Morgunblaðið - 28.06.1990, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FlMttUDAGUR 28. JÚNÍ 1990
47
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Stórkostlegt að byvja svona.
- sagði Ingvar
Guðmundsson
sem gerói bæði
mörkValsísigri
á KR
„ÞAÐ ER stórkostlegt að byrja
svona og mörkin eiga eftir að
gefa mér aukið sjálfstraust,"
sagði Ingvar Guðmundsson
sem gerði bæði mörk Vals í 2:1
sigri á KR. Þetta var fyrsti leik-
ur Ingvars í rúma tvo mánuði
en hann meiddist f leik með
landsliðinu í Bandaríkjunum í
apríl. „Ég var mjög tauga-
óstyrkur, leið illa fyrir leikinn
og átti alls ekki von á slíkri
byrjun. En ég get þakkað An-
tony fyrir mörkin, hann lagði
boltann fyrir mig í bæði skipt-
in,“ sagði Ingvar.
Valsmenn byrjuðu vel og náðu
forystunni á 12. mínútu.
Antony Karl Gregory átti heiðurinn
að markinu, lagði lagði boltann vel
fyrir fætur Ingvars
LogiB. sem skoraði af ör-
Eiðsson yggi framhjá Ólafi
skrifar Gottskálkssyni.
Eftir markið
sóttu KR-ingar heldur meira en
þegar komið var í vítateiginn voru
þeim allar bjargir bannaðar. Vals-
menn nýttu sóknir sínar betur og
á 38. mínútu bættu þeir öðru mark-
ið við. Boltinn gekk frá Bjama í
markinu og fram á vítateig KR.
Þar lagði Antony boltann fyrir
Ingvar sem skoraði með glæsilegu
skoti, efst í markhomið.
Eftir síðari markið dró úr KR-
ingum og Valsmenn tóku lífinu með
ró. Hvomgt liðið fékk umtalsverð
færi fyrr en undir lok leiksins. Þá
sendi Rúnar Kristinsson inná Pétur
Pétursson. Bjarni renndi sér út á
móti honum og felldi hann og Gylfi
Orrason dæmdi vítaspyrnu. Pétur
tók vítið sjálfur og skaut á mitt
markið. Bjarni náði að snerta bolt-
ann en skotið var of fast. Eftir
markið sóttu KR-ingar nokkuð en
tókst ekki að ónga sigri Vals.
Valsmenn mega vel við una. Þeir
léku ágætlega þrátt fyrir að í lið
þeirra hafi vantað þtjá mikilvæga
menn; Sigurjón Kristjánsson, Hall-
dór Áskelsson, og Steinar Adolfs-
son. Antony var ógnandi og stóð
sig vel í mörkunum og Ingvar kom
mjög vel inní liðið. Þorgrímur Þrá-
insson og Einar Páll Tómasson voru
sterkir I vörninni.
KR-ingar voru heldur daprir.
Hilmar Björnsson var besti maður
liðsins og Sigurður Björgvinsson
átti ágætan leik í vörninni. Atli
Eðvaldsson lék fyrsta leik sinn með
KR og náði sér ekki á strik enda
vart hægt að búast við því í fyrsta
leiknum, gegn gömlu félögunum.
ÚRSLIT
3. deild
Þróttur R. - Reynir Á...............2:0
Óskar Óskarsson, Sigfús Kárason.
4. deild
TBR - Víkverji.......................
Óli Björn Ziemsen - Finnur Thorlacius 2,
Níels Guðmundsson 2, SigurðurBjörnsson.
Augnablik - Ægir...................2:2
Ragnar Rögnvaldsson 2 - Halldór Sigur-
þórsson, Sveinbjörn Asgrlmsson.
Sindri - Huginn....................3:1
Garðar Jónsson,'Börkur Þorgeirsson, Sigur-
björn Hjaltason - Halldór F. Róbertsson.
KSH - Höttur.......................2:1
Jónas Ólafsson 2 - Hörður Guðmundsson.
Leiknir F. - Valur Rf...............2:3
Árni Gíslason, Kári Jónsson - Guðgeir Sig-
urjónsson 2, Lúðvík Vignisson.
Neisti D. - Urnf. Stjarnan.........4:1
Dagbjartur Harðarson 3, Gunnlaugur (Juð-
jónsson - Gunnlaugur Bogasón.
ISSIISÍ
■
;"V', .AhV 'ff
• ii
".1..
:
Háloftaslagur
Þorgrímur Þráinsson og Ragnar Margeirsson kljást á Valsvéllinum í gærkvöldi.
Morgunblaðið/KGA
Sigurlás óhress
- eftirjafntefli gegn íslandsmeisturunum á Akureyri
„DÓMARINN gaf þeim tvö stig, með því að dæma vítið á okkur.
Þetta var fáránlegur dómur," sagði Sigurlás Þorleifsson, þjálfari
ÍBV, og var mjög heitt í hamsi eftir að lið hans og KA skildi jöfn
1:1 á Akureyri í gærkvöldi. Þess má geta að þetta var fyrsta
jafntefli liðsins í 25 leikjum undir stjórn Sigurláss.
Leikurinn var fremur slakur og
marktækifæri af skornum
skammti. Ingi Sigurðsson kom
Eyjamönnum yfir á 75. mín. en
atvikið sem Sigurlás
Reynir vitnaði til gerðist
Eiríksson aðeins þremur mín.
skrifar síðar. Jón Grétar
Jónsson braust í
gegnum vörn ÍBV, missti knöttinn
nokkuð langt á undan sér en brotið
var á honum og Ólafur dómari
Sveinsson var ekki í vafa — dæmdi
hiklaust vítaspyrnu sem Ormarr
Örlygsson jafnaði úr af öryggi, í
stöngina og inn.
„Fyrir leikinn gerði ég mig án-
ægðan með að fara með eitt stig
héðan, en eins og leikurinn spilaðist
er ég mjög ósáttur með að fara
ekki með öll þtjú stigin. Við vorum
sterkari og hefðum átt sigurinn
skilið,“ sagði Sigurlás ennfremur,
og bætti við um vítaspyrnudóminn:
„Jón Grétar var búinn að missa
boltann þegar þeir skullu saman.“
Bjarni Jónsson, fyrirliði KA í fjar-
veru Erlings Kristjánssonar sem er
meiddur, sagðist óánægður með
leik liðs síns: „Það vantaði fersklei-
kann í liðið og leikur okkar var alls
ekki nógu markviss á köflum. Mað-
ur er aldrei sáttur við jafntefli á
heimavelli, en úr því sem komið var
er ég alls ekki óánægður með úrslit-
in.“
Mark Inga Sigurðssonar fyrir
ÍBV var stórglæsilegt. KA-menn
hreinsuðu frá eftir hornspyrnu,
knötturinn barst til Inga á vítateigs-
horni og hann sendi hann rakleiðis
til baka — þrumufleyg efst í mark-
hornið fjær.
Á lokamínútu leiksins átti Kjart-
an Einarsson þrumuskot af 20 m
færi sem Adolf markvörður ÍBV
glæsilega. Þar skall hurð nærri
hælum, litlu munaði að KA stæli
sigrinum, en jafnteflið var sann-
gjorn niðtirstaða.
Fyrsti deildarleikur Atla með KR:
„Verður betra næst“
Atli Eðvaldsson lék fyrsta deildarleik sinn með KR í gærkvöldi.
Landsliðsfynrliðinn tók tapi ogdaufum leik KR-inga meðjafnaðar-
geði. „Fyrsti leikurinn er alltaf erfiðastur og spennan var enn meiri
vegna þess að ég var að leika gegn æskufélaginu að Hlíðarenda. Ég
tel mig hafa skilað mínu fyrir Val í 15 ár og ég fann ekki annað hjá
leikmönnunum, en greinilegt var að hópur Valsmanna utan vallar var
ekki á sama máli. En svona er þetta og við KR-ingar þurfum ekki
að örvænta. Mótið er rétt að byija, þetta á eftir að smeila saman hjá
okkur og verður betra næsj,.“
Fj. leikja U J T Mörk Stig
VALUR 7 5 1 1 13: 6 16
FRAM 7 4 1 2 14: 3 13
IBV 7 4 1 2 9: 11 13
KR 7 4 0 3 11: 9 12
FH 7 3 0 4 11: 10 9
VIKINGUR 6 2 2 2 7: 7 8
ÍA 7 2 2 3 8: 11 8
KA 7 2 1 4 7: 11 7
STJARNAN 6 2 1 3 7: 12 7
ÞÓR 7 1 1 5 4: 11 4
Skaga-
menn úr
fallsæti
SKAGAMENN lyftu sér úrfall-
sæti í gærkvöidi er þeir sigruðu
Þórsara frá Akureyrí í botnslag
deildarinnar, 3:1. Skagamenn
verðskulduðu sigurinn sökum
þess að þeir sköpuðu sér fleiri
færi í leiknum, þrátt fyrir það
að jafnræði haf i verið með lið-
unum úti á vellinum. Leikurinn
var oft á tíðum ágætlega leik-
inn af beggja hálfu, þótt hann
hafi dottið niðurá milli.
skrífar
Tvö fyrstu færi leiksins voru
Skagamanna; Friðrik varði
mjög vel skot frá Karli Þórðarsyni
og síðan frá Alexander. Sló þá fast
HBBI skot hans úr teig
Sigþór framhjá. Skömmu £
Eiríksson síðar átti Bjarni
Sveinbjörnsson fast
skot að Skagamark-
inu, Gísli varði vel en hélt ekki
knettinum en áður en Þórsarar
náðu til boltans tókst varnarmönn-
um ÍA að hreinsa frá.
Heimamenn náðu svo forystunni
á 23. mín. Haraldur Ingólfsson
sendi knöttinn út á vinstri kantinn
til Heimis Guðmundssonar, sem lék
í átt að marki og skaut þrumuskoti
sem Friðrik gerði vel að verja en
hélt ekki knettinum sem barst til
Haraldar sem renndi honum í netið
af stuttu færi.
Tíu mín. síðar juku Skagamenn
forystuna. Fengu vítaspyrnu er einrmfc
varnarmaður Þórs slæmdi hendi í
knöttinn, að því er virtist algjörlega
að ástæðulausu. Umsvifalaust var
dæmd vítaspyrna sem Guðbjörn
Tryggvason, fyrirliði Skagamanna,
skoraði úr af öryggi.
Skömmu fyrir leikhlé komst
Bjarni Sveinbjörnsson í gott færi
við hægra vítateigshorn Skaga-
manna en gott skot hans fór rétt
framhjá fjærstönginni.
Skagamenn byijuðu síðari hálf-
leikinn vel og gerðu þriðja markið,
og jafnframt það fallegasta í leikn-
um, á 53. mín. Haraldur Ingólfsson
lék upp að endamörkum, sendi vel
fyrir markið, þar sem Bjarki Péturs-
son kastaði sér fram og hamra$4H
knöttinn í netið með góðum skalla,
óverjandi fyrir EViðrik.
Eftir þetta sóttu Þórsarar mjög
í sig veðrið, neituðu að gefast upp
og á 70. mín. fengu þeir auka-
spyrnu rétt fyrir utan vitateig
Skagamanna. Luka Kostic tók
spyrnuna, knötturinn fór beint í
varnarvegginn og aftur til Kostic.
Þá lyfti hann yfir vegginn á Bjarna
Sveinbjörnsson sem var eldsnöggur
að átta sig og vippaði yfir Gísla í
fjærhornið.
Skagamenn lyftu sér, eins og
áður sagði, úr fallsæti — í bili að**-
minnsta kosti — og verðskulduðu
sigurinn. Þrátt fyrir að Þórsarar
sitji enn á botni deildarinnar virðist
margt búa í liði þeirra. Það sem
liáir því einna mest er að einhvern
vantar til að reka smiðshöggið á
sóknimar. Liðið leikur ágætlega úti
á vellinum og er örugglega ekki^
búið að segja sitt síðasta orð þrátt
fyrir slæma stöðu eins og er.