Morgunblaðið - 28.06.1990, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1990
43
Losnum við böl, áhættu og nið-
urlægingu ef hættum reykingum
Til Velvakanda.
Morgunblaðið skýrði frá því ný-
lega, að allnokkrar hækkanir hefðu
orðið á verði tóbaks. Og þetta er svo
sem ekkert nýtt. Tóbakið hækkaði
oft á síðasta ári og ekki er vafi á
því að það á enn eftir að hækka fljót-
lega. „Margs þarf búið við,“ sagði
Sighvatur Sturluson við Sturlu, son
sinn, og svipað virðiast eiga við um
ríkisbúið á vorum dögum. Alltaf
eykst skattheimtan, og allt hækkar
nema launin. Sá sem þetta ritar
undrast hvað reykingamenn, hinir
aumu kaupendur tóbaksins, taka því
endalaust þegjandi að greiða sífellt
stærri hlut tekna sinna í tóbaks-
reykingar. Og þótt þeir mótmæltu,
hefði það ekki nokkur áhrif. For-
ráðamenn ríkisins segðu bara:
„Margs þarf búið við“ og þar með
væri þetta útrætt mál. En það er til
áhrifarík og heilladijúg leið í þessu
efni og það er einfaldlega að segja:
„Nú hætti ég að reykja.“
Samstarfsmaður þess er þetta rit-
ar ákvað að hætta að reykja. Hann
hafði reykt allmikið um skeið eða
um tvo pakka á dag. Hann var
harðákveðinn í því að hætta er krían
kæmi í maí og hann stóð við það.
Þessi ákvörðun hans er honum bæði
holl og góð, en einnig dijúg búbót,
því að það á við um hann eins og
stórmennin fornu og nýju, að margs
þarf búið við. Pakki af sígarettum
kostaði þá ásamt eldspýtum liðlega
200 krónur. Þessi ákvörðun manns-
ins þýðir stórbætt kjör hans og sam-
svarar því, að atvinnurekandi hans
hækkaði laun hans um 250 þúsund
krónur á ári, en hafa ber þá í huga,
að skatthlutfall er sífellt að hækka
og er nú um 40 af hundraði. Þetta
er nánast eins og að fá fyrirfram
happdrættisvinning, og hver hefur
efni á því að hafna kvartmilljón í
kauphækkun á einu ári? Þetta eru
verulegar fjárhæðir, en þó er hér
meira í húfi, þ.e. líf og heilbrigði
mannsins. Islenskir sérfræðingar
segja, að um 300 íslendinga deyi
af völdum reykinga á hveiju ári.
Hvenær kæmi röðin að honum?
Reykingar eru að sögn sérfróðra
lækna lífshættulegar heilsu fólks.
Reykingamenn auka mjög líkur á
áföllum og dauða langt um aldur
fram. Færustu læknar hafa og sýnt
fram á að með óyggjandi hætti, að
reykingar stytta ekki bara ævina,
heldur flýta þær mjög fyrir komu
ellinnar. Reykingamenn verða því
gamlir langt um aldur fram.
Reykingar eitra andrúmsloft fyrir
öðrum. Menn iáta sig þá hafa það
að spilla mjög andrúmslofti barna
Þg annarra, sem menn bera ábyrgð
á. Reykingamenn verða móðir,
þreyttir, fölir og veiklulegir, og þeir
eiga oft erfitt með að vakna á
morgnana. Reykingar hafa oft vald-
ið geysilegu tjóni og jafnvel dauða
vegna eldsvoða. Þá eru reykingar
afar niðurlægjandi. Menn eru á valdi
þessarar hallærislegu nautnar, nán-
ast þrælar tóbaksins. Þeir verða að
birgja sig upp með birgðum fyrir
stórhátíðir. Það er afar auðmýkjandi
að vera á valdi slíkrar nautnar og
greiða fyrir það stórfé á hvetju ári.
Um miðja öldina þóttu reykingar
fínar, eins og sjá má í kvikmyndum
frá þessum tíma. Þá vissu menn
ekki gjörla um skaðsemi tóbaksins.
En nú er öldin önnur. Þetta er nú
yfirleitt talið ömurlega hallærislegt,
heimskulegt og heilsuspillandi.
Framleiðendur tóbaks reyna að fá
fólk til þess að gleyma þessu og
reyna að láta tóbakið fá „ímynd“
öndverða raunveruleikanum. Tó-
baksframleiðendur birta oft harla
lygilegar auglýsingamyndir. Þar eru
gjarnan hraustlegir karlar og fagrar
konur í glæsilegum fötum. En fólk
verður ekki glæsilegt af reykingum.
Einmitt hið gagnstæða, grátt, gugg-
ið, hrukkótt og illa lyktandi. Að ekki
sé minnst á blessaðan kynþokkann,
sem hverfur mjög skjótt af fyrr-
greindum ástæðum og tóbakið dreg-
ur einnig mjög úr vilja og getu til
heilbrigðs ástalífs.
Sá sem þetta ritar kom nýlega inn
í skóbúð. Honum varð starsýnt á
sterklega og glæsilega skó, einmitt
svona skó sem útilífsmenn nota.
Hann ætlaði að kaupa þá en af göml-
um vana leit hann fyrst á merkið.
Þarna var þá á ferðinni sama blekk-
ingin, að reyna að tengja tóbakið
við útilíf og hreysti. Hvílík ósvífni,
enda er ekkert íjær sanni. Vart þarf
að taka fram að skórnir voru ekki
keyptir.
Sá sem þetta ritar var sjálfur
mikill reykingamaður hér áður fyrr.
Hann hætti fyrir rúmum áratug og
hann telur það eitt af mestu gæfu-
sporum í sínu lífi. Miklar breytingar
urðu á líkama hans við þetta. Þrek
jókst mjög og erting í hálsi og höfuð-
þyngsli hurfu. Hann hætti að fiska
upp alls kyns kvef- og umgangspest-
ir. Sjálfstraust jókst mjög og styrkur
til þess að takast á við erfið verk-
efni. Fjárráðin urðu auk þess miklu
rýmri. Þetta hafa einnig ijölmargir
menn gert og þetta geta allir gert.
Til þess eru ýmsar aðferðir, sumir
fá aðstoð góðra manna t.d. á nám-
skeiðum, aðrir gera þetta sjálfir, en
aðalatriðið er að hætta.
En rétt er að vara þá sem hætta
að reykja við sjálfsblekkingu og
sjálfsvorkunn. Sumir segja, að þeir
hafi reynt að hætta, en þá hafi þeir
orðið svo pirraðir og leiðinlegir við
vini og vandamenn sína, að þeir
hafi bara byijað aftur, af tómri til-
litssemi og náungakærleik! Hvílík
firra! Aðrir segja, að þeir hafi feng-
ið svo góða matarlyst, er þeir reyndu
að hætta, að þeir hafi nú bara neyðst
til þess að byija aftur, heilsunnar
vegna, því ekki er Hollt að hafa
mörg aukakíló! Hvílík sjálfsblekking.
En verst af öllu er þó sú blekking
að ætla bara að prófa, fá sér einn
„smók“, það skaði nú ekki svo mik-
ið. Einmitt á þessari ísmeygilegu
blekkingu hafa býsna margir fallið
og farið undur skjótt í sama gamla
reykingamunstrið.
Hér að ofan var minnst á kríuvin-
inn, sem hætti reykingum við komu
þessa ágæta fugls. Og menn geta
notað hvaða tilefni sem er í því skyni
að leggja af þennan ömurlega ávana,
t.d. upphaf sumarleyfis, mánaðamót
og einnig: nýlega hækkun á verði
tóbaks. Sá dagur, er menn hætta
að reykja, verður þeim einkar kær
og minnisstæður, og getur sá sem
hér skrifar borið vitni um það.
Þeir sem hætta reykingum auka
mjög líkur á langlífi og góðri heilsu.
Þeir losna við margs konar böl, mikla
áhættu og niðurlægingu, sem eru
fylgifiskar reykinga. Lífsnautn öll
verður heilbrigðari og fijórri, og
menn seinka mjög komu ellinnar og
því sem henni fylgir. Og síðast en
ekki síst fá þeir miklu rýmri fjár-
hag. Kríuvinurinn fyrrgreindi fær
sem samsvarar 250 þús. króna
launahækkun á ári og reyndar rúm-
lega það, því að tóbakið var einmitt
nú nýlega að hækka, og það hækkar
fljótlega aftur. Undirritaður hefur
' ríka samúð með reykingamönnum,
og þessi hugleiðing er tekin saman
í þeim tilgangi að fá þá til þess að
hugleiða þetta efni og taka hið fyrsta
ákvörðun um það. Að lokum er hér
spurning: Vilja reykingamenn greiða
sífellt stærri hlut tekna sinna fyrir
þessa ömurlegu nautn, ef nautn skal
kalla? Eða vilja þeir gera eitthvað
róttækt í málinu og segja: „Hingað
og ekki lengra. Nú hætti ég að
reykja." Það yrði svo sannarlega
gæfuleg og heilladijúg ákvörðun.
Fyrrv. reyk-víkingur
SACHS
KÚPLINGAR
DISKAR
HÖGGDEYFAR
Í
i
i
i
i
i
i___________
r FÁLKINN
i:z
BENZ - BMW - V0LV0
OG FLESTALLIR AÐRIR EVRÓPSKIR FRAMLEIÐENDUR
VANDAÐRA BILA NOTA SACHS KUPLINGAR OG
HÖGGDEYFA SEM UPPRUNAHLUTll BIFREIÐAR SÍNAR.
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA
Þekking Reynsla Þjónusta
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670
Er nybuin að opna
leikfimisklúbbinn Kvenna Gallerí
Erað byrja nokkurra vikna námskeið
Komið og skoðið klúbbinn
- pantið tíma og verðið að
listaverki í Galleríinu
Hanna Ólafsdóttir.
Svona einfalt
er að gerast
áskrifandi að
spariskírteinum
ríkissjóðs
I
■
B
Já, ég vil hefja reglulegan spamaö og gerast
áskrifandi að spariskírteinum ríksissjóðs
Nafn_______________________________________
Heimili.
Póstnr..
Kennitala nŒDILTI'J JXI
(Tilgreindu hér fyrir neðan þá grunnfjárhæð sem þú vilt fjárfesta
fyrir í hverjuin mánuði og lánstíma sitírteinanna.)
Fjárhæð
□ 5.000 □ 10.000
□ 15.000 □ 20.000
□ 25.000 □ 50.000
eða aðra fjárhæð að eigin
vali kr.____________
(semhleypurákr. 5.000)
Binditími og vextir
□ 5 ár með 6,2 %
vöxtum
□ 10ármeð6,2%
vöxtum
Ég óska eftir að greiða spariskírteinin með
□ greiðslukorti □ heimsendum gíróseðli
Greiðslukort mitt er:
□ VISA □ EUROCARD □ SAMKORT
Númer greiðslukorts:
rrm rrm rrm rmn
Gildistími greiðslukortsins er til loka
(mán. og ár):_____________________
dags.
undirskrift
Vísitala og vextir bætast.við gntnnfjárhæð hverju sinni, sem reiknast ffá og
með útgáfudegi skírteinanna til 20. dags hvers mánaðar á undan greiðslu.
Settu áskriftarseðilinn í póst fyrir 15. þess mánaðar sem þú
ákveður að hefja áskrift, og sendu til:
Þjónustumiðstöðvar e®a Seðlabanka íslands
ríkisverðbréfa Kalkofnsvegi 1
Hverfisgötu 6 150 Reykjavík
101 Reykjavík
Þú getur einnig hringt í síma 91-626040 eða 91-699600 og pantað áskrift.
ÞJONUSTUMIÐSTOÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
X
Þjónustumiðstöð ríldsverðbréfa, Hverfisgötu 6, 2. hæð. Sími 91-62 60 40