Morgunblaðið - 22.07.1990, Blaðsíða 5
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ
5
Reuter
Vetrartískan kynnt
í París, háborg tískunnar, eru fatahönnuðir nú í óðaönn að kynna
tískufatnað næsta vetrar. Meðal þess sem sýningarstúlkur Philippe
Venets sýndu í fyrradag var þessi kóbaltbláa rúskinnskápa sem
skreytt er með upphleyptu guilmynstri. I hettunni og ermalíningunum
er dýrafeldur.
Gróðureldar ógna
gassvæðum í Síberíu
Moskvu. DPA.
BORGINNI Nadym í vesturhluta Síberíu stafar hætta af gróðureld-
um sem loga á 25 stöðum í nágrenni borgarinnar. Einnig eru
gasvinnslustöðvar í hættu, að sögn TASS-fréttastofunnar.
Níkolaj Kovrígín borgarstjóri
sagði í samtali við TASS i
gær að öllum ráðum væri beitt til
þess að reyna að koma í veg fyrir
að eldarnir komist að gasleiðslum
og bæjum og þorpum á Nadym-
svæðinu.
Hitabylgja hefur geysað í
Síberíu að undanförnu og telst það
til tíðinda þar um slóðir. Eldarnir
kviknuðu af þeim sökum og breið-
ast um skóga og gresjur. Eru um
7.000 hektarar gróðurlendis nú
þegar sviðin jörð. Ekki er búist
við úrkomu næstu vikuna og eru
Síberíumenn vanbúnir af tækjum
til að beijast við elda af þessu tagi.
Sovétríkin:
Fyrirmenn grafiiir
í lúxuslíkkistum
Moskvu. Daily Telegraph.
SOVÉSKIR líkkistusmiðir afhjúpuðu eitt af best varðveittu
leyndarmálum stéttar sinnar á fyrir skömmu. Félagar í stjórn-
málaráðinu og aðalritarar kommúnistaflokksins fá sérstakar
lúxuslíkkistur þegar þeir falla frá.
essi lúxusgerð er tíu senti-
metrum lengri og sex senti-
metrum breiðari en líkkistur fyr-
ir almenning. Kisturnar verða
að vera úr gegnheilli furu og í
klæðninguna að innanverðu fara
um 20 metrar af rauðu ektasilki.
Blaðamaður hins vinsæla
tímarits Ogonjok fannst líkkist-
usmíði hálfskuggaleg atvinnu-
grein, en hann segist hafa hitt
fyrir „glaðværan hóp“ starfs-
manna þegar hann kom í heim-
sókn í líkkistuverksmiðju í
Moskvu. Nokkrir þeirra sátu á
einum smíðisgripnum og voru
að snæða nestið sitt.
Þeir voru hreyknir af starfi
sínu — og lúxuskistunum. „Þetta
eru mjög íburðarmiklir gripir,“
sögðu þeir, „og við smíðum þá
eingöngu ef við fáum fyrirskip-
anir um það frá ríkisstjórninni.
Þær eru fóðraðar innan með
yndislegu silki og það fara um
fjórar klukkustundir einungis í
klæðninguna,“ héldu þeir áfram,
„en í venjulegar kistur fara að-
eins um tíu mínútur og efnið er
ekki ýkja merkilegt." Lúxuslík-
kistur kosta sem svarar rúmlega
15.000 ísl. krónum, en venjulega
gerðin kostar rúmlega 8.000 kr.
Aðeins tveir menn utan stjórn-
málaráðsins hafa fengið lúxus-
kistur: Dr. Andrej Sakharov,
mannréttindafrömuður og nób-
elsverðlaunahafi, og Vladímír
Vysotskíj, vinsæll leikari og
söngvari.
Á haustdögum mun Samvinnuferðir-Landsýn gefa íslendingum færi á að komast í nána snertingu við það land
sem oft er kallað vagga vestrænnar menningar. Fyrstu 3 dagana verður dvalið í Kairo viö bakka Nilarfljóts þar
sem tignarleg fortíðog nútíðin tengjast saman á heillandi hátt. Gist verður á hinu frábæra 5 stjörnu hóteli Ramses
Hilton. Frá Kairo verður flogið til verslunarborgar-
innar Aswan, sem þekktust er fyrir eina stærstu stíflu
heims. Þaðan verður. haldið niður Níl í 7 daga sigl-
ingu á 5 stjörnu lúxusskipi. Komið verður í land á
hverjum degi og skoðaðar fornminjar sem eru þar
við hvert fótmál. - Við lofum ógleymanlegri ferð!
Siglingin endar í Luxor og þaðan ökum við til strand-
bæjarins Hurghada sem stendur við Rauðahafið.
Þar verður strandlíf stundað af miklu kappi í 5 daga
og síðan flogið til Kairo, dvalið þar 13 daga... og flog-
ið heim.
BROTTFARARDAGAR, VERÐ OG BÓKUNARSTAÐA
Haustferðin 1. sept. 17 dagar.
Reykjavik: Austurstræti 12. s 91 -691010. Innanlandsferöir. s. 91 -691070.
postfax 91 -27796. telex 2241. Hótel Sogu vió Hagatorg. s 91 -622277. póstfax 91 -623980
Akureyri: Skipagotu 14. s 96-27200. postfax 96-27588. telex 2195
FLUGLEIÐIR js misM
Samvinnuferöir - Landsýn
Verð 121.900 kr. á mann í tvíbýli. UPPSELT.
Fyrri aukaferð 23. sept. 16 dagar.
Verð 123.800 kr. á mann í tvíbýli. Örfá sæti laus.
Seinni aukaferð 20. okt. 16 dagar.
Verðl 34.600 kr. á mann í tvíbýli. Laussæti.
InnifaliJ í verði er flug og gisting i Kairo með morgunverði og
2 hádegisverðum, fullt fæði á skipinu og hálft fæði á Hurghada,
skoðunarferðir og íslenskfararstjórn.
Verð miðast við gengi 20. júni 1990 og er án flugvallarskatts.