Morgunblaðið - 28.06.1990, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 28.06.1990, Qupperneq 44
Opinber stuðningsaðili HM 1990 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR 28. JUNI 1990 James Bett Fæddur: 25. nóvember 1959. Fjölskylduhagir: Kvæntur Auði Rafnsdóttur og eiga þau þrjá syni; Jim Baldur 10 ára, Calum Þór 9 ára og Brynjar Lee 7 ára. Félagslið: Aberdeen, Glasgow Rangers, Lokeren, Valur, Airdrieon- ians. Helstu titlar: 10 sinnum í úrslitum skosku bikarkeppninnar og meistari fimm sinnum. Tvöfaldur bikarmeist- ari með Aberdeen á nýliðnu keppn- istímabilinu. * Helstu viðurkenningar: Knatt- spyrnumaður ársins í Skotlandi á nýafstöðnu keppnistímabili. Oft kjör- inn leikmaður ársins hjá Rangers og Aberdeen. Landsleikir: 26. 7 með U-21. Mörk í landsleikjum: 1 (gegn ís- landi á Laugardalsvelli 28. maí 1985). Jim Bett í leik með skoska landsliðinu. HEIMSMEISTARAKEPPNIN í knattspyrnu hverju sinni er helsti íþróttaviðburður heims. Æðsti draumur hvers knatt- spyrnumanns er að leika í HM, en hjá flestum verður sá draumur aldrei að veruleika. Augu allra knattspyrnuunn- enda beinast að bestu liðum heims og snillingarnirfá sér- staka athygli. Flestir hafa tæki- færi til að fylgjast með „sínum“ mönnum í sjónvarpi og lesa um þá íblöðum. Margir reyna að tileinka sér snilli þeirra og tækni, líkja eftir þeim í einu og öllu. Heimsmeistarakeppni“ er haldin á ólíkustu stöðum og Tommamótið í Vestmannaeyj- um, sem var sett í gærkvöldi, er sannkölluð heims- Steinþór meistarakeppni fyr- Guðbjartsson Jr þátttakendur og skrifar aðstandendur þeirra enda í flestum til- fellum ekki um aðra sambærilega keppni fyrir þá að ræða. Það á samt ekki við um skoska landsliðsmann- inn James Bett, sem kjörinn var knattspyrnumaður ársins í Skot- landi á nýliðnu keppnistímabili. Hann keppti með Skotlandi í C- riðli HM á Ítalíu, en varð að bíta í ~ það súra epli að komast ekki áfram í 16 liða úrslit. Huggun harmi gegn var að fyrir bragðið gat „Jasa“ eins og landsliðsmaðurinn er gjarnan kallaður, fanð með fjölskyldunni í sumarfrí til íslands og fylgst með sonunum á Tommamótinu. Jasa, Auður og strákarnir komu til Reykjavíkur frá Skotlandi seint í fyrrakvöld og á hádegi í gær var haldið til Vestmannaeyja. „Líf knattspyrnumannsins er óútreikn- anlegt,“ sagði Jasa við Morgun- blaðið. „Alla knattspyrnumenn dreymir um að leika í Heimsmeist- arakeppninni og það er gífurleg reynsla, en það var visst áfall að komast ekki áfram. En það var líka kominn tími til að fara í sumarfrí til Islands og ég hlakka til að fylgj- ast með keppninni í Eyjum — það er alltaf gaman að horfa á litiu strákana spila.“ Draumurinn varð að veruleika Jasa hefur verið lengi í eldlín- unni. Hann var einn af lykilmönnum skoska landsliðsins í forkeppni HM fyrir leikana 1986, en var settur út í kuldann í Mexíkó, fékk ekkert tækifæri — sat á bekknum alla leik- ina. „Ég hef aldrei á ævinni orðið fyrir eins miklum vonbrigðum...en það á enginn tryggt landsliðssæti og ég sætti mig við það,“ sagði Philips sér um iýsinguna Morgunblsðið/KGA Á leið til Vestmannaeyja með félögunum í 6. flokki KR. Aftari röð frá hægri: Jim Bett, Brynjar Lee Bett, Auður Rafnsdóttir, Ómar Ingi Ákason, Calum Þór Bett og Hreiðar Guðmundsson. Fremri röð frá hægri: Victor Victorsson, Sigurður Steindórsson, Guðmundur Steindórsson, Jim Baldur Bett og Svavar G. Stefánsson. Jasa m.a. í samtali við Morgun- blaðið fyrir tæplega fjórum árum. Draumurinn varð hins vegar að 'veruleika á Ítalíu fyrr í mánuðinum. „Það er engu líkt að vera þátttak- andi á HM og að fá tækifæri til að leika er hápunkturinn. Við gerð- um okkur grein fyrir að erfitt yrði að komast áfram og fengum skömm í hattinn fyrir að tapa fyrir Kosta Ríka. Flestir áttu von á að við myndum sigra, við sóttum og sótt- um, fengum okkar tækifæri, en þeir skoruðu og það var nóg. Þetta var svipað og í leik Brasilíu og Argentínu, en svona er knattspyrn- an. Svíar voru með mjög sterkt lið og Jack Charlton spáði því þriðja sæti í keppninni, en það fékk ekk- ert stig í riðlinum. Sovétmenn voru með eitt af bestu liðunum 1986 og flestir áttu von á því ofarlega að þessu sinni, en annað varð uppi á teningnum. Á hinn bóginn setja „litlu“ liðin æ meira strik í reikninginn. Við töpuðum 3:1 fyrir Egyptalandi skömmu fyrir keppnina, Kamerún og írland eru komin í átta liða úr- slit, Kosta Ríka stóð sig vel og Kólumbía sömuleiðis. Tilfellið er að „litlu“ liðin hafa engu að tapa og „stóru“ liðin vilja helst ekki leika gegn þeim — hræðast að standa ekki undir væntingunum. Því er enginn leikur lengur auðveldur." Ítalía eða V-Þýskaland Jasa sagði að þrátt fyrir vel- gengni „rninni" liða benti allt til þess að úrslitaleikurinn yrði á milli Italíu og Vestur-Þýskalands. „Það verður erfitt að stöðva heimamenn. ítalska- og þýska liðið leika skemmtilegasta fótboltann og það yrði gaman að sjá þau kljást um heimsmeistaratitilinn.“ Fer hann til Forest? Samningur Jims Betts við Aberdeen rann út í vor. Framhaldið er óljóst. Aberdeen vill halda honum, Glasgow Rangers vildi fá hann og Notting- ham Forest hefur gert Aberdeen tilboð, en samningar hafa ekki tekist. „Við höfum búið í fimm ár í Aberdeen og þar er gott að vera. Ég kann vel við mig hjá félaginu, það vill gera nýjan tveggja ára samning og það verður erfitt að fara, en ég ætla að bíða enn um stund með að taka ákvörðun," sagði Bett. „Breytingin verður að vera þess virði." Valið er í höndum knattspyrnu- manns ársins í Skotlandi. „Ég hugsa fyrst og fremst um fjöl- skylduna. Áður en við settumst að í Aberdeen vorum við í stöðug- um flutningum. Það er erfítt fyrir strákana að fara úr einu um- hverfinu í annað og ekki kemur til greina að fara aftur til megin- lands Evrópu vegna þess að þá þyrftu þeir að fara að læra nýtt tungumál. Ég hefði getað farið til Rangers og búið áfram í Aberdeen, en sagði ráðamönnum að ég vildi ekki ákveða mig strax og þeir voru ekki ánægðir með það,“ sagði Jim. Knattspyrnumaður Skotlands sagði ennfremur að það væri æ erfiðara að leika í skosku deild- inni og spumingin væri hvort hann ætti ekki að róa á önnur mið, takst á við ný viðfangsefni. „Nottingham Forest hefur sýnt mikinn áhuga og það væri vissu- lega spennandi og öðruvísi að leika í Englandi. Forest vill gera þriggja ára samning, en ég vil ekki binda mig lengur en til tveggja ára. Félögin hafa ekki komist að samkomulagi um kaup- verð, en af af verður, er sennilegt að málið fari fyrir sérstakan dóm- stól.“ Sem kunnugt er leikur Þorvald- ur Örlygsson, sem kjörinn var knattspyrnumaður Íslands að loknu síðasta keppnistímabili, með Nottingham Forest. KNATTSPYRNA James Bett, landsliðsmaður og knattspyrnumaður ársins í Skotlandi: Frá HM á Ítalíu til Eyja

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.