Morgunblaðið - 28.06.1990, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JUNI 1990
29
íYiurgrmuiauiu/ Eiiiiar raiur
Formenn norrænna prestafélaga þinga í safiiaðarheimili Laugarnessóknar.
Kirkjan:
A
Norrænt prestaþing á Islandi
ÁRLEGUR fundur formanna og
framkvæmdastjóra prestafé-
laga á Norðurlöndunum fór
fi-am í safnaðarheimili Laugar-
nessóknar laugardaginn 23.
júní.
Að sögn Valgeirs Ástráðsson-
ar.fráfarandi formanns Prestafé-
lags ísland, voru launamál presta
meðal umræðuefna á fundinum.
Þar kom meðal annars fram
að sænska kirkjan hefur tekið við
launamálum sænskra presta og
væri það mjög til bóta fyrir stétt-
ina. Breytingin er liður í átt að
aðskilnaði ríkis og kirkju. Þá kom
fram að íslenskir prestar byggju
við verri launakjör en prestar á
hinum Norðurlöndunum. Á fund-
inum var einnig rætt hvernig
meta bæri langan vinnudag presta
og þess minnst að þetta atriði
hefði sérstaklega verið bókað í
kjarasamningum BHMR. Að auki
var fjallað um álti ráðherranefnd-
ar Norðurlandaráðs um samhæf-
ingu til starfa á Norðurlöndunum.
Á aðalfundi Prestafélags ís-
lands á mánudag tók séra Jón
Dalbú Hróbjartsson við for-
mennsku af séra Valgeiri Ástráðs-
syni.
Staðarfellshátíð um helgina
HIN ÁRLEGA sumarhátíð
Styrktarfélags Staðarfells verð-
ur haldin helgina 29. júní til 1.
júlí. Þetta er sjötta hátíðin sem
Styrktarfélagið stendur fyrir.
Hátíðin verður sett á föstudags-
kvöldi kl. 22.
Meðal skemmtiatriða á hátíðinni
er hljómsveit Rúnars Júlíussonar
sem heldur uppi fjöri fyrir börn og
fullorðna. Einnig verður diskótek á
föstudagskvöldinu og varðeldur.
Sérstök leikjadagskrá verður fyrir
börnin. Hin árlega íþróttakeppni
verður svo á laugardeginum. Áð-
gangseyrir er 3.000 krónur og frítt
fyrir börn yngi'i en 16 ára.. Fríar -r.
rútuferðir verða frá Síðumúla 3-5
kl. 18 á föstudagskvöldi.
Tilgangur félagsins er m.a. að
styrkja starfsemina á Staðarfelli og
hefur það verið gert með gjöfum,
s.s. brunavarnakerfi, rúmum, hús-
gögnum og heimilistækjum. Einnig
hefur félagið staðið fyrir tónleikjum
og dansleikjum til fjáröflunar.
Morgunblaðið/PPJ
Fáfiiir Frostason úr Reykjavík, býst til ferðar á Dornier-flugvél sem
notuð hefur verið til að flytja vistir til leiðangursins á Grænlandsjökli.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Það þurfti tvo menn til við að koma urriðanum í kerið.
Atvinnusýningin á Selfossi:
20 punda urriði og
30 punda lax í keri
STÓRIR fiskar og smáir eru til
sýnis í fískabúri á atvinnusýning-
unni á Selfossi. Fiskarnir eru
fengnir úr fískeldisstöðvum í Ölf-
usi og Þorlákshöfn.
í gær komu í búrið 30 punda lax
og annar 20 punda auk smærri
fiska. Þá verða einnig álar í kerinu
sem veiddir voru í Flóanum. Urrið-
inn var frekar ósamvinnuþýður þeg-
ar setja átti hann í búrið og tvo
menn þurfti til með háf.
Sýningin er opin kl. 16-22 virka
daga og kl. 14-22 um helgar.
- Sig. Jóns.
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Leiðangurinn á Grænlandsjökli:
Veður og bilanir tefla
uppgröft flugvélanna
RYSJÓTT veðrátta og bilanir hafa
tafið uppgröft bandaríska leitar-
flokksins á Grænlandsjökli, sem
hyggst heimta úr fielju sprengju-
flugsveit sem legið hefur grafin í
ísnum í 48 ár. Krapi og vatn und-
ir yfirborði jökulsins gerir leið-
angursmönnum erfitt fyrir við
gröftinn. Samkvæmt upplýsingum
blaðsins hafa sigmenn skoðað
hreyfla og væng einnar Boeing
B-17 sprengjuvélanna. Hún virðist
í góðu ásigkomulagi. Stefiit er að
því að ná vélunum í flughæfu
ástandi af jöklinum. Vonast leið-
angursmenn til þess að ein eða
tvær vélar verði grafnar upp í
sumar.
Vinna við uppgröftinn hefur á
stundum legið niðri svo dögum skipt-
ir. Gerir áhlaup sem standa 2-3 daga,
en þess í milli gefst tóm til vinnu.
Leiðangursmenn, sem eru 20 talsins,
hafa myndað tvo vinnuhópa. Fæst
annar við að rannsaka ástand Boeing
B-17 vélarinnar sem grafið hefur
verið niður á, en hinn hópurinn hefur
hafist handa við að grafa upp Lock-
heed P-38 flugvél. í flugsveitinni
voru átta flugvélar.
Grafið var niður á B-17 vélina
með bor, sem leiðangursmenn kalla
moldvörpu. Hann sker ísinn með
heitri vatnsbunu og myndar holu sem
er rétt nægilega breið fyrir sigmenn-
ina til þess að komast að flugvél-
inni. Þeir þurfa að síga 85 metra
niður í jökulinn, sem svarar 28 hæða
húsi, og hafa aðeins týru á hjálmi
til að lýsa sér. Vatn fossar í sífellu
niður í holuna. Ferðin upp og niður
tekur 3-4 klukkutíma.
P-38 vélin verður hinsvegar grafin
upp með stórvirkara vinnutæki. Myl-
ur það ísinn í svarf sem feija þarf
upp á yfirborðið. Gerð verður rúm-
lega fimm metra breið hola, 85 metra
djúp. Uppgröfturinn er nú tæplega
hálfnaður. Leitarmenn eru komnir
niður á mikið krapalón undir ísnum
og reynist bæði erfitt og seinlegt að
moka því og dæla á yfirborðið.
Þá hefur bilun í Douglas DC-3
flugvél, sem leitarmenn hugðust nota
til að flytja vistir, tafið framgang
verksins. Eldsneyti og varahluti hef-
ur vantað í borana sem notaðir eru
við uppgröftinn. Undanfarna daga
hefur þyrla flutt vistir á jökulinn, en
á fimmtudag fór Dornier-flugvél úr
Reykjavík til Kulusuk sem notuð
verður til birgðaflutninganna.
■ NÝTT ferðakort er komið út
hjá Landmælingum íslands. Kort
þetta, sem er í mælikvarðanum
1:750.000, sýnir allt landið á einu
blaði, vegakerfi þess og helstu þjón-
ustustaði fyrir ferðamenn. Á kort-
inu eru einnig upplýsingar um
sýsluskiptingu, veðurfar og jarð-
fræði landsins. Vegakerfið er flokk-
að eftir gerð slitlags og sýnir sér-
staklega vel vegi með bundnu og
óbundnu slitlagi, Auk þess eru gefn-
ar upp vegalengdir milli helstu
staða. Kortið er unnið af Landmæl-
ingum íslands og er með fjalla-
skyggingu sem gerð var sérstak-
lega fyrir þessa útgáfu. Kortið er
prentað í sjö litum og er stærð þess
95x60 cm. Verð kortsins er 489
krónur og fæst það á kortasölustöð-
um um land allt, svo og í kortaversl-
un Landmælinga Islands á Lauga-
vegi 178.
Diskar, bakkar og ----
Vandaðar og veglegar brúða
5% staðgreiðslu afsláttur - Póstsendum
KOSTA BODA
KRINGWN
KBIHeNH Sími 689122
Ármúla 42, s. 82990.
Bðnusbitinn
TILBOD
HAMB0RGARI,
FRANSKAR OG PEPSI
aðeins 299,-