Morgunblaðið - 22.07.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ
11
Meðalþyngd Hámarks- "Meöalveiöi Hlutfall
ípundum_____________fjöldi stanqa__________á stönq á dao" smálaxa : stórlaxa
r—-n. s 1. Laxá í Kjós og Bugöa Ck Elliöaár J 3. Laxá í Aöaldal f 4. Þverá og Kjarrá ? 2.133 j 1.773 1.619 1.372 6,49 4,34 9,60 6,92 12 6 18 14 1,93 3,21 0,98 1,07 anididAd . öiui idAd 3.3 :1 25,4 :1 0,8:1 2.4 :1
5. Grímsá og Tunguá 1.200 5,92 12 1,09 5,0:1
\__6D(æ^ í Leirársveit 1.186 5,54 7 1,84 4,7:1
7. Miöfjaröará 1.175 8,70 10 1,28 0,7:1
8. Laxá í Dölum 1.006 7,74 7 1,56 1,6 :1
9. Víöidalsá og Fitjá 927 10,34 8 1,26 0,5:1
10. Selá 895 7,23 7 1,39 1,8 :1
11. Noröurá 867 6,00 15 0,63 2,5:1
12- Hofsá 809 7,51 7 1,26 1,5:1
13. LaxáíÁsum 749 6,25 2 4,07 4,5:1
14. Langá 748 5,47 12,5 0,65 5,5:1
15. Ölfusá og Hvítá WKtiík , 680 6,90 =40 0,18 3,2:1
júní). Það er engin ástæða til að
örvænta yfir þessum hressilegu
prísum. Laxveiðileyfi má fá fyrir
allt niður í 3.000 krónur á stöng á
dag, en algengt verð er milli 5 og
20 þúsund samkvæmt verðskrá
Stangaveiðifélags Reykjavíkur.
Til gamans má geta að slegið
hefur verið á að verð hvers landaðs
lax sé á bilinu 10 til 12 þúsund
krónur þegar litið er á meðaltalstöl-
ur og það eru mjög fáir, ef einhveij-
ir, sem veiða fyrir leyfunum sínum.
Erfítt er að fá uppgefið verð á
veiðileyfum í ám sem einkaaðilar
hafa á leigu. Hér eru engar verð-
skrár gefnar út og ekki hægt að
slá upp í símaskránni og hringja.
Því hefur þó verið fleygt að útlend-
ingar borgi allt að 150-200 þúsund
krónur fyrir daginn í vissum ám,
og oft er eina leiðin fyrir íslendinga
að komast í ána sú að taka léle-
gustu dagana í byijun og enda tíma-
bils fyrir lægri upphæð. Þeir er-
lendu laxveiðimenn sem hingað
sækja eru aðallega ríkir kaupsýslu-
menn sem vilja hafa hljótt um sig
og eru hingað komnir til að njóta
náttúrunnar og útiverunnar óáreitt-
ir.
Aðbúnaður
Langflestar ár hafa yfir að ráða
veiðihúsum með mismikilli aðstöðu
og útbúnaði fyrir veiðimenn. Hér
má finna allt frá húsum með heitum
potti og niður í hjólhýsi utan um
veiðibókina sem öllum er skylt að
skrifa í, og fýlgir þessi þjónusta
með í verði veiðileyfanna. Mörg
húsin bjóða upp á fullt fæði, og
raunar er það einnig innifalið í
verði veiðileyfa í sumum ám. Skipt-
ir þá engu hvort veiðimaðurinn á
stutt heim eða ekki.
Tól og tæki
Laxveiðum fylgir eðlilega nokkur
sérútbúnaður en því fer fjarri að
allar græjur þurfi að vera af bestu
og dýrustu gerð, reynslan hefur
sýnt að þeim stóra er alveg sama
um það. í Veiðimanninum fengust
upplýsingar um tól og tæki sem
ættu að nægja til að koma byijend-
um af stað: (Sjá töflu.)
Þegar við þetta bætist gamla
lopapeysan, fingravettlingamir og
lambhúshettan er fátt sem stendur
í vegi fyrir nýbökuðum laxveiði-
manni að hefja leikinn. Þess má og
geta að fært er venjulegum fólksbíl-
um á flesta veiðistaðina, svo það
er misskilningur að nauðsyn sé að
eiga jeppa til ferðainnar.
Hvar á að byija?
En hvert eiga áhugasamir að
snúa sér þegar ákvörðunin hefur
verið tekin og allar afsakanir og
Klofhá stígvél ......... 4.000
Veiðistöng ............. 6.000
Hjól ................... 5.000
10 spúnar ............ 3.000
Önglar og sökkur....... 1.000
Lína ................... 1.000
Háfur .................. 2.000
Veiðitaska.............. 3.000
Samtals................ 25.000
átyllur til frestunar brotnar á bak
aftur? Við byijendum horfir senni-
lega vænlegast að hafa samband
við næsta stangaveiðifélag og ger-
ast þar félagsmenn. I flestum
stærri byggðarlögum eru starfandi
stangaveiðifélög sem geta hjálpað
til að stíga fyrstu sporin í þessum
efnum.
Reykvíkingar geta t.a.m. snúið
sér til Stangaveiðifélags Reykjavík-
ur, sem í eru um 2.200 félagsmenn
samkvæmt upplýsingum frá Friðrik
Stefánssyni, framkvæmdastjóra.
Innritunargjald er 15.000 krónur
og ársgjald 3.300 krónur. Veitir
þetta mönnum aðgang að þjónustu
félagsins, svo sem forkaupsrétt
veiðileyfa í þeim ám sem félagið
hefur á leigu, áskrift að Veiðimann-
inum, sem á hálfrar aldar afmæli
á þessu ári, og Veiðifréttum auk
kastæfinga í samvinnu við Kast-
klúbb Reykjavíkur. Yfir vetrartím-
ann eru svo haldin fræðsluerindi
og samkomur þar sem veiðimenn
skiptast á skoðunum og veiðisögum
til að halda sér við efnið þá átta
mánuði ársins sem engar ár eru
opnar.
Ekki er nauðsynlegt að vera fé-
lagi í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur
til að kaupa veiðileyfi í ám þess og
ÚTSALA HEFST 18. JÚLÍ N.K. 30-50% AFSLÁTTUR
ÞÚERTÖRUGG
í RODIER
KRINGLUNNI 4 SIMI 678055