Morgunblaðið - 28.06.1990, Blaðsíða 48
4
BfiETLANí)
alla daga
roptiiiMjifrlfe
MERKI UM GÓEIAN ÚTBÚNAÐ
VEIÐIHJÓL OG STANGIR
FIMMTUDAGUR 28. JUNI 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Nesjavallavirkjun:
Sex fluttir á slysa-
deild eftir að eit-
urgufiir sluppu út
SEX starfsmenn við Nesjavallavirkjun voru fluttir á slysadeild Borg-
arspítalans í gærkvöldi eftir að brennisteinsvetni slapp út í andrúms-
loftið í aðalstöðvarhúsi virkjunarinnar. Einn mannanna slasaðist illa
er hann féll úr krana, en hinir minna.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
er brennisteinsvetni lofttegund, sem
kemur upp úr borholum virkjunar-
innar. Fyrir mistök virðist það hafa
verið leitt út í andrúmsloftið inni í
stöðvarhúsinu. Sex menn urðu fyrir
áhrifum gassins. Tveir' þeirra voru
■tfaddir uppi í krana og féll annar
þéirra niður, sjö metra fall að því
er áætlað var. Hann var talinn fót-
brotinn og mjaðmagrindarbrotinn.
Félagi hans komst niður úr kranan-
um af sjálfsdáðum. Einn hinna fjög-
urra fótbrotnaði, er hann féll við.
Tveir mannanna, sem mest voru
slasaðir, voru fluttir til Reykjavíkur
í sjúkrabíl, en hinir fóru í einkabíl á
slysadeildina til rannsóknar. Eitrun-
in, sem þeir fengu af völdum brenni-
steinsvetnisins, er ekki talin alvarleg
að sögn lögreglunnar.
Magnús Gauti Gautason kaupíelagsstj óri:
Stefhan aðvinna
aflann í eigin húsum
„VIÐ höftim lagt á það áherslu
að landa afla okkar skipa heima
til vinnslu í eigin Irystihúsum, það
er stefna kaupfélagsins og hún
stendur enn óbreytt," sagði Magn-
ús Gauti Gautason kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Eyfirðinga, sem
rekur Útgerðarfélag Dalvíkinga,
Drukknaði
á Benidorm
ÍSLENZKUR maður, Jóhann
Ólafur Jóhannsson, drukkn-
aði í sjónum við Benidorm á
Spáni síðastliðinn föstudag.
Tildrög slyssins eru óljós.
Jóhann var í sumarleyfi á
Benidorm. Hann var 28 ára að
aldri og einhleypur, búsettur á
Hvammstanga. Ilann var
yngstur fjögurra systkina og
lætur eftir sig aldraða móður.
í samtali við Morgunblaðið í gær
um það fiskverð sem greitt er
fyrir fisk á Eyjafjarðarsvæðinu í
samanburði við verð á fiskmörk-
uðum syðra.
Hann sagði að málið snerist um
að halda uppi atvinnu í landi, auk
þess sem ráðamenn KEA teldu að
mun meiri verðmæti sköpupust við
það að fullvinna fiskinn heima held-
ur en þegar hann væri fluttur óunn-
inn úr landinu.
Vilhelm Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags Akur-
eyringa, sagði að framan af síðasta
ári hefði 5-7% af heildaraflanum í
landinu verið landað á fiskmarkaði
og væri það skýringin á hinu háa
verði sem þar fengist.
Sjá ennfremur á Akureyrarsíðu
bls. 28.
Gert við steypuskemmdir
Steypuskenlrndir hafa reynzt mörgum húseigandanum dýrar. Tugþús-
unda kostnaður vegna viðgerða á alkalískemmdum og sprungum
bætist oft ofan á lánabyrðina vegna húsnæðiskaupa. Hér er verið
að gera við steypuskemmdir á fjölbýlishúsi í Breiðholti.
Vilja breyta
nafiii Alþýðu-
bandalagsins
RÆTT hefur verið innan félags-
ins Birtingar, að leggja það til
á miðstjórnarfundi Alþýðu-
bandalagsins nú um helgina, að
naíhi flokksins verði breytt í
Jaftiaðarmannaflokkur Islands.
Mörður Árnason ritari Birtingar
staðfesti að þessi hugmynd hefði
verið rædd í ákveðnum hópum,
meðal annars vegna þess að það
væri dæmalaus frekja af Alþýðu-
flokknum að ætla að stela þessu
nafni á meðan Alþýðubandalagið
væri til og á meðan meirihluti
manná þar teldi sig vera jafnaðar-
menn.
Jón Baldvin Hannibalsson for-
maður Alþýðuflokksins hefur lýst
því yfir að hann muni leggja til á
flokksþingi Alþýðuflokksins í
haust, að við nafn flokksins bætist
Jafnaðarmannaflokkur íslands.
Samkeppni í
ft’aktflutning-
um að aukast
í undirbúningi er stofnun fyr-
irtækis til að annast kaup'og
sölu á fiutningum til og frá Is-
landi. Ástæðan er óánægja með
þjónustu íslenskra skipafélaga.
Sigurður Jónasson, formaður
hagræðingarnefndar Félags
íslenskra stórkaupmanna, segir að
aðstandendur þessa nýja fyrirtæk-
is vonist til að ná samningum við
skipafélag um flutning í gámum
gegn föstu verði, en hingað til
hafa skipafélögin krafist mishás
gjalds fyrir flutninga á gámum
eftir því hvað verið er að flytja.
Sigurður telur að með þessu verði
hægt að lækka flutningsgjöld um
20-30%.
Sjá nánar bls. 1 B.
Umboðsmaður Alþingis:
Tandurhreinar
kirkjutröppur
? Mörg handtök og snúninga þarf
‘*Til að þrautskipulögð opinber heim-
sókn gangi snurðulaust. Skömmu
áður en Elísabet II Bretadrottning
renndi í hlað á Bessastöðum í gær
var hlaupið til, náð í fötu og skrúbb
og kirkjutröppurnar burstaðar
rækilega. Ráðskonu hafa líklega
þótt tröppurnar moldugar, enda
jjiiklar framkvæmdir við Bessastaði
og moldarbingir í garðinum bak við
Bessastaðastofu.
Eigendum smábáta heimilt að
flytja hluta aflamarks milli ára
Munum sækja rétt okkar að fullu, segir íramkvæmdastjóri smábátaeig’enda
GAUKUR Jörundsson, umboðsmaður Alþingis, telur að sú afstaða sjáv-
arútvegsráðuneytisins að heimila ekki flutning veiðiheimilda milli ára
hjá bátum undir 10 brúttórúmlestum eigi sér ekki stoð í lögum. Örn
Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir að
niðurstaða umboðsmanns Alþingis sé viðurkenning á því að réttur
hafi verið tekinn af smábátaeigendum, og þeir muni sækja að fullu að
fá hann viðurkenndan.
„Menn hafa farið fram yfír í kvóta
eins og gengur og gerist, og á sínum
tíma fórum við fram á að afli yrði
ekki gerður upptækur hjá þeim sem
áttu eftir að veiða eitthvað af kvóta
fyrra árs. Á það var ekki fallist og
þessir aðilar voru allir sektaðir eða
sviptir veiðileyfi. Niðurstaða um-
boðsmanns Alþingis er enn ein viður-
kenning á því að við höfum haft
rétt fyrir okkur í þessu máli, og
haft rétt sem af okkur var tekinn.
Að sjálfsögðu ætlum við að sækja
þann rétt og fá að fullu viðurkennd-
an, en verið er að kanna með hvaða
hætti það verður gert,“ sagði Örn
Pálsson.
Landssamband smábátaeigenda
lagði fram kvörtun til umboðsmanns
Alþingis 4. september síðastliðinn
vegna þeirrar túlkunar sjávarút-
vegsráðuneytisins á ákvæðum laga
um stjórn fískveiða, að smábátaeig-
endur hafi ekki heimild til að flytja
aflamark og aflahámark milli ára í
samræmi við 9. grein laganna. í
þeirri grein segir meðal annars að
heimilt sé að flytja allt að 10% af
aflamarki hverrar botnfisktegundar
og 10% af aflahámarki milli ára, og
heimilt sé að veiða allt að 5% um-
fram aflamark hverrar físktegundar
og 5% umfram þorskaflahámark
miðað við úthlutað botnfisksleyfi,
enda dragist sá umframafli frá við
úthlutun afla- og sóknarmarks
næsta árs á eftir.
Gaukur-Jörundsson, umboðsmað-
ur Alþingis, segir í áliti sínu að hann
telji ekki rétt að leggja þann skilning
í ákvæði laga um stjórn fiskveiða
að smábátaeigendur hafi ekki heim-
ild til færslu afla milli ára á ofan-
greindan hátt. Hann telur engan
veginn ljóst að ákvæði laganna um
sérreglur varðandi úthlutun veiði-
heimilda til smábáta geymi tæmandi
reglur um veiðar slíkra báta, og ef
það hafí verið ætlun löggjafans
við setningu laganna að útiloka
smábáta frá almennri heimild til að
flytja afla milli ára, þá hefði verið
eðlilegt að slík skerðing kæmi fram
í lögunum sjálfum, en svo sé ekki.
Gaukur segir að miðað við lögskýr-
ingu sjávarútvegsráðuneytisins geti
smábátaeigendur sætt upptöku afla
hvenær sem hann fer fram yfir út-
hlutað aflahámark, en aðrir hand-
. hafar veiðileyfa geti veitt 10% um-
fram aflamark eða aflahámark án
þess að sæta upptöku. í samræmi
við jafnréttis- og réttaröryggissjón-
arn)ið,.segist ha,nn álíta, að lögskýr-
ing sem leiði til slíks aðstöðumunar
verði að eiga skýra og ótvíræða stoð
í lögunum sjálfum, ekki síst vegna
þess að lögum samkvæmt eigi sjáv-
arútvegsráðuneytið sjálft að úr-
skurða hvort um ólöglegan sjávar-
afla sé að ræða.
í niðurstöðu Gauks Jörundssonar
segir að hann telji hvorki orðalag,
efni, forsögu né framsetningu lag-
anna um stjórn fiskveiða geta leitt
til þeirrar niðurstöðu, að eigendum
smábáta sé óheimilt að flytja afla
milli ára í samræmi við ákvæði 9.
greinar laganna, og engu máli breyti
þótt afiahámarki báta undir 10
brúttólestum sé úthlutað í þorsk-
ígildum, en það ekki bundið við
ákveðið hlutfall af aflamarki hverrar
botnfísktegundar. Hann telji því að
eigendur báta undir 10 brúttólestum
hafi mátt stunda botnfiskveiðar
sínar í trausti þess að þeir hefðu
heimild til flutnings aflamarks milli
ára í samræmi við ákvæði laganna,