Morgunblaðið - 28.06.1990, Page 27
:
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JUNl 1990
27
Ólympíuleikar þroskaheftra í Glasgow:
*
14 Islendingar meðal þátttakenda
Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Washington.
RÚMLEGA 2.200 þátttakendur og auk þess frá
frá 30 Evrópuþjóðum taka þátt
í Olympíuleikum þroskaheftra,
sem að þessu sinni eru haldnir
í hafharborginni Strathclyde,
sem er hluti af Glasgow, dagana
21.-27. júlí. 14 íslendingar taka
þátt í leikunum en það er í
fyrsta skipti sem keppt er á
þeim fyrir íslands hðnd.
í tilkynningu frá aðalstöðvum
Ólympíuleika þroskaheftra, sem eru
staðsettar hér í Washington, er
þess getið, að þátttakendur séu frá
30 þjóðum, þar á meðal frá íslandi
Tékkóslóvakíu,
Ungverjalandi, Sviss,
Sovétríkjunum og Eystrasaltsríkj-
unum.
Ólympíuleikar þroskaheftra eru
eina alþjóðaíþróttamótið, annað en
hinir reglulegu Ólympíuleikar, sem
hefir leyfi til að nefna sig Ólympíu-
leika.
Félög, sem eru tengd Ólympíu-
leikum þroskaheftra, eru nú starf-
andi með 90 þjóðum. Fyrstu leik-
arnir voru haldnir í Belgíu 1981 og
síðan í Dublin á írlandi 1985. Stofn-
andi Ólympíuleika þroskaheftra var
Eunice Kennedy Shriver, systir
Johns F. Kennedy Bandaríkjafor-
seta. Systir þeirra, Rosemary, hefir
verið vangefin frá fæðingu.
Háskóla-
hátíð á
laugardag
HÁSKÓLAHÁTÍÐ verður haldin í
Háskólabíói laugardaginn 30. júni
kl. 14 og fer þar fram brautskrán-
ing kandidata.
Athöfnin hefst með því að Hljóm-
skálakvintettinn leikur nokkur lög.
Háskólarektor, dr. Sigmundur Guð-
bjamason, ræðir málefni Háskólans
og ávarpar síðan kandídata. Deildar-
forsetar afhenda kandídötum
prófskírteini. Að lokum syngur Há-
skólakórinn nokkur lög undir stjórn
Guðmundar Óla Gunnarssonar.
Að þessu sinni verða brautskráðir
339 kandídatar og skiptast þeir
þannig: embættispróf í guðfræði 5,
embættispróf í læknisfræði 30, BS-
próf í læknisfræði 1, kandídatspróf
í lyfjafræði 11, BS-próf í hjúkrunar-
fræði 38, BS-próf í sjúkraþjálfun 11,
embættispróf í lögfræði 29, kandíd-
atspróf í ensku 1, BA-próf í heim-
spekideild 39, próf í íslensku fyrir
erlenda stúdenta 5, lokapróf í bygg-
ingaverkfræði 7, lokapróf í vélaverk-
fræði 13, lokapróf í rafmagnsverk-
fræði 12, kandídatspróf í viðskipta-
fræðum 62, BS-próf í hagfræði 1,
kandídatspróf í tannlækningum 5,
BA-próf í félagsvísindadeild 32,
MS-próf í jarðeðlisfræði 1, BS-próf
í raunvísindadeild 36.
Atriði úr kvikmyndinni „Horft um öxl“ sem sýnd er í Háskólabiói.
Horft um öxl í Háskólabíói
HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til
sýninga kvikmyndina „Horft um
öxl“ (Flashback) með Dennis
Hopper, Kiefer Sutherland, Car-
ol Kane og Cliff De Young í aðal-
hlutverkum. Leikstjóri er Franco
Amurri.
Myndin fjallar .um ungan FBI-
mann, John Buckner, sem fær það
hlutverk að fylgja Huey Walker í
fangelsi, en að honum hefur FBI
leitað í 20 ár. Þeir fara með Iest
og með prettum tekst Huey að hafa
hlutverkaskipti við John og er hon-'
um stungið í fangelsi í stað Hueys.
„John er læstur í fangaklefa meðan
beðið er eftir annarri lest en Huey
fer á næstu krá. Þar kemst hann
í kynni við tvo menn á sínu reki
sem báðir eru að rifja upp háskóla-
árin og aðild sína að hippahreyfing-
unni. Þeir slá því föstu að Huey sé
FBI-maður með æskuhetjuna, Huey
Walker, í haldi. Þeir afráða að ræna
honum og skipta á honum og hinum
raunverulega FBI-manni.“ „En
margt fer öðruvísi en ætlað er.
Þeir John og Huey eiga fótum
sínum fjör að launa en í ljós kemur
að þeir eru staddir á slóðum sem
John þekkir dável,“ segir í frétt frá
' kvikmyndahúsinu.
FISKVERÐ AUPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
27. júní.
FISKMARKAÐUR hf. f Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 85,00 69,00 83,21 63,505 5.200.870
Þorskur(st.) 77,00 77,00 77,00 0,071 5.467
Smáufsi 20,00 20,00 20,00 0,005 100
Ýsa 94,00 75,00 89,40 32,443 2,900.449
Karfi 34,50 29,00 33,40 51,354 1.715.023
Ufsi 44,50 44,50 44,50 3,419 152.130
Steinbítur 69,00 69,00 69,00 0,490 33.810
Langa 43,00 43,00 43,0Ó 0,143 6.149
Lúða 285,00 285,00 285,00 0,005 1.425
Koli 52,00 52,00 52,00 0,800 41.597
Keila 20,00 20,00 20,00 0,101 2.020
Samtals 66,47 151.336 10.059.040
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur(sL) 103,00 69,00 88,61 31,662 2.805.425
Þorskur(smár) 73,00 73,00 73,00 0,786 57.378
Ýsa(sl.) 120,00 68,00 86,77 27,521 2.388.028
Ýsa(ósL)
Karfi 33,00 29,00 30,25 14,948 453.654
Ufsi 48,00 40,00 45,97 9,238 424.654
Steinbítur 68,00 40,00 48,82 0,561 27.388
Langa 45,00 45,00 45,00 0,650 29.250
Lúða 400.00 255,00 310,75 0,166 51.585
Skarkoli 46,00 46,00 46,00 1,571 72.266
Skötuselur 300,00 300,00 300,00 0,015 4.500
Undirmál 68,00 20,00 51,30 0,299 15.-340
Samtals
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 100,00 70,00 77,64 21,898 1.700.141
Ýsa 100,00 67,00 85,83 1,773 152.176
Karfi 34,00 27,00 31,05 10,220 317.344
Ufsi 40,00 27,00 39,75 5,591 222.268
Steinbítur 56,00 56,00 56,00 0.216 12.096
Hlýri/Steinb. 50,00 50,00 50,00 0,084 4.200
Langa 46.00 46,00 46,00 0,172 7.912
Lúða 255,00 200,00 218,32 0,445 97.043
Skarkoli 55,00 36,00 47,40 2,987 141.593
Sólkoli 72,00 72,00 72,00 0,029 2.088
Grálúða 60,00 60,00 60,00 0,339 20,340
Keila 39,00 39,00 39,00 0,484 18.876
Naskata 10,00 10,00 10,00 0,023 230
Skata ' 75,00 63,00 73,33 2,473 181,349
Skötuselur 375,00 100.00 209,51 0,113 23.675
Öfugkjafta 15,00 15,00 15,00 0,181 2.715
Langlura 15,00 15,00 15,00 0,049 735
Koli 30,00 30,00 30,00 0,020 600
Samtals 61,69 47,097 2.905.381
Engin skýring
á ljósagangi
ENGIN skýring hefur fengizt á
hvíta ljósinu, sem sást blikka í
Esjunni við Kistufell á þriðju-
dagskvöld
Lögreglumenn fóru samkvæmt
ábendingu íbúa í Grafarvogi að leita
að orsök ljósagangsins. Þeir gengu
upp í hlíðina á þeim stað, er ljósið
hafði sézt, en fundu ekkert athuga-
vert.
Eru
þeir að
fá 'ann
-?
Einstakt í Ytri-Rangá
TÍU myndarlegir laxar fengust
í gær á eina stöng úr Ægisíðu-
fossi í Ytri-Rangá, sem er ein-
stakt met. Laxarnir voru allir
10-13 ’/j pund. Veiði hefur verið
að glæðast í Ytri- og Eystri-
Rangá undanfarin ár, og telja
menn að rekja megi það til göngu-
seiðasleppinga 1988. 120 laxar
fengust úr Ytri-Rangá í fyrra, sem
var met.
Glæðist í Lanará
„Allra síðustu daga hefur all
mikið af laxi gengið í ána, en
tökur verið í minna lagi enda hef-
ur verið mikill kuldi. Til dæmis
var hér aðeins eins stigs lofthiti
í nótt og áin köld eftir því. Þann-
ig hefur laxinn farið að gefa sig
er liðið hefur á daginn," sagði
Runólfur veiðivörður við Langá í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Þá voru komnir milli 40 og 50
laxar á land og að jafnaði fímm
laxar veiðst á degi hveijum að
undanförnu. Reikna má við mikl-
um kipp þegar hlýnar að ráði, því
laxinn er kominn í töluverðum
mæli. Runólfur bætti við að laxinn
væri bæði vænn og smár í bland,
sá stærsti 15 punda og veiddist
hann á fluguna Garry nr. 14 í
Túnstreng á mánudaginn. Fiinm
merktir smálaxar úr gönguseiða-
sleppingu í fyrra hafa þegar veiðst
og sagði Runólfur það lofa góðu
með heimtur í sumar. Þá er þess
að geta, að fyrstu laxarnir á Fjall-
inu svokallaða veiddust um
síðustu helgi. Einn áreigendanna
á þeim slóðum dró þá tvær 10
punda hrygnur á flugu á svokall-
aðri Hrafnseyri sem er nýnefni á
Kleifsáskvörn á neðsta veiðisvæði
Fjallsins.
Þverá kemur til
Starfsstúlka í veiðihúsinu að
Helgavatni við Þverá sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að
veiðin hefði glæðst í ánni síðustu
daga og alls væru komnir um 350
laxar á land. Enn sem komið er
er nær eingöngu um stórlax að
ræða, lítið bólar á smálaxinum.
Sá stærsti í sumar var 20 punda.
Lax víða í Svartá
Friðrik D. Stefánsson fram-
kvæmdastjóri Stangaveiðifélags
Reykjavíkur hafði eftir árnefndar-
mönnum SVFR sem opnuðu
Svartá í byrjun vikunnar, að tveir
Þokkalegasta veiði hefur verið
í Laxá í Leirársveit að undan-
fornu. Hér er Jón Jónsson með
fallega dagsveiði, 5 laxa, þar
af tvo 15 punda sem hann held-
ur á. Hinir þrír um og yfir 10
pund.
laxar hefðu veiðst 9 og 11 punda
og lax hefði sést víða um ána,
ekki síst ofarlega og er það at-
hyglisvert því Svartárlaxinn á
langa leið fyrir höndum er hann
leggur af stað úr flæðarmálinu
við Blönduósa og til heimaár
sinnar. Hefur hún því ævinlega
verið í hópi hinna svokölluðu
„síðsumarsáa“ eins og veiðimenn
nefna það. Friðrik sagði að 40
laxar hefðu verið „afgreiddir“ af
fiskifræðingum í kistu í laxastig-
anum í Ennisflúðum í Blöndu, sem
sagt vegnir, mældir, hreistur-
skafnir og síðan merktir. Laxarn-
ir sem árnefndarmennirnir veiddu
voru hins vegar ómerktir og hafa
því brotist upp flúðirnar en huns-
að laxastigann. Spurning hversu
mikið af fiski hefur farið að dæmi
umræddra laxa.
Hér og þar
Nokkrir laxar hafa þegar veiðst
í Brynjudalsá í Hvalfirði og taldist
til tíðinda að sá fyrsti veiddist á
opnunardaginn og vó 15 pund sem
þykir nánast ófreskja í þeirri smá-
laxaá. Fleiri í sama þyngdarflokki
sáust en náðust ekki.
Fregnir herma að milli 20 og
30 laxar hafi veiðst í Laugardalsá
við Djúp og sé alllangt síðan lax-
inn gekk í ána. Lax gengur furðu
snemma upp í svo norðlæga á,
en hún er jöfn að vatnsmagni og
ekki eins köld og ætla mætti.
Þau tíðindi berast einnig norð-
an úr Vatnsdal, að rúmlega 50
laxar séu komnir á land. Þar byij-
aði veiðin heldur illa, en hefur
verið að glæðast.