Morgunblaðið - 22.07.1990, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C
164. tbl. 78. árg.
SUNNUDAGUR 22. JULI
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
Dyttað að báti úti á Granda
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Eyrbítur geng-
ur laus í Brussel
Brussel. dpa.
DRYKKJUMAÐUR brást illa við er bar-
stúlka neitaði honum um frekari af-
greiðslu á krá í Brussel á fimmtudags-
kvöld. Að sögn lögreglu varð hinn ölóði,
sem sagður er 37 ára gamall karlmaður,
svo illur er stúlkan neitaði honum um
kollu til viðbótar að hann lamdi hana og
beit síðan af henni annað eyrað. Að því
búnu tók hann til fótanna og var ekki
kominn í leitirnar er síðast fréttist. Stúlk-
an var flutt á sjúkrahús þar sem læknum
tókst að sauma eyrað aftur á hana.
Rose Kennedy
100 ára gömul
Daily Telegraph.
ÆTTMÓÐIR
Kennedy-Qölskyld-
unnar í Banda-
ríkjunum, Rose
Kennedy, verður
hundrað ára í dag,
sunnudag. Af sjö
börnum hennar og
auðkýfingsins Jos-
ephs Kennedys féllu
tvö fyrir morðingjahendi, John F.
Kennedy, Bandaríkjaforseti, var myrtur
í Texas 1963 og bróðir hans, Robert
öldungadeildarþingmaður, í Los Angeles
1968. Rose Kennedy innrætti börnum
sínum samheldnina sem einkennt hefúr
fjölskylduna og stjórnaði heimilislifinu
af myndugleika, flengdi óþekktarorma
með herðatré þegar þörf krafði. Hins
vegar forðaðist hún ávallt sviðsljósið,
ólíkt öðrum í ljölskyldunni. Heilsu henn-
ar hefur hrakað mjög síðustu árin en
hún er þó með fullri rænu. Eitt barna-
barnanna spurði fyrir skömmu hvort
henni fyndist ekki spennandi að verða
hundrað ára. „Nei, ég vildi ég væri orð-
in sextán," var svarið.
Fyrstu ftjálsu kosningarnar í sögu Mongólíu:
Kommúnistar sigurstrang-
legir og boða einkavæðingu
Israelar mót-
mæla „Múmum“
Tel Aviv. dpa.
SU ákvörðun israelska sjónvarpsins að
sýna beint frá „Múrnum", tónleikunum
í Berlín á laugardagskvöld í tilefni af
hruni Berlínarmúrsins, sætti harðri
gagnrýni á ísraelska þinginu. Einn af
hörðustu andstæðingum útsendingarinn-
ar var Dov Shilansky, forseti þingsins,
sem var í útrýmingarbúðum nasista í
heimsstyrjöldinni síðari. Hann er andvíg-
ur stjórnmálasambandi Israels við
Þýskaland og hefur neitað að heilsaþýsk-
um gestum þingsins. „Israelsríki hefur
snúist öndvert gegn sameiningunni en
nú ríkir gleði. Hvað veldur allri þessari
gleði?“ sagði Shilansky.
HELMUT KOHL
KANZLARI
VESTUR-
ÞÝSKALANDS
14
_
Ulan Bator. Reuter.
KOMMÚNISTAFLOKKURINN í Mongólíu er talinn sigurstranglegur í fyrstu frjálsu
kosningunum í sögu landsins, sem heQast í dag, sunnudag. Hins vegar má búast við
að stjórnarandstæðingum vaxi ásmegin og forystumenn kommúnista hafa þegar látið
nokkuð undan síga. Þeir hafa orðið við æ háværari kröfum um lýðræði og frjálsræði
í efnahagsmálum, boða meðal annars lög sem heimila einkarekstur og ihuga sölu á
r íkisfy r irtækjum.
Helmingur Mongólíumanna, sem eru um
tvær milljónir, hefur rétt til að greiða
atkvæði í kosningunum, sem fara fram í
tveimur umferðum og verður sú síðari að
viku liðinni. Þing landsins hafði orðið við
kröfum umbótasinna utan og innan komm-
únistaflokksins um að alræðisvald hans yrði
afnumið.
„Þjóðfélag okkar verður að breytast, við
getum ekki haldið áfram á sömu bráut,“
sagði Kinayat Zardykhan, aðstoðarforsætis-
ráðherra landsins. Einkafyrirtæki eru enn
bönnuð með lögum í landinu en þó hafa fjög-
ur fyrirtæki fengið undanþágu á undanförn-
um mánuðum. Zardykhan sagði að einka-
rekstur yrði heimilaður eftir kosningarnar,
ríkisfyrirtæki, sem rekin eru með tapi, yrðu
að öllum líkindum seld og til greina kæmi
að erlend fyrirtæki fengju að kaupa þau.
Meðal stjórnarandstæðinga er sundur-
þykkja en þeir hafa gagnrýnt fyrirkomulag
kosninganna og sakað kommúnista um
valdníðslu. Þeir segja að kommúnistaflokkur-
inn fái meira fé en aðrir og hafi meiri að-
gang að fjölmiðlum, auk þess sem valdastofn-
anir geri allt til að tryggja sigur hans. Flokk-
urinn nýtur mikils stuðnings á meðal hirð-
ingja en stjórnarandstæðingar sækja fylgi
sitt til unga fólksins og menntamanna í þétt-
býli.
Mongólía er næstelsta kommúnistaríki
heims, á eftir Sovétríkjunum, og hefur komm-
únistaflokkurinn haft alræðisvöld i landinu
frá því það var stofnað árið 1921.