Morgunblaðið - 28.06.1990, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1990
-^iauxiaailiríiiiiMrTii, .......
„Sénftt/er þessarza. /o /neJmæiefidki,
sem þá bentírot/tz/r á, aéfrá
óta/ctaÓCr /tonum pert/nga. -"
. . . að þvo upp án þess að
vera beðinn um það.
TM Rog. U.S. Pat Off —all rights raservod
® 1990 Los Angeles Times Syndicate
Með
morgimkaffinu
MO WfNá-
Blessuð, þvoðu heldur bílinn
í þessu yndislega veðri...
Pouux 1 I' 1 'I 639
Þú ert í einhverjum vafa-
sömum hugleiðingum, vin-
ur, að dansa við mig hér úti
á svölunum.
■>
HÖGNI HREKKVÍSI
Þessir hringdu
Týndi úri
- Ungur piltur týndi Seikó-karl-
mannsúri, líklega einhvers staðar
í Fossvogi eða við Fossvogsskóla.
Þetta er stórt stálúr og er finnandi
vinsamlega beðinn að hringja í
síma 681864.
Kettlingar
Fimm kettlingar fást gefins.
Þeir sem hafa áhuga hringi í síma
45020.
Fann lyklakippu
Lyklakippa með tíu lyklum
fannst á herni Holtavegar og
Suðuriandsbrautar. Eigandi getur
vitjað þeirra í síma 82636 milli
kl. 19 og 21.
Kettlingar
Tveir gulbrúnir kassavanir
kettlingar fást gefins. Upplýsing-
ar í síma 680936.
Svört læða týnd
Svört síamsblönduð læða með
svarta ól og rauða nafnplötu týnd-
ist frá Barmahlíð 38. Þeir sem
hafa séð til læðunnar hringi í síma
19695 eftir kl. 18.
Köttur í óskilum
Svartur og hvítur köttur er í
óskilum. Upplýsingar í síma
26023.
Glær gómur
Svartur gallajakki tapaðist við
Vesturbæjarlaugina. I öðrum
brjóstvasanum var glær gómur
og er þetta bagalegur missir fyrir
eigandann. Finnandi vinsamlega
hafi samband í síma 681941 eða
29549.
Tryggur týndur
Það týndist heimilishundur frá
Haga í Skorradal sem gegnir
nafninu Tryggur. Síðast sást til
hans á Geitabergi í Svínadal fyrir
nokkru en síðan hefur ekkerfc til
hans spurst. Þeir sem vita um
Trygg vinsamlega hringi í síma
91-84272.
Týndi úlpum
Móðir hringdi:
„Dóttir mín er búin að tapa
tveimur úlpum á stuttu tímabili.
Sú lyrri er gallaúlpa sem hún
tapaði á róluvelli við Öldusel en
hin er þunn fjólublá úlpa og
líklega hefur hún tapað henni í
leið 11 eða í strætisvagnabiðskýl-
inu í Seljahverfi. Finnandi er vin-
samlega beðinn að hringja í síma
79386 eftir kl. 18.“
Vínið uppspretta gleði og- menningar
Til Velvakanda.
Í tilefni lágkúrulegrar umræðu
um áfengismál legg ég til að andinn
verði látinn*svífa yfir vötnum og
hugsað til þeirra góðu hluta sem
áfengið hefur komið til leiðar.
Stórtemplarar og stúkumenn
hafa gengið lengst í því að ófrægja
guðaveigarnar enda ekki nema von
þegar hugsað er til tilurðar þessara
samtaka sem eru stofnuð af leið-
indadurtum sem ekki samlagast
hópi gleðimanna og kvenna. í eymd
sinni tóku þeir sig saman durtarnir
og bundust samtökum til að leysa
sína sálarkreppu. Af meðfæddum
búraskap og illkvittni, með þá hug-
sjón að flaggi að þeir séu á móti
áfengi, en í raun félagsleg van-
hæfni gerir þeim ókleift að njóta
lífsins eða una öðrum þess.
Vínið hefur ávallt verið upp-
spretta gleði, menningar og jafnvel
lífsins sjálfs. Vínið hefur ætíð leikið
um lífsrætur menningar og lista.
Þegar sálartötrið fær hæfilega
vökvun springur sálin út sem rós á
björtum vordegi og stráir um sig
fijókornum menningar, en hefur
það þó umfram liljur vallarins að
geta gert það á hverjum degi.
Á þeim stöðum þar sem musteri
dionysusar hafa verið flest, saman-
ber öldurhús Grikklands til forna
og París nútímans, hefur siðmenn-
ingin risið einna hæst. Ég fagna
því innilega þeirri fjölgun bæna-
staða sem hér hefur átt sér stað.
Hámenning þrífst aldrei ein og sér,
hún er eins og hávaxið tré og verð-
ur að sækja næringu í fijóa mold
undirdjúpa lífsins sem lífsins vatn
vínið leikur um. Tré á þurri klöpp
er templari.
Góð umgengni við vín verður að
ganga í arf frá föður til sonar.
Verra er þó að falli hlekkur úr og
faðirinn rækir ekki sitt föðurhlut-
verk í drykkjusiðum og er orðið
tímabært að skólakerfið setji undir
þennan leka og hafi vínmenningu
á námskrá.
Eða eins og E. Ben. orðaði það:
Mungát
Svo há og víð er hjartans auða borg,
að hvergi kennir ijáfurs eða veggja.
En leiti ég manns ég lít um múgans torg;
þar lifir kraftur, sem minn vilja eggar.
Hvað vita þessir menn um sælu og sorg,
er supu aldrei lífsins veig í dreggjar.
Ég þrái dýrra vín og nýja vini
og vel mér sessunaut af Háva kyni.
Einar Guðmundsson
Víkverji skrífar
Víkveiji er mjög áhugasamur um
lagningu bundins slitlags á
vegi landsins enda ferðast hann mik-
ið eins og sést í dálkunum á sumrin.
Fyrir utan hefðbundin rök fyrir góð-
um vegum vill Víkveiji dagsins
benda á að bundið slitlag er heil-
brigðismál, kannski sérstaklega geð-
heilbrigðismál. Allavega fer það
mikið í taugarnar á Víkveija að aka
af bundnu slitlagi út á möl. Víkveiji
hefur gagnrýnt yfirvöld samgöngu-
mála fyrir breyttar áherslur í vega-
málum. Núverandi samgönguráð-
herra hefur lagt áherslu á einstök
stórverkefni, einkum jarðgöng.
Víkveiji telur að lagning bundins
slitlags á hringveginn og aðra helstu
vegi landsins sé svo mikilvæg að ýta
þurfi öðru til hliðar á meðan því
verki er komið lengra áfram eða
iokið. Síðan verði farið í önnur stór-
verkefni sem vissulega eru einnig
þörf.
XXX
Um síðustu áramót var möl á
605 kílómetrum af hringveg-
inum. Hringurinn er rétt rúmir 1.400
km og er malarslitlag því á 43%
hans. Samkvæmt lauslegri athugun
Víkveija verða lagðir tæpir 30 kíló-
metrar af bundnu slitlagi á hring-
veginn í sumar og tekur það því
yfir 20 ár að loka hrihgnum með
sama framkvæmdahraða. Þegar allir
vegir eru taldir er slitlag lagt á um
100 kílómetra og er það verulegur
samdráttur frá fyrri árum. Guð-
mundur Arason, forstjóri fram-
kvæmdadeildar Vegagerðarinnar,
segir í leiðara nýútgefinna Vega-
mála, tímarits Vegagerðarinnar, að
ef Ijárveitingar til vegamála aukast
ekki á næstu árum verði að gera ráð
fyrir að almenn vegagerð dragist
saman. Fé til bundins slitlags segir
hann að sé afgangsstærð, eftir að
tekið hefur verið frá fé til brýnustu
framkvæmda, og hVljóti því að
minnka. Segir Guðmundur að margt
bendi til að þetta ár marki endalok
hins svonefnda slitlagatímabils.
xxx
Góðvegunum er misskipt. Áber-
andi mest vantar á Austur-
og Norðausturiandi. Á vegunum út
frá Reykjavík er ástandið að verða
gott. Samfellt bundið slitlag er aust-
ur fyrir Hvolsvöll, alls 113 km. Og
á norðurleið er 154 km slitlag frá
Reykjavík og upp fyrir Dalsmynni í
Norðurárdal í Borgarfirði, fyrir utan
smákafla við Olíustöðina í Hvalfirði
en vinna stendur nú yfir við þann
bút. Nær samfellt bundið slitlag á
þessum hluta hringvegarins er því
267 km. Ef haldið er áfram austur
eru nokkrir malarkaflar í Rangár-
valla- og Skaftafellssýslum, samtals
um 21 km á leiðinni til Víkur í
Mýrdal. Á milli Reykjavíkur og
Hafnar í Hornafirði er möl á 129
km af alls 474 km. Hlutfallið er
betra á veginum á milli Reykjavíkur
og Akureyrar. Leiðin er 432 km og
er möl aðeins á 102 km, meginhlut-
inn á veginum úr Norðurárdal í
Skagafirði, yfir Öxnadalsheiði og í
Öxnadal. Samkvæmt þessu er möl
á tæplega helmingi vegarins á milli
Akureyrar og Hafnar í Hornafirði.
xxx
En mikiivægir vegir eru víðar en
á hringnum. Víkveiji átti er
indi í tvö dæmigerð sveitaþorp um
síðustu helgi, Varmaland í Borgar-
firði og Flúðir í Árnessýslu. Hann
ók á nýlögðu bundnu slitlagi heim í
hlað á Varmalandi. Þarf ekki að lýsa
breytingunni sem orðið hefur á þess-
ari leið á stuttum tíma. Á leiðinni
að Flúðum vantar bundið slitlag á
fáeina kílómetra. Það stendur til
bóta því heimamaður sagði að lang-
þráð slitlag kæmi næsta sumar.
xxx
Víkveiji var að glugga í grein
um Elísabetu Bretadrottn ingu
í DV á laugardaginn, þar sem sagði
m.a. að einkaþota Elísabetar hefði
verið lengi í eigu hennar, en frændi
hennar Játvarður VIII. hefði látið
smíða hana árið 1936(1). Þetta vakti
margar spurningar hjá Víkveija.
Voru virkilega smíðaðar þotur árið
1936? Víkveiji beið því spenntur
komu Bretadrottningar á mánudag-
inn, en honum til mikilla vonbrigða
reyndist farkostur hennar vera
nýtískuleg þrýstiloftsflugvél. Helst
dettur Víkveija í hug að DV hafi
stuðst við heimildir á ensku, við
gerð áðurnefndrar greinar, og talið
að The Queen’s Flight, eða Flugfélag
drottningar, sem Játvarður VIII.
stofnaði raunar árið 1936, þýddi
einkaþota.