Morgunblaðið - 22.07.1990, Blaðsíða 32
32
MORGUKBLAÖIÖ MINNINQAR ÖUNNODAÖtJR m JOLÍ
v
t
Syatir mfrt,
ELÍN TÓMA8Dórrmt
aenrt andaðíst 15. þ.m., verður jarðBdhðín frá Bustaðakírkju mánu-
aagiirtn 23. júlí kl. 13.30.
Vigfús Tómassön.
rV*
1>
t
Eiginmaður minn, faðir og fósturfaðir,
HALLDÓR VIGFÚSSON
rafvirkjameistari,
Smiðjuvegi 19,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 24. júlí, kl.
13.30.
Guðrún Sigurðardóttir,
Margrét Halldórsdóttir,
Sigrún Alda Michaelsdóttir,
Bragi Michaelsson,
Snorri G. Tómasson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORSTEINN GUNNARSSON
frá Fornusöndum,
Tunguseli 1,
Reykjavík,
sem lést í Landspítalanum þann 16. júlí, verður jarðsunginn frá
Áskirkju þann 25. júlí kl. 15.00.
Bergþóra Magnea Haraldsdóttir,
Sigurður Elías Þorsteinsson,
Guðbjörg Þorsteinsdóttir,
Hómfríður Lára Þorsteinsdóttir,
Guðrún Þorsteinsdóttir,
Haraldur Þorsteinsson, Hulda Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
ODYRT
Flug og bíll í
Þýskalandi aðeins kr.
25.875,-* í 1 viku.
Vegna hagstæðra samninga
getum við boðið upp á
flug og bíl í 1 - 4 vikurtil
Dusseldorf og/eða Stuttgart
Þú getur valið um flug og bíl
flug og hótel - flug og gistihús
flug og tjald - flug og húsbíl.
* (miðað við 4 fullorðna I bll.)
Kari q i
Bankastræti 2, Sími: 62 71 44
Minning:
Karl J. Ólafsson
Þriðjudaginn 10. júlí sl. íór fram
útför svila míns og vinar, Karls
Jóhanns Ölafssonar, en hann lést í
Vífilstaðasþítala 29. júhí, e'ftír erf-
iða en hetjulega baráttu.
Karl fæddist í New York 24.
október 1925 og hlaut nafníð Evert
Wílliam. Eoreídrar hans voni
sænskir intiflytjendur, Karl Jóhann
Olson og Emmy Claudia. Karl var
næst elstur þriggja systkina. 4 ára
flyst hann til Svíþjóðar og er þar
til 12 ára aldurs hjá afa sínum og
ömmu, er hann flyst aftur til Banda-
ríkjanna og líkur skólagöngu sinni
þar. Fljótlega eftir að hann hóf
skólagöngu vestra fékk hann við-
urnefnið Swede (Svíinn), sjáfsagt
vegna uppruna síns og ljóss yfir-
bragðs. Var hann aldrei nefndur
annað í fjölskyldu og vinahópi.
Þegar Swede er 18 ára er hann
kvaddur til herþjónustu, sem hann
gegnir í þtjú ár. Árið 1948 kemur
hann til Islands til starfa hjá Lock-
head-flugvélaverksmiðjunum á
Keflavíkurflugvelli. Árið 1950 fer
Swede að vinna hjá fjarskiptadeiid
hersins. Vegna starfa sinna þar
hafði Swede mikil samskipti við
Veðurstofu íslands en þar kynntist
hann eftirlifandi konu sinni sem þar
starfaði, Ragnheiði Guðmundsdótt-
ur. Þau gengu í hjónaband árið
1952. Þau eiga 4 börn saman. Elst-
ur þeirra er Karl Friðrik, kvæntur
Sigríði Jóhannsdóttur. Lilja Britta
gift Elíasi H. Snorrasyni, Kristin
Erla gift Pierre Seres og Eva gift
Ellerti A. Ingimundarsyni. Einnig
ólu þau upp son Ragnheiðar, Krist-
jón Haraldsson en kona hans er
Gerður Berendsen. Bamabömin em
orðin 7.
Swede gegndi ýmsum störfum
fyrir herinn, lengst hjá flutninga-
deild hans. Eftir að störfum hjá
hemum lauk vann hann ýmis störf
í Reykjavík, lengst af á skrifstofu
A.J. Bertelsen. Árið 1967 gerist
Swede íslenskur ríkisborgari og
tekur upp nafn föður síns og ís-
len8kar það og heitir þá Karl Jó-
hann Ólafsson. Ólíkt mörgum út-
lendingum gekk Swede ríkt eftir
að íslenska nafnið væri notað og
nefndi sig aldrei annað en Karl.
Honum þótti vænt um landið og
naut samvista við náttúru þess og
var íslenskari í háttum en margur
innfæddur. Árið 1969 stofnar
Swede sitt eigið fyrirtækí á því
sviði sem hann þekkti manna best,
pökkunar; og flutningafyrirtækið
Icepack, íslenska pökkunarfélagið.
Starfaði hann að því með elju og
dugnaði og naut til þess góðs stuðn-
ings fjölskyldu sinnar. Vinna Ragn-
heiður og dætur hans þq'ár við fyrir-
tækið, sem nú hefur slóran hóp
manna í vínnu.
Þegar horft er til baka yfír ævi-
feril Swede, má sjá að haún er um
margt óvenjulegur. Vegna fátækfer.
,í kreppuhni >mildu,'«r Hán'A asamt
eldri bróður sínum sendur í fóstur
til afa síns og ömmu í Svíþjóð. Þá
er hann, eins og áður er getið, að-
eins 4 ára gamall. Það hlýtur að
hafa verið þungbær reynsla fyrir
hann og fjölskyldu hans. Ég kynn-
ist Swede á árinu 1959 þegar ég
var að gera hosur mínar grænar
fyrir mágkonu hans, núverandi
konu minni. Þá vakti strax athygli
mína kurteisi hans og hlýlegt við-
mót. Einnig einstök snyrtimennska
og smekklegur klæðaburður.
Seinna kynntist ég ánægju hans
af fallegum hlutum, enda ber heim-
ili þeirra Rögnu og Swede þess ljós-
ast vitni. Þau hafa alltaf verið mikl-
ir höfðingjar heim að sækja og
minnist ég margra góðra stunda
með þeim. Þótt Swede hefði opna
og hlýja framkomu, flíkaði hann
ekki tilfínningum sínum. Hann var
hreinskiptinn í viðskiptum og ætlað-
ist til hiús sama af öðrum. Kímni-
gáfu hafði hann í tíkum mæli og
þegar sá gállin var á honuhi var
hann manna skemmtilegastur.
Margs er að minnast þegar séð
er á bak góðum dreng. Öpp í hug-
ann kemur mihningih um allar
skemmtílegu vieiðiferðirnar sem víð
fórum í Vatnsdalinn með honum,
fjölskyldu hahs og mörgum góðum
vinum okkar. Swede var góður
’ stangveiðímáður, og' naut þess að
dvelja við fagra veiðiá í félagi góðra
vina. Golf stundaði hann á árum
áður og var vel liðtækur í þeirri
íþrótt. Seinni árin fækkaði veiði-
ferðum Swede. Hann var ekki eins
hraustur og áður, en hann fylgdist
með okkur gömlu vieðifélögunum
af áhuga og gladdist með okkur ef
vel gekk. Það lýstir vel löngun hans
til náttúrunnar og nýrra ævintýra,
að þegar ég heimsótti hann á Vífils-
staðaspítala þremur dögum áður
en hann dó, sagði hann við mig
með kímni í bláum augunum og
horfði útá djúpblátt Vífílsstaða-
vatnið: „Þú og Geiri ættuð nú að
taka nokkur köst við vatnið fyrir
mig, svo ég geti séð til ykkar“.
Því miður gat ekki orðið af því.
Rögnu og fjölskyldu hennar færi
ég okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Marteinn Viggósson
Pálína K. Guðjóns-
dóttir - Minning
Fædd 29. desember 1925
Dáin 2. júlí 1990
Hinn bjarti dagur dvínar,
en dimman þokast nær:
í hjálpar hendur þínar,
vor herra Jesú kær,
vér viljum fúsir falla,
í friði hvíld oss bú:
Vér felum oss þér alla
í elsku von og trú.
(Þ.Þ.)
Með þessum orðum vil ég minnast
elskulegrar vinkonu minnar, Pálínu,
en hún var gift föðurbróður mínum,
Runólfí Elínussyni.
Pálína var elst þriggja dætra hjón-
anna Magnúsínu Jóhannsdóttir og
Guðjóns Helga Kristjánssonar.
Systur Pálínu eru Rósa og Erla.
Það er útilokað að skrifa um allar
góðu minningar sem maður á um
Pálínu, svo ég ætla bara að stikla á
stóru í þessari grein.
Pálína giftist manni sínum, Run-
ólfi Elínussyni, fyrir tæpum fjörutíu
t
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaðir, afi og langafi,
KARL ÓLAFSSON
frá Vestmannaeyjum,
Hraunbæ 102a,
sem lést 13. júlí, veröur jarðsunginn frá Fossvogskapellu mánu-
daginn 23. júlí ki. 13.30.
Guðlaug Gunnarsdóttir,
Gunnar Karlsson, Ásgerður Þórðardóttir,
Guðrún D. Karlsdóttir, Sigurjón Magnússon,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Alúðarþakkir flytjum við öllum þeim, sem ó margvíslegan hátt
heiðruðu minningu föður, tengdaföður og afa okkar,
HJÁLMARS GUNNARS STEFÁNSSONAR,
Safamýri 57.
Marfa H. Hjálmarsdóttir, Ágúst Þorsteinsson,
Ingibjörg U. Hjálmarsdóttir, Lars Holm,
Edda E. Hjálmarsdóttir, Sigmar Sigurösson
og barnabörn.
LEGSTEINAR
GRANÍT - MARMARI
Helluhrauni 14, 220 Hafnafjörður,
pósthólf 93, símar 54034 og 652707.
árum. Pálína kynntist honum á
Vífilsstöðum, þar sem þau voru bæði
sjúklingar.
Hjá þeim ólst upp Sigurhanna
Óladóttir, dóttir Pálínu, einnig átti
hún son, Óla Inga, en hann var ætt-
leiddur.
Sigurhanna giftist dönskum
manni að nafni Max og áttu þau
þtjú börn saman. Elst þeirra er Run-
ólfur Hilmar, svo Aníta og yngst er
Pálína Benedikta.
Sigurhanna hefur búið í Birkirod
í Danmörku síðastliðin tuttugu ár
og börn hennar búa einnig í Dan-
mörku.
Síðasta sumar kom svo Pálína
nafna hennar í heimsókn til íslands
ásamt unnusta sínum og bjuggu þau
hjá Pálínu og Runólfí. Gladdi það
Pálínu ákaflega mikið, en Aníta kom
núna í sumar ásamt sínum unnusta
°g bjuggu þau líka hjá Pálínu og
Runólfi.
Pálína starfaði mikið fyrir Sjálfs-
björgu, fyrir hver jól unnu þau hjón-
in bæði mikið við að safna dóti á
hinn árlega jólabasar Sjálfsbjargar,
einnig vann hún á basamum sjálfum.
Og alltaf er Sjálfsbjörg gaf út happ-
drættismiða þá voru þau hjónin bæði
við að selja þessa miða.
Hún var alla tíð boðin og búin að
hjálpa þeim sem til hennar leituðu,
enda mjög greiðvikin kona.
Oft hef ég komið í matarveislu til
þeirra hjóna og var maturinn alveg
frábær, enda var hún listagóður
kokkur.
Ég sendi Runólfi mínar innilegustu
samúðarkveðjur. Ennfremur dóttur
og syni hennar, barnabörnum, systr-
um og öðrum skyldmennum.
Ragna Kristín Guðmundsdóttir