Morgunblaðið - 28.06.1990, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23; JÚNÍ 1990
+
Bróðir okkar,
SIGURÐUR RÖGNVALDUR HALLDÓRSSON
t frá Hraungerði, Álftaveri,
Stigahlíð 8,
andaðist í Borgarspítalanum 26. júní.
Systkini hins látna.
Móðir okkar,
KRISTJANA HANNESDÓTTIR,
Hamarsbraut 17,
Hafnarfirði,
lést á Sólvangi 26. júní.
Hulda Hansen,
Vilborg Áslaug Sigurðardóttir.
+
Faðir okkar,
EINAR VIGFÚSSON,
Fil.dr.,
lést þann 26. júní í Karlskrona, Svíþjóð.
Sólveig,
Guðrún,
Helga.
+
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JENS HANSSON,
Eiriksgötu 13,
Reykjavik,
lést á heimili sínu 25. júní.
Hans Þór Jensson, Hjördís Sigurðardóttir,
Sverrir Jensson, Dorothea Róbertsdóttir,
Hafstein Jensson
og barnabörn.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
BJARNHEIÐUR DANÍELSDÓTTIR
frá Auðsholti, Grindavík,
Hamrahlíð 17,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum þriðjudaginn 26. júni.
Einar Indriðason,
Daníel Einarsson, Sigriður Jóhannsdóttir,
Birna Bjarnadóttir, Daníel Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Sonur minn og bróðir okkar,
/ ARI INGÓLFSSON
eðlisfræðingur,
Laugavegi 135,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 29. júní kl. 10.30.
Guðrún M. Snæbjörnsdóttir,
Guðrún P. Richter, Valur Richter,
Þorsteinn Richter, Kristinn Richter.
+
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GÍSLI SIGURBJÖRNSSON,
Grund,
Súðavik,
sem lést miðvikudaginn 20. júní, verður jarðsunginn frá Súðavíkur-
kirkju föstudaginn 29. júní kl, 14.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
GUÐMUNDAR ÞÓRARINSSONAR,
fv. verkstjóra í Hamri hf.,
Stýrimannastíg 13,
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 29. júní kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent a Hjartavernd.
Lovísa Jóhannsdóttir,
Þórarinn Guðmundsson, Anna Kjartansdóttir,
Jóhann Guðmundsson,
Anna Guðmundsdóttir Balle, Viggó Balle
og barnabörn.
Ingibjörg Jóhanns-
dóttir - Kveðjuorð
‘Fædd 2. desember 1913
Dáin 13. júní 1990
Undrandi varð ég er fréttin um
lát Ingibjargar barst okkur, þó að
alltaf megi maður búast við „kall-
inu“, en fæstir eru þó tilbúnir þeg-
ar þar að kemur.
Hún hafði ekki gengið heil til
skógar og höfðu ýmsir krankleikar
og áföll gert henni lífið erfitt.
Faðir minn, Bergsveinn Guð-
mundsson, kvæntist Ingibjögu árið
1965, en þá höfðu foreldrar mínir
verið skilin í 3 ár. Ekki eru mörg
ár síðan ég skildi hvað þessi ár
voru mér erfið tilfinningalega.
Við pabbi áttum margt sameigin-
legt, vorum lík í okkur og á, músík-
in yljaði okkur og náttúra landsins
var okkur hugstæð.
Þegar ég kvaddi dyra á heimili
þeirra Ingibjargar var hún ávallt
með opinn faðminn og bauð okkur
svo innilega velkomin; við vorum
það og kunnum vel við okkur. Gam-
an var að sjá hvað hún dekstraði
við Begga sinn.
Fljótlega eftir að ég fór að kynn-
ast henni eitthvað að ráði, fann ég
að gott var að tala við hana um
allar hliðar mannlífsins og ekki má
gleyma því besta í fari hennar,
kærleikanum og um leið sáttfýsinni.
Aldrei fann maður beiskju hjá
henni í garð nokkurs manns, þess
vegna hlýtur heimkoman að vera
henni góð, að vera sátt við allt og
alla.
Eg man hve ljúflega hún lét okk-
ur pabba eftir þráðar samveru-
stundir eftir langan aðskilnað, þar
sem við gátum rabbað um eilífðar-
málin, sungið dálítið og uppgötvað
listilega fögur ljóð og orð.
Ég dvaldi hjá þeim nokkru áður
en faðir minn dó, þann tíma gat
hún gert okkur ógleymanlegan.
Síðan dvaldi ég hjá henni vikutíma
um það leyti sem hann var jarðsett-
ur. Þá kynntist ég henni betur og
við nutum hvor annan'ar vel. Hún
kunni að hlusta, laus við að stjórna,
virti skoðanir allra og reyndi að
^skilja þær.
Þá kom ég í fyrsta sinn inn á
kaffistofu Hótels Borgar og við
fengum okkur þar kaffi og ijóma-
pönnukökur. Þau pabbi og Bíbí,
eins og hann kallaði hana, kunnu
þá list að njóta þess að fara á kaffi-
hús og þá fylgdi góður vindill með
hjá pabba.
Þetta var yndislegur tími og aldr-
ei leiddist okkur. Ég fann hvað
henni var hlýtt til okkar allra systk-
inanna og hugsaði til okkar eins
og við værum hennar eigin börn
og alls sem okkur fylgdi.
Megi ljós kærleikans lýsa Ingi-
björgu á vegi eilífðarinnar.
Guð blessi hana.
Gréta Berg og fjölskylda
Gunnlaug Einars-
dóttir — Kveðjuorð
Fædd 9. janúar 1922
Dáin 9. júní 1990
Fregnin um andlát Gunnlaugar,
eða Laugu, eins og hún var oftast
kölluð í okkar hópi, kom eins og
þruma úr heiðskíru lofti. Eftir ófá
tárin spyr maður sjálfan sig, —
hvers vegna hún? — en fær engin
svör. Vegir Guðs eru órannsakan-
legir.
Lauga var alltaf tilbúin að rétta
hjálparhönd og húsaskjól, jafnvel
þó að það væri yfirdrifið nóg að
gera hjá henni. Manni kom það
ekki á óvart, að hún væri að búa
til sultu og sjóða slátur samtímis.
Ég sá hana yfirleitt aldrei aðgerðar-
lausa. Þau hjónin hafa unnið hörð-
um höndum saman fyrir lífinu og
tilverunni, og kynnst mörgu mis-
jöfnu um dagana. Aldrei var barna-
hópur lagt undan, þeirra eigin börn,
bamaböm þeirra, fósturböm,
frændur eða frænkur eða við, systk-
ini mín.
Ekki hvarflaði það að okkur
hjónaleysunum, þegar þau komu í
áttræðisafmælið hans Éyfa frænda
í vor, að það yrðu síðustú samveru-
stundir okkar með Laugu. að sjálf-
sögðu kom hún í afmælið með
gómsætt heimabakkelsi méð sér.
Fyrr í vor komu Lauga og Þörarinn
í heimsókn til okkar Jóns á Akra-
nes, og verður mér það minnis-
stætt. Eg varð svo ánægð hvað þau
sváfu vel í gamla rúminu mínu,
hvað þeim féll vel útsýnið til Snæ-
fellsjökuls, sem er okkar aðalstofu-
stáss og hvað þau vom ánægð með
allt sem við gátum fyrir þau gert.
Hún gat glaðst yfir Iitlu, hún Lauga,
og kunni tökin á því að gleðja aðra
með þakklæti sínu og áhuga. Það
er ungu fólki mikils virði að kynn-
ast slíku kostafólki í uppvextinum,
og er ég þakklát forsjóninni að
hafa fengið að verða aðnjótandi
þess.
Elsku Þórarinn frændi, Silli og
Ási, og fjölskyldur ykkar, Emil Þór
og Linda, mamma og amma, og
aðrir ættingjar, við Jón vottum ykk-
ur okkar dýpstii samúð á þessari
sorgarstundu. Ég veit að djúpt
skarð hefur verið höggvið í fjöl-
skylduna við skyndilegt fráfall svo
dugmikillar konu sem hún Lauga
var.
Blessuð sé jninning hennar.
Þórný Á. Þorsteinsdóttir
+
Faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
EGGERT MAGNÚSSON,
Túngötu 46,
Tálknafirði,
er andaðist 19. júni, verður jarðsunginn frá Stóra-Laugardals-
kirkju föstudaginn 29. júní kl. 14.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
VIGGÓ R. JESSEN,
vélfræðingur,
Grenimel 6,
lést 22. júní.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 2. júlí kl. 15.00.
Hulda R. Jessen,
Inger R. Jessen, Jóhann Axelsson,
Kristján R. Jessen, Rhona Pearson,
Viggó K. Jessen Jóhannsson.
+
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför elskulegrar móðursystur minnar,
VILHELMÍNU MARKAN,
Hringbraut 65,
Reykjavík.
Sigvaldi Friðgeirsson.
+
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður og afa,
SVEINBJÖRNS KRISTJÁNSSONAR,
Hringbraut 50.
Sofffa Jóhannesdóttir,
Jóhanna Sveinbjörnsdóttir,
Hálfdán Sveinbjörn Kristinsson,
Jóhannes Agnar Kristinsson.
i
i