Morgunblaðið - 28.06.1990, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1990
Stórkostlegt að
fá að taka þátt
í þessu starfi
-• segir Dagfinnur Stefánsson sem
flaug sjúkrahúsþotu á Karíbahafi
launakerfi háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna sem koma átti til
framkvæmda 1. júlí næstkomandi.
Þeir lýsa yfir fullri ábyrgð á hendur
ríkisstjórninni vegna þessarar
valdníðslu og aðfarar að frjálsum
samningsrétti háskólamanna. Þá
segir að prestarnir krefjist þess að
ríkisstjórnin hafi í heiðri þau sjálf-
sögðu mannréttindi lýðræðisþjóðfé-
lags að sjálfstæður samningsréttur
þeirra sé virtur. Þeir krefjast þess
að ríkisstjórn íslands felli einhliða
ákvörðun sína tafarlaust úr gildi.
Að sögn Jóns Dalbús skrifar megin-
þorri íslenskrar prestastéttar undir
yfirlýsinguna.
Þá tók forsætisráðherra við yfir-
lýsingunni og benti á að ríkisstjórn-
in ætti í viðræðum við forystumenn
BHMR. Hann sagðist vona að kom-
ist yrði að samkomulagi þannig að
allir nytu en ekki yrði ný verðbólgu-
alda. Að lokum afhentu fulltrúar
Kjarafélags arkitekta, Félags
íslenskra fræða og Kennarafélag
Kennaraháskóla íslands forsætis-
ráðherra sams konar yfirlýsingar
frá félögum sínum.
Frítekjumark ellilíf-
eyrisþega hækkar
um mánaðamótin
FRÍTEKJUMARK ellilífeyrisþega vegna tekjutryggingar hækkar nú
um mánaðamótin í samræmi við loforð ríkissljórnarinnar við gerð
kjarasamningana í vetur. Frítekjumark vegna tekna úr lífeyrissjóði
hækkar um 48,4%, en frítekjumark þeirra sem ekki hafa lífeysrisjóðs-
tekjur um 15,6%. Þeir sem hafa blandaðar tekjur njóta hlutfallslega
hækkunarinnar sem verður á hækkun frítekjumarks lífeyrissjóðs-
tekna.
Elli- og örorkulífeyrisþegar sem
hafa til viðbótar lífeyri almanna-
trygginga aðrar tekjur en lífeyris-
sjóðstekjur mega hafa 177.600
krónur á ári eða 14.800 krónur á
mánuði án þess að tekjurtrygging
skerðist. Hjá hjónum er samsvar-
andi upphæð krónur 248.640 krón-
ur á ári eða 20.720 krónur á mán-
uði. Tekjur úr lífeyrissjóði mega
vera 228 þúsund á ári án þess að
tekjutrygging skerðist eða sem
samsvarar 19 þúsund krónum á
mánuði og hjá hjónum eru samsvar-
andi upphæðir 319.200 á ári eða
krónur 26.600 á mánuði. Þeir sem
eru með blandaðar tekjur fá hlut-
fallslega hækkun frítekjumarks
þeirra sem hafa tekjur úr lífeyris-
sjóðum. Áður en til útreiknings
tekjutryggingar þeirra kemur skal
draga frá lífeyrissjóðstekjum við-
komandi krónur 50.400 eða 4.200
á mánuði hjá einstaklingum og
krónur 70.560 á ári hjá hjónum eða
5.880 krónur á mánuði.
Þessar reglur taka gildi um mán-
aðamótin júní/júlí og við útreikning
verður stuðst við framtalsgögn. I
frétt frá heilbrigðis- og tryggingar-
málaráðuneytinu segir að þess megi
vænta að einhver brögð séu að því
að skattaframtöl hafi ekki verið
rétt útfyllt þannig að lífeyrissjóðs-
tekjur séu skráðar sem almennar
tekjur. Það sé því mjög mikilvægt
að fólk fylgist mjög vel með því sem
fram kemur á greiðsluseðlum þess
frá Ti-yggingastofnun og komi á
framfæri athugasemdum ef ástæða
þyki til.
FYRIR skömmu kom Dagíínnur Stefánsson, fyrrum flugstjóri hjá
Flugleiðum, heim úr óvenjulegri fór til Karíbahafsins þar sem hann
flaug þotu fyrir hjálparsamtökin ORBIS milli Nicaragua og
Dómíníska lýðveldisins. Vélin er búin fullkomnum tækjum til augn-
lækninga, þ. á m. skurðstofú, og sinnir aðallega sjúklingum í þriðja
heiminum. „Það er stórkostlegt að sjá hverju þeir fá áorkað og fá
að taka þátt í þessu starfi,“ sagði Dagfinnur í samtali við Morgun-
blaðið. „Þörfin er gífúrleg í löndunum og þetta er oft eina von sjúkl-
inga á þessum slóðum um bata á lífsleiðinni, margir þeirra koma
beint úr frumskóginum." Dagfinnur hætti störfúm hjá Flugleiðum
fyrir hálfú öðru ári sakir aldurstakmarkana en hámarksaldur flug-
stjóra í atvinnuflugi á Islandi er 63 ár.
Umrædd þota samtakanna er af
gerðinni DC-8 21, um 30 ára göm-
ul en í mjög góðu ásigkomulagi.
Henni hefur verið breytt í fljúgandi
sjúkrahús, þó eingöngu til augn-
lækninga, og er tækjabúnaður af
fullkomnasta tagi. Henni hefur ver-
ið flogið sem svarar þrisvar um-
hverfis jörðina á vegum ORBIS-
samtakanna og haft viðdvöl í meira
en 60 löndum. ORBIS voru stofnuð
í Texas 1982, eru rekin af einkaaðil-
um og studd af ýmsum fyrirtækjum
og stofnunum, m.a. breska útvarp-
inu, hótelum og fleiri aðilum. Al-
gengast er að vélin sé um þrjár
vikur á hveijum stað. Gláka og
fleiri augnsjúkdómar herja á tugi
milljóna manna í þriðja heiminum
og víða er enginn tækjakostur eða
mannafli til lækninga.
Dagfinnur komst í samband við
Patrick Healy, flugrekstrarstjóra
ORBIS, með aðstoð Birnu Þóris-
dóttur hjá Flugleiðum en Healy er
kvæntur íslenskri konu, Gyðu Sig-
urðardóttur, vinkonu Birnu. Healy
og um tuttugu manna fast starfslið
ORBIS annast allan daglegan
rekstur sjúkraþotunnar en flug-
menn um allan heim, einkum
bandarískir og sumir á eftirlaunum,
taka að sér i sjálfboðaliðsvinnu að
fljúga henni milli staða. Þeir eru
kallaðirtil með skömmum fyrirvara.
Háskólakennsla um borð
Vélin var upprunalega í farþega-
flutningum fyrir United Airlines
sem gaf ORBIS hana og samtökin
létu breyta henni er starfsemin
hófst. Innlendir læknar á hveijum
stað velja sjúklinga til meðhöndlun-
ar og síðan eru færustu sérfræðing-
ar kallaðir til frá þekktum sjúkra-
húsum til að annast kannanir á
sjúklingum og aðgerðir en enginn
þeirra þiggur laun fyrir vikið. Oft
nýtist reynsla þeirra við rannsóknir
síðar meir. „Að þessu sinni störfuðu
í þotunni sjö eða átta sérfræðingar,
frá Filippseyjum, Thailandi,
Kanada, Englandi og Bandaríkjun-
um. Þeir unnu alveg frá kl. átta-
níu á morgnana og stundum fram
til sjö. Það er mjög mikilvægt að
aðgerðirnar eru teknar upp á mynd-
bönd og þau notuð til að kenna
augnlæknum í viðkomandi löndum
að meðhöndla sjúkdómana. Nokkrir
í senn geta líka fylgst með aðgerð-
um og útskýringum sérfræðing-
anna á sjónvarpsskjá í farþegarým-
inu. Þetta er eins konar háskóli.
Sömuleiðis er safn af fagbókum um
borð sem innlendu læknarnir geta
nýtt sér meðan á dvölinni stendur,"
segir Dagfinnur.
Morgunblaðið/KGA
Steingrímur Hermannsson tekur við yfírlýsingu prestanna úr hendi séra Jóns Dalbús Hróbjartssonar.
Kjarasamningar BHMR:
Prestar mótmæla írestimiiini
PRESTAR afhentu Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra yfir-
lýsingu, þar sem mótmælt er frestun ákvæða í kjarasamningum
BHMR, við stjórnarráðið i gærdag. Þá afhentu fúlltrúar Kjarafélags
arkitekta, Félags íslenskra lræða og Kennarafélags Kennaraháskóla
íslands forsætisráðherra sams konar yfirlýsingar frá félögum sinum.
í yfirlýsingu prestanna, sem Jón þeirri einhliða ákvörðun ríkisstjórn-
Dalbú Hróbjartsson las upp, segir ar íslands að slá á frest ákvæðum
að undirritaðir mótmæli harðlega í kjarasamningum aðila um nýtt
Fjórar nýjar kiljur
Islandslax:
Lax kyngreindur með sónar
ÍSLENSKI kiljuklúbburinn heftir
sent frá sér fjórar nýjar bækur.
Fyrra bindi Fávitans, eftir Fjodor
Dostojevskíj, í Unuhúsi, eftir Þór-
berg Þórðarson, Papalangi - Hvíti
maðurinn, og Litla systir, eftir
Raymond Chandler.
Fávitinn kom út árið 1868 í Rúss-
landi. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi
bókina úr rússnesku og hlaut fyrir
þýðinguna bókmenntaverðlaun DV
árið 1986.
í Unuhúsi er afrakstur ferðar
Þórbergs á fund Stefáns skálds frá
Hvítadal. Svo skemmtilegar þóttu
Þórbergi frásagnir Stefáns að hann
fékk að skrásetja þær.
Papalangi - Hvíti maðurinn, kom
fyrst út í Þýskalandi árið 1920 og
er að formi til ferðafrásögn frá Evr-
ópu, sögð af Samóahöfðingjanum
Tuiavii. Árni Sigurjónsson þýddi
bókina.
Litla systir, er skáldsaga um
frægustu persónu Chandlers, einka-
spæjarann Philip Marlowe. Þorberg-
ur Þórsson þýddi bókina.
Morgunblaðið/Fnraann Ólafsson
Sá stóri er eins og barn í höndum Þorláks Guðmundssonar starfs-
manns íslandslax. Laxinn vó 26 'h kíló og er stærri en Grímseyjarlax-
inn sem vó um 25 kíló.
Grindavík.
ÞAÐ VAR mikill buslugangur í
einu eldiskeranna hjá Islandslaxi
í vikunni þegar tveir starfsmenn
komu ofan í það og tóku hvern
laxinn á fætur öðrum og settu í
fískikar.
Tilgangurinn með þessu var að
renna löxunum í gegnum sónartæki
sem norski líffræðingurinn Egil
Reimers hefur þróað með það fyrir
augum að hægt sé að skoða fisk í
því. Með því er hægt að sjá hvers
kyns fiskurinn er og meta kyn-
þroskastig hans.
„Við misstum töluvert- af klak-
fiski framhjá okkur síðastliðið haust
því engin ytri merki sjást á laxinum
hvort um er að ræða hæng eða
hrygnu,“ sagði Friðrik Sigurðsson
sem er nýtekin við framkvæmda-
stjórn Islandslax hf. „I ljósi þess
var tekin sú ákvörðun að reyna að
skoða fiskinn og meta bæði kyn og
kynþroskastig og því fengum við
Egil Reimers til að koma með sónar-
tæki sem hann hefur þróað. Norð-
menn hafa notað þessi tæki með
góðum árangri. Egil segir að þessi
greining sé óbrigðul en til dæmis
er hægt að kyngreina fisk með
berum augum í 60% tilfella.“
Egil Reimars hefur útbúið rennu
fyrir laxinn og á einum stað fer
laxinn yfir geisla og innanmyndir
af honum koma á skjá eins og á
venjulegu sónartæki. Þar er hægt
að sjá hvers kyns laxinn er og hvort
hann sé kynþroska.
Páll Stefánsson stöðvarstjóri átti
hugmyndina að því að fá þessi tæki
til landsins og sagði hann við Morg-
unblaðið að mikilvægt væri að geta
sagt til um hvort hrygnur væru
kynþroska því þær ieita eftir því
að hrygna þegar svo væri. Þær leita
að hentugum stað til að hrygna sem
finnst ekki nema í náttúrulegu
umhverfi. Því hættu þær við að
hrygna og gætu í versta falli drep-
ist.vegna þess. Nú er hinsvegar
hægt að taka þær frá og kreista
hrognin úr þeim í haust.
„Við erum með góðan klakfisk
og því er gott að geta tryggt tekjur
með því að selja hrogn og einnig
erum við með stóra eldisstöð. Við
stefnum náttúrulega af hámarks-
nýtingu því eftirspurnin er meiri
en framboðið og við vildum vera
með meiri lax í stöðinni. Starfsemin
er rekin sem þrotabú sem setur
henni ákveðnar skorður en ég er
bjartsýnn á framhaldið," sagði Frið-
rik að lokum.
FÓ