Morgunblaðið - 28.06.1990, Side 4

Morgunblaðið - 28.06.1990, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1990 ísafiörður: Bessi landaði um 330 tonnum af úthafskarfa Bessi fær sömu ívilnanir varðandi grálúðukvóta og frystitogararnir ísafirði. FJÖLMENNI var þegar togarinn Bessi frá Súðavík kom til hafnar á ísafirði á þriðjudag með um 330 tonn af úthafskarfa, sem hann veiddi utan landhelginnar vestur af Reykjanesi. Togarinn landar í öll stóru frystihúsin á ísafirði, auk Súðavíkur, Bolungarvíkur og Flateyrar. Mikið hefur verið rætt um þenn- an karfa, sem að hluta er illa hald- inn af sníkjudýrum sem á hann setjast. Menn voru þó flestir á því að það sem komið væri upp úr skip- inu þegar fréttaritari Morgunbl^ðs- ins -kom á staðinn væri fallegasti fískur. Þetta er fyrsti túr skipsins á þessum veiðum og var hann jafn- framt að reyna nýja risaflotvörpu frá Engels í Þýskalandi, en það var einmitt Jóhann Símonarson sem fyrstur íslendinga náði árangri með flottroll 1974 á eldri Bessa. Það troll var reyndar einnig frá Engels í Þýskalandi. Útgerðin hefur lagt í verulegar fjárfestingar til þessara tilraunaveiða. Skipstjóri í veiðiferð- inni var Gunnar Arnórsson. Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að Bessi njóti sömu ívilnana varðandi grálúðukvóta og frystitog- arar hafa notið, það er að fá 10 tonna kvóta af grálúðu fyrir hvern veiðidag eftir sjö daga veiðar, þó að hámarki 14 daga eða sem sam- svarar 140 tonna kvóta. „Við höfum ekki neitað þessari útgerð um sambærilega fyrir- greiðslu. Hann hefur ekkert talað við mig þessi maður,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra, er borin voru undir hann ummæli Halldórs Jónssonar, útgerðarstjóra Bessa, um að skipið fái ekki grá- Morgunblaðið/Úlfar Úthafskarfínn skoðaður á bryggjunni á Isafirði. Hann fór til vinnslu í sex frystihúsum á Isafirði og í nágrenni. lúðukvóta eins og frystitogararnir. „Það er hins vegar óhugsandi að að allir fái þennan grálúðukvóta því grálúðustofninn er frekar veikut'. Þessum aðila hefur ekki verið neit- að um grálúðukvóta og það er ekki endilega allt rétt sem stendur í Morgunblaðinu,“ sagði sjávarút- vegsráðherra ennfremur. Hann sagði að ekki hefði verið minnst á þetta mál einu orði við sig fyrr en ísfisktogarinn Bessi var farinn til veiða. Hvað varðaði hin skipin þá hefði sú umfjöllun fyrir löngu átt sér stað og sér hefði með öllu verið ókunnugt um að til stæði að Bessi færi á djúpkarfaveiðar. Úlfar. VEÐUR VEÐURHORFUR í DAG, 27. JÚNÍ YFIRLIT í GÆR: Á vestanverður Grænlandshafi er hæðarhryggur, en 1010 mb smátægð skammt suður af Vestmannaeyjum þokast suðaustur. Austur við Noreg er víðáttumikii 990 mb lægð, sem hreyfist norðaustur. SPÁ: Norðlæg átt um land ailt, viðast gofa eða kaldi. Dálítil súld eða smáskúrir við norðausturströndina og suöur rneð Austfjörðum, en annars þurrt. Vfða léttskýjað um sunnan- og vestanvert landið. TÁKN: Heiðskírt x Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r # r * r # Slydda r # r # # * ## * * Snjókoma * * * -j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius Sj Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða 5, » Súld OO Mistur —J- Skafrenningur Þrumuveður kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hití veSur Akureyri Reykjavik S 9 halfskýjað Iétt8kýjað Bergen Heísinki 12 23 skýjað léttskýjað Knupmannahöfr 21 léttskýjað Narssarssuaq vantar Nuuk 5 ■ léttskýjað Ostó 19 skýjað Stokkhólmur 21 léttskýjað Þórshöfn :ali skýjað Algerve 23 léttskýjað Amsterdam 24 skýjað Barcelona 24 skúr Berlín 23 hálfskýjað Feneyjar 28 jjokumóða Frankfurt vantar Glasgow 16 skýjað Hamborg 22 skýjað LasPalmas 24 léttakýjað tondon tosAngeles 1 19 mlstur vantar Lúxemborg 27 léttskýjað Madrid 31 mistur Mataga 26 mistur Matlorca 31 léttskýjað Montreal 21 tóttakýjað NewYork Oriando ii s s Parfs Róm 28 skýjað ventar Vftt Washington 24 léttskýjað vantar Wmnipeg 29 skýjað Ekki gengið á skjön við ríkisstjómina - segir Halldór Ásgrímsson „ÉG TEL mig á engan hátt hafa gengið á skjön við samþykkt ríkis- stjórnarinnar frá 6. júní,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráð- herra, en Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra hefúr lýst því yfir að bréf ríkisstjórnarinnar til BHMR, þar sem ákveðið hefði verið að fresta leiðréttingu launa til félaga BHMR þann 1. júlí næst- komandi, hefði ekki verið í fullu samræmi við niðurstöður ríkis- stjórnarinnar. Halldór var starfandi forsætisráðherra á þeim tíma sem bréfið var sent. „Það var mat ríkisstjórnarinnar að hækkun á launum BHMR um þessi mánaðamót mundi valda rösk- un á hinum almennu launakjörum í landinu. Forystu BHMR var kynnt sjónarmið ríkisstjómarinnar en hins vegar hafði hún annað sjónarmið. Það er ekkert sem fram hefur kom- ið i þessu máli sem bendir til að sjónarmið ríkisstjórnarinnar stand- ist ekki, þvert á móti hefur það verið staðfest af viðbrögðum ann- arra aðila vinnumarkaðarins að slík hækkun myndi leiða til röskunar á launakjörum á hinum almenna markaði," sagði Halldór. Halldór sagði að BHMR-félögum hefði verið sent bréf þar sem þeim hefði verið kynnt að það væri mat ríkisstjómarinnar að þessi röskun myndi eiga sér stað með leiðrétt- ingu á launum þeirra og þar af leiddi sjálfkrafa að framkvæmd þessa hluta kjarasamnings ríkisins við BHMR yrði að fresta. Hlutaflárútboð Olís hf.: Sala hlutabréfa 145 milljónir SALA hlutabréfa í Olís nam um 65 milljónum króna í gær þegar hún hófst að nýju hjá Landsbréf- um hf. Hafa þá selst hlutabréf fyrir um 145 milljónir frá því á fimmtudag. Hlutaféð var selt á genginu 1,7 í gær og seldust bréf að naíhvirði fyrir 37-38 milljónir af þeim 50 milljónum sem fyrir- hugað er að selja í seinni áfanga hlutaQárútboðsins. Að sögn Dav- íðs Björnssonar, forstöðumanns þjá Landsbréíúm, er fastlega búist við að bréfin seljist upp í dag. Yfir 40 einstaklingar festu kaup á hlutabréfum Olís í gær en einnig bættust í hóp hluthafa tveir stofn- anafjárfestar. Nú hefur á þriðja hundrað aðila keypt bréf frá þvi útboð Olís hófst. Seljist afgangur bréfanna í dag hefur Olís aflað sér 170 milljóna í reiðufé í hlutafjárút- boðinu á einni viku. Ekki er hins vegar fyrirhugað að selja meira hlutafé á næstunni en heimild aðal- fundar er fyrir 60 milljóna hluta- fjáraukningu til viðbótar við þær 100 milljónir sem eru í þann veginn að seljast upp. Peningaskáp stolið HUNDRAÐ og fimmtíu kílóa peningaskáp var stolið í innbroti í Heildverzlun Péturs Péturssonar við Suðurgötu í fyrrinótt. Um 70.000 kr. í peningum voru í skápnum, auk ýmissa verðmætra skjala. Skápurinn er hvítur á lit og rúm- ur metri á hæð. Líkast til hafa ver- ið fleiri en tveir við innbrotið, því að hirzlan er engin smásmíði. Þjóf- arnir höfðu reynt að opna skápinn á staðnum, en gáfust upp við það og höfðu hann á brott með sér. í peningaskápnum voru víxlar, verðbréf, veðskuldabréf, ávísanir og fleiri verðmæt skjöl, sem tæp- lega nýtast þó þjófunum. Algengast er þegar peningaskápum er stolið, að þjófarnir aka með þá út fyrir bæinn og sprengja þá upp á afvikn- um stað, hirða peninga og önnur verðmæti, svo sem skartgripi, en láta sig skjöl engu skipta. Þeir, sem kynnu að hafa orðið varir við þjófana eða geta gefið upplýsingar um hvar skápurinn kynni að vera niður kominn, eru beðnir að hafa samband við Rann- sóknarlögreglu ríkisins. Nágrannar telja sig hafa heyrt í bíl við hús heildverzlunarinnar um tvöleytið um nóttina. f f » P f % I » * »

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.