Morgunblaðið - 22.07.1990, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.07.1990, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ T ÁÆTLAÐ AÐ „NEÐANJARÐARHAGKERFIÐ" VELTI 20 MILLJÖRÐUM KRÓNA i ÁR: YSK stoppar í sum skattagöt ■ Tekjutap ríkissjóðs áætlað rúmir 4 milljarðar króna ■ Góð innheimta á VSK bendir til að nótulaus viðskipti hafi numið milljörðum á ári hverju H Engar tillögur nefndar um úrbætur í skattaeftirliti 1 98ó hafa enn komið til framkvæmda ■ Stöðugildi hjá skattrannsóknarstjóra jafnmörg nú og þau voru 1 985 þrátt fyrir að framteljendum hafi fjölgað um 13.000. ■ Skattsvikamál upp á 55 milljónir afgreitt á þessu ári frá skattrannsóknarstjóra eftir Friörik Indriðason/grafík Andrés Magnússon AÆTLAÐ er að „neðanjarðarhagkerfið" hér á landi, eða dulin efnahagsstarfsemi, muni velta um 20 milljðrðum króna á þessu ári. Talan er ekki nákvæm en frá árinu 1986 hefur verið talið að veltan í þessu kerfí sé 6% af landsframleiðslu sem í ár verður 338 milljarðar króna. Tekjutap ríkissjóðs af þessari veltu í formi glataðra skatta er varlega áætlað rúmir 4 milljarðar króna og svo virðist sem stjórnvöld hafi á undanfornum fjórum árum haft litinn áhuga á að ná í nokkuð af þessum tekj- um. Árið 1985 vann nefnd á vegum fjármálaráðherra skýrslu um neðanjarðarhagkerfið og var skýrslan kynnt á Alþingi í apríl 1986. Yakti hún mikla athygli á sínum tíma og umræðu um þessi mál í þjóðfélaginu. í skýrsl- unni var m.a. að finna tillögur til úrbóta í skattamálum, þar á meðal tillögur um eflingu skattaeftirlits í fimm liðum. Engin af þessum tillögum hefur enn komið til framkvæmda. Segja má að tilkoma virðisaukaskatts (VSK) sé mikil úrbót í þá átt að einfalda skattakerfið og gera það skilvirkara. VSK virðist hafa tekist vonum firamar og er innheimta ríkissjóðs af þessum skatti nokk- uð meiri en áætlað hafði verið. Á fyrstu tveimur mánuð- um þessa árs komu þannig um 7 milUarðar króna í kass- ann í gegnum VSK en á sama tímabili í fyrra skilaði söluskatturinn 3,7 milljörðum í ríkiskassann. Þessa tvo skatta er þó alls ekki hægt að ieggja að jöfnu en mismun- urinn þarna á milli bendir m.a. til að nótulaus viðskipti hérlendis nemi nokkrum miiyörðum króna á ári. sem Þeir Milljónir króna 250 náðust Tíl hægri sést hverju embætti Skattrann- sóknastjóra hefur skilað í kassann undanfarin fimm ár. veltan0 Talið er að neðanjarðar- hagkerfið nemi a.m.k. 6% vergrar landsframleiðslu og missir Ríkissjóður því af feitum bita. Til hægri sést velta íslenska neðanjarðar- hagkerfisins undanfarin fimm ár og spá fyrir 1990. Gengið er út frá því að veltan sé 6% vergrar landsfram- leiðslu og er þá ekki tekið tillit til breyttra aðstæðna eins og skattkerfisbreytinga. 15 10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.