeildina á þriðjudag. 58 þingmenn (38 repúblíkanar, 20 demókratar) greiddu atkvæði með tillögunni en 42 (35 demókratar, 7 repúblíkanar) voru henni andvígir. Til að breyta stjórnarskránni þurfa tveir af hverj- um þremur þingmönnum beggja deilda að leggja blessun sína yfir slíka tillögu. Robert Dole, leiðtogi Repúblík- anaflokksins í öldungadeildinni, hvatti ákaft til þess að breytingartil- laga forsetans yrði samþykkt með þeim orðum að þar með gæfíst þing- mönnum tækifæri til að leiðrétta Landskjálftinn í íran: Sex fínnast á lífí Teheran. Reuter. SEX manns íundust í gær á lífí undir rústum húsa sem hrundu í landskjálftanum ógurlega í íran fyrir viku. Þetta voru gleðileg og uppörv- andi tíðindi fyrir íranskar og alþjóð- legar björgunarsveitir, sem hafa grafið með höndunum í aurbley- tunni og aðeins fundið örfáa á lífi. í fyrradag voru björgunarmenn úr- kula vonar um að fleiri fyndust lif- andi í rústunum. Frönsk björgunarsveit fann fer- tuga móður og tólf ára gamlan son hennar í þorpinu Kelishom í Gilan- héraði. Bæði voru illa á sig komin og send á sjúkrahús í höfuðstað héraðsins, Rasht. í sama þorpi fannst einnig gömul kona, sem hafði legið í rústunum í sex daga án þess að hafa orðið meint af. Þá bjargaðist þriggja manna fjölskylda í öðru þorpi, Jirandeh, í sama hér- aði. Nokkuð hefur verið um að fólk hafi notfært sér ástandið á skjálfta- svæðinu til að ræna fólk á vegunum og stela úr yfirgefnum húsum. Ali Khamenei, trúarleiðtogi írana, hvatti til þess að fólkið yrði hand- tekið og sótt til saka fyrir að reyna að hagnast á óförum annarra. mistök dómara hæstaréttar. George Mitchell, þingleiðtogi demókrata, kvaðst fordæma það athæfi að brenna fána Bandaríkjanna en lagð- ist gegn því að stjórnarskránni yrði breytt. Sagði hann ástæðu til að ætla að fleiri slíkar tillögur yrðu þá lagðar fram og erfítt yrði að draga skýrar markalínur. Kosningar fara fram í Banda- ríkjunum í haust og þykir sýnt að vemdun fánans verði ofarlega á baugi í baráttunni. Er einkum talið að þetta mikla deilumál geti komið sér illa fyrir nokkra ríkisstjóra demó- krata er sækjast eftir endurkjöri. Ennfremur fara fram kosningar til fulltrúadeildarinnar en þar sitja 435 þingmenn auk þess sem þriðjungur þingmanna öldungadeildarinnar mun leita eftir umboði kjósenda til áframhaldandi setu á þinginu í Was- hington. F.r breytingartillaga forset- ans var tekin fyrir í öldungadeildinni sökuðu nokkrir þingmenn demó- krata andstæðinga sína í röðum repúblíkana um að freista þess að gera verndun fánans að kosninga- máli. Voru rök þeirra sú að ástæðu- laust hefði verið að greiða atkvæði um tillöguna þar eð hún hefði þegar verið felld í fulltrúadeildinni. CFE-viðræðurnar: Afleiðingar skjálftans í íran Yfirvöld í íran segja að 99% fórnarlamba landskjálftans i síðustu viku hafi fundist. Hér er tjónið af völdum skjálftans tíundað: Tjóniö ■ Heimilislausir: 100.000 fjölskyldur ■ Eignatjón: Miklar skemmdir í um 350 bæjum Tala látinna: 40.000 sam- kvæmt Rauða krossi írans. ■ Slasaðir: Að minnsta kosti 60.000 manns Eftirskjálftar --------------------- Um 36 eftirskjálftar riðu yfir svæðið, nokkrir allt að 6 stig á Richter. Þar af uröu 22 á einum sólarhring. Styrkur ----------------------------------------------------------- Jarðskjálftar verða þegar landflekar mætast, spenna hleöst upp og höggbylgjur myndast. Richter-kvarðinn er mælikvarði á þá orku sem leysist þanrrig úr læöingi. Skjálftinn í íran mældist 7,3 stig. Skjálfta- miðja Rasht. 5,7 st. eftirskjálfti á mánudag ■ 7stig: Alvar- legur skjálfti, get- ur valdið miklu tjóni í þéttbýli ■ 8 stig: Mjög alvarlegur skjálfti, getur valdiö gífur- legum skemmdum Kelishom. Þar fannst fólk á lífi í gær, 6 dög- urr^ftri^kjálftanr^^ ! Landreksflekar íran er á tveimur landreksflekum. Skjálftar eru tíðir við mót slíkra fleka HEIMILDIR: U.S. Geological Survey. frétttaskeyti KRTN Reuter Ur til minningar um fjöldamorðin íKína Kínversk yfirvöld hafa gefíð kínverskum hermönnum úr til minning- ar um fjöldamorðin á Torgi hins himneska friðar í júní í fyrra. Á úrinu er mynd af hermanni með hjálm, hliðinu að torginu, ásamt áletruninni: „4. júní, 1989. Til minningar um þátt þinn í því að bijóta á bak aftur uppreisn gagnbyltingarsinna.“ Hermennirnir drápu hundr- uð eða jafnvel þúsundir manna, sem kröfðust lýðræðisumbóta í landinu. Tilslakanir Sovétmanna auka líkur á samningi Vínarborg. Reuter. SOVÉTMENN hafa samþykkt tillögu um hvernig staðið skuli að fækkun skriðdreka og brynvarðra liðsflutningavagna í Evrópu eftir að lokið hefur verið gerð svonefnds CFE-sáttmála um niðurskurð liðsaíla og vígtóla í álfúnni. Þykir þessi tilslökun Sovétstjórnarinnar auka líkur á því að sáttmáli í þá veru verði undirritaður á þessu ári. Vestrænir sendimenn er þátt taka í CFE-viðræðunum í Vínar- borg sögðu að Sovétmenn hefðu í gær fallið frá áður yfírlýstri and- stöðu við tillögu þá er fulltrúar Frakka og Pólverja höfðu lagt fram um leyfilegan hámarksfjölda skrið- dreka og liðsflutningavagna og hvaða farartæki skuli falla undir þá skilgreiningu. Tillagan gerir ráð fyrir jöfnuði á þessu sviði og verður Varsjárbandalaginu og Atlants- hafsbandalaginu hvoru um sig heimilt að ráða yfir 20.000 skrið- drekum og 30.000 brynvörðum liðs- flutningavögnum. í viðræðunum sem fram fara í Vínarborg með þátttöku 35 ríkja austurs og vest- urs hefur m.a. verið deilt um hvers kyns farartæki og drápstól skuli flokka undir hugtakið „skriðdreki". Vestrænir embættismenn sögðu að enn ætti eftir að ná sáttum um hámarksfjölda stórskotaliðsvopna INTERNATIONAL CLUB FOR THE WORLD'S RENEWAL MexdynapodnbLÚ Knyö cmopoHHUKOo M. C. Fop6c «3A OBHOÍ3JIEHME MHP CLUB FOR MICHAEL GORBACHEVS SUPPORTERS Félag stuðnings- manna Gorbatsjovs Félag stuðningsmanna Míkhaíls Gorbatsjovs var stofnað í Bolshoj- leikhúsinu í Moskvu í gær. Á myndinni stendur ungt fólk á svölum leikhússins en Sovétleiðtoginn mætti ekki á stofnfundinn. en töldu að það myndi reynast létt verk. Viðræðurnar taka einnig til flugvéla en þar mun mikið bera á milli. Stefnt er að því að ljúka gerð CFE-sáttmálans í ár og sögðust fyrrnefndir heimildarmenn ætla að líkurnar á að því takmarki yrði náð hefðu aukist. Er sáttmálinn liggur fyrir er stefnt að því að leiðtogar ríkjanna 35 komi saman til fundar til að ræða nýja skipan öryggis- mála í Evrópu. Hvalveiði- bannið gildi til aldamóta Genf. Reuter. Náttúruverndarsamtökin WWF hvöttu til þess í fyrradag að hvalveiðibannið yrði fram- lengt til aldamóta til að hvölum í útrýmingarhættu fjölgaði. „Það gæti haft hörmulegar af- leiðingar ef banninu yrði aflétt,“ sagði Elizabeth Kemf, fulltrúi WWF í Alþjóðahvalveiðiráðinu (IWC). Ársfundur ráðsins verður í næstu viku og verður þá rætt hvort fram- lengja skuli bannið. Kemf sagði að 13.650 hvalir hefðu verið veiddir frá því hvalveiðiráðið setti bannið árið 1986. „Örlög hvalanna ráðast á næsta fundi ráðsins þar sem Jap- anir, Norðmenn og íslendingar hafa beitt önnur aðildarríki gífurlegum þrýstingi," bætti Kemf við. ERLENT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.